Skessuhorn - 22.09.2004, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
^ntaaunu...
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500
Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098
Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Prentun: Prentmet ehf.
skessuborn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
ritsljori@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitl með
greiðslukorti. Verð i lausasölu er 300 kr.
433 5500
VerkM
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Þótt ég öfundi alla jafna ekki kenn-
ara sem þurfa að vinna vel rúmlega
tveggja stunda vinnudag rúmlega
hálft árið um hálfhring þá koma þeir
tímar engu að síður á átta ára ffesti
eða svo. Eg hef nefnilega engan áhuga á því að vera kennari en
kennari í verkfalli vildi ég gjarnan vera enda myndi það þjóna
hagsmunum mínum sem letihaugur afskaplega vel. Vandamál-
ið er að vísu það að ég er svo eðlislatur að ég er ekki viss um
að það sæist ýkja mikill munur þótt ég færi í verkfall, en það
er önnur saga.
Þrátt fyrir að ég vildi gjarnan vera kennari í verkfalli er ekki
þar með sagt að ég hafi samúð með kennurum í verkfalli. Oðru
nær. Mér þykir það fast að því ósmekklegt að vega að hags-
munum barna í þágu kjarabaráttu á sama hátt og mér finnst
það lúalegt þegar heilbrigðisstéttir beita velferð sjúklinga fyrir
sig í sínu launastríði. Það er ekki hægt að jafna kjarabaráttu
þessara stétta saman við sambærilegt karp hjá mörgum öðrum
þar sem hráefnið sem þeir vinna með í sínu starfi er annars eðl-
is en flest annað. Það má taka sem dæmi að í verkfalli mjólkur-
fræðinga hafa bændur orðið að sturta mjólkinni út í skurð en
það hentar ekki í verkfalli grunnskólakennara.
A hinn bóginn verður að spila effir þeim leikreglum sem eru
í gildi ekki síður en í knattspyrnu t.d. þó svo að þar finnist mér
mörkin yfirleitt of lítil fyrir mína sparkfimi og völlurinn full
langur fyrir mitt úthald þá sætti ég mig við það. A sama hátt
verðum við að sætta okkur við að kennarar fara í verkfall um
leið og komið er nóg í verkfallssjóðinn. Því finnst mér ekki við
hæfi að bankastofnanir og fleiri fyrirtæki skuli nýta sér þetta
óffemdarástand sem markaðstæki. I stað þess að auglýsa
lægstu vexti á hverjum tíma þá keppast fjármálastofnanir um
það hver bíður upp á bestu og flottustu barnapíurnar fyrir
starfsfólkið. Ekki það að ég hafi svo sem sérhæft mig í starfs-
mannastefnu þessara fyrirtækja en það hefur allavega ekki far-
ið mjög hátt fram að þessu að bönkunum hafi verið sérstaklega
umhugað um börn sinna starfsmanna í jólafríum og sumarfrí-
um skólanna. Sjálfsagt er þetta löglegt en hinsvegar fast að því
siðlaust. Hverjum er hinsvegar ekki sama um það í dag?
Það má því að vissu leyti hafa skilning á móðursýki verk-
fallsvarða Kennarasambandsins sem skakka leikinn þar sem
reynt er að hafa ofan af fyrir börnunum á þeim forsendum að
hver sem gefur sig á tal við krakkagreyin gæti verið að laum-
ast til að kenna þeim eitthvað. Astandið er því orðið þannig
strax í upphafi verkfalls að þar sem tvö börn koma saman þar
er hætta á verkfallsbroti.
Með óskum um ánægjulegt verkfall.
Gísli Einarsson, Ijúflingnr.
Pétur Jónsson og Kristján Ingi Pétursson tóku fyrstu skóflustungurnar
að öðru húsinu en Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti að hinu. Á milli
feðganna stendur Svava Sjöfn Kristjánsdóttir (yngri).
Framkvæmdir hafiiar
við Sóltún
Þann 4. september sl. voru
fyrstu skóflustungumar teknar
að tveimur nýjum parhúsum á
Hvanneyri í nýjasta hverfi stað-
arins; Sóltúni. Það er P.J. bygg-
ingar ehf. sem byggir húsin, en
einingar í þau koma frá Smell-
inn á Akranesi. Húsin verða
bæði með tveimur fjögurra her-
Stjórn Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi fundaði í síðustu
viku og þar voru samgöngumál
meðal annars á dagskrá.
Stjórnin samþykkti meðal ann-
ars eftirfarandi ályktun:
„Stjórn SSV telur það brýnt
vegna aukinnar þungaumferð-
ar og umferðaröryggis að þeg-
ar verði hugað að uppbygg-
ingu þjóðvegar 1 frá Kjalarnesi
að Holtavörðuheiði. Ennfrem-
ur fagnar stjórn SSV umræð-
um um framkvæmdir við
Sundabraut upp á Kjalarnes
sem eru byggðum á norðvest-
urhluta landsins mjög mikil-
vægar.“
bergja íbúðum, alls um 150 fer-
metrar hver íbúð með bílskúr-
um. Framkvæmdir eru hafhar
og er gert ráð fyrir að ljúka þeim
í vetur en húsin verða boðin til
sölu fljódega. Það er Omar Pét-
ursson byggingafræðingur sem
teiknaði húsin.
