Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2006, Síða 4

Skessuhorn - 08.02.2006, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 gSa’KSSMlMÍÍBW Bygginganefiid beitir dagssektum AKRANES: Byggingarnefnd Akraness hefur samþykkt tillögu byggingarfulltrúa bæjarins að beitt verði dagsektum til að knýja fram úrbætur á tveimur bygg- ingasvæðum í bænum. Um er að ræða lóðirnar Hagaflöt 7 og Holtsflöt 9. Akurhús ehf. í Reykjavík eiga byggingarétt á þessum lóðum og hafa þær nokk- uð verið í fréttum að undanfömu vegna slakra öryggismála. Meðal annars hafa miklar tjarnir mynd- ast í grunnunum og valdið slysa- hættu. Byggingafúlltrúinn hefur ítrekað reynt að knýja fram úr- bætur en án árangurs. Því telur nefiidin ekki fært að bíða lengur eftir úrbótum og hafa því verið lagðar á 3.600 króna dagssektir á hvora lóð um sig. Einnig fól nefndin byggingafulltrúa að hlut- ast til um að byggingarsvæðin verði girt af nú þegar á kostnað lóðarhafa. Rétt er að ítreka að fyrirtækið Ak- urhús ehf. er alls óskilt fyrirtæk- inu Akri á Akranesi sem stendur að húsbyggingum á Akranesi og víðar. -hj Gunnar gefur kost á sér AKRANES: Gunnar Sigurðsson bæjarfúlltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á hsta flokksins við bæjar- stjómarkosningamar í vor. Fram- bjóðendur verða valdir í prófkjöri síðar í vetur en framboðsffestur rennur út á sunnudaginn kl. 16. Gunnar er nú að ljúka sínu þriðja kjörtímabili í bæjarstjóm Akra- ness. Hann sagðist með framboði sínu vilja leggja sitt lóð áffarn á lóð betra bæjarfélags. „Þrátt fyrir að margt gott hafi áunnist á und- anfömum árum má margt betur fara og það verður spennandi verkefúi að takast á við. Það verð- ur gaman að fá tækifæri til þess að taka þátt í mótun sigursæls liðs sjálfstæðismanna í kosningunum í vor,“ sagði Gunnar í samtali við Skessuhom. Ekki hafa fleiri fram- bjóðendur tilkynnt opinberlega um framboð sitt í prófkjörinu. Benedikt Jónmundsson formaður kjörnefndar segir töluverðar fyr- irspurnir hafa borist nefndinni undanfama daga og því sé líklegt að nokkur ffamboð berist fyrir lok ffamboðsfrestsins. -hj Olíkt fylgi flokkanna í NV kjördænii miðað \ið á landsvísu í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup tun fylgi stjórnmálaflokkanna á lands- vísu era að auki birtar upplýsingar um fylgi flokkanna í einstökum kjör- dæmum. Könnunin var unnin ffá 28. desember 2005 til 30. janúar 2006 og var úrtaksstærð um 6000 manns. Svarhlutfall var 62% með vikmörkum 1-3%, svo ætla má að könnunin sé nokkuð marktæk. Rúmlega 20% tóku ekki afstöðu eða neituðu að svara og tæplega 6% sögðust myndu skila auðu ef kosið yrði í dag. Meðal niðurstaðna í könnuninni er að fylgi stjórnmálaflokkanna er nokkuð ólíkt í NV kjördæmi ef mið- að er við fylgi þeirra yfir landið allt. Þannig mælist t.d. fylgi Framsókn- arflokks mest í Norðvesturkjör- dæmi, eða 19% en á landsvísu mælist flokkurinn nú einungis með um 10,5% fylgi. Fylgi Samfylkingar er minnst í Norðvesturkjördæmi af öllum kjördæmum, eða 22% (27% á landsvísu) og næstminnst fylgi Sjálf- stæðisflokksins mælist í kjördæminu, eða 34% samanborið við 42,6% fylgi flokksins á landsvísu. Frjáls- lyndi flokkurinn er með 5% fylgi (2,1% á landsvísu) og Vinstri grænir hafa 20% fylgi í NV kjördæmi sam- anborið við 17,6% á landsvísu. MM Skólabúningar í Grunnskóla Borgamess Jóhann Erla Jónsdótti?-, formaður foreldrafélagsins tekur hér við styrk til kaupanna úr hendi Steinunnar Astu Guðmundsdóttur, skrifstofusjóra SPM. A hakvið má sjá krakka í nýju peysunum og aðra stjórnarmenn ífin-eldrafélaginu. Einelti í skólum hefúr verið mikið í umræðunni í þjóðfélaginu og er það eitt af mörgu sem kemur upp á borðið hjá foreldrafélögum víðsveg- ar um landið. Foreldrafélag Gmnn- skólans í Borgamesi hefur verið að takast á við eineltismál og hefúr nú beitt sér fyrir því að keyptar hafa verið flíspeysur fyrir alla nemendur skólans. Með því vonar stjóm félags- ins eftir að hægt verði að koma í veg fyrir það að einhver böm verði fyrir aðkasti vegna þess að þau era ekki í „réttu fötunum.