Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2005, Síða 10

Skessuhorn - 11.05.2005, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. MAI 2005 tálllfliftliíiiílá* ÓSKAR VESTURLANDSLIÐUNUM GÓÐS GENGIS í SUMAR hyrnutorgi - borgcirnesi s. 437 1707 AKRANESI KIRKJUBRAUT 8 ||g| Stuttur tími en góður hópur segja þjálfarar Skallagríms, Sigurjón og Hilmar Nýráðnir þjálfarar Skallagríms, Hilmar Hákonarson og Sigurjón Jónsson, þurfa að púsla saman liði á mettíma en ekki er nema hálfur mánuður síðan gengið var frá ráðn- ingu þeirra og Islandsmótið er í þann mund að hefjast. „Undirbún- ingstímabilið hefur vissulega verið laust í reipunum en engu að síður er að komast mynd á þetta hjá okk- ur,“ segir Hilmar. Skallagrímur sem leikur í þriðju deild, þriðja árið í röð, tók ekki þátt í deildarbikarkeppninni að þessu sinni og hefur aðeins spilað tvo leiki á undirbúningstímabilinu. Liðið sigraði Smástund í svokölluð- um Ingólfsbikar sem nokkur lið af suður og Vesturlandi taka þátt í. Lokatölur þar urðu 4 - 3. Þá léku Skallarnir æfmgaleik um síðustu helgi gegn Arborg og gerðu jafn- tefli 2 -2. Hilmar segir það vera ákveðið vandamál að leikmannahópurinn sé margskiptur. „Það eru fáir með vetursetu í Borgarnesi og það eru ekki nema 7 - 8 af hópnum sem hafa verið hér. Þá eru annað eins á Skagantim og nokkrir í Reykjavík, einn erlendis og einn á Vestfjörð- um. Þegar þetta er allt komið sam- an þá höfum við um tuttugu manan hóp sem á að vera vel brúklegur. Skagamennirnir koma tvisvar í viku í Borgarnes og Reykjavíkurstrák- arnir einu sinni í viku en þess á milli æfa menn einir sér eða í aðeins stærri hópum. Núna erum við hins- vegar að fjölga sameiginlegum æf- ingum og tökum þetta með trukki." Eins og leikmannahópurinn eru þjálfararnir tveir „dreifðir", Hilmar í Borgarnesi og Sigurjón á Akra- nesi. Sigurjón segir að þrátt fyrir stuttan undirbúningstíma leggist sumarið vel í sig. „Við erum með fínan hóp og nóg af strákum. Það er að vísu töluvert langt í land með að menn komist í toppform en það er allt komið á fullt og margt jákvætt sem við höfum séð í þessum tveim- um æfmgaleikjum. Það skiptir líka miklu að það er góður andi í hópn- um og vilji fyrir því að vinna riðil- inn og helst að komast upp í 2. deild.“ Sigurjón segir að það eigi að vera grundvöllur fyrir 2. deildarliði í Borgamesi og tímabært að kveðja þriðju deildina. „Við höfum mann- skap til að fara upp en það sem til þarf er að leikmennirnir sýni viljann í verki. Það er ekkert sérlega flók- ið.“ Hilmar bætir við að stefhan geti allavega ekki verið nema uppávið. Skallagrímur leikur að þessu sinni í c riðh 3. deildar og þeir fé- lagar segjast sáttír við það hlutskipti en Skallagrímur leikur gegn liðum af Suðurlandi, höfuðborgarsvæð- inu, Húnavamssýslu og Skagafirði. „Það er ágætt að losna við að fara vestur á firði en það er ekki stórmál að skreppa á Blönduós og Hofsós í staðinn," segir Sigurjón. Skallagrímsliðið Lið Skallagríms hefur tekið nokkrum breytingum frá í fyrra. Nokkrir era hættir eða farnir ann- að, þar á meðal Islandsmethafinn í markaskorun, Valdimar Sigurðsson en nýir menn hafa bæst í hópinn. Meðal annars er Olafur Adolfsson, sem þjálfaði Skallagrím síðustu tvö ár búinn að dusta rykið af gömlum töktum og ætlar að spila í vöminni í sumar. Þá hafa nokkrir Borgnes- ingar tekið ffam takkaskóna að nýju og jafnvel er von á tveimur til þremur leikmönnum til viðbótar. Leikmannahópurinn í dag: Hilmar Hákonarson, Einar Eyj- ólfson, Erlendur Breiðfjörð, Arnar Víðir Jónsson, Guðmundur Þor- björnss, Sölvi Gylfason, Heiðar Ernst, Guðmundur E. Guðjóns- son, Ingólfur Hólmar Valgeirsson, Björn Sólmar Valgeirsson, Hafþór Gunnarsson, Pétur Sigurðsson, Ragnar Rúnarsson , Sigurjón Jóns- son, Helgi Valur Kristinsson, Almar Viðarsson, Víðir Jónasson, Heimir Lárusson, Sveinbjörn Geir Hlöðversson og Ólafur Adólfsson. Leikir Skallagríms í C riðli 3. deildar 2005. sun. 22. maí. - 14:00 Hvbt - Skallagrí?nur Blönduósvöllur fós. 27. maí. - 20:00 Afríka - Skallagrímur Gervigrasvöllur Laugardal mán. 06. jiín. - 20:00 Skallagrímur - Hvíti riddarinn Skallagrímsvöllur fim. 16-jún,- 20:00 Skallagrímur - ÍH Skallagrímsvóllur fim. 23.jún. - 20:00 Deiglan - Skallagrímur Tungubakkavóllur fós. Ol.júl. - 20:00 Neisti H. - Skallagrímur Hofsósvöllur fós. 08. júl. - 20:00 Skallagrímur - Hvöt Skallagrímsvöllur fós. lS.júl. - 20:00 Skallagrímur - Afríka Skallagrímsvöllur miö. 20. júl. - 20:00 Hvíti riddarinn - Skallagrímur Varmárvöllur fós. 05. ágú. - 19:00 ÍH - Skallagrímur Asvellir fim. 11. ágú. - 19:00 Skallagrímur - Deiglan Skallagrímsvöllur lau. 20. ágá. - 14:00 Skallagrímur - Neisti H. Skallagrímsvóllur

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.