Skessuhorn - 06.10.2004, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004
^ntaautn/...
Til minnis
Við minnum ú:
Sau&amessu Borgfirðinga
sem byrjar meb fjárrekstri kl.
13:00 á laugardaginn í
Borgarnesi. Skemmtileg
fjölskylduskemmtun sem
enginn má missa af.
Vecfyrhorfw
Á föstudag og laugardag
verður veður frekar rólegt,
þab verbur skýjab og stillt. Á
sunnudag er hinsvegar búist
vib smá rigningu. Hiti verður
á bilinu 6-10 stig.
Eru Borgfirbingar
sjarmerandi Bjarki?
Þab verður
allavega mik-
ib jarmab á
laugardaginn
en vonandi
verbur þab
allt saman
saubmeinlaust.
Bjarki Þorsteinsson er einn af
abstandendum Sauöamessu
2004 í Borgarnesi sem fram
fer nœstkomandi iaugardag.
SpMrniníj vik^nnar
í síbustu viku var spurt um
uppáhaldslib í Ensku knatt-
spyrnunni og hafa
Manchester United og Liver-
pool nokkra yfirburbi hjá les-
endum Skessuhornsvefjarins.
Annars urðu úrslit sem hér
segir:
Arsenal 16,3%, Aston Villa
3,1%, Blackburn 2%, Chel-
sea 9,2%, C. Palace 3,1%,
Everton 1 %, Liverpool
20,4%, Man City 2%, Man
Utd 26,5%, Newcastle 1%,
Norwich 5,1%, Tottenham
7,1%, W. B. A. 3,1% önnur
lið fengu engan stubning.
/ þessari viku er spurt. Ertu
hlynntur eöa andvígur því aö
sveitarfélögum á Vesturlandi
fœkki úr 17 í 5.
Svaraðu skýrt og
skilmerkilega á
www.skessuhorn. is
Vestlencfirujirr
viNnnar
Er sveitasveitin Hundslappa-
drífa í Stabarsveit sem í
sveita síns andlitis hefur
stritab vib ab gefa út nýjan
hljómdisk, sem ber nafnib
Tíu vetra. Þeir Hundslappa-
drífumenn eru sveitamenn
og eru ekkert ab reyna ab
fela þab hedlur eru stoltir af
því. Er þab vel.
Tvö slysalaus ár hjá Jámlendifélaginu
Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga.
Þann 27. septemer héldu
starfsmenn Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga upp
á að tvö ár eru liðin síðan slys
með fjarvistum átti sér síðast
stað á vinnustaðnum. Jóhann
Landmark, öryggisfulltrúi verk-
smiðjunnar, segir það stefnu fyr-
irtækisins að leggja áherslu á ör-
yggismál og upp
á síðkastið hefur
mikið forvarn-
arstarf verið
unnið í því skyni
að virkja áhuga
og meðvitund
starfsmanna um
öryggi á vinnu-
stað. „Það að
koma heill heim
er partur af því
starfi sem unnið er í Járnblendi-
verksmiðjunni og því er mikil-
vægt að allir leggist á eitt við að
tryggja öryggi þeirra sem um
verksmiðjuna fara,“ segir Jó-
hann. Hluti af því starfi er að
skrá og flokka öll óhöpp og
fylgjast grannt með því sem bet-
ur má fara á vinnusvæðinu. Far-
ið er yfir öll mál sem koma upp
og afstaða tekin til þess hvernig
færa megi það sem miður fer til
betri vegar.
