Skessuhorn


Skessuhorn - 25.01.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 25.01.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 2006 SHSSUH©BK Athyglisbrestur og ofvirkni Fjölskyldan, skólinn og samfélagið A þessari mynd e?~u um 120 grunnskólaböm. Miðað viðfölda greindra ADHD tilfella bér á landi má gera ráðfyrir að meðal þessara bama gætu verið 3-6 einstaklingar sem glíma við athyglisbrest og ofvirkni. Það skal tekiðfi'am að myndin befur engin tengsl við um- fjöllunarefnið. Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku var haldinn fræðslu- og kynningarfundur um ADHD í Grundarfirði þann 11. janúar síð- astliðinn. ADHD er alþjóðleg skammstöfun sem stendur fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder eða athyglisbrestur og ofvirkni. Það voru þær Vigdís Gunnarsdóttir félagsráðgjari Fé- lags- og skólaþjónustu Snæfellinga og Hildur Sæmundsdóttir hjúkr- unarfræðingur hjá Heilsugæslu Grundarfjarðar sem stóðu fyrir fundinum. Fundurinn var vel sótt- ur og svo virðist sem áhugi og þörf á kynningar- og fræðslufundum sem þessum sé virkilega þörf á Vesturlandi. Tilfellum fer fjölgandi Undanfarið hefur þeim börnum og unglinum farið fjölgandi sem greind hafa verið með athyglis- brest og ofvirkni hérlendis. Sam- kvæmt niðurstöðum rannsókna sem ADHD samtökin setja fram er talið að 3-5% einstaklinga í hverj- um árgangi uppfylli þessi grein- ingarviðmið. Ut frá því er hægt að áætla að um sé að ræða 2000 börn og unglinga á grunnskólaaldri, eða 1-2 í hverjum bekk að jafnaði. Þær u.þ.b. 2000 fjölskyldur sem málið snertir standa oft ráðþrota og hjálparlausar þegar þær takast á við þá erfiðleika sem fylgja því stóra verkefni að ala upp barn með at- hyglisbrest og ofvirkni því venju- legar uppeldisaðferðir duga skammt. Enn fordómar Þó svo að meðvitund samfélags- ins um ADHD hafi aukist sam- hliða aukningu í fjölda greininga og þekking foreldra og þeirra sem að kennslu þessara barna koma (kennarar og annað starfsfólk skóla) hefur aukist til muna, þá gætir enn skilningsleysis meðal al- mennings, fagstétta og jafnvel sér- fræðinga. ADHD samtökin greina frá því að enn leynast fordómar meðal almennings í garð einstak- linga með þessa röskun. I flestum tilfellum er um hreint og klárt þekkingarleysi að ræða. Orsök athyglisbrests eru líffræðileg Samkvæmt upplýsingum frá ADHD samtökunum þá hafa rann- sóknir bent til þess að orsakir of- virkni sé truflun í boðefnakerfi heila á stöðum sem gegna mikil- vægu hlutverki í stjórn hegðunar. Þessi taugaröskun er sögð algjör- lega líffræðileg og því ekki hægt að kenna umhverfisþáttum, slöku uppeldi eða óheppilegum kennslu- aðferðum um. Talið er að erfðir gegni mikilvægu hlutverki því í fjölskyldum og ættum þeirra sem greinst hafa með athyglisbrest og ofvirkni eru fleiri með þessi ein- kenni en almennt gerist. ADHD getur einnig komið fram í tengsl- um við sjúkdóma eða slys, t.d. höf- uðáverka eða áföll á meðgöngu og oft fylgja aðrar þroskatruflanir. Einkenni athyglisbrests ADHD samtökin lýsa einstak- lingi með athyglisbrest á þann veg að hann eigi erfitt með að einbeita sér að viðfangsefnum og því er heimanám t.d. oft mjög erfitt. Hann á erfitt með að koma sér að verki, er auðtruflaður og oft hvarflar athyglin í miðju kafi að einhverju öðru og verkefnið gleymist. Yfirleitt fylgir gleymska