Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2006, Side 6

Skessuhorn - 08.02.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 2006 §KESSIÍIi©gM „Meirihlutaílokkamir á Akranesi misnota bæjarsjóoa segir Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður og íbúi á Akranesi Magnús Þór Hafsteimson Magnús Þór Hafsteinsson, íbúi á Akranesi og alþingismaður Frjáls- lynda flokksins, segir fréttabréf Akraneskaupstaðar pólistískan áróð- ur sem meirihlutaflokkarnir eigi sjálfir að greiða en ekki bæjarbúar. Með útgáfunni sé verið að misnota bæjarsjóð og í fréttabréfinu komi fátt nýtt fram sem ekki hafi áður komið fram í fjölmiðlum. Hann óskar upplýsinga um hvað útgáfan kostaði. I síðustu viku kom út á Akranesi „Tíðindi úr kaupstað.“ I blaðhaus segir að þar sé um að ræða fyrsta tölublað fyrsta árgangs. Utgefandi er Akraneskaupstaður og umsjón með útgáfu hafði Markaðs- og atvinnu- skrifstofa og ritstjóri og ábyrgðar- maðtn er Jón Pálmi Pálsson, bæjar- ritari. I blaðhaus segir að því sé dreift á öll heimili og fýrirtæki á Akranesi. Blaðið er prentað í Prent- verki Akraness hf. Guðmundur Páll Jónsson bæjar- stjóri segir meðal annars svo tun til- gang blaðsins á síðu 2: „Tilgangur þessa fréttabréfs er að kynna betur fyrir bæjarbúum og öðrum áhuga- sömum ýmis verkefni, stór og smá, sem eru í vinnslu á vegum stofnana og deilda bæjarins og einnig margt Jón Pámi Pálsson, ritstjóri og ábyrgíarmaóur. af því sem framundan er í starfsemi bæjarins." Magnús Þór gerir alvarlegar at- hugasemdir við útgáfu fféttbréfsins. „Eg varð vægast sagt mjög hissa þegar ég fletti þessu svokallaða fféttabréfi Akraneskaupstaðar sem datt inn um bréfalúguna nú um helgina. Undarleg má hún heita, sú tilviljum að fjórum mánuðum fyrir sveitarstjómarkosningar, detti bæj- arstjórnarmeirihlutanum í hug með bæjarstjóra Framsóknarflokksins í fararbroddi að gefa út fyrsta tölublað fyrsta árgangs af þessu fféttabréfi. Þarna er bæjarritarinn, sem er einn af æðstu og væntanlega hæst laun- uðu yfirmönnum bæjarins, settur í hlutverk blaðamanns til að skrifa montsögur af völdum verkum nú- verandi bæjarstjórnarmeirihluta. Þetta hlýtur að vera best launaði blaðamaður landsins.“ Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt að fluttar séu fréttir af starfsemi bæj- arfélagsins segir Magnús: „Þegar „fréttirnar“ em lesnar þá kemur fátt nýtt fram sem maður hefur ekki þegar lesið eða heyrt um í fjölmiðl- um eins og Skessuhomi. í raun era þetta ekki fréttir, heldur grímulaus, en jafiiffamt lymskufulltn pólitískur áróður, settur ffam á kosningaári, útbúinn af starfsmanni bæjarins, prentaður og dreift á kosmað bæjar- búa. Eg geri þá kröfu sem íbúi og út- svarsgreiðandi á Akranesi að bæjar- stjórinn svari því hver heildarkostn- aðurinn hefur verið við gerð og dreifingu þessa auglýsingabæklings. Síðan er sjálfsagt að gjaldkeri bæjar- ins útbúi reikning fyrir auglýsinga- gerðinni og sendi hann á Framsókn- arflokkinn og Samfylkinguna á Akranesi. Ibúar Akraness eiga ekki að borga fyrir kosningaáróður þess- ara flokka og ég ffábið