Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 25.01.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2006 ■.rLviliH... • • • Spuming vikunnar Hvaða þorramatur finnst þér bestur? Spurt í Logalandi í upphafi Borgfirðingablóts Jón Eyjólfsson: Súrir pungar, ekki spuming. Inger Helgadóttir: Súr sviðasulta. Guðrún Ólafsdóttir: Hertur steinbítur. Sigríður Harðardóttir: Súr sviðasulta. Haraldur Helgason: Siír svínasulta. Formaður Bændasamtakanna vill rýmka heimildir til tvöfaldrar búsetu Haraldur Benediktsson, formað- ur Bændasamtaka Islands og bóndi á Vestra Reyni vill að heimildir til tvöfaldrar búsetu verði rýmkaðar og komið verði upp skilvirku kerfi á milli sveitarfélaga í skiptingu réttinda og skatttekna annarra en fasteignaskatta. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti á íbúaþingi nýs sveitarfélags sunnan Skarðs- heiðar, sem fram fór á Hlöðum á dögunum. Haraldur ræddi um þá spreng- ingu sem orðið hefur í byggingu sumarbústaða sem í raun eru orðn- ir heilsárshús. Einnig ræddi hann um þá breytingu sem orðið hefur í sveitahreppum við fjölgun íbúa sem ekki stunda landbúnað heldur sækja vinnu annað. Haraldur sagði meðal annars í erindi sínu: „Margs konar árekstrar vegna athafna bænda verða við íbúa sem ekki skilja allan þennan áhuga á að dreifa illa lyktandi mykju á tún. Oll þessi vélaumferð hægfara dráttarvéla sem stöðugt eru fyrir á vegum, að ekki sé talað um véla- hljóð alla helgidaga langt fram eft- ir nóttu og snemma á morgnum frídaga. Þessar skepnur koma í garðana og borða sumarblómin. Að ekki sé vel séð að börn komi heim í fjós og fjárhús til að leika sér og skoða dýrin eða vélarnar. Þessi stanslausa afskiptasemi bænda af heilsubætandi göngutúr- um á fallegum ræktarlöndum og að lokum ótrúleg afskiptasemi af því þegar hundar eru viðraðir og leyft að hlaupa innan um fé. Eins og að lömbin verði ekki bara vöðvameiri fyrir vikið,“ sagði Haraldur í létt- um dúr í erindi sínu. Síðar sagði hann: „Hagsmunir sveitarfélaga, eða öllu heldur land- eigenda, af byggð frístundahúsa eru hér miklir. Svokölluð tvöföld búseta, þar sem fólk velur að eiga bæði íbúð í þéttbýli og hús í sveit, og í þessari fjarlægð við höfuð- borgarsvæðið er slíkt sannarlega valkostur. Gagnvart slíku stendur sveitarfélag berskjaldað. Víst má segja að í landinu gilda lög um bú- setu og lögheimili. Réttur eigenda frístundahúsa á sveitarfélög á þjón- ustu er síðan klipptur og skorinn. En þungi á réttindi gegn greiðslu fasteignaskatta mun aukast. Að ekki sé talað um ef ekki halda til Haraldur Benediktsson. lengdar þau lög um lögheimili þannig að fólk snúi búseturéttind- um sínum við. Notið íbúðina í þéttbýli sem aukaíbúð. Sveitarfé- lög bregðast við slíku með því að vísa í skipulag. En hugmynd mín er á þann veg að það eru hagsmun- ir landsbyggðar og sveitarfélaga að heimildir til tvöfaldrar búsetu Fálka undan Enni komið í aðhlynningu Þessi myndarlegi fálki fannst í grjótgarðinum undir Ólafsvík- urenni á miðvikudag í liðinni viku. Það var Jóhann Pétursson sem tók eftir fuglinum og ákváð að skoða hann betur. Fálkinn var ekki á því að láta handsama sig en þó var af honum dregið og var hann mjög skítugur. Gylfi Asbjörnsson kom Jóhanni til hjálpar og gátu þeir í sameiningu handsamað fuglinn. Fálkinn er ungur fugl sem líklega hefur ætlað að gæða sér á múkka sem mikið er af á þessum stað. Fálkinn hefur líklega orðið fyrir því að múkkinn ældi lýsi yfir hann. Fálkinn verður fluttur á Náttúru- fræðistofnun til frekari aðhlynn- ingar. MM A þessari mynd sem Alfons Finnsson í Ólafsvík tók eru þeirjóhann og Gylfi meSftlk- ann. A niyndinni er einnig Pétur Steinar Jóhannsson. A heimasíðu Alfons Finnssonar á vefslóSinni Tvww.12S.is/alfons erufleiri myndir affálkanum auk margra skemmtilegra mynda Alfons, en hann er ötull áhugaljósmyndari í Snafellsbee. Bítlalag frá Akranesi í undankeppni Eurovision A laugardaginn kemur verður annar þátturinn í undanúrslita- keppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í sjónvarpinu. Sem kurmugt er voru 24 lög valin úr hópi hundruða laga sem send voru til þátttöku. I þættinum á laugar- daginn verða flutt 8 