Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2006, Qupperneq 14

Skessuhorn - 08.02.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 2006 Bærinn selur fjölbýlishús GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj- arráð Grundarfjarðar hefur ákveðið að auglýsa til sölu fjöl- býlishúsið að Sæbóli 33-35 í Grundarfirði og að húsið verði selt sem ein heild. I húsinu, sem byggt var árið 1978, eru fjórar tæplega 115 fermetra íbúðir og fjórar rúmlega 57 fermetrar að stærð. Fasteignamat hússins í heild er rúmar 46 milljónir króna og brunabótamat er tæp- ar 104 milljónir króna. ~h3 Jón og Jakob áfram í stióm KSÍ BOLTINN: Jón Gunnlaugs- son á Akranesi og Jakob Skúla- son í Borgarnesi voru meðal þeirra sem voru sjálfkjörnir til setu í stjórn Knattspyrnusam- bands Islands, en þing sam- bandsins verður haldið um næstu helgi. Jón hefur gegnt starfi ritara í stjórninni á und- anförnum árum og Jakob hefur verið fulltrúi Vesturlands í stjórninni. -hj Enn biðlisti hjá Tónlistar- skólanum STYKKISHÓLMUR: Um tuttugu manns eru nú á biðlista til náms í Tónlistarskólanum í Stykkishólmi. Þetta kom fram á fundi skólanefhdar skólans fyrir nokkru. Biðlistinn er þó styttri en hann var fyrir áramót því um áramót komust 15 nýir nemar að hjá skólanum. -hj Borgarverk fær tvö verk BORGARNES: Síðastliðinn fimmtudag voru opnuð tilboð í gatnagerð og lagnir í gamla miðbænum í Borgarnesi. Þrjú tilboð bárust og voru þau öll yfir kostnaðaráætlun um verkið sem hljóðaði upp á 42,1 milljón króna. Lægsta tilboðið var frá Borgarverki ehf. kr. 54,4 millj- ónir, eða tæplega 30% yfir kostnaðaráætlun. Einnig bárust tilboð frá Jörva hf. á Hvanneyri kr. 60,9 m. og frá Vélaleigu Sigurðar Arelíussonar kr. 64,5 m. Þá hafa einnig verið opnuð tilboð í veitulagnir við Stöðuls- holt. Borgarverk ehf. átti þar einnig lægsta boð, eða krónur 5,4 milljónir sem var 89% af kostnaðaráætlun Orkuveitunn- ar, sem hljóðaðið upp á um 6 milljónir kr. Fjögur önnur til- boð bárust og var það hæsta 198% yfir kostnaðaráætlun. -mm Bílvelta við Dýrastaði BORGARFJÖRÐUR: Bíll valt við Dýrastaði í Norðurár- dal um kl. 10 sl. laugardag. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi voru fjórir í bifreiðinni og sluppu allir án teljandi meiðsla. Orsök slyssins er óljós en færð var góð og ekki leikur grunur á að um of hraðan akstur né ölv- unarakstur hafi verið að ræða. -mm Fjórir úr ÍA á úrtaks- æfingum U-21 Lúkas Kostic landsliðsþjálfari hefur boðað fjóra leikmenn ÍA á úr- taksæfingar hjá landsliði leik- manna 21 árs og yngri í knatt- spyrnu. Andri Júlíusson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Helgi Pétur Magnússon og Arnar Már Guð- jónsson munu mæta á æfingar sem verða 11. og 12. febrúar. Andri og Helgi voru í síðasta úr- takshópi, Helgi Pétur hefur einnig verið áður kallaður til æfinga en Arnar Már er nýliði í hópnum. Næsta verkefni liðsins er æfinga- leikur við Skota sem fram fer 28. febrúar. HJ Vetrarleikar Dreyra Sigurvegarar í unglingaflokki: Valdt's Ólafsdóttir d Kolskegg, Sigurvegarar í opnumflokki: Ingibergur Jónsson á Bónus, Ólafur Kristín Inga Karlsdóttir á Gáska ogÁsta Marý Stefánsdóttir á Guðmundsson á Hlýra og Magnús Karl Gylfason á Galsa. Hilmi. Bamaflokk sigraíi Svandts Lilja Stefánsdóttir á Demanti. Síðastliðinn laugardag var haldið lögð stig knapa eftir þrjár keppnir Keppt var í tölti í þremur flokkum; fyrsta mót af þremur í vetrarleikum segir til um hver stendur uppi sem opnum flokki, unglingaflokki og Hestamannafélagsins Dreyra. Um sigurvegari. Einnig eru veitt verð- barnaflokki. er að ræða stigamót þar sem saman- laun eftir hverja keppni fyrir sig. BG lii löæs'' ■ fef .áÁ Kátt á hjalla á Jaðri Vistfólk á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík, starfsmenn og gestir þeirra blótuðu Þorra sl. föstudagskvöld. Mikið var um dýrðir í mat og skemmtan og fylltu veislugestir hvem krók og kima á Jaðri á nota- legri kvöldstund. Jón Amgrímsson flutti gamanmál og lék við hvem sinn fingur, félagar eldri borgara fluttu skemmtiatriði og mikið var sungið undir vaskri stjóm Steineyjar Kristínar Ólafsdóttur og Péturs Steinars Jóhannssonar. Bæjarstjór- inn Kristinn Jónasson meðal ann- arra tók þátt í að leiða söng ásamt því að segja gamansögur vestan af Fjörðum. Valentina Kai og Þor- steinn Jakopsson léku undir á harm- onikkur af mikilli