Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2006, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 08.02.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006 Stærri draumar - stærri sigrar Rætt við Andrés Olafsson sem hryggbrotnaði í bílveltu síðastliðið sumar Líður best heima ífabmi fjölskyldunnar. Anna Gulla, móðir Andrésar segir breytinguna ekki mikla. „Hann er ennþá sami þrjóski stríðnispúkinn, eini munurinn er að hann get- ur ekki labbað. “ Mikil breyting átti sér stað í lífi Andrésar Olafssonar firá Gils- bakka II í Borgarfirði eftir að hann hryggbrotnaði í bílveltu síðastliðið sumar. Andrés lamað- ist firá mitti og hefur eftir slysið unnið hörðum höndum að því að aðlagast þeim breytingum sem áttu sér stað í lífi hans. Hann er hinsvegar staðfastur í því að Iáta þetta slys og afleiðingar þess ekki skerða drauma sína og markmið. En það er hugurinn sem ber Andrés meira en hálfa leið, á- kveðinn og í senn þrjóskur, eins og hann lýsir sér sjálfur, lætur hann ekkert stöðva sig. Sem drengur í sveit hafði hann alist upp við að geta hlaupið um holt og móa ffjáls sem fuglinn og tekið þátt í öllum daglegum athöfn- um sem því fylgir að hafa óskerta hreyfigetu. A einni svipan að kvöldi þjóðhátíðardagsins á liðnu ári breyttist þetta og þarf Andrés nú að læra að tileinka sér nýjar aðstæður lamaður frá mitd. „Eg vil hvergi vera nema hér heima á Gilsbakka," segir Andrés og horfir út um eldhúsgluggann sem býður uppá stórkostlegt útsýni niður sveitina, enda er Gilsbakki í Hvítársíðu almennt tahð vera með fegurri bæjarstæðum á landinu. Andrés er fæddur árið 1985, næstelstur sjö barna þeirra Ólafs Magnússonar og Önnu Guðlaugar Jónsdóttur á Gilsbakka. Andrés tek- ur kámr og brosandi á móti gestin- um og er svo sannarlega til í að spjalla um reynslu sína, lífið og til- veruna. Það er sest yfir kaffibolla og gætt sér á volgri ljúffengri jólaköku sem Jóhannes bróðir Andrésar hafði skellt í ofninn fyrr um morg- uninn. Lán í óláni Fyrrihluta sumars 2005 var Andrés að vinna hjá verktakafyrir- tækinu Snóki við vörubílaakstur. Hann segir það ætíð hafa verið draumastarf sitt að vinna á vörubíl og gröfum enda mikill bíladellukall. Eins og margt ungt fólk hefur Andrés verið mikið á ferðinni. „Maður var nú ekki alltaf rólegur þegar maður var að ferðast á milli staða en ótrúlegt en satt þá var ég nú ekki á mikilli ferð í þetta skipt- ið,“ segir Andrés um aðdraganda slyssins. Hann var á leið heim á stuttum tveggja dyra pallbíl og var að koma í aflíðandi beygju við af- leggjarann að Bæ í Bæjarsveit. „Þetta gerist á miðnætti að kvöldi 17. júní. Eg horfi á klukkuna slá tólf. Það eru deildar skoðanir um hvað gerðist námkæmlega, en það skiptir engum togum að bíllinn fer útaf og veltur, með þessum afleið- ingum.“ Andrés kastast út úr bíln- um og þegar hann rankar við sér stendur bíllinn, sem endaði aftur á hjólunum, alveg uppvið líkama hans. Aðspurður hvort að hann hafi verið spennmr í öryggisbelti segir Andrés svo ekki hafa verið og út- skýrir: „Sem betur fer var ég ekki í belti, en var þó vanur að nota þau, því ég tel mjög sterkar líkur á því að ég væri mun verr farinn ef ekki dá- inn ef ég hefði verið í belti. Þakið lagðist hressilega niður bílstjóra- megin og hefði því hreinlega geng- ið inní hausinn á mér eða kramið mig niður ef ég hefði verið spennt- ur fastur. Þetta var lán í óláni að mínu mati,“ segir Andrés. Lappimar virkuðu ekki Andrés segist ekki hafa misst meðvitund við veltuna en útskýrir að þegar svona atburð beri að þá gerist hlutirnir svo hratt að hugur- inn nái ekki að meðtaka allt sem gerist og því í rami hægt að segja að hann hafi dottið út í smá tíma þar sem hann man ekki hluta af atburð- arrásinni. „Það næsta sem ég man efdr, ffá því að bíllinn veltur, er þegar ég ranka við mér og allt var orðið kjurrt," segir Andrés. „Sá fyrsti sem kemur til mín út í móann var Gunnar Gauti dýralæknir og er ég honum afar þakklátur fyrir þá hjálp sem hann veitti mér sem og því fólki sem á eftir honum kom og var hjá mér þar til sjúkrabíllinn kom. Fyrsti bíllinn sem kom að slysinu hélt reyndar áfram en við- komandi ökumaður hrindi í neyð- arlínuna. Eg man ekki hvort að ég var mikið kvalinn en það sem ég kvartaði