lög og munu sjónvarpsáhorfendur velja fjögur þeirra til áframhaldandi þátttöku í keppninni. Svo skemmtilega vill til að meðal laganna átta á laugardag- inn verður eitt lag frá Akranesi. Það er lagið „Flottur karl, Sæmi rokk,“ sem Sævar Benediktsson samdi. Sævar er betur þekktur á Akranesi sem sjóntækjafræðingur og rekur hann gleraugnaverslunina Sjón- glerið. Sævar er þó ekki ókunnur tón- listarmaður. Hann lék á sjöunda áratug síðustu aldar í hljómsveit- inni Bravó sem naut mikilla vin- sælda unga fólksins. Sú hljómsveit vann sér meðal armars til frægðar að hita upp fyrir hina heimsþekktu hljómsveit Kinks. Síðar lék hann um tíma í hinni vinsælu hljómsveit Ingimars Eydal. I samtali við Skessuhorn segist Sævar nokkuð hafa fengist við laga- smíðar en ekki tekið þátt í slíkri keppni fyrr. Aðspurður um hið óvenjulega nafn segir hann að þegar lagið var í smíðum hafi orðið til textabrot um Sæma rokk. Með tímanum hafi hins vegar orðið niðurstaðan að halda þessari hugmynd að texta og því komi Sæmi þarna við sögu. Þeir lagahöfundar sem valdir voru í und- anúrslitakeppnina fengu úthlutað 20 tím- um í hljóðveri þar sem undirleikur var tekinn Sœvar Benediktsson. upp. Sá undirleikur verður leikinn við útsendinguna á laugardaginn. Sævar segist hafa leitað til nokkurra valinkunnra manna í undirleikinn. Söngvarinn er heldur ekki af verra taginu en það er Magni Asgeirsson söngvari hljómsveitarinnar A móti sól. Aðspurður segir Sævar lagið vera bítlalegt enda hafi hann ungur hrif- ist mjög að þeirri tónlist. Hann seg- ist auðvitað vonast til þess að lagið komist áffam í keppninni en það sé undir áhorfendum komið. Þegar lögin átta hafa verið flutt geta áhorfendur greitt atkvæði með því að hringja inn númer síns lags eða senda SMS. Með því ræður þjóðin í raun hvert verður hennar ffamlag í söngvakeppni sjónvarps- stöðva í Evrópu í vor. Ekki er að efa að íbúar Vesturlands munu láta til sín taka í því vali. HJ verði rýmkaðar. Það er raunveru- legur valkostur að vilja slíkt. Að geta skráð búsetu sína og valið á hvorn staðinn það vill þiggja þjón- ustu og/eða komið verði upp skil- virku kerfi sveitarfélaga í milli á skiptingu réttinda og skatttekna annarra en fasteignaskatta. I öllu falli á nýtt sveitafélag hér að leita leiða til að koma til móts við þessi sjónarmið. I þessu sambandi mætti slá ffam hugmyndinni að búsetu- formi sem kallast sveitabýli eða sveitasetur, er væri blanda af fastri búsetu og frístundabyggð. Slík skilgreining gæti nýst á öðrum sviðurn," sagði Haraldur Bene- diktsson í erindi sínu. HJ Fasteigna- gjöld óbreytt Bæjarráð Grundarfjarðar hef- ur samþykkt að ekki sé ástæða til þess að breyta álagningarstofni fasteignagjalda sveitarfélagsins. Eins og fram kom í ffétt Skessu- horns fyrir skömmu urðu deilur um málið á bæjarstjórnarfundi. Vildu bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lækka álagningarstofn í kjölfar þess að fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkaði um áramótin um 15% og atvinnu- húsnæðis um 10%. Að lokum samþykkti bæjarstjórn að gerður yrði samanburður á tekjustofn- um Grundarfjarðar og annarra sambærilegra sveitarfélaga. Yrði sá samanburður óhagstæður yrði leitað leiða til þess að leið- rétta þann mun. Þegar bæjarráð hafði fengið samanburðarlistann í hendur taldi ráðið ekki ástæðu til breyt- inga. HJ Forseti Islands í Grunda- skóla Forseti Islands, herra Olafur Ragnar Grímsson, kemur í op- inbera heimsókn í Grundaskóla á Akranesi þriðjudagsmorgun- inn 31. janúar. Með heimsókn forsetans vill hann kynna sér starfsemi skólans, sem hlaut Is- lensku menntaverðlaunin á síð- asta ári í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi. I fylgdarliði forsetans verður úthlutunarnefnd Islensku menntaverðlaunanna auk full- trúa ffá Sparisjóðunum sem eru helsti bakhjarl verðlaunanna. I heimsókn sinni mun forsetinn skoða skólann auk þess sem dag- skrá verður á sal. Þar mtrnu nemendur sýna brot úr leiksýn- ingum og skemmtunum skólans að undanförnu. I lok heimsókn- arinnar mun Forseti Islands sitja hádegisverð í boði Akranes- kaupstaðar. HJ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.