Skessuhorn


Skessuhorn - 22.09.2004, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 22.09.2004, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 ^niissunu^ Bútabær.is opnar á Akranesi Guðrún Krístjánsdóttir t.v. og Áslaug Sveinsdóttir afgreiðslukona í Bútabæ.is. Ný verslun var opnuð á Akra- nesi í liðinni viku. Hún neíinist Bútabær.is og er staðsett í kjall- ara hússins að Skólabraut 37. Eins og nafnið bendir til er uin að ræða verslun sem sérhæfir sig í efhurn og vörum til bútasaums auk gardínuefha, tvinna og ann- ars til sauma. Eigandi verslunar- innar er Guðrún Kristjánsdóttir, kaupmaður á Selfossi, en þar rekur Guðrún samnefnda versl- un og Vogue búð að auki. Guð- rún er ekki ókunn Akranesi en hún bjó á staðnum ffá fjögurra til fjórtán ára aldurs. Aðspurð segist hún líta björtum augum á þennan rekstur þrátt fýrir að margar sérverslanir hafi hætt starfsemi á Akranesi síðustu árin. „Skagamenn og -konur hafa tek- ið mér opnum örmum enda er mikill áhugi fýrir saumaskap og sérstaklega bútasaumi hér í bæn- um. Mér er til efs að á nokkrum öðrum stað hér á landi finnist eins rík hefð og reynsla í búta- saumi og það eru ótrúlega marg- ar konur sem kunna þetta hér. Eg hef aðeins prófað að selja þessar vörur hér í bænum áður, en í fýrra var ég með opið einn dag í viku í húsnæði Nýju línunnar við Kirkjubraut. Þá fann ég að mikil þörf var á slíkri verslun og því á- kvað ég að slá til og keypti kjallarann hér til að opna þessa verslun nú í haust," sagði Guðrún í samtali við Skessuhorn. Hún auglýsti ný- lega eftir afgreiðslumanni í búð- ina og viðbrögðin létu ekki á sér standa því alls sóttu 40- 50 kon- ur um starf í búðinni. MM T^pnninn—u Jens. B. Baldursson Miðbæjarreitur cí Akranesi - byggingarframkvæmdir í leyfisleysi? Deiliskipulag sam- þykkt þrátt fyrir mikil mótmæli Fimmtudaginn 16. sept- ember var tekin fýrsta skóflustungan að nýjum fjöl- býlishúsum við Dalbraut á Miðbæjarreitnum á Akranesi. Bæjarstjórn Akraness sam- þykkti deiliskipulag fýrir þetta svæði í sumar þrátt fýr- ir að íbúar í 80% húsa á Dal- braut og Esjuvöllum mót- mæltu þessu skipulagi. Ibúar í þessum götum eiga mestra hagsmuna að gæta enda liggja þær að Miðbæjarreitn- um. Margir fleiri mótmæltu en þrátt fyrir það var deiliskipulagið samþykkt nánast óbreytt eins og fýrir- tækið Skagatorg vildi hafa það. Þetta fýrirtæki fékk leyfi til að gera deiliskipulagið og standa að öllum framkvæmd- I um á svæðinu. Bæjarstjórn óskar eftir frestun á úrskurði um deiliskipulagið Þessi skóflustunga og I fréttatilkynningarnar sem fylgdu eru undarlegar í ljósi þess að ég og kona mín kærð- um þetta deiliskipulag til úr- skurðarnefndar skipulags- og byggingarmála en úrskurður nefndarinnar er ekki kominn. Og ekki bara það, Akranes- kaupstaður hefur óskað eftir því að úrskurðarnefndin fresti því að afgreiða inálið! Urskurðarnefndin lét mig hafa afrit af bréfi bæjarins til nefndarinnar vegna þessarar kæru enda á ég rétt á máls- gögnum sem kærandi. Bréfið er sent af Tryggva Bjarnasyni lögmanni á Akranesi fyrir hönd bæjarins og dagsett 9. sept. I bréfinu er farið fram á að úrskurðarnefndin fresti málinu. Astæðan er sú að Skagatorg óskaði 26. júlí eft- ir breytingum á deiliskipu- laginu sem bæjarstjórn hafði þá nýlega samþykkt. Segir í bréfi lögmanns Akraneskaup- staðar að verið sé að bíða eft- ir endanlegum teikningum frá arkitekti Skagatorgs. Breytingum á deiliskipulag- inu sem séu tilefni kæru sé ekki lokið. Breytingarnar kunni að hafa áhrif á niður- stöðu úrskurðarnefndarinnar og hugsanlega á afstöðu kærenda. Hvernig fer það saman að deiliskipulagið sé ekki tilbúið en samt sé byrjað á fram- kvæmdum? Er Björn Lárusson yfirbæjarstjóri Akraness? Þetta er ekki í íýrsta skipti sem Skagatorg fer fram á breytingar á skipulaginu. Breytingarnar eru orðnar fleiri en ég hef tölu á. Meðal fýrstu breytinganna var að verslunar- og