Skessuhorn - 14.09.2005, Síða 5
SiS£SSIM©BKi
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005
5
Slátrun hefst í Búðardal
á mánudag en ennþá
vantar starfsfólk
Slátrun í nýendurbyggðu slátur-
húsi í Búðardal hefst á
mánudaginn. Eins og ffam kom í
Skessuhorni í síðusm viku var hús-
ið tekið formlega í notkun við há-
tíðlega athöfn á sunnudag í síðustu
viku. Guðmundur Viðarsson í
Skálakoti hefur verið ráðinn slátur-
hússtjóri og hefur hann tmnið að
undirbúningi slátrunar síðustu
daga. I samtali við Skessuhorn seg-
ir hann undirbúninginn ganga vel.
Um 50 starfsmenn þarf til starfa við
slátrunina en ekki hefur tekist að
manna allar stöður. „Það hefur ekki
verið starfsemi í húsinu síðan 2003
og því tekur það tíma að manna
húsið að nýju. Það hafa orðið
breytingar í okkar umhverfi á þess-
um árum sem liðin eru frá því að
síðast var slátrað en ég trúi því að
við munum ná að manna allar stöð-
ur að nýju,“ segir Guðmundur.
Aðspurður um sláturloforð segist
hann vera bjartsýnn. „Það er auð-
vitað meira en að veifa hendi að
afla húsinu þeirra sláturloforða sem
það áður hafði og því mun taka
tíma að vinna því þann sess sem
það hafði og því ber. Byrjunin lofar
hins vegar góðu í því efni,“ segir
Guðmundur Viðarsson, sláturhús-
stjóri í Búðardal.
HJ
Attugustu ogjhnmtu réttir Bjarna
Brœðumir Bjami og Sveinbjöm Porsteinssynir frá Hurðarbaki í Reykholtsdal voru að
venju mœttir í Fljótstungurétt þegar réttað varþar sl. laugardag. Þeir bræður eru báðir á
tíræðisaldri og bera aldurinn vel. Bjami, sem alla tíð var bóndi á Hurðarbaki, hefur mætt í
Fljótstungurétt á hveiju ári í 85 ár en þangaðfór hann fyrst þegar hann var á 8. ald-
ursári.
Fleiri myndir úr Flótstungurétt og óðrum réttum á Vesturlandi bíða birtingar. Ljósm. MM
Þakkir
Innilegar þakkir til
allra þeirra sem
glöddu mig á 70 ára
afmœli mínu med
heimsóknum, gjöfum
og kveðjum. Guð og
gœfanfylgi ykkur.
Kata í Munaðarnesi ^
Höfðagrund
Nýlegt parhús á fallegum útsýnisstað á Akranesi. Húsið er
3ja herbergja 93,2 fm að stærð og er hannað með þarfir eldri
borgara í huga og er staðsett við hliðina á Höfða sem er
elliheimilið á Akranesi. Húsið er tengt elliheimilinu með 4
öryggishnöppum og hafa eigendur aðgang að flestri þjónustu
sem er í boði þar. Gólfefni íbúðar eru parket og flísar. Sólpallur
með heitum potti. Húsið stendur alveg við sjóinn og er með
fallegt útsýni yfir Faxaflóann. Verð 22,9
j S M Á R I N N
FASTEIGNASALA
! - heilshugar um pinn hag -
Vilhjálmur Bjarnason,
löggildur fasteignasali
Smáralind Kópavogi,
sími 564 6655
/
Þjálfaramál IA að skýrast
Ólafi Þórðarsyni þjálfara meist-
araflokks IA í knattspyrnu hefur
verið boðin ffamlenging á samningi
hans við félagið til loka keppnis-
tímabilsins 2008. Núgildandi
samningur Ólafs við félagið rennur
út eftir eitt ár. Eiríkur Guðmunds-
son formaður Rekstrarfélags meist-
araflokks IA segir í samtali við
Skessuhorn að hann vonist til þess
að þjálfaramál félagsins skýrist í
þessari viku. Að undanförnu hafa
verið vangaveltur í fjölmiðlum um
að Ólafur kunni að vera á förum til
starfa hjá Fylki. Asgeir Asgeirsson
formaður meistaraflokksráðs Fylkis
segir engar viðræður hafa átt sér
stað við hugsanlega þjálfara félags-
ins. „Það liggur fyrir að skipt verð-
ur um stjórn meistaraflokksráðs fé-
lagsins á næstu dögum. Þegar því er
lokið er fýrst tilefni til þess að fara
að huga að ráðningu þjálfara,“ seg-
ir Asgeir. HJ
SÝSLUMAÐUR SNÆFELLINGA
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
Laugardaginn 8. október 2005 fer víða um land fram atkvæðagreiðsla
um sameiningu sveitarfélaga. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
er hafin. í umdæmi sýslumanns Snæfellinga fer hún fram
á eftirtöldum stöðum:
Skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 í Stykkishólmi, virka daga kl. 10:00 -15:00
Skrifstofu sýslumanns, Hrannarstíg 2 í Grundarfirði, virka daga kl. 13:00 -17:00
Skrifstofu sýslumanns, Bankastræti 1A í Ólafsvík, virkadagakl. 10:00-15:00
Skrifstofu hreppsstjóra, Þverá í Eyja- og Miklaholtshreppi, virka daga kl. 12:00 -13:00
Skrifstofu hreppsstjóra, Mýrdal II í Kolbeinstaðahreppi, virka daga kl. 12:00 -13:00
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara
samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa skilríki meðferðis á kjörstað.
Stykkishólmi 31. ágúst 2005 Sýslumaður Snæfellinga..
Ferðahópurinn mun standa fyrir léttum ferðum fyrir fólk sem hefur áhuga á
útivist og íslenskri náttúru undir leiðsögn fólks með reynslu. Hópurinn mun
hittast reglulega og gera drög að ferðum sínum í sameiningu með félögum
sveitarinnar, ásamt því að fá fræðslu um almenna ferðamennsku.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi mun standa fyrir námskeiðum í
Ferðamennsku og Rötun í september og október i samvinnu við
Björgunarfélagið. Verður það nánar auglýst í námsvísi
Símenntunarmiðstöðvarinnar, á vef hennar www.simenntun.is,
og á vef Björgunarfélagsins, www.bjorgunarfelag.is.
Kynningarfundur fimmtudaginn 15. sept. kl. 20:00
í húsi Björgunarfélagsins að Kalmansvöllum 2.
Allireiga erindi í ferðahóp B.A.
Jafnt vanir sem óvanir.
Verið velkomin.
5ÍMGNNTUNARMIÐSTÖÐÍN
Á VeSTURLANDI
Björgunarsveit
- eitthvað jyrír þig?
Á hvetju hausti eru teknir nýliðar inn í starf
björgunarfélagsins.
ALdurslámark er 16 ára (f. 1989).
Kynningarkvöld
verður fimmtudagskvöldið 15. sept. kl.
20:00, í húsi félagsins Kalmannsvöllum 2
(beint ó móti Nettó). Þar býðst þér að koma og
kynnast starfsemi, búnaði og tækjum.