röskuninni og hlustun er ekki góð. Tímaskyni er oft áfátt og skipu- lagserfiðleikar eru nær alltaf fylgi- fiskar athyglisbrests. Hreyfióró- leiki lýsir sér þannig að einstak- lingurinn á erfitt með að sitja kyrr, er stöðugt á ferð og flugi og er frekar fiktinn. Afleiðingar Einstaklingur með ADHD á oft erfitt uppdráttar þar sem hann kann síður að lesa í félagslegar að- stæður. Töluvert er því um félags- lega einangrun meðal þessara ein- staklinga. Ymsir fylgikvillar fylgja röskuninni líkt og svefntruflun, kvíði og þunglyndi, mótþrói, námserfiðleikar, hegðunarerfið- leikar og hætta er á að sjálfsmynd einstaklingsins beri skaða af þeim stöðugu ósigrum í lífsbaráttunni sem hann tekst á við. Ef ekki tekst að finna skóla eða vinnu við hæfi fyrir þessa einstaklinga þegar líður á unglingsárin er aukin hætta á að- gerðarleysi, tölvufíkn, þunglyndi og vímefnavanda. Samtökin ADHD samtökin hafa í gegnum árin veitt einstaklingum og sveitar- félögum aðstoð og ráðgjöf um allt sem viðkemur lífi fjölskyldna ein- staklinga með athyglisbrest. ADHD samtökin hétu áður For- eldrafélag misþroska barna. I dag starfar félagið jafnframt að málefn- um fullorðinna með athyglisbrest og ofvirkni. Hægt er að nálgast þjónustu samtakanna í gegnum heimasíðu þeirra; www.adhd.is og í gegnum síma. Starf samtakanna felst meðal annars í því að veita fullorðnum og börnum með at- hyglisbrest og ofvirkni, sem og fjölskyldum þeirra, stuðning. Veita þeim upplýsingar, halda fræðslu- fundi, gefa út fréttabréf, standa að Ráðgjafarmiðstöðinni Sjónarhóli, halda námskeið og aðstoða við stuðningshópa / sjálfshjálparhópa og halda úti vefsíðu. Vesturland Fyrr í vetur var haldinn fundur í Borgarnesi fýrir foreldra barna með ADHD fyrir tilstillan Hjör- dísar Hjartardóttur félagsmála- stjóra í Borgarbyggð. Tilgangur þess fundar var m.a. að styðja for- eldra í því að koma á sjálfshjálpar- fundum. Ingibjörg Karlsdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir í viðtali við Skessuhorn að stefnt er að því að auka enn tengsl ADHD samtakanna við lands- byggðina og finna leiðir t.d. í gegnum fjarkennslubúnað við að koma á fræðslu og námskeiðum án þess að kostnaðurinn verði of mik- ill. „Eg hef fundið að sveitarfélög- in standa misvel fjárhagslega og því er tilvalið fyrir hópa á lands- byggðinni að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað t.d. þegar staðið er fyrir námskeiði um kennslu barna með ADHD í Reykjvík," segir Ingibjörg og bætir við að sveitarfé- lög hafa sótt eftir samstarfi við ADHD samtökin um fræðslu og ýmsa aðstoð en þörfin er mikil og mikið verk sé fyrir höndum. BG Reglur, agi og umhyggja Viðtal við foreldra 10 ára drengs sem greinst hefar með ADHD Að ala upp barn með athyglis- brest með ofvirkni er mikill vandi og krefst mikils aga, þolinmæði og nákvæmni. Samvinna foreldra, skóla, kennara og annarra sem með barninu vinna yfir daginn skiptir höfðumáli svo að allir aðilar vinni í takt og að sama markmiði. Blaða- maður Skessuhorns ræddi við for- eldra 10 ára drengs sem greindur var með athyglisbrest með ofvirkni þegar hann var á leikskóla. Að ósk viðmælenda eru engin nöfn nefnd. Verður að taka strax á hlutunum „Það var leikskófinn sem benti okkur á að fara með drenginn í greiningu. Sú greining sem hann fékk var í raun bara staðfesting á því sem að við vissum í raun