Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2004, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 06.10.2004, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 l -i / 7 s • Sriuiíiuglysuigar BILAR / VAGNAR Viltu kaupa bílinn minn? Þetta er MMC Galant '94 4x4, bein- skiptur rafrn. í rúðum og hiti í sætum. Er með rúmlega þokkalegar græjur sem seljast með. Gripurinn er metinn á 600 þús. og fer á 600 þús með öllum auka búnaði. Ahugasamir hafið sam- band í síma:846-6015. Langar þig í Golf? Til sölu VW Golf, sjálfsk. tveggja dyra árgerð 1995. Ekinn aðeins 107 þús. Bíll í góðu lagi. Upplýsingar sími 894-8998. Opel Vectra til sölu Opel Vectra GL 1600, 1998, ekinn 89.000, sjálfskiptur, vínrauður. Ný- skoðaður, reyklaus, lýtur vel út að inn- an og utan. Uppl: einar81@simnet.is Til sölu OPEL VECTRA Til sölu Opel Vectra, station árg. 1998, sjálfskiptur og með spólvörn. Alfelgur og DVD spilari. Reyklaus og mjög vel með farinn. Ekinn 105.000. Listaverð 820.000 og gott lán áhv. Uppl. í síma 696-6507. Jarðýta óskast. Mig vantar jarðýtu ca:10-16 tonna tdl kaups, má þarínast viðgerðar. Uppl. í síma 847-7784. Oska efirir Suzuki 4x4 fjórhjóli Óska eftir Suzuki 4x4 íjórhjóli 86-99 í varahluti. Má vera í hvaða ástandi sem er. Uppl. í síma 825-8081. DYRAHALD Til sölu Til sölu er brúnskjótt meri, alhliða hoss, með gott tölt, verð ca 200.000 kr. Uppl. í síma 865-9215. Kisan okkar er týnd Við höfum tapað kisunni okkar. Hann er hvítur með bröndótt skott og bröndótta bletti fyrir aftan bæði eyr- un. Einstaklega gæfur og kelinn kött- ur. Silli býr í Skorradalnum og hefur stundum farið á flakk en alltaf komið heim aftur, fyrr en núna. Uppl. síma 437-0164 eða 847-7725. FYRIR BORN Til sölu Til sölu barna bílstóll fyrir 0-9 kg. á 3.500 kr, bílstóll fyrir 9-15 kg, ferða- rúm á 5.500 kr, barnarúm 70x140 á 7.000 kr ogleikgrind á 3.000 kr. Uppl. í síma 893-5849. HUSBUN./HEIMILISTÆKI Hillusamstæða Til sölu dökk hillusamstæða í þremur einingum. Skápar, hillur og skúffiir. Uppl. ísíma 437-1791. Brýningar bitjáma. Tökum að okkur að brýna flestar gerðir bitjárna, svo sem,sporjárn, hnífa, skæri, hefiltennur og margt fleira, vönduð vinna. Uppl. gefur Ingvar Sigmundsson í síma 894-0073 og Kolla í síma 861-6225. PS: Endi- lega kannið málið. Frystikista til sölu Til sölu 3ja ára gömul AEG ffysti- kista. 428 lítrar og einungis notuð í 2 ár. Kostar ný 56.900, kr. en þessi fæst fyrir 36.000. Uppl. í síma 696-6507. Þurrkari Til sölu notaður þurrkari með barka. Verð 10.000 kr. Upplýsingar í síma 698-0868. Lazy boy stólar til sölu 2 stykki bláir Lazy-boy stólar, einnig sjónvarpsskápur úr fum. Uppl. í síma 864-3223 Borðstofuborð/ Homsófi Oska eftir vel með fömu og ódým borðstofuborði og stólum, einnig ó- dýmm og vel með förnum leður homsófa. Uppl. í síma 431-4012 og 894-4012, efiir kl.14. Leðursófasett Til sölu notað brúnt leðursófasett 3+1+1, selst á 15.000 þús. Einnig gler- borð