Skessuhorn - 08.02.2006, Blaðsíða 9
„k£3stMQ>lSKÍ
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 2006
9
Ný könnim gerð á launamun
kynjanna í Borgarbyggð
Félagsmálanefnd Borgarbyggð-
ar, sem jafnréttismál heyra undir,
hefur falið félagsmálstjóra sveitar-
félagsins að endurtaka launakönn-
un til samanburðar á launum kynj-
anna. Hjördís Hjartardóttir félags-
málastjóri Borgarbyggðar segir að
könnun hafi verið gerð á sínum
tíma á launamun kynjanna. Var
hún miðuð við greidd laun í des-
ember 2003. I niðurstöðum henn-
ar hafi meðal annars komið í ljós
að meðaldagvinnulaun kvenna
voru 81% af meðaldagvinnulaun-
um karla.
Hjördís segir að með því að end-
urtaka könnunina nú vilji neíhdin
komast að því hvort eitthvað hafi
áunnist á þeim tveimur árum sem
liðin eru frá síðustu könnun. I
Borgarbyggð er í gildi jafnréttisá-
ætlun en að öðru leyti segist Hjör-
dís ekki hafa vita til þess að mark-
visst hafi verið unnið að minnkun
á launamtm þeim er staðfestur var
á sínum tíma. Hún segir ekki ljóst
hvenær könnunin verði fram-
kvæmd því fyrir nokkrum dögum
hafi verið teknar ákvarðanir til
hækkunar launa ákveðinna stétta
eins og fram kemur í frétt á forsíðu
Skessuhorns í dag. Því sé rétt að
hinkra með könnunina þar til þær
launabreytingar hafa náð fram að
ganga.
HJ
Reynt að samræma sumarleyfi
leikskóla og háskóla
Bæjarráð Borgarbyggðar hefur
hafnað ósk Viðskiptaháskólans á
Bifföst um að endurskoða sumar-
lokun leikskólans Hraunborgar á
Bifröst þannig að hann loki á sama
tíma og sumarleyfi eru í háskólan-
um. Sviðsstjóri fræðslusviðs vinnur
þó að lausn málsins.
Forsaga málsins er sú að á fundi
fræðslunefhdar þann 5. desember
síðastliðinn var tekin sú ákvörðun
að loka leikskólum í Borgarnesi og
leikskólanum Hraunborg á Bifröst í
fjórar vikur fyrir verslunarmanna-
helgi. A undanförnum árum hefur
starfsemi Viðskiptaháskólans á Bif-
röst breyst og er nú kennt allt árið
að undanskyldu sumarleyfi ffá 24.
júlí til 25. ágúst. Sumarlokun leik-
skólans fellur því ekki að sumarleyfi
starfsmanna og nema á Bifföst. Af
því tilefni sendi Runólfur Agústs-
son rektor bréf til Borgarbyggðar
þar sem segir meðal annars: „Fyrir-
huguð sumarlokun leikskólans
Hamraborgar tveimur vikum fyrir
þennan tíma
myndi raska skipu-
laginu verulega og
valda miklum
vandræðum. Svo
virðist sem að
skortur á upplýs-
ingastreymi milli
háskólans og bæj-
aryfirvalda sé um
stöðu þessa máls
að kenna. Skrifast
slíkt á undirritað-
ann. Það er ein-
dregin ósk mín að
sumarlokun leik-
skólans verði
breytt til samræmis við fyrirhugað
sumarleyfi háskólans.“
Bæjarráð ræddi á fundi þær at-
hugasemdir sem komið hafa ffam
um sumarlokunina en tók þá
ákvörðun að ekki verði gerð breyt-
ing ffá því sem áður hafði verið
ákveðið fyrir sumarið í ár en tíma-
setning næsta árs verði endurskoð-
uð. Eftir afgreiðslu bæjarráðs var
málið rætt í ffæðslunefhd og var
Asthildi Magnúsdóttur forstöðu-
manni ffæðslu- og menningarsviðs
falið að ræða við leikskólastjóra
Hraunborgar. Asthildur segir í
samtali við Skessuhorn að leitað
verði leiða til þess að leysa málið.
HJ
Samstarf um bókhalds-
og' skrifstofiiþj ón ustu
Um síðustu áramót gerðu Við-
skiptaþjónusta Akraness ehf. og
Skrifstofuþjónusta Vesturlands ehf.
með sér samstarfssamning með það
að markmiði að bæta og auka þá
þjónustu sem fyrirtækin veita. Við-
skiptaþjónustan hefur starfsemi
sína á Akranesi en heimili Skrif-
stofuþjónustunnar er í Borgarnesi.
