Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 14
14
MIÐVTKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
Norrænt unglingamót á Akranesi
Hópurinn á leið á Akrafjall undir leiðsögn Leós Jóhannessonar.
Ljósmynd: Borghildur Jósúadóttir.
Dagana 10.-19. september
heimsóttu 16 unglingar á aldr-
inum 15 - 18 ára frá vinabæj-
um Akraness í Finnlandi, Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku
jafnaldra sína á Akranesi. Ung-
lingamót af þessu tagi er fast-
ur liður í starfsemi Norræna fé-
lagsins, en þau eru haldin ann-
að hvert ár og skiptast Norður-
löndin á um að halda þau.
Akraneskaupstaður og Akra-
nesdeild Norræna félagsins
hafa samvinnu um skipulagn-
ingu mótsins og er þetta í
sjötta sinn sem það er haldið.
Gestirnir komu frá vinabæj-
unum Tönder í Danmörku,
Bamble í Noregi, Vastervik í
Svíþjóð og Nárpes í Finnlandi
og dvöldu hjá jafnöldrum sín-
um á Akranesi meðan á mót-
inu stóð. Flelga Gunnarsdóttir,
sviðsstjóri menningar- og
fræðslusviðs Akraneskaup-
staðar, segir mótið hafa geng-
ið vel fyrir sig og þær fjölskyld-
ur sem tóku á móti norrænu
gestunum hafi staðið sig með
eindæmum vel. „Þau koma
fjögur frá hverju landi og
dvöldu á 12 heimilum á Akra-
nesi. Hlutverk krakkanna var
m.a. að kynna sinn heimabæ í
skólunum hér og við lögðum
mikið upp úr því að allt færi
fram á þeirra eigin tungumáli.
Þannig kynntu krakk-
arnir sex sem eru á
grunnskólaaldri sína
bæi fyrir 10. bekking-
um í grunnskólunum.
Hin tíu, sem komin
eru í framhaldsskóla,
fóru inn í áfanga í
dönsku 103 og 212 í
Fjölbrautaskólanum
og héldu sína kynn-
ingu þar. Þetta gekk
allt mjög vel, enda
eru þetta frábærir krakkar,"
segir Helga.
En fleira var á dagskrá en
kynning á heimabæjum og
krakkarnir notuðu tækifærið til
þess að svipast um á Akranesi
og í nágrenninu. Fóru til dæm-
is í útreiðatúr frá Kúludalsá,
gengu á Akrafjall og kynntu sér
afþreyingar- og tómstunda-
möguleika ungs fólks á Akra-
nesi með því að heimsækja
Hvíta húsið, kíkja í sund, keilu
og ýmislegt fleira. Einnig voru
haldnar kvöldvökur, farið í ferð
til Reykjavíkur, svamlað í Bláa
lóninu og farið í dagsferð að
Gullfossi og Geysi.
Ann og Ásmund eru frá Dan-
mörku og Noregi og segja
heimsóknina til Akraness hafa
verið ákaflega spennandi og
skemmtilega. „Þetta er búið að
vera alveg frábært. Allir hafa
tekið svo vel á móti okkur, við
höfum sinnt spennandi verk-
efnum hér og gert margt
skemmtilegt. Til dæmis fórum
við í gönguferð á Akrafjall og
heimsóttum Gullfoss og Geysi.
Svo má nú ekki gleyma því
hvað við höfum kynnst
skemmtilegu fólki í gegnum
þessa heimsókn okkar." Að-
spurð segjast þau hafa haft á-
kveðna hugmynd um ísland
áður en þau komu, höfðu til
dæmis kynnt sér söguna dálít-
ið og fyrirbæri eins og hveri og
Bláa lónið. „En,“ bæta þau við,
„að hafa kynnt sér eitthvað
heima er ekki það sama og
koma hingað og sjá það með
eigin augum og þetta hefur allt
verið ævintýri líkast. Við viljum
nota þetta tækifæri til þess að
þakka öllum kærlega fyrir
okkur.“ ALS
Anna og Asmundur. Ljósmynd: Anna Lára.
Vinaklúbbamót
Síðatliðinn laugardag var haldið vinakiúbba golfmót milli félaganna
Mostra og Vestarr á Snæfeitsnesi og fór mótið fram í Stykkishólmi. Á
myndini afhendir Ásgeir Ragnarsson, form. Vestarr, Ríkharði Hrafn-
kelssyni formanni Mostra bikarinn, en Mostramenn unnu mótið,
reyndar eins og alltaf áður. MM/Ljósm. Sverrir Karlsson.
