Skessuhorn - 08.02.2006, Blaðsíða 5
SlKSSUHiÖBN
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 2006
5
Alver góðir vinnustaðir
að mati ASI
Fyrirtæki í áliðnaði á Islandi bjóða
góð og vel launuð störf og það end-
urspeglast í miklum stöðugleika í
starfsmannahaldi. Þetta kom fram í
erindi Gylfa Arnbjömssonar fram-
kvæmdastjóra Alþýðusambands Is-
lands sem hann flutti á ráðstefnu
sem Samtök atvinnulífsins efndu til
og bar heitið Orkulindin Island. I
máli Gylfa kom fram að meðal-
starfsaldur hjá Alcan í Hafnarfirði sé
með því lengsta sem gerist á vinnu-
markaði og hafi verið yfir 15 ár í árs-
lok 2005. Þessi langi starfsaldur
sýndi að mati Gylfa að starfsmenn
væm þokkalega sáttir við vinnuveit-
andann. Fyrir vikið er veltuhraði
starfsmanna mjög lítill eða um 3,5-
4% á ári til samanburðar við 30%
hjá félagsmönnum ASI almennt. Þá
kom ffam að samskipti milli stéttar-
félaga og fyrirtækja í greininni væm
víðtæk og almennt jákvæð.
Þá kom ffam hjá Gylfa að reglu-
leg mánaðarlaun verkafólks og iðn-
aðarmanna í álverum em mun hærri
en meðaltal þessara hópa á landinu.
Meðallaun allra starfa í álveram
hefðu verið 320 þúsund á sama tíma
og meðallaun iðnaðarmanna á land-
inu öllu hefðu verið 240 þúsund
krónur og verkafólks aðeins 160
þúsund krónur.
Slysatíðni í ál- og járnblendiiðn-
aði hefur farið hratt minnkandi á
undanfömum árum. A árinu 2000
var slysatíðnin um fimmfalt hærri en
í öðram atvinnugreinum en á síð-
asta ári var slysatíðnin orðin heldur
lægri en í öðmm atvinnugreinum og
er nú svo komið að lítið er um alvar-
leg slys í þessum iðnaði. Þessi ár-
angur hafi náðst með miklum skiln-
ingi og öryggisvitund starfsmanna
og stjórnenda auk þess sem þessi
fýrirtæki væm í dag frumkvöðlar í
öryggis- og aðbúnaðarmálum og off
á rnidan löggjöf í þessum mála-
flokki.
HJ
Leikskólakennarar vilja
gjaldfi'jálsan leikskóla
Tólf leikskólakennarar í Borgar-
byggð hafa sent ffæðslunefhd bæjar-
ins bréf þar sem þeir óska effir því
að gjaldskrá fyrir leikskólana verði
endurskoðuð þannig að leikskóla-
nám verði gjaldffjálst, að hluta í það
minnsta. I bréfinu kemur ffam að í
leikskólastefnu Félags leikskóla-
kennara segi að leikskólinn eigi að
vera hluti af menntakerfinu og því
skuh sveitarfélög markvisst vinna að
því að börnum gefist kostur á 6 tíma
leikskólagöngu á dag án endur-
gjalds. Segja leikskólakennararnir að
þar sem leikskólinn sé skilgreindur
lögum samkvæmt sem fyrsta skóla-
stigið telji þeir að öll börn eigi að
njóta leikskólavistar endurgjalds-
laust áháð efnahag foreldra. „Það
ætti því að vera metnaður sérhvers
sveitarfélags að bjóða upp á gjald-
ffjálst leikskólanám og viljum við
því hvetja Borgarbyggð til að fara að
dæmi annarra sveitarfélaga,“ segir
orðrétt í bréfinu. Bréfið var lagt
ffam á fundi ffæðslunefndar og vís-
að þar til bæjarráðs.
HJ
Mótmæla ákvörðun
dómsmálaráðherra
í síðustu viku vora bæjarstjóra
Borgarbyggðar afhentar undir-
skriftir 330 íbúa sveitarfélagsins
þar sem þeir mótmæla harðlega
þeirri ákvörðun dómsmálaráð-
herra að stofria lykilembætti lög-
reglu á Akranesi í stað Borgarness.
I bréfinu segir ennffemur að þeir
sem undir það rita sjái glöggt að
sýslumannsembættið og Héraðs-
dómaraembættið fari sömu leið.