Jóhann bendir á að til skarnms
tíma hafi öryggismál ekki verið
mjög ofarlega á baugi á Islandi,
en með tilkomu stóru iðnfyrir-
tækjanna hafi þetta breyst mjög
til batnaðar. „Nú er það almenn
krafa fyrirtækjanna að öryggis-
mál séu tekin alvarlega og þeim
sinnt. Okkur hefúr gengið vel
með þetta, starfsmenn sýna
ábyrgð og eftirtekt og afrakstur-
inn er þessi góði árangur sem
við fögnum nú. Við erum stoltir
af þessu!“ Segir Jóhann Land-
Þráðlaust breiðband í Borgarfirði
Frá undirritun samningsins í Hvönnum á Hvanneyri
sl. fimmtudag. F.v. Páll Brynjarsson, Linda Björk
Pálsdóttir, Stefán Jóhannesson, Davíð Pétursson
og Ólafur Guðmundsson.
Síðastliðinn fimmtudag var
ritað undir samning milli sveit-
arfélaganna norðan Skarðsheið-
ar í Borgarfirði og fyrirtækisins
eMax um uppbyggingu þráð-
lauss breiðbands í Borgarfirði.
Þráðlaust breiðbandskerfi nýtist
sem burðarlag fyrir margskonar
þjónustu s.s. til að tengjast Inter-
netinu, flytja útvarps- og sjón-
varpssendingar og fyrir effirlits-
og öryggiskerfi sem t.d. má nota
við fjarvöktun á sumarhúsum,
svo dæmi séu tekin. Samnings-
aðilar telja að með þessari upp-
byggingu verður Borgarfjörður-
inn brátt orðinn „best tengda“
svæði landsins, utan höfuðborg-
arinnar.
I samkomulaginu er gert ráð
fyrir því að a.m.k. 80% heimila í
þessum sveitarfélögum eigi nú
kost á að nýta þjónustuna og
95% fyrir 1. júní á næsta ári.
„Þetta er mjög mikilvægur á-
fangi í uppbyggingu dreifikerfis
eMax ehf. Eg er sérstaklega á-
nægður með þá
framsækni og á-
ræðni sem full-
trúar sveitarfé-
laganna hafa
sýnt í þessu
máli,“ segir Stef-
án Jóhannesson,
framkvæmda-
stjóri eMax ehf
eftir undirritun
samningsins.
Hann segir það
mikilvægt hags-
munamál að öllum íbúum og
fyrirtækjum í Borgarfirði standi
til boða sambærileg netþjónusta
og ADSL en sú þjónusta hafi
ekki hingað til staðið til boða
utan þéttbýlisstaða.
„Aukin ferðaþjónusta, frí-
stundabyggð og tvöföld búseta
sífellt fleiri kallar á betri net-
þjónustu og gagnaflutninga, en
ein af kröfum nútímasamfélags
er að geta tengt tölvuna hvar
sem maður er staddur og unn-
ið,“ segir Linda Björk Pálsdóttir
sveitarstjóri í Borgarfjarðarsveit.
Auk Borgarfjarðarsveitar eru
Borgarbyggð, Skorradalshrepp-
ur og Hvítársíðuhreppur aðilar
að samningnum. Nú þegar eru
hátt á annað hundrað heimili og
fyrirtæki tengd netinu í gegnum
eMax tengingar. Starfsmaður
fyrirtækisins á Vesturlandi er
Sverrir Guðmundsson í
Hvammi, sem áður rak fyrirtæk-
ið Tölvubóndann. MM
Vill gangagjald niðurfellt
Guðjón Guðmundsson vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
í Norðvesturkjördæmi hefur
lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar þess efnis að Alþingi feli
ríkisstjórninni að leita leiða til
að fella niður eða lækka veru-
lega veggjald í Hvalfjarðar-
göngum.
I greinagerð með þingsálykt-
unartillögunni segir m.a.“Frá
því Hvalfjarðargöngin voru
gerð hefur ríkið látið gera álíka
löng göng milli Fáskrúðsfjarðar
og Reyðarfjarðar, verið er að
grafa göng undir Almannaskarð
og ákveðið hefur verið að hefja
gangagerð milli Olafsfjarðar og
Siglufjarðar. Aður hafði ríkið
staðið fyrir Vestfjarðagöngum.
