Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 15
SlESSUHöíílli
MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
15
Julian á skotskónum
Skagamenn unnu sannfærandi sigur á Eyjamönnum en það dugði ekki til
Ekki nógu
gott
-segir Ólafur Þórðar-
son þjálfari ÍA
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með sigurinn í dag en hann var
bara ekki nógu stór/1 sagði
Ólafur Þórðarson þjáifari ÍA eft-
ir leikinn. Ólafur sagðist að
mörgu leyti sáttur við sumarið
en hinsvegar væri ekkert nema
fyrsta sætið nógu gott. Hann
sagði liðið hafa verið sterkt í
sumar þótt menn hafi ekki náð
að sína sitt rétta andlit á köfi-
um. „Það háði okkur náttúru-
lega að hafa ekki afgerandi
markaskorara. Markahæstu
leikmennirnir skora 4 mörk
hvor en í svona liði þarf nátt-
úrulega að vera tíu marka mað-
ur og ef hann hefði verið til
staðar þá stæðum við kannski
með bikar f höndunum. “ GE
Hér fagna þær sigri eftir lokaleikinn enda sigur í höfn; sæti í Urvalsdeild á næsta ári.
Ljósmynd: Ágústa Friðríksdóttir.
Kvennalið IA tryggði sér
sæti í Úrvalsdeild eftir sitt
fyrsta keppnistímabil i fyrstu
deild en sem kunnugt er tefldi
ÍA fram liði í meistaraflokki
kvenna í sumar eftir nokkurra
ára hlé. Skagastúlkur þurftu
að vísu að fara erfiðari leiðina
að úrvalsdeildarsætinu því
þær töpuðu úrslitaviðureign-
inni við Keflavík um efsta sæti
1. deildar og því þurftu þær að
taka þátt í umspili gegn
Þór/KA/KS sem varð í næst
neðsta sæti Úrvalsdeildarinn-
ar.
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Skessuhorns byrjaði
ÍA viðureignina býsna vel með
stórsigri á norðanstúlkum í
fyrri leiknum 6 - 1. Eftirleikur-
inn var því auðveldur þegar
Þór/KA/KS kom í heimsókn á
Skagann á miðvikudag. Síðari
leikurinn endaði 3 - 1 fyrir ÍA
og skoraði Magnea Guð-
laugsdóttir tvö mörk í seinni
hálfleik en Ása Benediktsdótir
innsiglaði sigurinn með marki
úr vítaspyrnu á síðustu mínút-
unum. Samtals unnu Skaga-
stúlkurnar því viðureignina 9 -
2 og hafa því verðskuldað
tryggt sér sæti á meðal þeirra
bestu á ný.
Eins og kunnugt er var
nokkuð kvartað yfir marka-
leysi hjá úrvaldeildarliði ÍA í
karlaflokki í sumar og skoruðu
markahæstu menn ekki nema
4 mörk hvor. Annað var uppi á
teningnum hjá konunum því
þær skoruðu alls 76 mörk og
fjórar voru með 10 mörk eða
fleiri. Markahæst var Helga
Sjöfn Jóhannesdóttir með 18
mörk í 12 leikjum, Magnea
Guðlaugsdóttir skoraði 15
mörk, Áslaug Ragna Ákadótt-
ir 12, Jónína Halla Víglunds-
dóttir 11 og næst kom Hall-
bera Guðný Gísladóttir með 9
mörk. Sannarlega glæsilegur
árangur hjá nýju kvennaliði ÍA
og verður fróðlegt að fylgjast
með stelpunum í Úrvalsdeild-
inni á næsta ári. GE
tæklingu og oftar en
ekki voru það Skaga-
menn sem sparkaðir
voru niður en dómarinn
sýndi leikmönnum ótrú-
lega þolinmæði lengst
af. Flestir sluppu þó ó-
meiddir frá þessu fjöl-
bragðaglímumóti en
Hjálmur Dór Hjálmsson
var hinsvegar borinn
meiddur af velli eftir
samstuð við einn Eyja-
manninn.
Skagamenn áttu sín
færi í síðari hálfleik sem
þeir náðu ekki að nýta
en Eyjamenn náðu aftur
á móti að minnka mun-
inn um miðjan hálfleikinn þeg-
ar Andri Ólafsson skoraði á-
gætt mark. Niðurstaðan varð
engu að síður sanngjarn sigur
ÍA en ekki nógu stór.
Það var Julian Johnson sem
var besti maður vallarins að
þessu sinni en einnig áttu
Stefán Þórðarson, Þórður
Þórðarson, Grétar Rafn
Steinsson og Guðjón Heiðar
Sveinsson mjög góðan leik.
