Skessuhorn


Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 8

Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 Leikskólastarfsmenn á Akranesi eru miður sín yfir umgengni á leikskólalóðum bæjarins: Skemmdarverk, sóðaskapur og vanvirðing Matjurtagarðar við alla leikskólana hafa verið eyðilagðir. Börnunum þykir þetta að vonum sárt, enda leggja þau mikla alúð í ræktunina. A Akranesi eru starfandi þrír leikskólar; Vallarsel, Garðasel og Teigasel, og yfir þrjú hundruð böm á aldrinum tveggja til fimm ára dvelja þar dag hvem við leik og störf. Alla tíð frá opnun leik- skólanna hefúr útileiksvæði þeirra þjónað sem hverfaleikvellir um helgar og eftir lokun þar sem stálpaðri börn og þau sem ekki eiga pláss í viðkomandi skóla geta komið og leikið sér. Því miður hefúr alltaf borið eitthvað á því að umgengni um leikvellina er ekki sem skyldi en á síðustu missemm hefúr ástandið versnað til muna og nánast orðið daglegt brauð að unnin séu spjöll á leiktækjum og húsakosti skólanna. Sigrún Gísla- dóttir, leikskólafulltrúi Akranes- kaupstaðar, segir að þetta kosti bæinn umtalsverðar upphæðir og í ratm sé það óásættanlegt að fóma þurfi þeim fjármunum sem fara eigi í viðhald og endurbætur í að laga skemmdir sem unnar era viljandi og af algjöm virðingar- leysi fyrir verðmæmm og þeim sem njóta eiga þessarar aðstöðu. Hasspípur og smokkar í sandkössum „Þessar skemmdir em undan- tekningarlítið þannig að útilokað er að lidu bömin hafi valdið þeim eða komið þar nærri. Algengt er að klifrað sé upp á þök og þak- gluggar eða skyggni brotin, smokkar og hasspípur hafa fund- ist á skólalóðunum, skemmdar- vargamir ganga örna sinna á leik- svæði barnanna, eyðileggja mat- jurtargarðana þeirra og leiktækin. Það er orðinn fastur liður hjá starfsfólki leikskólanna að ganga hring um svæðið á morgnana áður en börnin fara út til þess að ganga úr skugga um að ekki leynist neitt óæskilegt á svæðinu. Svona á þetta auðvitað ekki að vera,“ seg- ir Sigrún. Allar líkur benda til þess að það séu stálpaðri böm og unglingar sem beri ábyrgð á skemmdarverk- unum, enda hóp- ast þau gjarnan saman á og við leikvellina á kvöldin þegar eft- irfit með þeim er lítið. A því gæti hins vegar orðið breyting fljót- lega því verið er að kanna mögu- leikana á því að koma upp örygg- ismyndavélum á lóðunum. Þannig væri hægt að vinna mark- visst í því að komast að því ná- kvæmlega hverjir era þarna á ferð. „Auðvitað ber þeim sem standa í því að skemma og eyði- leggja að borga það tjón sem af ffamferðinu hlýst, ef við getum séð hverjir standa á bak við þetta mætti að minnsta kosti minnka fjárhagslega tjónið sem bærinn verður fyrir. En það er bara önn- ur hliðin á málinu því auðvitað veldur þetta börnunum á leik- skólanum miklum vonbrigðum." Hvatt til grenndargæslu I ffamtíðinni verða gerðar skýrslur um öll skemmdarverk á leikskólalóðunum og þau með- höndluð sem lögreglumál. Beri það ekki árangur segir Sigrún ekkert eftir annað en að víggirða leikvellina svo umferð um þá eft- ir lokun verði ómöguleg. Það sé hinsvegar slæmur kostur þar sem langflestir þeirra sem sækja vell- ina eftir lokun leikskólarma gangi vel um og séu til fyrirmyndar. Hún bætir því við að ein leiðin til þess að stemma stigu við þessu vandamáli sé að