Skessuhorn - 16.06.2004, Blaðsíða 5
jniissunui..
MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI 2004
5
Markaðsdagar á Skaga
Ingibjörg Gestsdóttir, umsjónarmaður Viðburðaveisiu á Akranesi
ásamt foreidrum sínum, Gesti Friðjónssyni, sem kom frá Keflavík á
gamlar heimaslóðir til þess að spila á harmónikku fyrir markaðsgesti
og Nönnu Jóhannsdóttur, sem bauð upp á handunnar prjónavörur og
ýmislegt fteira.
Mikið var um að vera á Akranesi um liðna helgi. A
Safnasvæðinu að Görðum á laugardaginn opnaði Þórarinn
Helgason hamskeri sýningu á
uppstoppuðum dýrum í safna-
skálanum og alla helgina var
opinn markaður í stóru tjaldi
sem reist hefur verið á svæðinu.
A boðstólnum var meðal annars
handverk af ýmsu tagi, listmun-
ir og bækur. Ingibjörg Gests-
dóttir, sem hefur umsjón með
Viðburðarveislu á Akranesi í
sumar, lætur vel af aðsókninni
og segir fólk ekki hafa látið rok
og rigningu aftra sér frá því að
koma og gera reifarakaup. Ekki
spillti svo fýrir stemningunni að
Gestur Friðjónsson hélt uppi
stanslausu stuði með
harmónikkuleik í markaðstjald-
inu. ALS
Garðasel er heilsuleikskóli
Á grillhátíð sem ffam fór sl.
fimmtudag var leikskólanum
Garðaseli á Akranesi veitt viður-
kenning frá Lýðheilsustöð og
Landlæknisembættinu fýrir störf
að bættu heilbrigði, íþróttum og
hreyfingu meðal barnanna.
Það var Anna Björg Aradóttir
frá Lýðheilsustöð sem veitti Ing-
unni Ríkharðsdóttur leikskóla-
stjóra viðurkenninguna. Garða-
sel er þar með þriðji leiksólinn á
landinu sem má skilgreina sig
sem heilsuleikskóla. Áður hafa
leikskólar í Grindavík og Kópa-
vogi hlotið sambærilegar viður-
kenningar.
Við þetta tækifæri sagðist Ing-
unn Rikharðsdóttir vera í senn
stolt og ánægð með þessa viður-
kenningu. „Við höfum lagt
mikla áherslu á hreyfingu og
íþróttaiðkun og höfum t.a.m.
alla þessa viku verið með sér-
staka íþróttaviku. Þessi viður-
kenning undirstrikar áherslur
okkar og ég er stolt fýrir okkar
hönd og Akraneskaupstaðar sem
vissulega er íþróttabær," sagði
Ingunn í samtali við Skessuhorn.
Frá griiihátíðinni sl. fimmtudag
Anna Björg Aradóttir frá Lýðheilsustöð og Ingunn Ríkharðsdóttir leik-
skólastjóri á Garðaseli.
VIÐBURÐAVEISLA Á AKRANESI
I Kleinubakstur
i ™
íslandsmeistaramót í kleinubakstri Konur víðs vegar af landinu koma
verður haldið í annað sinn laugar- saman og keppa í kleinubakstri.
daginn 19. júní og bijrjar kl. 14. Gestir og gangandi fá að smakka og
geta lagt sinn eigin dóm á kleinurnar,
Keppnin verður haldin í tjaldi við en 5 manna dómnefnd sker síðan úr
Safnasvæðið á Akranesi. um það hver hreppir titilinn
Kleinumeistari drsins 2004
Safnasvæðið á Akranesi
Sími 431 5566 - Fax 431 5567 - Veffang: www.museumds
Netfang: museum@museum.is
Þvottabjörn kúrir á grein við innganginn í Maríukaffi, en Þórarinn
Helgason hamskeri opnaði um helgina sýningu á uppstoppuðum dýr-
um.
Hrönn Eggertsdóttir og Bára Jósefsdóttir voru hressar og öflugar í
sölumennskunni.
lbúar Borgarfjardarsveitar!
F orsetakosningar
26. júní 2004
Kjörskrá vegna forsetakosninga 26. júní nk. liggur frammi á skrifstofu
Borgarfjarðarsveitar,
Litla-Hvammi, Reykholti frá 16. júní nk. fram á kjördag.
Kjósendur em hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra em á kjörskrá.
Kjörfundur hefst laugardaginn 26. júní kl. 10.00
árdegis og lýkur kl. 20.00
Kosið verður í Kleppjárnsreykjaskóla
Yfirkjörstjórn mun á kjördegi hafa aðsetur í
Kleppjárnsreykjaskóla.
Símanúmer yfirkjörstjórnar verður á kjördegi 894 6368
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur
meðferðis persónuskilríki
getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.
Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Bjarni Guðmundsson formaður kjörstjórnar
kólaþjónusta J næfellinga
Forstöðumaður
Laust er til umsóknar starf forstöðumanns Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga. Um er að ræða
afleysingastöðu í eitt ár frá haustinu 2004.
Að Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga standa
sveitarfélögin Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit,
Snæfellsbær og Stykkishólmsbær.
Forstöðumaður hefur m.a. yfirumsjón með málefnum
barnaverndar og félagsþjónustu sveitarfélaganna og
þjónustu við leik- og grunnskóla á svæðinu.
Gerð er krafa um háskólamenntun af félags- eða
uppeldissviði auk kröfu um sjálfstæði, skipulagshæfni
og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir skuhi berast skriflega til Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4,
360 Snæfellsbær ekki síðar en 24.júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður
Guðmundsdóttir,forstöðumaður
í síma 430 7800.