á 5.000 þús. Er í Kópavogi. Uppl. í síma 848-1002. LEIGUMARKAÐUR íbúð til leigu Akranesi Ibúð til leigu miðsvæðis á Akranesi. Leigist með rafmagni og hita (Inni- falið í mánaðargjaldi). Langtímaleiga. Upplýsingar í síma 864-5507. Ibúð óskast Einstæð móðir með 2 börn og hund óskar eftir íbúð í Borgarnesi eða ná- grenni. Minnst 3ja herbergja. Verð- hugmynd: 50-70 þús á mánuði. Ingi- björg. Sími 844-0332. Ibúð óskast til leigu Oska eftir tveggja herbergja íbúð eða stúdíóíbúð til leigu í Borgarnesi eða næsta nágrenni ffá 15. nóvember. Skilvís, reyklaus og reglusöm. Upp- lýsingar í síma 849-4496 eftir kl. 18. OSKAST KEYPT Píanó óskast Notað píanó óskast á góðu verði. Upplýsingar í síma 866-3393. Borðstofuborð / Homsófi Oska eftir ódým og vel með förnu borðstofuborði og stólum, einnig vel með förnum ódýmm leður hornsófa. Uppl. í símum 431-4012 og 894- 4012, eftir kl.14. Þvottavél. Oska eftir þvottavél gefins eða fyrir lítinn pening. Upplýsingar í síma 899- 3464 eftir kl 17. TAPAÐ/FUNDIÐ Kötturinn Óliver er týndur! Oliver er nýfluttur í Skorradalinn en fékk heimþrá og er líklega á leið að Hvanneyri þar sem hann bjó áður. Ó- liver er stór, svartur og hvítur. Til hans sást við Syðstu- Fossa fyrir viku. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir kattarins, vinsamlega hafið sam- band í síma 437-0015 eða 699-3315. Svört peysa Svört rennilásapeysa með hvítum stöfum merkt GÞG fannst á Suður- götu, Akranesi. Upplýsingar í síma 431-4012. TIL SOLU Dýna Til sölu Serta rúmdýna, sem ný, stærð 116*200. Upplýsingar: Gunnar Ægir, sími 897-7188. Til sölu Isskápur (Whirlpool) 16x50 með frystihólfí, verð kr. 25.000. Upp- þvottavél (Electrolux ESF 662), verð kr. 30.000 og eldhúsljós, verð kr. 5.000. Upplýsingar í síma 860-0060. Nuddbekkur Glænýr ferðanuddbekkur með þykkri bólstmn og höfuðstykki. Auðvelt að stilla hæð. Hlífðartaska fylgir. Ótrú- lega gott verð. Nánari upplýsingar: 695-2642. Fotosellu rafsuðuhjálmur Hjálmurinn er nýr og ónotaður. Verð kr. 8000 kr. Uppl. gefur Jónas í síma 567-1431. Vindmylla til sölu Til sölu vindmylla með öllum búnaði fyrir sumarbústað. Sími 691-2208. Bensínrafstöð til sölu Til sölu bensínrafstöð 2,5 KW sem ný, gottverð. Sími 691-2208. Frystigámur Til sölu 20 feta frystigámur í góðu standi. Verð kr 300 þúsund, uppl. veittar í Geirabakaríi í síma 437-1920. TOLVUR/HLJOMTÆKI Píanó til sölu Til sölu gamalt piano, fallegur gripur í góðu ástandi. Verð 150.000. Uppl. sími 437-1298 eða 698-0868. Almennar tölvuviðgerðir Tek að mér allar almennar tölvuvið- gerðir. Frekari upplýsinar er hægt að nálgast á vefinum, www.netid.tk eða hafðu samband við Gunnar B í síma 869-3669. YMISLEGT Ferðafélagi Óska eftir ferðafélaga milli Akraness og Kópavogs. (Má vera R-vík) ffá 15. nóv. Þarf að fara af stað kl. 07.00 og fara til baka kl 16.00. Er með bíl. Uppl í síma 894-8038, María. Nuddbekkur Glænýr ferðanuddbekkur með þykkri bólstrun og höfuðstykki. Auðvelt