opna almenna umræðu og fá íbúa til þess að taka afstöðu með bæjaryfirvöldum og leikskólastjórnendum. „Ef fólk veit hvað viðgengst við leikskól- ana er mögulegt að koma á fót einslags grenndargæslu þannig að nágrannar hefðu augun hjá sér og létu vita ef eitthvað misjafnt er í gangi. Eins tel ég mikilvægt að foreldrar ræði við börnin sín um gildi þess að bera virðingu fyrir eigum annarra og vinnuumhverfi leikskólabarnanna. Einnig stend- ur til að taka málið upp í grann- skólunum, en það er athyglisvert að ástandið er verst á þeim leik- skólum sem næst standa grann- skólunum," segir Sigrún Gísla- dóttir. ALS Teigasael Guðbjörg Gunnarsdóttir leik- skólastjóri á Teigaseli segir að alltaf hafi borið nokkuð á slæmri umgengni um lóðina við leik- skólann, en þetta hafi verið sér- staklega slæmt undanfarið. Þá segir hún ástandið alltaf verst á vorin, haustin og á milli jóla og nýárs þegar flugeldasalan er í gangi. Þá sé allt sprengt sem hægt er að sprengja. Til dæmis var hitamælir utan á húsinu sprengdur upp og jafnvel hefur verið gengið svo langt að henda kínverja yfir grindverk og ofan í sandkassa þar sem hann sprakk meðal barna að leik. Sem betur fer sakaði bömin ekki. Þá hefur að minnsta kosti tvisvar verið farið inn í leikskólann. í annað skiptið var lyfjaskápur brotinn upp, en annars hafa engar skemmdir verið unnar innan dyra. „Við á Teigaseli höfum mest orðið fyrir skemmdum á trjágróðri og matjurtagarðurinn okkar var eyðilagður. I leikskól- anum vinnum við mikið með að virkja meðvitund bamanna um náttúruna og reynum að kenna þeim að bera virðingu fyrir henni. Þau era gjörsamlega mið- ur sín yfir því hvemig farið er með gróðurinn hérna og botna ekkert í því hvernig nokkur get- ur gert svona lagað. Þau hafa lagt mikla vinnu í að hugsa um trén og matjurtagarðana og urðu að vonum sár þegar þau komu í leikskólann einn daginn og ein- hver hafði eyðilagt alla þá vinnu fyrir þeim,“ segir Guðbjörg. Annað sem er nokkuð vandmál á 'Ieigaseli er aðkoman eftir helg- ar, en þá er ekki óalgengt að byrja þurfi á því að þrífa upp glerbrot, ælu og smokka auk þess Mikil sþjöll hafa verið unnin á trjágróðri á Teigaseli, börkur rifinn af trjám og greinar þeirra brotnar. sem hasspípa hefúr einu sinni fundist á leiksvæðinu. Guðbjörg segist vona að ef fólk viti af vandamálinu finni það til samfé- lagslegrar ábyrgðar og leggi sitt af mörkum til þess að leysa mál- ið án þess að loka þurfi leiksvæð- inu fyrir almenningi. Vallarsel Lilja Guðlaugsdóttir, leik- skólastjóri á Vallarseli, segist finna mun minna fyrir slæmri umgengni en leikskólastjór- arnir á Teigaseli og Garðaseli. Þó hafi það gerst fyrstu helg- ina á september að mikil spjöll voru unnin á leikskólanum. Rúður í leikfangageymslum á lóðinni voru bromar, glugginn á skrifstofu leikskólastjóra einnig og þakgluggi yfir lista- smiðjunni. Þá hefur hún gefið upp á bátinn að vera með mat- jurtargarða því þeir vora alltaf eyðilagðir og nokkur vandræði hafa verið með að fá að hafa grasþökur, sem var komið fyrir á lóðinni í sumar, í friði og niðurfall í nýrri buslulaug var fyllt af sandi og skemmt. „Ég veit að krakkar safnast smnd- um saman hérna eftir lokun og era þá að príla á þakinu og svoleiðis. En það gerist sjaldan að eitthvað sé skemmt. Það