Ungir fótboltadrengir
á faraldsfæti
Tveir ungir
fótboltamenn
af Akranesi
verða við æf-
ingar hjá er-
lendum fé-
lagsliðum á
næstu dög-
um. Björn
Jónsson, 13
ára, fór í vor
til hollenska
stórliðsins Björn Jónsson og
Hereven sem er með virkilega
öflugt unglingastarf. Forráða-
mönnum Hereven leist það vel
á piltinn að þeir buðu honum
að koma aftur í haust og dvelja
þar í viku en Björn fer þangað
næsta sunnudag. í þessari
viku eru hann og Björn Berg-
mann Sigurðsson, sem er hálf-
bróðir Jóhannesar Karls,
Þórðar og Bjarna Guðjóns-
Björn Bergmann Sigurðsson.
sona, hinsvegar í Englandi þar
sem þeir æfa með Stoke og
Leicester. Það er því óhætt að
segja að þeir félagar hafi fund-
ið góða lausn á kennaraverk-
fallinu.
Þess má líka geta að fyrir hjá
Hereven er einn ungur Skaga-
maður Arnór Smárason, 16
ára piltur sem þegar hefur gert
samning við félagið. GE
Borgarfjarðarhlaup UMSB
fer fram laugardaginn
25. september kl. 14.00
Hlaupið hefst við kirkjuna á Hvanneyri og verður
hlaupið um næsta nágrenni Hvanneyrar, ýmist
á malarvegi eða malbiki.
Vegalengdir sem hlaupnar verða eru:
25 km. 10 km og 4 km skemmtiskokk.
Hlaupið er aldursflokkaskipt fyrir bæði kyn. 15 ára
og yngri, 16- 39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri.
I Þrír fyrstu í hverjum flokki fá verðlaun og allir
þátttakendur fá viðurkenningu.
| Skráningargjald er 500 kr. fyrir 15 ára og yngri
og 1500 kr. fyrir aðra.
Skráning í hlaupið er hjá skrifstofu UMSB
sími 4371411
Netfang: umsb@mmedia.is
Ungmennasamband Borgarfjarðar
Uppskeruhátíð yngri flokka
ÍA í knattspyrnu
Á laugardaginn fór fram
uppskeruhátíð yngri flokka ÍA í
knattspyrnu í íþróttahúsinu við
Vesturgötu. Farið var yfir gengi
allra flokka í boltanum í sumar
og viðurkenningar veittar fyrir
góðan árangur. Að því loknu
buðu Sveppi og Auddi
nokkrum huguðum gestum
upp á ógeðsdrykk og loks var
slegið upp grillveislu.
Leikmaður yngri flokkanna
var kjörinn Guðmundur Böðvar
Guðjónsson og hampaði hann
því hinum svokallaða Donna-
bikar. Aðrir sem hlutu viður-
kenningu voru: Aníta Eir Ein-
arsdóttir og Eyrún Eiðsdóttir, 6.
flokki kvenna fyrir mestar
framfarir. í 5. flokki kvenna fékk
Heiðrún Sara Guðmundsdóttir
viðurkenningu fyrir mestar
framfarir en leikmaður ársins í
þeim flokki var Heiður Heimis-
dóttir. í 4. flokki kvenna þótti
Helga María Hafsteinsdóttir
hafa sýnt mestar framfarir en
leikmaður ársins var valin Guð-
rún Þórbjörg Sturlaugsdóttir.
:n\o\rihm;
lÞRÓVí-f\NI
SlRíf
Leikmenn yngri flokka sem hlutu viðurkenningar.
Leikmaður ársins í 3. flokki
kvenna var Bára Kristbjörg
Rúnarsdóttir, en mestar fram-
farir sýndi Vilborg Lárusdóttir.
í 7. flokki drengja hlutu við-
urkenningu fyrir mesta framför
Albert Hafsteinsson, Ragnar
Már Lárusson og Tryggvi Hrafn
Haraldsson. í 6. flokk karla var
Guðlaugur Brandsson verð-
launaður fyrir mestar framfarir
og Ragnar Gunnarsson út-
nefndur leikmaður ársins. í 5.
flokki karla voru það þeir Sig-
urður Karvelsson, sem sýndi
mestar framfarir, og Sigurjón
Guðmundsson, leikmaður árs-
ins, sem hlutu viðurkenningar. í
4. flokki karla voru veittar
þrennar viðurkenningar, þeim
Aroni Ými Þéturssyni fyrir á-
stundun og framfarir, Birni
Bergmann Sigurðssyni sem
þótti efnilegasti leikmaður
flokksins og Ragnari Þór
Gunnarssyni sem kjörinn var
leikmaður ársins í sínum flokki.
Leikmenn ársins í 3. flokki
drengja voru þeir Arnar Helgi
Jónsson og Guðmundur Ingi
Gunnarsson.
ALS