þjónustuhús- næði var hækkað í fjórar hæðir þegar fýrirtækið heyrði af mótmælum íbúanna. Síðan hefur það verið Iækkað smám saman og er nú komið í eina hæð svona til að fýrirtækið sýnist koma til móts við íbú- ana. Og alltaf hleypur bæjar- stjórnin eftir dyntum fyrir- tækisins. Tíu hæða fjölbýlis- húsin (níu hæða + penthouse) eru þó alltaf óbreytt. Það er fýrst og fremst hæð húsanna sem er íbúunum þyrnir í aug- um ásamt því að þau passa engan veginn á þessum stað. Þó bæjarstjórinn hafi fengið að taka fýrstu skóflustunguna og jafnvel verið klappaður upp þá virðist eins og fýrir- tækið Skagatorg og fulltrúi þess, Björn Lárusson, stjórni gerðum bæjarins. Ekkert hef- ur verið rætt við íbúana eða hlustað á þeirra málflutning (sbr. greinar sem ég skrifaði í Skessuhorn í vor). Eigendur fyrirtækja við Miðbæjarreit- inn sem ég hef rætt við kvarta sömuleiðis yfir því að ekkert sé rætt við þá eða hlustað á þeirra málflutning. Hvað veldur þessari þjónkun við fýrirtækið Skagatorg? Vantar framkvæmdir á Akranes? I fréttatilkynningu um skóflustunguna var lögð á- hersla á hversu miklar fram- kvæmdir þetta væru, mestu einstöku framkvæmdir frá því Sementsverksmiðjan var byggð. Eina skýringin sem ég hef fengið á þjónkun bæjar- stjórnar við fýrirtækið Skaga- torg (fýrir utan getgátur um óeðlileg hagsmunatengsl) er sú að þetta þýði miklar fram- kvæmdir á Akranesi og að loksins sé kominn aðili sem vilji byggja á Miðbæjarreitn- um. Fylgjast bæjarfulltrúar ekki með því sem gerist í bænum? I bænum hafa verið óhemju miklar framkvæmdir og und- anfarið hefur verið afar erfitt að fá iðnaðarmenn og verk- takafyrirtæki til starfa. Þannig að ekki vantar vinnu. Og nokkuð ljóst er að fram- kvæmdir halda áfram á næstu árum með fjölgun íbúa eftir því sem Akranes tengist höf- uðborgarsvæðinu betur. Því var óþarfi hjá bæjaryfirvöld- um að flýta sér og hlaupa eft- ir hagsmunum fýrirtækisins Skagatorgs þegar hinn dýr- mæti Miðbæjarreitur var skipulagður. Skipulagsmál í ólestri Miðbæjarreiturinn á Akra- nesi er ekki eina dæmið um ráðaleysi og erfiðleika bæjar- stjórnar í skipulagsmálum. Bæjarbúar tala um þetta sín á milli, nýjasta dæmið er nýi vegurinn upp í skógrækt og golfvöll sem liggur nánast utan í húsunum sem þar hafa verið byggð. Einbýlishús sem fólk hefur byggt af mikilli elju og dugnaði fá of lítið pláss og njóta sín engan veg- inn. Eg veit um einstaklinga sem hafa hrökklast yfir í sveitarfélögin hér í kring vegna klúðurs í skipulags- málum. Viðleitni til að bæta úr er þöguð í hel, sbr. ágætar hugmyndir arkitekta um skipulag gamla miðbæjarins og tengingu hans við nýja miðbæinn. Þessar hugmyndir voru kynntar á fundi fýrir u.þ.b. ári við hrifningu flestra sem þær sáu en síðan hefur ekkert verið gert með þær. Metnaðarlaus bæjarstjórn Kannski er nú svo komið að við Akurnesingar þurfum að hugleiða sameiningu við stærri sveitarfélög, t.d. Reykjavík. E.t.v. þurfum við að viðurkenna að við ráðum ekki við ýmis verkefni nútíma sveitarfélags eins og skipu- lagsmál. Auk þess yrði kannski eitthvað gert í að bæta al- mannasamgöngur milli Akra- ness og Reykjavíkur og aukinn kraftur fengist í viðleimi til að lækka gangagjaldið. Bæjar- stjórnin sýnir lítið frumkvæði í þessum málum sem er engan veginn í samræmi við dugnað einstaklinga og fýrirtækja sem hvarvetna blasir við í bænum Jens B. Baldursson Dalbraut 21, Akranesi 11 Þekking - Reynsla - Þjónusta m«h*«!í!4.is Alfa Romeo 156 02/2000 5 gíra ek. 53.000. Aukadekk og felgur. Verð 980.000 VW Golf 1,6 Comfortline 07/1999 5 gíra ek. 95.000. Ný tímareim og vatnsdæla. Aukafelgur. Verð 880.000 Ford Focus 1,6 stw 11/2001 5 gíraek. 63.000. Fallegur biII. Verð 1.250.000 Audi A6 Quattro 2,8 7 manna 1996 ssk. Ekinn 116.000 mílur. 4wd. Vel búinn bill. Topplúga, loftkæling, cruse control, leður o.fl. Ath. skipti á ód/dý. Verð 1.450.000 «wí®4is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.