GE
Skagastúlkur í Úrvalsdeild
Fjórar úr kvennaliði ÍA skoruðu yfir tíu mörk í 1. deildinni í sumar
Julian Johnson, færeyski
landsliðsmaðurinn á Skagan-
um, var í banastuði þegar ÍA
fékk ÍBV í heimsókn í síðustu
umferð úrvalsdeildarinnar á
sunnudag. Hann skoraði bæði
mörk Skagamanna í 2 -1 sigri
en fyrir ieikinn hafði hann ekki
skorað nema eitt mark fyrir ÍA
í úrvalsdeild.
Ekki var laust við að það rifj-
aðist upp fyrir mönnum síð-
asta umferð mótsins árið
2001 en þá börðust þessi tvö
lið um íslandsmeistaratitilinn
og mættust í lokaumferðinni í
Eyjum. Leikurinn endaði með
jafntefli sem dugði Skaga-
mönnum til að hampa ís-
landsmeistaratitli eins og
flestir muna en sigur hefði
fært Eyjamönnum bikarinn
eftirsótta. Nú var staðan ekki
ósvipuð að mörgu leyti þótt
Skagamenn ættu að vísu ekki
möguleika á titlinum. Eyja-
menn gátu hinsvegar með
sigri tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn að því tilskyldu að
FH tapaði fyrir KA á Akureyri.
Hvorugt gekk hinsvegar eftir.
Þá áttu Skagamenn fræðileg-
an möguleika á að ná 2. sæti
deildarinnar, og þar með Evr-
ópusæti, af Eyjamönnum en til
þess þurftu þeir að sigra með
5 marka mun þar sem marka-
tala Eyjamanna var mun hag-
stæðari.
Eins og leikurinn fór af stað
virtust Skagamenn allt eins
líklegir til að klífa umræddan
fimm marka múr því þeir voru
mun sterkari aðilinn allan fyrri
hálfleikinn þótt Eyjamenn
fengju tvö ákjósanleg færi.
Skagamenn sóttu án afláts og
áttu nokkur góð skot á mark
Eyjamanna og fyrsta markið
kom á 17. mínútu þegar Julian
Johnson renndi sér í knöttinn
eftir góða sendingu frá Guð-
jóni Heiðari Sveinssyni og
skoraði af stuttu færi. Julian
var síðan aftur á ferðinni og
skoraði mjög svipað mark á
26. mínútu en þá eftir send-
ingu frá Stefáni Þórðarsyni
sem átti mjög góðan leik að
þessu sinni.
Julian Johnson
Þrátt fyrir fjölmörg færi urðu
mörkin ekki fleiri í fyrri hálfleik
en í þeim síðari mættu Eyja-
menn mun sprækari til leiks.
Um leið færðist mun meiri
harka í leikinn og var ekki að
sjá að þennan dag væri al-
þjóðlegur háttvísidagur knatt-
spyrnumanna. Á löngum kafla
liðu ekki nema fáeinar mínútur
milli þess sem einhver leik-
maður lá á vellinum eftir harða
Verðlaunaskallar. Frá vinstri: Valdimar K Sigurðsson, Garðar Axelsson,
Sveinbjörn G Hlöðversson, Ágúst Hrannar Valsson og Bjarni Hlíðkvist
Kristmarsson. Mynd:GE
Garðar Axelsson markvörð-
ur var valinn leikmaður ársins
í lokahófi knattspyrnudeildar
Skallagríms um síðustu helgi.
Það voru leikmenn sem kusu
sjálfir besta leikmanninn og
fékk Garðar meira en helming
atkvæða. Þá var Bjarni Hlíð-
kvist Kristmarsson valinn
efnilegasti leikmaður liðsins
og Ágúst Hrannar Valsson
fékk viðurkenningu fyrir bestu
æfingasóknina. Sveinbjörn G
Hlöðversson fékk síðan gull-
skóinn en hann var marka-
hæstur í sumar með 15 mörk.
Loks var markahrókurinn
mikli, Valdimar Kr. Sigurðsson
heiðraður af stjórn knatt-
spyrnudeildarinnar en hann
sló sem kunnugt er marka-
metið á Islandsmótinu í sum-
ar og er kominn í 166 mörk og
þau hefur hann öll skorað fyr-
ir Skallagrím.
GE
Lokastaðan í
úrvalsdeild karla í
knattspyrnu
Félag L U J T MörkStig
1 FH 18 10 7 1 33:16 37
2 ÍBV 18 9 4 5 35:20 31
3ÍA 18 8 7 3 28:19 31
4 Fylkir 18 8 5 5 26:20 29
5 Keflavík 18 7 3 8 31:33 24
6 KR 18 5 7 6 21:22 22
7 Grindav. 18 5 7 6 24:31 22
8 Fram 18 4 5 9 19:28 17
9 Víking. R.18 4 4 10 19:30 16
10 KA 18 4 3 11 13:30 15