hefur einnig fundist smokkur á leiksvæðinu og komið fyrir að I byrjun mánaðarins var rúða á skrifstofu leikskólastjóra brotin og þakgluggi í listasmiðju sömuleiðis. fólk gengur örna sinn í útihús- unum, en það er alls ekki al- gengt, -sem betur fer,“ segir Lilja. Hún segir þó að skemmdirnar sem unnar vora á þakglugga og rúðu á skrif- stofunni hennar í byrjun sept- ember bendi til þess að þar hafi verið gengið til verks af einbeittum brotavilja og ósennilegt sé að mjög ung börn hafi verið þar að verki. Garðasel Af leikskólunum þremur hef- ur Garðasel orðið hvað verst fyrir barðinu á skemmdarvörg- um og nú er svo komið að Ing- unn Ríkharðsdóttir, leikskóla- stjóri, nýtir kvöldgöngurnar sínar iðulega til þess að fara í eftirlitsferð fram hjá vinnu- staðnum sínum. „Virðingar- leysið sem þeir sem standa fyrir þessu sýna er algjört. Þessir að- ilar virðast koma hingað gagn- gert með það í huga að skemma sem mest,“ segir Ingunn. Brot- in leiktæki, mannakúkur í úti- húsum, ónýtir matjurtargarðar, hasspípa á leiksvæði, brotið skyggni og gluggar eða úttiljós er meðal þess sem starfsfólk leikskólans hefur þurft að fjar- lægja eða laga. Þá hefur einnig komið fyrir að farið hefur verið inn í leikskólann, þó ekki hafi verið unnin skemmdarverk inn- an dyra. „Við megum aldrei gleyma neinu úti, því það er þá notað til þess að skemma og eyðileggja. Ef skófla gleymist í sandkassa er búið að henda sandi út um allt, ef krít gleym- ist á stéttinni er búið að krota húsið allt út. Stundum höfum við komið til vinnu og fundið að það hefúr verið migið utan í húsið og jafnvel falsið á útidyr- um. Morgnarnir fara orðið í það að tína rusl og sápuþvo húsið að utan. Þetta er auðvitað hvimleitt fyrir okkur og börnin era mjög leið yfir þessu. Líf þeirra gengur út á reglur og þau botna ekkert í því þegar þær eru þverbromar og svona lagað gerist aftur og aftur. Ég hef þó mestar áhyggjur af krökkunum sem sýna af sér þetta virðingarleysi, hvert stefna þau?“ Ingunn tekur Skyggnið á leikskólanum er brotið á a.m.k. tveimur stöðum og möl hefur verið grýtt upp á það. undir það með Guðbjörgu Gunnarsdóttur að ástandið sé sérstaklega slæmt yfir jól og áramót og þá megi búast við því að allt sé sprengt sem sprangið getur. Á Garðaseli hefúr ýmis- legt verið reynt til þess að stemma stigu við þessari óheilla þróun. „Þegar ég hef verið að vinna á kvöldin hef ég til dæm- is oft farið út og spjallað við krakkana sem safnast saman hérna og beðið þau um að að- stoða mig við að verja leikvöll- inn. Það hefur gefist vel í ein- hvern tíma, en svo fer allt í sama farið. Við fórum líka út í það að setja dreifibréf í húsin hér í kring þar sem vandamálið er tíundað og fólk beðið um að hafa augun hjá sér og ræða við unglingana sína. Þá skánaði á- standið í tvær til þrjár vikur. Lögreglan hefur líka gert átak í að fylgjast með leiksvæðinu, en það er svo sem ekki í verka- hring hennar.“ Ingunn segir ljóst að eitthvað verði til bragðs að taka því með þessu áfram- haldi gangi ekki að leikskóla- lóðin sé hverfaleikvöllur opinn öllum um leið og hún er leik- skóli sem fellur undir opinberar reglugerðir um öryggi og von- ast til þess að umræða um mál- ið skili einhverju.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.