GE
Hrafnkell Daníelsson afhendir Páli Brynjarssyni bœjarstjóra Borgarbyggðar undirskrift-
arlistann. Ljósm. GE
Fortuna stækkar við sig
Formna - Matstofa á Akranesi
hefur nýlega opnað matsal í hús-
næði Sementsverksmiðjunnar og
fer nú öll starfsemi fyrirtækisins þar
ffam. Matsalurinn og eldhúsað-
staðan hefur verið leigð af Sem-
entsverksmiðjunni sem fram til
þessa hefur rekið þar mötuneyti
starfsmanna sinna. Matstofan, sem
tekur um 80 til 100 manns í sæti,
býður meðal annars upp á súpu og
salatbar, pizzur og heitan rétt í há-
deginu fyrir sanngjarnt verð og er
því óhætt að segja að á boðstólnum
sé eitthvað fyrir alla. „Kvenmenn
sjást nú í auknum mæli með til-
komu salatbarsins og er það jákvæð
þróun, þótt meirihluti gesta séu
karlmenn í vinnugöllum," sagði
Magnús Freyr Olafsson annar eig-
andi Formna í samtali við Skessu-
horn. Hann sagði jafnframt að
fljótlega yrði ráðinn nýr mat-
reiðslumaður til að mæta aukinni
effirspurn og verða þá starfsmenn
fyrirtækisins fjórir. Fortuna af-
greiðir nú um 150 matarskammta á
dag fýrir bæði salargesti sem og til
útkeyrslu í
fýrirtæki og
er Magnús
bjartsýnn á
að sú tala
eigi eftir að
hækka enn
frekar. „Við
e r u m
ánægð með
nýja hús-
næðið sem
mun einnig
koma til með að gefa okkur mögu-
leika á tækifærisveislum." Aðspurð-
ur um veisluþjónustuna segir hann
verkefni vera næg en um 50% af
veltu fýrirtækisins fari í gegnum
hana og ekki er óalgengt að fýrir-
tæki af höfuðborgarssvæðinu kaupi
af þeim þjónusm.
Bróðir Magnúsar og samstarfs-
aðili, Hilmar Ægir Olafsson er yfir-
kokkur Fortuna en hann hefur rek-
ið fýrirtækið ffá því í janúar 2003.
Hilmar sagði mikilvægt að bjóða
upp á fjölbreyttan mat úr fersku
hráefni til að mæta kröfum fasta-
gesta sem era margir, en þess má
geta að starfsfólk Sementsverk-
smiðjunnar, um 30 talsins nýmr
veitinga þeirra á hverjum degi.
Hann fullyrðir að sami rétmrinn
komi ekki fýrir á matseðli nema
með tveggja mánaða millibili að
undanskyldu lambinu sem er að
hans sögn alltaf jafn vinsælt. Þeir
bræður segjast ánægðir með við-
tökurnar og sjá aukningu með
hverjum degi og eru fullvissir um
góða vaxtarmöguleika fýrirtækisins
í ffamtíðinni.
KÓÓ
112 DAGURINN Á AKRANESI
H2 dagurinn 2006 verður haldinn í annað sinn á landsvísu laugardaginn 11. febrúar nk.
Markmiðfð með 112 deginum er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem tengjast
því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvenig hún nýtist almenningi.
Viðbragðsaðilar á Akranesi, heilsugæsla og sjúkrahús, sjúkraflutningar, slökkvilið, lögregla
og björgunarfélag hafa ákveðið að standa að sameiginlegri kynningu á starfsemi sinni
og hafa opið hús á starfsmiðstöðvum sínum þennan dag.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Kl. 12:00
Björgunarbifreiðar, sjúkrabifreiðar, lögreglubifreiðar og
slökkvibifreiðar aka um bæinn og vekja á sér athygli
Kl. 13:00
Æfing verður sett á svið á mótum Þjóðbrautar og Innesvegar.
Þar verður almenningi gefinn kostur á að kynna sér hvernig
staðið er að björgun á slösuðu fólki úr bifreiðum með því að
nota m.a. klippur. Að æfingunni standa, lögreglan,
sjúkraflutningar, greiningarsveit SHA, slökkviliðið og
Björgunarfélag Akraness.
Kl. 14:00 -16:00 - Opið hús
RKÍ húsið:
Boðið upp á kaffi og vöfflur, húsið til sýnis eftir gagngerar
endurbætur. Starfsemi neyðarlínunnar kynnt og starfsmenn
sjúkrahúss og heilsugæslu veita upplýsingar, kynna
sjúkraflutningaþjónustu og búnað.
Almenningi verður boðið uppá:
• Blóðþrýstingsmælingar.
• Blóðsykursmælingar.
• Blóðmagnsmælingar.
Björgunarfélag Akraness:
Syna búnað og húsnæði, kynna starfsemi félagsins og hlutverk
og bjóða upp á léttar veitingar.
Slökkviliðið á Akranesi:
Býður bæjarbúum að skoða ný húsakynni liðsins, kynnast
bílaflota og búnaði og fræðast um hlutverk og starfsemi
slökkviliðsins. Boðið upp á léttar veitingar.
Lögreglan:
Gestum boðið að koma í heimsókn á lögreglustöðina, skoða
húsakynni, ræða við starfsmenn og kynnast skipulagi
þjónustunnar og þeim verkefnum og markmiðum sem lögrgelan
vinnur eftir. Gestum boðið upp á léttar veitingar.