“ „Þegar því verður við komið verða keyptir skólabúningur sem al- klæðnaður," segir í tilkynningu frá félaginu en það telur alklæðnað allra af sömu gerð vera ótvírætt til þæg- inda fyrir fjölskyldur grunnskóla- bama m.a. vegna kosmaðar við fata- kaup. Peysurnar sem nú hafa verið keyptar em merktar skólanum og nafú bamsins er einnig saumað í þær með sama lit og peysan sjálf er. Það er að hluta til gert af ásettu ráði að nöfnin sjáist sem minnst, en skóla- merkið er haft áberandi. Einnig er merki Spari- sjóðs Mýrasýslu á peysunum, en sjóðurinn styrkti verkefúið. „Það var mjög góð þátttaka í þessu verkefúi og era nú um 87% nemenda sem eiga sína peysur. Það er einnig gaman að segja ffá því að hinn græni litur skóla- peysanna smellpassar við félagshtina hjá Skallagrími og em þær því eink- ar hentugar þegar mætt er á leiki Skallagríms í körfunni,“ segir í til- kynningu frá foreldrafélaginu. Stjórnin vill koma á framfæri þakk- læti til Sparisjóðs Mýrasýslu sem gerði félaginu það kleift að ráðast í kaupin og einnig til foreldra og barna fyrir góðar viðtökur. MM Hagnaður SPM þrefaldaðist Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu varð 615,6 milljónir króna eftir skatta árið 2005, samanborið við 192,2 millj. króna árið 2004. Aukn- ingin milli ára er 220%. Sparisjóður Mýrasýslu eignaðist allt stofiifé í Sparisjóði Olafsfjarðar í byrjun apríl 2005.1 samanburðar- tölum samstæðunnar fyrir árið 2005 kemur efúahagur Sparisjóðs Olafsfjarðar að fullu inn, en rekstur hans frá 1. apríl 2005. Helstu fykiltölur og aðrar upp- lýsingar um rekstur Sparisjóðs Mýrasýslu árið 2005 sýna m.a. að vaxtatekjur námu 1.833,5 millj. kr. árið 2005 en það er 51,3% hækkun frá árinu 2004. Vaxtagjöld hækkuðu um 63,5% milli ára og námu 1.233,9 millj. kr. árið 2005. Hrein- ar vaxtatekjur námu 649,7 millj. kr. árið 2005 og hækkuðu því um 32,6% á milli ára. Hreinar rekstrar- tekjur vom 1.701,8 millj. kr. á árinu á móti 917,3 millj. kr. árið 2004 og hafa hækkað um 85,5% á árinu 2005. Framlag í afskriftarreikning útlána nam 284 millj. kr. á árinu sem er hækkun um 29,5% frá árinu 2004. í árslok 2005 em 524,9 millj. kr. í afskriftareikningi útlána sem er 2,3% af útlánum og veittum ábyrgðum sparisjóðsins. Rekstrar- gjöld sparisjóðsins vora 667,2 millj. kr. árið 2005 en vora 473,9 millj. kr. árið 2004, hækkunin er 41,1%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum er 39,2% miðað við 51,6% fyrir árið 2004. Rekstrarkosmaður sem hlutfall af eignum ernú 2,6% miðað við 3,0% árið 2004. Efhahagur og eigið fé Heildareignir samstæðunnar era 25.698,2 millj. kr. miðað við 15.870,3 millj. kr. í lok árs 2004, hafa þær vaxið um 61,9% milli ára. Útlán samstæðunnar hafa aukist um 57,7% á árinu og nema þau 20.766,2 millj. kr. í árslok 2005. Innlán samstæðunnar hafa aukist um 63,7% á árinu og nema 11.329,5 millj. kr. í árslok 2005. Eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu var 2.094,7 millj. kr. 31. desember 2005 en var 1.413,2 milljónir króna í árslok 2004, aukningin er 48,2%.Eiginfjárhlutfall samstæð- unnar samkvæmt CAD-reglum er 11% 31. desember 2005 sem er sama hlutfall og það var 31. desem- ber 2004. Aðalfundur Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn föstudaginn 24. febrúar. Stjórn sparisjóðsins leggur til að greiddur verði 15% arður á árinu 2006 vegna ársins 2005. MM Ungirí innbrotum AKRANES: Fyrir rúmri viku var brotist inn í íbúðarhús á Akranesi á meðan íbúamir vora fjarver- andi. Stolið var áfengi, peningum og úri. Fjórir piltar 15 og 16 ára vora færðir til yfirheyrslu hjá lög- reglu vegna málsins og hafa tveir þeirra viðurkennt að hafa brotist inn í þetta hús í tvígang. Mestur hluti þýfisins í innbrotunum skil- aði sér. Þó piltamir séu ungir að árum teljast þeir sakhæfir en sak- hæfisaldur er 15 ár. -mm Félag stofiiað um byggingu fiystihótels í Grundarfirði Þann 18. febrúar verður í