Hjá fyrirtækjunum vinna nú alls 10
starfsmenn. ,Með samningnum og
því starfsfólki og öðrum sambönd-
um sem fyrirtækin hafa, getum við í
samstarfi veitt viðskiptavinum okk-
ar alla þá þjónustu sem einstakling-
ar og fyrirtæki þurfa á sviði bók-
halds, reikningsskila og skatta-
mála,“ sagði Konráð Konráðsson,
endurskoðandi hjá Skrifstofuþjón-
ustu Vesturlands í samtali við
Skessuhom. MM
| Sparisjóðurinn
Akranesi
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
Sparisjóðurinn Akranesi ogTM á
Akranesi óska eftir að ráða
starfsmann í fullt starf
Um er að ræða spennandi starf á nýjum vettvangi sem býður upp
á mikla möguleika til vaxtar í framtíðinni enda er starfseining þessi
ný af nálinni og talsverð þróun framundan.
Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði.
Reynsla af bankastörfum og/eða tryggingamálum er mikill kostur.
Leitað er eftir ábyrgðafullum og jákvæðum einstaklingi með ríka
þjónustulund sem getur sýnt frumkvæði og er lipur í samstarfi.
Umsóknir ásamt starfsferilslýsingum sendist á thorkell@spm.is
fyrir 19. febrúar en nánari upplýsingar veitir
Þorkell Logi Steinsson útibússtjóri í síma 861 4636
Mikill hagnaður hajá
Sorpurðun Vesturlands
A síðasta ári varð rúmlega 16,3
milljóna króna hagnaður af rekstri
Sorpurðun Vesturlands hf. eftir
skatta eða tæp 34% af tekjum.
Þetta kom fram á stjórnarfundi fyr-
írtækisins sem haldinn var 30. janú-
ar. Stjórnin leggur til að greiddur
verið 25% arður til hluthafa af
nafhverði hlutafjár. Jafhffamt var
framkvæmdastjóra falið að leita
ávöxtunarleiða fyrir lausafjármagn.
Tekjur félagsins námu rúmum
48,2 milljónum króna og rekstrar-
gjöld voru rúmar 18.5 milljónir
króna. Fjármunatekjur voru 784
þúsund krónur og hagnaður fyrir
tekjuskatt var rúmar 19,3 milljónir
króna.
Samtals voru urðuð 11.016 tonn
af úrgangi í Fíflholtum á árinu á
vegum fyrirtækisins en það er
nokkur aukning ffá árinu á undan
þegar 9.754 tonn voru urðuð. Þá
voru flutt til Fíflholta 2.941 tonn af
timburkurli sem er notað sem yfir-
lag við urðun og sparar þar með
jarðveg.
HJ
V
UVG
UNC» V(NS»TRI CjRÆN
Stofnfundur Ungra vinstri
grænna á Vesturlandi
Verður haldinn á Mótel Venus
miðvikudaginn 15. febrúar og hefst kl. 20:00
Dagskrá:
1. Avarp formanns UVG
2. Kynning á UVG
3. Stofnun félags UVG áVesturlandi
4. Kosning stjórnar
5. Ályktanir
6. Önnur mál
Hvetjum sem flesta til að mæta.
Ung vinstri græn - www.vinstri.is
Efþú hefur ekki möguleika á því að
mæta en vilt taka þátt f starfl UVG
hafðu samband i síma 896-1231
FORTUNA
V EI SLUÞJÓNUSTA
ATVINNA
Vegna aukinna umsvifa óskar Fortuna Veisluþjónusta
eftir reyndum matreiðslumanni meðgóða þjónustulund
í fullt starf sem fyrst.
Áhugasamir hafi samband í síma 868 3332
(Magnús Freyr).
Utboð
LANDFYLLING VIÐ
STÓRUBRY GG JU,
GRJÓTVÖRN
Hafnarstjórn Grundarfjarðarbæjar óskar eftir
tilboðum í byggingu fyrirstöðugarðs og grjótvarnar
framan við Stórubryggju í Grundarfirði.
Helstu magntölur eru:
Grjót 0,1 til 4 tonn um 16.000 m3
Sprengdur kjami um 8.500 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2006.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu
Grundarfjarðar og skrifstofu Siglingastofnunar,
Vesturvör 2, Kópavogi frá þriðjudeginum 7. febrúar
gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum
miðvikudaginn 22. febrúar 2006 kl. 11:00.
Hafnarstjórn Grundarfjarðarbæjar.