að stilla hæð. Hlífðartaska fylgir. Ótrú- lega gott verð. Nánari upplýsingar: 695-2642. Ibúð til sölu í Borgamesi Rúmgóð íbúð í raðhúsi við Borgar- braut. Niðri er: Forstofa, þvottahús, hol, eldhús, stofa, baðherbergi & 1-2 svefnherbergi. Uppi: 3 svefnherbergi, snyrting og geymsla. Verður sett á sölu síðar hjá LIT Borgarnesi. ÞG, sími 661-7173. Hitablásari Hef til sölu mjög öfluga hitablásara sem brenna bæði steinolíu og dísel. Þetta er tilvafið í nýbyggingar og véla- skemmur, eða bara hvað sem þarf að kynda í lengri eða skemmri tíma, hef myndir og frekari upplýsingar ef ósk- að er. Góðar græjur á góðu verði. Uppl: stullitrukkur@hotmail.com Líkamsræktartæki Til sölu Kettler þrekstigi, lítið notað- ur, verð 15.000, kostar 35-40 þús nýr. Upplýsingar í síma 437-1298 eða 698-0868. jmir i miMnirvdbmmrí kimmumkih^ njbhkmfordimm miþérlmninguískir 28. september. Drengur. Þyngd: 3115 gr. Lengd: 52 an. ForeUrar: Helga íris Ingólfsdóttir og Helgi Valdimarsson, Akranesi. Ljósmóðir: Bima Gumiars- dóttir. 28. september. Drengur. Þyngd: 3550 gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Snjólaug Þyri Stefánsdóttir og Brynjar Sæ- mundsson, Akranesi. Ljósmæður: Ann- ar Bjömsdóttir /Jónína S Jónsdóttir, Ijósm.nemi. 4. októher. Stúlka. Þyngd: 4015 gr. Lengd: 55 cm. Foreldrar: Ingibjörg V. Sigurðardóttir og Ari Benediktsson, Akranesi. Ljósmæður: Anna Björns- dóttir og Jónína S Jónsdóttir, Ijósm.nemi. Akranes: Fimmtudag 7. október Kirkjukór Akraness í safnaðarheimilinu Vinaminnni. Kóræfing kl. 19:30. Vetr- arstarfið hafið og skemmtileg verkefni ffamundan. Getum bætt við okkur ten- órum. Ahugasamir hafi samband við Svein Arnar í síma 865-8974 / 433-1505 Akranes: Laugardag 9. október Stórtónleikar Hvanndalsbræðra kl 22 á Pizza 67, Akranesi. Dalir: Laugardag 9. október Námskeið hefst: Tha Chi í Dalabúð ATH Breytt staðsetning! I Grunnskólan- um í Búðardal lau. og sun. 9. og 10. okt. og 23. og 24. okt. kl. 10:00-12:00 og 14:00-16:00 Lengd: 16 klst Borgarfjörður: Sunnudag 10. október Saumadagur Samansaumaðra kl 10 í Björgunarsveitarhúsi Brákar. Saumum saman óvissuna eða bara hvað sem er. Verðum eitthvað fram eftir. Akranes: Sunnudag 10. október Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14 í Akraneskirkju. Vænst er þátttöku fermingar- barna og foreldra þeirra. Ungmennakórinn syngur. Einsöngur: Eva Rós Karlsdóttir. Borgarfjörður: Mánudag 11. október Námskeið hefst: Klipping staffænna myndbanda í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Mán og mið. kl. 19:30 til 22:00. Lengd: 24 klst. Borgarfjórður: Mánudag 11. október Námskeið hefst: Námskeið í Egilssögu I Snorrastofu og Búðarkletti til skipt- is. Fyrsti mánudagur í mánuði kl. 20:00 til 22:00. Lengd: 12 klst. Akranes: Mánudag 11. október Námskeið hefst: Skrautskrift í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Mán. og mið. kl. 19:30 til 21:00. Lengd: 12 klst. Borgaifjórður: Þriðjudag 12. október Námskeið hefst: Förðun Félagsbær/ Safnaðarheimilið. Þriðjud. kl. 20:00 til 22:00. Lengd: 4 klst. Utan Vesturlands: Þriðjudag 12. október Námskeið hefst: Hugmyndaffæði, saga og siðffæðileg álitamál á fjarfunda- stöðum á Vesturlandi. 