mér að þurfa að horfa upp á að þessir flokkar mis- notd bæjarsjóð til að koma árum sín- um fyrir borð í þeirri kosningabar- áttu sem framundan er,“ sagði Magnús að lokum. HJ Veðurathugunarstöð sett upp við Fíflholt Nýr umferðarvefur opnaður í Grundaskóla Sturla Böóvarsson, samgönguráðherra vígði vefinn. Sorpurðun Vesmrlands hf. og Veðurstofa Islands hafa gert með sér samning um uppsemingu og reksmr veðurathugunarstöðvar í Fíflholtum á Mýram. Veðurstofan sér um rekstur, eftirlit og viðhald sjálfvirkrar athugunarstöðvar við sorpurðunarstöðina í landi Fífl- holta og er stefnt að því að hún verði komin í gagnið eigi síðar en 1. mars á þessu ári. Stöðin mun mæla lofthita, rakastig, vindátt, tíu mínúma meðalvindhraða, þriggja sekúndna vindhviðu og úrkomu. Mælingar verða skráðar á tíu mín- úma ffesti. Samningurinn gildir í fimm ár eða til ársloka 2010. Engin veðurstöð hefur verið á staðnum en nú verða skráningar stöðvarinnar opnar almenningi á vefsíðu Veðurstofunnar. Sorpurð- un Vesturlands hf. er í eigu sveitar- félaganna á Vesmrlandi og á félag- ið jörðina. Þar er rekinn urðunar- staður þar sem sveitarfélögin koma með allt sorp sem heimilt er að urða. I tilkynningu ffá SSV segir að þeir verktakar sem losa sorp í Fíflholmm geta nú sannreynt á heimasíðu Veðurstofunnar veðr- átmna í Fíflholmm en þar er oft hvasst og þarf því stundum að loka fýrir móttöku sorps vegna hvass- viðris. Einnig bamar þjónustan við vegfarendur verulega þar sem engin veðurathugunarstöð hefur verið staðsett svo nálægt Snæfells- nesþjóðveginum sem nú verður raunin. HJ Smrla Böðvarsson, samgöngu- ráðherra, opnaði með formlegum hætti nýjan vef til umferðarfræðslu í Grundaskóla á Akranesi sl. fimmmdag. Eins og fram hefur komið í ffétmm Skessuhorns var á liðnu hausti gerður samningur við Grundaskóla á Akranesi um að skólinn verði móðurskóli umferð- arfræðslu hér á landi og hefur starfsfólk skólans unnið að gerð vefjarins. Vefurinn er hluti áætltmar um umferðaröryggi, sem er hluti gild- andi samgönguáætlunar. Vefurinn er þrískipmr. Einn hluti, sem kall- aður er krakkavefur, er ætlaður yngstu nemendum grunnskóla, annar er ætlaður eldri börnum og síðan er vefur fýrir kennara og for- eldra. Auk starfsfólks Grundaskóla hefur starfsfólk Umferðarstofu og Námsgagnastofnunar komið að samantekt fræðsluefhis á vefmun. Gert er ráð fýrir að á vefnum verði í framtíðinni íjölbreytt ffæðsluefni við hæfi allra grunnskólabarna þar á meðal vefleiðangrar, vefrallý og leikir og þrautir af ýmsu tagi. Hon- um er ætlað að vera í sífelldri þróun og verður bætt við námsefiii effir því sem þörf krefur hverju sinni. í fréttatilkynningu ffá Umferðar- stofu segir að opnun vefjarins marki tímamót í umferðarffæðslu í grunnskólum hér á landi því hún hafi því miður ekki verið nægilega markviss. I könnunum sem gerðar hafi verið kom í ljós að í mörgum grunnskólum er nánast engin um- ferðarffæðsla og í allmörgum er einhver fræðsla. Nokkrir skólar skera sig þó úr í þessum efnum. Við vígslu vefjarins kom ffam að Rannsóknarráð umferðaröryggis- mála (RANNUM) hafi á undan- förnum áram veitt nokkra styrki til kannana á stöðu umferðarfræðslu í skólum og einnig til gerðar náms- efnis og má hluta þess eftiis sem er á hinum nýja vef rekja til þeirra styrkja. Kennarar í Grandaskóla munu annast erindrekstur og kynningu á umferðarfræðslu og halda nám- skeið fýrir kennara og skýra mögu- leika vefsins í umferðarfræðslu. Hinn nýja umferðarvef er að finna á www.umferd.is HJ PISTILL GISLA Lagaleki Það vill víst svo óheppilega til að ég er ekld lögfræðingur og af þeim sökum á ég bágt með að skilja hinar ýmsustu deilur af lögfræðilegum toga sem upp blossa í þessu annars ágæta þjóðfélgi. Kannski þyrfti maður reyndar ffekar að vera lagaffæð- ingur til að skilja lagaflækjuna í kringum stóra Silvíu Næturmál- ið sem nú er efst á baugi. Sem kunnugt er hefur títt nefnd Silvía Nótt eða aðstandendur hennar öllu heldur, verið kærðir á grundvelli Evróvision laga fyr- ir svokallaðan lagaleka. Með öðrum orðum þá mun lag sem Silvía sönglar hafa lekið inn á Intemetið sem ekki virðist vera laghelt og heldur hvorki lagi né vindi svo því sé nú haldið til haga. Þótt ég sé sem fyrr segir ekki lögfræðingur og því síður laga- fræðingur þá geri ég mér samt grein fyrir því að þetta mál er afar athyglisvert í eðli sínu þar sem aðalpersónan í þessu stór- kostlega sakamáli er ekki til. Þótt annað megi skilja af um- fjöllun fjölmiðla þá er Silvía Nótt ekld manneskja af holdi og blóði heldur uppdikmð persóna sem leikin er af ágætri leikkonu sem heitir Agústa Eva ef mér skjöplast ekki. Ef hún verður dregin fyrir dóm þá er spurning hvort ekki er rétt að draga séra Sigvalda úr Manni og konu fyr- ir dóm fyrir innherjaviðskipti og fjársvik og fá Erlend lögreglu- þjón úr bókum Arnaldar Ind- riðasonar til að rannsaka málið. Einnig finnst mér koma til greina að fá Garðar Hólm stór- söngvara úr Brekkukotsannáli til að sjá um framlag Islendinga til Evróvision að þessu sinni. Ekld ætla ég að halda uppi vömum fyrir manneskju sem ekki er til en þó má ég til með að nefha að það sem Silvía hefur kannski ff am yfir marga þá lista- menn sem era sannarlega til í raunveruleikanum er að hún tekur sig ekki of hátíðlega. Eng- inn skildi vanmeta fíflagang þegar kemur að listsköpun þótt margir sjálfskipaðir menningar- vitar reyxú ítrekað að ganga af listinni dauðri með því að krefj- ast þess að hún sé sem leiðinleg- ust. Helst drepleiðinleg. Eg er heldur ekki búinn að gleyma því þegar Sverrir Stormsker sigraði í söngvakeppni sjónvarpsins en þá gengu nafhtogaðir listamenn af göflunum í beinni útsendingu og urðu sér til skammar. Þó er Sverrir ekki leikin persóna eftir því sem ég best veit. Hvað ffamlag Silvíu Nætur varðar þá er mér slétt sama hvort hún verður fulltrú íslands í Evróvision eður ei. Lagið er vel brúklegt og túlkun leikkon- unnar með ágætum. Textinn er hinsvegar afleitur en það væri stílbrot af okkar hálfu að senda til keppni lag með sómasamleg- um söngtexta. Gísli Einarsson, sem er raunverulega til hvort sem menn trúa því eða ekki.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.