Skessuhorn - 22.09.2004, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
9
a&£ssunu>>
Menningarsögulegt slys í
uppsiglingu í Borgamesi
-segja þeir sem mótmæla fyrirhuguðu niðurrifi á
gamla Mjólkursamlagshúsinu við Skúlagötu.
Gamla Mjólkursamlagið í Borgarnesi.
Frestur til að skila inn at-
hugasemdum við nýtt
deiliskipulag í gamla miðbæn-
um í Borgarnesi rann út þann
15. september sl. Nokkrar at-
hugasemdir bárust við skipu-
lagið og verða þær lagðar fyrir
bæjarráð Borgarbyggðar á
fimmtudag og í framhaldinu
væntanlega leitað umsagnar
umhverfis- og skipulagsnefndar
sveitarfélagsins.
Nýja deiliskipulagið nær )dir
svæðið við Brákarsund, þ.e.
svokallað Rauða torg þar sem
var síðast athafnasvæði Bygg-
ingavörudeildar KB, gamla
Kaupfélagsplanið og næsta ná-
grenni. Samkvæmt skipulaginu
er gert ráð fyrir að gamla
Mjólkursamlagið verði rifið en
skiptar skoðanir eru um þær
fyrirætlanir. Stefán Olafsson
byggingameistari og Sigríður
Björkjónsdóttir, sagnfræðingur
voru meðal þeirra sem gerðu
athugasemdir við nýja
deiliskipulagið. 1 bréfi sínu til
bæjarstjórnar fagna þau þeirri
ákvörðun bæjaryfirvalda að
stuðla að því að endurlífga
gamla miðbæinn með þéttingu
byggðar en leggja áherslu á að
taka þurfi tillit til þeirrar sögu
sem tilheyri svæðinu og þar
með þeim byggingum sem
gegnt hafa Iykilhlutverki í upp-
byggingu Borgarness á síðustu
öld. Þau Sigríður og Stefán fara
fram á að ákvörðun um niðurrif
gamla Mjólkursamlagshússins
verði endurskoðuð og í bréfi
þeirra segir m.a. „Húsið er
teiknað af þáverandi húsameist-
ara ríkisins; Guðjóni Samúels-
syni, en hann er óumdeilanlega
einn af lykilmönnum í íslenskri
byggingalistasögu. Bygging
þessi ber, eins og svo margar
aðrar af hans byggingum, sterk
höfundareinkenni og er dæmi-
gert fyrir byggingarstíl Guð-
jóns á 3. og 4. áratug síðustu
aldar. Húsið er einnig órjúfan-
legur hluti af atvinnusögu
Borgarness og var það hluti af
andliti bæjarins frá sjó þegar
samgöngur við hann voru enn
um þá leiðina. Húsið er reisu-
legt, sérstakt og fallegt og er í
raun einstakt í sinni röð á land-
inu.“ Þá segja þau að hár kostn-
aður við viðgerð og viðhald hafi
stundum verið notuð sem rök
til að rífa gömul og sögufræg
hús og hafi það haft í för með
sér menningarsöguleg slys þeg-
ar litið sé til baka. Ottast þau að
slíkt slys sé í uppsiglingu með
niðurrifi gamla Mjólkursam-
lagshússins.
Sigríður og Stefán benda á að
ýmsar hugmyndir séu uppi um
möguleg not hússins og að það
hafi undanfarin misseri þjónað
hlutverki fjölnotahúss og hýst
ýmsa viðburði.
GE
Námskeið Samfés
í síðustu viku stóð Samfés,
samtök félagsmiðstöðva á Is-
landi, fýrir námskeiði fyrir
starfsmenn félagsmiðstöðva á
Vesturlandi. Námskeiðið er lið-
ur í ffæðsluherferð Samfés fyrir
starfsfólk félagsmiðstöðva
landsins sem nú stendur yfir í
fjórðungum landsins. Góð þátt-
taka var á námskeiðinu hér á
Vesturlandi og mættu starfs-
menn félagsmiðstöðva frá Búð-
ardal, Stykkishólmi, Snæfells-
bæ, Grundarfirði, Akranesi og
Borgarnesi. Farið var yfir fag-
legt og uppeldislegt umhverfi
starfsins og þá þróun sem verið
hefur í félagsmiðstöðvarmálum
landsins á síðustu árum.
Fyrirlesarar á námskeiðinu
voru þau Linda Udengárd,
æskulýðs- og forvarnafulltrúi
Kópavogs, Olafur J. Stefánsson,
forstöðumaður hjá íþrótta- og
tómstundaráði Hafnarfjarðar
og Eygló Rúnarsdóttir verkefn-
isstjóri hjá íþrótta- og tóm-
stundaráði Reykjavíkur.
A námskeiðinu var leitast við
að svara spurningunum eins og:
Hvað eru félagsmiðstöðvar og
staða þeirra í nútímasamfélagi?
Hvaða faglegu kröfur eru gerðar
til starfsfólks félagsmiðstöðva?
Hvaða starfsþættir einkenna fé-
lagsmiðstöðvastarf? GE
Skip selt og annað
Bræðurnir Sigurður Olafur
og Jóhannes Þorvarðarsynir í
Grundarfirði seldu í liðinni
viku 200 tonna fiskiskipið Þor-
varð Lárusson SH til Reykja-
víkur og fær það nafnið
Straumur RE 79. I staðinn
keyptu þeir bræður annað skip
250 tonna sem hét áður Smáey
VE, en nú síðast Björn RE 79.
Skipið fær sama nafn og fyrir-
rennari þess og er það væntan-
legt til Grundarfjarðar innan
tíðar. A myndinni eru skipverj-
ar á Þorvarði Lárussyni SH að
ganga frá búnaði og gera skip-
ið klárt til veiða fýrir nýja aðila
áður en það kvaddi Grundar-
fjörð.
MM/Ljósmynd Sverrir.
Kem á staðinn og geri verðtilboð í allar
gerðir húsgagna, mikið úrval af
áklœðisprufum. Sœki og kem með
vöruna til þín að kostnaðarlausu.
Vísa greiðslukjör.
G.L. Bólstrun
Lækjargata 3
530 Hvammstanga
Sími: 865 2103
Geymsluhúsnæði
óskast!
Vantar geymsluhúsnæði,
hlöðu eða skemmu.
Upphitað eða óupphitað.
Langtímaleiga fyrir rétt húsnæði,
þarf að vera gott aðgengi.
Upplýsingar í síma 820-2338
Akraneskaupstaður
Bæjarstjórn Akraness
Utvarpað er fra bæjarstjórnarfundum á
FM 95,0
981. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn
í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, 3. hæð,
þriðjudaginn 28. september 2004 og hefst hann kl.
17:00.
Bæjarmálafundir stjórnmálaflokkanna
verða sem hér segir:
Akraneslistinn í Jónsbúð, Akursbraut 13, mánudaginn
27. september 2004 kl. 18:00. Nefndarfólk
Akraneslistans er sérstaklega hvatt til að mæta á fundinn
og jafnframt til þátttöku í vetrarstarfinu.
Framsóknarflokkurinn í Framsóknarhúsinu, Sunnubraut
21, mánudaginn 27. september 2004 kl. 18:00.
I Sjálfstæðisflokkurinn í Sjálfstæðissalnum, Stillholti 16-
18, laugardaginn 25. september 2004 kl. 10:30.
Fundirnir eru öllum opnir.
Athugið breyttan fundarstað og tíma hjá
Akraneslistanum!
. Bæjarstjóri.