12., 14. og 21. okt. kl. 17:00-20:50. Lengd: 20 klst. Borgarfjórður: Þriðjudag 12. október Fyrirlestur um Páskaeyju kl 20.30 í bókhlöðu Snorrastofu. Elena Ararki af ætt ffumbyggja eyjarinnar segir ffá Páskaeyju í máli og myndum. Sjá nánar í fréttatilkynningu og á www.reykholt.is. Fyrirlesturinn er á vegum Heimskringlu ehf. Enginn aðgangseyrir. Borgarfjórður: Miðvikudag 13. október Námskeið hefst: Grafíknámskeið í Grunnskólanum í Borgarnesi. Mið. 13. okt og sun. 17. og 24. okt. kl. 19:00 til 21:30 og 11:00 til 16:30. Lengd: 15 klst IDOL í Brún Leikdeild Ungmennafélagsins Islendings stendur fyrir Borgar- fjarðar-Idoli í Brún í Bæjarsveit, laugardaginn 30. október n.k. Skráningum fer senn að ljúka en ennþá er möguleiki að skrá sig hjá Betu í síma 437-0013 eða Jóni 437-0164. I fyrra var þessi keppni haldin í Brún i fyrsta skipti og þá gerðist það sem sjaldan hefur gerst áður í Brún að læsa varð dyrum og margir urðu frá að hverfa vegna mikillar aðsóknar. Svo spennan fer að magnast hjá íslendingum og nágrönnum. Heimsókn firá Páskaeyju Einn af síðustu afkomendum „Eyrnalanganna“ á Páskaeyju, El- ena Ararki, segir frá Páskaeyjunni og sýnir myndir þaðan, í bók- hlöðu Snorrastofu næstkomandi þriðjudag. Páskaeyjan sem aðeins er 117 km2 að stærð liggur í 3700 km fjarlægð frá vesturströnd Suður- Ameriku. Eyjan fannst á páskadegi 1722 og hefur verið nefhd Páska- eyja frá þeim tíma en upprunalegt nafn eyjarinnar er Rapa Nui og er það notað af innfæddum. Margar spumingar varðandi sögu og forn- leifaffæði eyjarinnar hafa vaknað í tímans rás og eru þær miklu um- fangsmeiri og áhugaverðari en stærð hennar gefur til kynna. Dulúðin sem einkennir Páska- eyju hefur löngum laðað að ferða- langa víðs vegar að úr heiminum og á síðustu ámm hafa dönsku rit- höfundarnir Carsten Jensen og Troels Klövedal ferðast um eyjuna og sagt ffá leyndardómum hennar í ýmsum fjölmiðlum í Danmörku og leikarinn Kevin Costner fram- leiddi myndina Rapa Nui sem nú er sýnd í dönsku sjónvarpi. Elena Ararki fæddist og ólst upp á Páskaeyju þar sem hún býr og starfar m.a. við að kynna ferða- mönnum sögu hennar. Hún til- heyrir samfélagi 2200 innfæddra sem búa á eyjunni í dag. Elena Ararki mun sýna litmynd- ir og segja frá Páskaeyjunni, sögu hennar menningu, goðsögnum og leyndardómum og hvernig er að lifa þar í dag. Hún flytur mál sitt á ensku. Fyrirlesturinn verður haldinn á vegum Heimskringlu í í samvinnu við Ferðaskrifstofu Harðar Er- lingssonar og ferðaskrifstofuna Cultours í Danmörku sem skipu- leggur menningarferðir um veröld víða m.a. til Páskaeyju . Allir eru velkomnir og aðgangs- eyrir er enginn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.