helst um var að lappirnar á mér virkuðu ekki,“ segir Andrés og brosir út í annað og bætir við að hann hafi strax gert sér fulla grein fyrir hvað gerst hafði. „Eg var bú- inn að greina mig löngu á undan lækninum, það þurfti ekki að segja mér hvað hafði komið fyrir." Mænan illa skemmd Andrés var fluttur beina leið til Reykjavíkur þar sem rannsóknir tóku við. Sýndu þær að mænan var illa skemmd á því svæði sem hrygg- urinn hafði brotnað. Strax eftir að Andrés hafði jafnað sig á mesta áfallinu eftir slysið hófst endurhæf- ing. „Eg var fimm og hálfan mánuð á endurhæfingardeild Grensás. Þá helgi í september sem réttað var í Fljótstungu var spurning hvort ég fengi fyrsta helgarleyfið, en fyrir mér var það engin spuming, ég ætl- aði að fara, það kom ekki til greina að missa af réttunum," segir Andrés brosandi. Þangað fór hann og var vel fagnað af nágrönnum sínum og vinum í sveitinni. Líður best heima Andrés segir allt hafa orðið mikið betra eftir að hann komst heim og segist ekki vera neitt sérstaklega hrifinn af læknunum og því sem þeir gera fyrir hann. „Síðustu tveir mánuðirnir á sjúkrahúsinu voru þónokkuð erfiðir, maður var orðinn ansi pirraður á þessari vist. Mig langaði mest til þess að komast heim,“ segir hann. Þegar Andrés er spurður að því hvernig honum liði og hvernig honum hafi gengið að átta sig á þessari stóru breytingu á lífi hans svarar hann: „Ætli ég sé nokkuð búinn að átta mig á þessu ennþá, er enn svo „ligeglad“.“ Lætur ekkert stöðva sig Andrés segir frá því að með að- stoð náinna ættingja, sem hann er afar þakklátur, og styrk Trygginga- stofhunar, hafi honum tekist að koma sér upp bíl sem er útbúinn þannig að bremsu og bensíngjöf er handstýrt og þannig getur hann nú ekið hvert sem hann vill. Enn þarf hann að mæta reglulega til Reykja- víkur í eftirlit og meðferðir auk þess sem hann mætir til sjúkraþjálfa og styrktarþjálfa í Borgarnesi tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Því er það honum mjög mikilvægt að hafa bíl til að komast hjálparlaust á milli staða. En Andrés valdi sér ekki lægsta bílinn og segir hann það allt með ráðum gert. „Draumurinn er að komast aftur upp í vörubíl og geta ekið slíku tæki á ný. Það er smá æfing að komast upp í þá, komst samt upp í 44 tommu hækkaðan jeppa um daginn, þannig að þetta er allt að hafast. Eg veit að handstýrð- ir vörubílar eins og ég þarf eru til í öðrum löndum svo ég veit að þetta er hægt. Ef einhver myndi bjóða mér slíkan bíl til aksturs í dag, tæki ég því boði á stundinni.“ Það er nokkuð ljóst að Andrés á Gilsbakka er staðráðinn í því að láta ekkert stöðva sig þó svo að margir telji drauma hans nokkuð háfleyga. „Það er um að gera að hafa eins stór markmið og hægt er, þá er alltaf eitthvað að stefna að. Hvað gerir maður ef markmiðin eru of auðveld og þegar manni hefur tekist það sem maður stefndi að, hvað tekur þá við? Stærri draumar - stærri sigr- ar, ekki satt?“ Hvað framtíðina varðar er Andr- és enn að átta sig á hlutunum. „Það kemur allt í ljós, hef jafnvel hug á að fara í nám í haust. Veit ekki hvort að ég geti nokkurntíman yfirgefið Borgarfjörðinn alveg, fer allavega ekki langt,“ sagði þessi ungi og glaðlegi Borgfirðingur að lokum. BG Endurmenntun um endurlífgun og bráðaþjónustu Átak hefur verið gert á undan- förnu misseri í fræðslu meðal starfsmanna SHA í bráðahjálp, endurh'fgun og skyndihjálp. í vik- unni lauk námskeiðaröð fyrir al- menna stafsmenn á SHA í skyndi- hjálp, eldvörnum og neyðarvið- brögðum. Ríflega 100 þátttak- endur luku námskeiðinu sem tók hvert um sig 7 klst. Þá luku 3 sjúkraflutningsmenn mánaðar neyðarflutningsnámskeiði og þjálfun í Reykjavík fyrir nokkrum vikum og gert er ráð fyrir að aðr- ir 3 fari á sama námskeið síðar á þessu ári. Þá lauk tæplega 20 manna hópur lækna og hjúkrun- arfræðinga 16 stunda námskeiði í sérhæfðri endurlífgun í lok síðasta árs og um næstu helgi lýkur annar hópur samskonar námskeiði sem haldið verður í húsakynnum SHA. MM Andrés í bilnum sem honum tókst með aðstoð góðra cettingja aðfesta kaup á. Sérstók stöng sem liggurfrá bremsu og bensíng/öf upp að hœgri hendi gerir honum þannig kleift að aka bílnum alfarið með höndunum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.