starfsemi í Grundarfirði og má þar var auglýst útboð á fyrirstöðugarði Grundarfirði stofnað hlutafélag um byggingu og reksturs frystiklefa í Grandarfirði. Málið hefúr verið í tmdirbúningi um nokkurt skeið að sögn Þórðar Magnússonar ffarn- kvæmdastjóra Djúpakletts ehf. í Grandarfirði. Þórður segir að á undanförnum árum hafi staðið yfir mikil upp- bygging á ýmissri hafnsækinni nefna ísverksmiðjuna Snæís, en rekstur hennar hefur gengið vonum framar. Að þessari uppbyggingu hafa komið fjölmörg fyrirtæki, ein- staklingar og stofnanir. Frystiklef- inn eða ffystihótelið eins og bygg- ingin er kölluð manna á meðal verður um 6.000 rúmmetrar að stærð í fyrsta áfanga og mun rísa á landfyllingu við höfnina. Nýverið vegna landfyllingarinnar og því ekki ljóst hvenær bygging ffysti- klefans hefst en Þórður segist von- ast til þess að það geti orðið fyrir áramót. Hann segir að heildar- kostnaður sé áætlaður milli 120 og 130 milljónir króna og fjármögnun sé þegar tryggð bæði með hlutafjár- loforðum og lánsfé. UJ Bygging fyrirstöðugarðs boðin út GRUNDARFJÖRÐUR: Hafii- arstjórn Grandarfjarðar hefúr óskað eftir tilboðum í byggingu fyrirstöðugarðs og grjótvarnar framan við Stórabryggju í Grundarfirði. Um er að ræða flutning og hleðslu á um 16 þús- tmd rúmmetram af grjóti. Verk- inu skal lokið eigi síðar en 1. maí í vor. Að sögn Bjargar Agústs- dóttur bæjarstjóra í Grundarfirði er ætluiún að færa út núverandi fyrirstöðugarð við bryggjuna og við það verða til um 7.500 fer- metrar af nýju landi sem ætlað verður til uppbyggingar á hafú- sækinni starfsemi. Síðar verður dælt upp efúi í fyllinguna. Verkið er unnið samkvæmt nýju deiliskipulagi hafnarinnar og einxúg samkvæmt stefnumótun í málefúum hafnarinnar. -hj Misjafht hlutfall erlendra ríkisborgara VESTURLAND: Tæp 8% íbúa Eyja- og Miklaholtshrepps voru erlendir ríkisborgarar þann 1. desember 2004. Þetta kemur ffam í svari félagsmálaráðherra á Alþingi við fyrirspum Kristjáns L. Möller. Oskað Kristján effir upplýsingum um hlutfall er- lendra ríkisborgarar í öllum sveitarfélögum landsins. A Vest- urlandi er hlutfall erlendra ríkis- borgara hæst í Eyja- og Mikla- holtshreppi eins og áður segir. I Snæfellsbæ er hlutfallið 7,7% og í Grundarfirði er hlutfallið 7%. Skera þessi sveitarfélög sig að nokkra leyti úr öðrum sveitafé- lögum á Vesturlandi. I tveimur sveitarfélögum voru engir er- lendir ríkisborgarar á skrá. Það er í Skorradalshreppi og Kolbeins- staðarhreppi. -hj Foreldrar færa leikskólanum gj°f STYKKISHOLMUR: For- eldrafélag Leikskólans í Stykkis- hólmi færði skólanum nýverið staffæna myndavél að gjöf. Er það þriðja myndavélin í eigu skólans og verður ein vél stað- settt á hverri deild skólans. Vél- amar hafa allar verið gefúar af foreldrafélaginu. Það vora Eva Guðbrandsdóttir og Nadine Walter sem afhentu gjöfina fyrir hönd félagsins. -hj Sólveig segir upp AKRANES: Sviðsstjóri fjöl- skyldusviðs Akraneskaupstaðar, Sólveig Reynisdóttir, hefúr sagt starfi sínu laus effir um tuttugu ára starf hjá bæjarfélaginu. Sól- veig heldur til starfa hjá Reykja- víkurborg. A fundi bæjarráðs Akraness á fimmtudag vora henni þökkuð farsæl og góð störf og óskað velfamaðar. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqamesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skílafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þribjudögum. Auglýsendum er bent á ab panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þribjudögum. Blabib er gefib út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverb er 1000 krónur meb vsk. á mánubi en krónur 900 sé greitt meb greibslukorti. Verb í iausasölu er 300 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DACA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaöamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Cylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: fris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Cubrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.