fyrir. Hann hefur alla tíð verið mjög virkur, jafhvel meðan á meðgöng- unni stóð, öll hegðun hans benti til ofvirkni og svo er saga um ofvirkni í fjölskyldunni," segja foreldrar þessa 10 ára drengs sem á hverjum degi krefst mikillar umönnunar og eftirfylgni foreldra sinna. A Akranesi eru viðurkenndir greiningaraðilar, en það er barnateymi sem báðir sálfræðingar leik- og grunnskólanna og barna- læknir heilsugæslunnar mynda. „I kjölfar greiningar stendur foreldr- um til boða nokkur stuðningsvið- töl hjá sálfræðingi. „Við fórum í þessi viðtöl og lásum okkur einnig til,“ segja þau og nefna einnig að ómeðvitað hafi þau búið til rútínu í heimilislífinu strax. Þau segja það afar mikilvægt að ákveðnir hlutir hafi fastar skorður, eins og að sofna á ákveðnum tíma og borða reglulegan og borða hollan mat, bara til að heimilislífið gæti rúllað eðlilega. Lyf eða ekki lyf „Við höfðum þarna smá um- hugsunarfrest um hvað við ættum að gera varðandi lyf áður en hann fór í skóla. Loks ákváðum við að prófa að setja hann á lyf og þvílík- ur munur. Lyf eða ekki lyf, bæði hefur sína kosti og galla. Við urð- um að meta hvað skipti barnið mestu máli, það er mat hverra for- eldra hvað þeim finnst henta sínu barni. Það skipti öllu máli fyrir hann að líða vel fyrstu dagana í skólanum og að allir sem í kring- um hann voru væru jákvæðir, þannig gekk allt vel. Þó svo að lyfj- unum fylgi minni matarlist þá er hægt að fylgjast með því með blóð- rannsókn hvort að barnið fái ekki alla næringu. Svo er hægt að taka pásu með lyfin og leyfa barninu að ná sér á strik aftur næringarlega,“ segja þau. Enn leynast fordómar hjá almenningi gagnvart lyfjagjöf til þessara einstaklinga og aðspurð segjast þau persónulega ekki hafi fúndið fyrir því meðal fagfólks en frekar hjá almenningi sem ekki þekkir til. Samvinna skóla og heimilis mikilvæg Þau segja samstarf við skólann hafa gengið mjög vel frá upphafi. „Við settumst niður strax í byrjun skólans og funduðum með skóla- sálfræðingi og kennaranum hans. Góð samskiptabók er notuð á milli okkar og kennarans þar sem allt er skráð. Drengurinn fékk myndræna stundatöflu fyrir hvern dag og svo fyrir vikuna sem hjálpar honum að sjá hlutina í skýru samhengi. Hann fær verkefiialista fyrir daginn og þegar hverju verkefiii er lokið þá krossar hann yfir svo hann sjái hvernig gengur á verkefnin." Tómstundir eru einstaklingum með ADHD mjög mikilvægur hluti af hinu daglega lífi. Þar æfist hreyfing og samhæfingar líkamans, þar fá þau félagsskap og útrás sem skiptir miklu máli. Foreldrarnir segja frjálsan leik líka nauðsynleg- an en að hafa ákveðinn tíma ákveð- ins dags frátekinn fyrir tómstundir og íþróttir bæti við rútínuna og gefur þannig öryggi. Heimalærdómur krefst mikils „Hann lærir ekki einn,“ segja foreldrarnir. „Annað okkar situr hjá honum svo harm komist ekki frá borðinu. Best er að afmarka hvert verkefni í kennslubókinni því þá virðist það yfirstíganlegt. Ef verkefnin eru mörg þá þarf að gefa honum pásur á milli verkefna." Þau segja heimavinnuna kreljast mikillar skipulagningar. Að hún þurfi að fara fram fyrri hluta dags, strax eftir skóla því þá er drengur- inn ekki þreyttur og lyfin enn virk. Einnig er mikilvægt að ofgera ekki náminu og best að fmna hinn gullna meðalveg. -frh á nœstu síðu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.