Þá hefur á undanförnum árum
verið lagt mikið fjármagn í
vegagerð, m.a. eru framkvæmd-
ir hafnar við tvöföldun Reykja-
nesbrautar sem mun kosta
u.þ.b. 4 milljarða kr. Það er
sammerkt með öllum þessum
samgöngumannvirkjum að
notkun þeirra er gjaldfrí að
Hvalfjarðargöngum einum
undanskildum. Það hlýtur að
teljast sanngirnismál að lands-
menn allir sitji við sama borð
hvað þetta varðar." GE
Guðjón Guðmundsson
Sundlaugaropnun
verkfallsbrot
Verkfallsstjórn Félags
grunnskólakennara og Skóla-
stjórafélags Islands hefur gert
alvarlegar athugasemdir við þá
ráðstöfun bæjaryfirvalda í
Snæfelssbæ að opna sundlaug-
ina í Olafsvík á þeim tíma sem
skólinn hefur öllu jöftiu til
umráða. Astæða þessara at-
hugasemda er sú að eftir að
verkfall grunnskólakennara
skall á ákváðu bæjaryfirvöld að
breyta opnunartíma sundlaug-
arinnar og hafa hana opna al-
menningi frá kl. 8 á morgnana
á meðan á verkfalli stendur.
Þessa ráðstöfun telur verkfall-
stjórn vera verkfallsbrot. GE
Samræmd-
umprófum
ffestað
Vegna yfirstandandi verk-
falls grunnskólakennara hefur
menntamálaráðuneytið
ákveðið að ffesta samræmd-
um prófum í íslensku og
stærðffæði í 4. og 7. bekk
grunnskóla, en prófin átti að
halda dagana 14. og 15. októ-
ber nk.
Menntamálaráðuneytið
mun senda grunnskólum bréf
með nýjum dagsetningum
þegar kennsla hefst að nýju.
Ráðuneytið telur rétt að skól-
um gefist ráðrúm til að koma
skólastarfi aftur í eðlilegt horf
að loknu verkfalli og munu
samræmdu prófin því ekki
verða haldin fyrr en a.m.k.
tvær kennsluvikur era liðnar
ffá lokum verkfalls. MM
Borgarfjarðar-
sveit sættist á
eignarhlut
Sveitarstjórn Borgarfjarð-
arsveitar hefúr staðfest til-
lögu Héraðsnefndar Borg-
arfjarðar um að 7% hlutur
Héraðsnefndar í Grundar-
tangahöfn skiptist á þann
hátt að Borgarfjarðarsveit
eigi 4% í höfninni, Skorra-
dalshreppur 1% og hreppar
sunnar Skarðsheiðar 0,5%
hver. I bókun sveitarstjórnar
Borgarfjarðarsveitar segir
að „þrátt fyrir að ýmislegt
bendi til að hlutur Borgar-
fjarðarsveitar ætti að vera
hærri, samþykkir hrepps-
nefnd tillöguna."
MM
Nýtt fiskveiði-
ár hafið
Þann 1. september gekk
nýtt fiskveiðiár í garð og um
leið lifnaði yfir smábáta-
úgerðinni frá Akraneshöfn.
Veiðin hefur verið dræm hjá
smábátasjómönnum þennan
fyrsta rnánuð, ef ffá era taldir
nokkrir góðir dagar eftir
bræluna í síðustu Uku, enda
hefur lítt viðrað til veiða. Að
sögn Einars Guðmundssonar,
viktarmanns á Hafnarvoginni
fiskaðist þó vel fyrri hluta síð-
ustu viku, mikið til af ýsu.
Bátarnir vora að skila sér í
land með frá 3 upp í 7,5
tonn, en það var Ebbi AK 37
sem átti stærsta róðurinn á
þessu tímabili og landaði 7,5
tonnum 27. september. Þetta
er jafnffamt mesti afli sem
einn bátur hefur haft síðan
nýja fiskveiðiárið hófst.
ALS