I samtali við Skessuhorn
sagði Asthildur Sturludóttir
framkvæmdastjóri SSV að með
þessari yfirlýsingu vildi stjórn
SSV leggja áherslu á mikilvægi
tvöföldunar þjóðvegar alla leið
upp á Holtavörðuheiði sem og
lýsa yfir stuðningi sínum við
Sundabraut alla leið upp á
Kjalarnes. „Það er sérstaklega í
ljósi aukinnar þungaumferðar
og umferðaröryggis á svæðinu
og íbúaþróunar sem stjórn
SSV sér ástæðu til að leggja
sérstaka áherslu á þennan
hluta vegakerfisins," segir Ást-
hildur.
GE
Ingþór í
íþróttabúð
Dregið hefur verið í á-
skriftarleik Skessuhorns fyr-
ir septembermánuð. I leikn-
um eru allir skuldlausir á-
skrifendur blaðsins á út-
dráttardegi. Að þessu sinni
kom upp úr hattinum nafn
Ingþórs Friðrikssonar í Bor-
arnesi og fær hann í vinning
gjafabréf í versluninni Ozo-
ne við Kirkjubraut á Akra-
nesi. Til hamingju með
þetta Ingþór! MM
Akvörðun um
umdeilda
jarðasölu ligg-
ur ekki fyrir
Ekki liggur enn fyrir
hvort verður af sölu Borgar-
byggðar á jörðinni Grenjum
á Mýrum en fyrir liggur
viljayfirlýsing Borgarbyggð-
ar og Sparisjóðs Mýrasýslu
um makaskipti á Grenjum
og húsakosti Borgameskjöt-
vara í Brákarey. I sumar
mótmælti afréttarnefnd
Alftaneshrepps harðlega fyr-
irætlunum Borgarbyggðar
um sölu á Grenjum. Rök af-
réttarnefndarinnar gegn söl-
unni vom þau að verið væri
að vega að sauðfjárbúskap á
Mýrum með því að skerða
afréttarland sveitarfélagsins.
Einnig taldi afféttarnefndin
óskynsainlegt að fórna þeim
tekjum sem sveitarfélagið
hefur af jörðinni í formi arðs
af Langá. Páll S Brynjarsson
bæjarstjóri Borgarbyggðar
segir meirihluta bæjarstjórn-
ar ekki sammála rökum af-
réttarnefndarinnar en hins-
vegar hafi endanleg ákvörð-
un varðandi makaskiptín
ekki verið tekin. ,Áíenn hafa
hitst tvisvar tíl að ræða mál-
in en það var miðað við að
ganga ffá samningum nú í
haust.“ GE
MM
SSV leggur áherslu
á þjóðveg 1
Háskólasetur í Stykkishólmi á næsta ári?
Hugmyndir era
uppi um að koma á
fót háskólasetri frá
Háskóla Islands í
Stykkishólmi í tengsl-
um við Náttúrastofu
Vesturlands. Hug-
myndirnar ganga út á
að efla rannsóknir á
lífríkinu í og við
Breiðafjörð og nýta
þá fjölbreytni sem þar
er að finna við kennslu og rann-
sóknir hjá HI:
„Hugmyndimar ganga eink-
um út á rannsóknarsamstarf og
ætlunin er að nýta það starf sem
hér er fyrir og efla það með að-
stoð háskólans,“ segir Róbert
Róbert Arnar Stefánsson
Arnar Stefáns-
son forstöðu-
maður Náttúra-
stofu Vestur-
lands. Ef af
verður mun Há-
skólinn skaffa
hingað starfs-
mann sem væri
mikið til í rann-
sóknum en félli
undir líf-
ffæðiskor HÍ og hefði þar ein-
hverja kennsluskyldu. Þetta er
hinsvegar allt á frumstígi og
engar ákvarðanir verið teknar."
Róbert segir að til að byrja með
sé ekki gert ráð fyrir að nemend-
ur stundi háskólanám í Stykkis-
hólmi. „Líf&æðin er þannig að
hún hentar illa fyrir fjámám.
Með þessu samstarfi myndu
hinsvegar skapast bein tengsl
inn í Háskólann og hægt væri
m.a. að taka á móti hópum stúd-
enta í afmörkuð verkefhi. Þá
mun þetta auðvelda flæði ffæði-
manna hingað ffá III og sam-
starf við erlenda fræðimenn.
Þetta er mjög spennandi mál og
það er vilji fyrir því innan há-
skólans að fara í þetta verkefni
en strandar á fjármagni eins og
er. Við eram að vona að þetta
geti farið af stað um mitt næsta
ár en það veltur á ákvörðunum
Alþingis varðandi næstu fjár-
lagagerð." GE