Skessuhorn - 16.06.2004, Qupperneq 1
Afireks-
kona
Valdís Þóra Jónsdóttir,
ungur kylfingur á Akranesi
hefur skipað sér í sveit með
afrekskylfingum landsins.
Hún hefur eytt drjúgum
hluta af ævinni á Garðavelli
og er að uppskera eftir því.
Sjá bls. 14
24 ný
störf
Tuttugu og fjögur ný störf
skapast í Stykkishólmi við
það að beitukóngsveiðar
hefjast þar að nýju. I þessari
viku er verið að koma fyrir
átta þúsund gildrum í
Breiðafirðinum en sjálfar
veiðarnar hefjast í næstu
viku. Sjá baksíðu
Heilsu-
leikskófi
Síðastliðinn fimmtudag
var leikskólanum Garðaseli
á Akranesi veitt viðurkenn-
ing frá Lýðheilsustöð og
Landlæknisembættinu fyrir
störf að bættu heilbrigði,
íþróttum og hreyfingu með-
al barnanna. Sjá bls 5
Sigursælar
Skagastúlkur
Allt bendir til að
kvennaknattspyrna á Akra-
nesi sé á hraðri uppleið að
nýju eftir nokkra lægð síð-
ustu ár. Meistaraflokkur
kvenna er kominn til keppni
að nýju og byrjar með stæl
og yngstu knattspyrnukon-
urnar gerðu góða ferð til
Vestmannaeyja nú um helg-
ina. Sjá bls. 15.
Það var mikið um dýrðir í Borgar-
firði um helgina en þá var haldið
upp á tíu ára afmæli Borgar-
byggðar og Borgfirðingahátíð
haldin í fimmta sinn. Veðrið setti
sinn svip á hátíðina en það
gerðu einnig erlendir sagnamenn
og víkingaflokkur frá Akranesi. Á
myndinni má sjá víkingana á
stóðum þess eina og sanna vík-
ings, Egils Skallagrímssonar, en
þeir fengu sér morgunverð með
öðrum gestum í Skallagrímsgarði
og slógu þar upp búðum sínum.
Mynd: Helena
Stórhækkað matsverð á landi á Akranesi
Matsnefnd eignarnámsbóta
hefur kveðið upp úrskurð sinn
varðandi eignarnám Akranes-
kaupstaðar á landi Sýruparts á
Breiðinni á Akranesi.
Akraneskaupstaður falaðist
eftir landinu til að úthluta lóð
undir starfsemi Laugafisks sem
hafði áhuga á að byggja viðbót-
arhúsnæði undir starfsemi sína.
Samningar náðust ekki við
landeigendur og því var ákveð-
ið að beita eignarnámsrétti
sveitarfélagsins. Sérstök nefnd
á vegum ríkisins, Matsnefnd
eignarnámsbóta, hefur það
verkefni að meta verð á eign-
um sem teknar eru eignarnámi
og komst hún að þeirri niður-
stöðu að verð pr. fermetra skuli
nema 1.700 kr. En það þýðir að
heildarverð fýrir Sýruparts-
landið verður 9,2 milljónir
króna en matsmenn sem Akra-
neskaupstaður hafði leitað til
höfðu metið það á um 4 millj-
ónir.
„Matsmenn ríkisins telja að
það sé það mikið að gerast á
þessu svæði að verðmæti lands
hafi hækkað þetta mikið,“ segir
Jón Pálmi Pálsson bæjarritari
Akraneskaupstaðar. „Það er
vissulega jákvætt að mörgu
leyti þótt okkur þyki þetta hátt
verð að greiða í þessu tilfelli,“
segir Jón Pálmi.
Þess má geta að ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort
Akraneskaupstaður gengur að
þessum kaupum en bæjarstjórn
hefur mánaðarfrest til að fjalla
um málið.
GE
Allt til alls...
Stórmarkaður Hyrnutorgi
r4 iQW Hyrnutorg S. 430 5533
Opið mán.-fim. frá kl. 09-19
L \ föstudaga frá kl. 09-20
Eír laugardaga frá kl.10-19
BORGARN ESI | sunnudaga frá kl. 12-19
Góður kostur... www.kb.is