sniUd. Undir lok- in stigu nokkrir dans við undirleik þeirra. Mikil ánægja var með blótið sem skipar árlegan sess á Jaðri. For- stöðumaður, vistmenn og starfsfólk Jaðars færa þeim fjölmörgu fyrir- tækjum, félagasamtökum og ein- staklingum sínar bestu þakkir fyrir margvíslegan smðning og hlýhug til heimilisins á liðnu ári. IJK Fellsstrendingar blóta þorra Þorrablót Fellsstrendinga var haldið á Staðarfelli 4. febrúar sl. Þar vora samankomnir íbúar sveit- arinnar, núverandi og fyrrverandi, og gestir víðsvegar að úr nágrenn- inu. Mikil og góð aðsókn var að blótinu og ekki spillti veðrið fyrir, því eindæma veðurfar hefúr verið síðustu vikur hér í Dölum. Eins og venjan er á þorrablótum var gert stólpagrín að sveitungunum og einnig vora tveimur herramönnum veittar viðurkenningar fyrir afrek sín á árinu. Verður ekki farið nánar út í þá sálma! Þorrakórinn söng nokkur lög og bæði kvenna- og karlakórar innan hans. A myndinni sést þorrablótsnefndin í sínu nátt- úrulega umhverfi. GTS Allt satt og ríflega það Hæfileikinn til að segja sögur býr í okkur öllum og má víða sjá á hin- um ýmsu stöðum, svo sem kaffi- stofum, bensínsjoppum og víðar fólk á spjalli; segjandi sögur. Ef fólk skynjar löngum til að segja sögur er hægt að fá tilsögn við að þróa ffá- sagnarlistina; hvað ber að varast eða ýkja, hvað á að draga ffam og svo ffamvegis. Hjónin Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir í Grundarfirði era þekkt af ffásagn- arlist sinni og sögum sem þau eiga auðveldara með en margir aðrir að færa í skemmtilegt frásagnarform. Þau hjón hafa bæði lært og síðan miðlað öðrum af þessari þekkingu sinni og kúnst að segja skemmti- lega ffá. Ingi Hans segir gjarnan: ,úkllar sögurnar mínar eru sannar og ríflega það, mestu skiptir að þær séu ekki leiðinlegar." Þau hjón hyggjast nú bjóða Vest- lendingum suður upp á námskeið í listinni að segja sögur og verður það haldið í Bókasafninu á Akra- nesi föstudagskvöldið 10. og laug- ardaginn 11. febrúar. Námskeiðinu lýkur síðan á sameiginlegri sagna- vöku á laugardagskvöldinu. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá Sí- menntunarmiðstöðinni á Vestur- landi í síma 437-2390. MM Forvam afræðsla í leikhúsferð Leikaramir í sýningunni „HvaS ef‘. Þann 9. janúar síðastlið- inn fóru 9. og 10. bekking- ar Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðar- skóla á skemmtifræðsluna „Hvað ef,“ í Ilafnarfjarð- arleikhúsinu. Að ferðinni stóðu foreldrafélög grunn- skólanna á Akranesi með rausnarlegum stuðningi Akraneskaupstaðar og úti- bús Landsbankans á Akra- nesi. Um var að ræða leiksýningu þar sem notast var við leik, söng, ljóð og tónlist til ffæðslu um skað- leg áhrif af neyslu vímuefna. For- eldrafélög Grundaskóla og Brekku- bæjarskóla vilja koma á ffamfæri þökkum til Akraneskaupstaðar og Landsbankans fyrir stuðninginn. An þeirra hefði foreldrafélögum skólanna ekki verið mögulegt að standa undir kostnaði við sýning- una en ferðin var nemendum al- gjörlega að kostnaðarlausu. MM Þorrablót í Tjamarlundi Þorrablót Umf. Stjömunnar var haldið í Tjamarlundi fyrir skömmu. Afar góð mæting var á blótið, eða vel yfir 160 manns enda átti máltæk- ið vel við; Þröngt mega sáttir sitja! Þrátt fyrir þrengslin skemmtu gestir sér konunglega og er ekki óhklegt að flestir þeirra mæti aftur að ári. Að vanda var gert góðlátlegt grín að sveitungum og nærsveinmgum enda hefúr fjölmargt markvert átt sér stað á liðnu ári. Meðal annars var nýr prestur sveitarinnar tekinn fyrir, sem og bæði nýr og ffáfarandi kaup- félagsstjóri, sólarlandaferðir íbúa, sameiningarmál, læknirinn, sinu- brennsla og margt fleira. Eins og mörg tmdanfarin ár sáu Þröstur og Gulli um að matreiða þorramatinn fyrir gestina eins vel og þeirra er von og vísa og hljómsveitin Skógarpúk- arnir sá svo um dansleik ffam eftir nóttu af mikilli snilid. A meðfýlgj- andi mynd er þorrablótsnefndin að syngja nefndarbraginn. GTS Þorrablót í Lindartungu Ungmennafélagið Elborg hélt sitt árlega Þorrablót í Lindartungu sl. föstudag. Mættu rúmlega 140 manns á blótið sem þýðir að það var fullt hús og vel það. Var þar mikil gleði og góður matur. Fóru leikarar í kvikmynd kvöldsins alveg á kostum undir öruggri stjóm Gísla Einarssonar, fféttamanns. Hljóm- sveitin Upplyfting lék svo fyrir dansi ffam á nótt. ÞSK

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.