Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2006, Page 2

Skessuhorn - 15.02.2006, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUAR 2006 Erlendir rík- isborgarar á Vesturland Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns fluttust 267 fleiri íbúar til Vesturlands en frá því á síðasta ári. Alls fluttu 124 íbúar brott og 391 fluttu til Vesturlands. Mikill mimur er á þessum tölum hvað íslenska rík- isborgara varðar og erlenda rík- isborgara. Aðeins 9 fleiri ís- lenskir ríkisborgarar fluttu til Vesturlands en ffá því í fyrra eða 93 frá og 102 fluttu tdl Vestur- lands. Hins vegar fluttu 31 er- lendur ríkisborgari frá Vestur- landi í fyrra en á sama tíma fluttu 289 erlendir ríkisborgarar til Vesturlands. HJ Til minnis Vib viljum minna alla karl- menn á konudaginn sunnu- daginn 19. febrúar og hvetj- um þá til ab glebja eiginkonur sínar, hver á sinn hátt. „Það er betra ab gefa en ab þiggja". Veðfyrhorfnr Gert er ráb fyrir nokkub hvöss- um norblægum áttum næstu daga en á morgun og föstu- dag verður alskýjab en þó úr- komulaust og hitastig um og vib frostmark. Á laugardag til mánudags má búast við frem- ur björtu veðri meb hægari vindi og frostlausu víbast hvar á landinu. SpiVrntncj viMnnar Á heimasföu Skessuhorns var í sföustu viku spurt: „Hversu hár var jólakreditkortareikn- ingur heimilisins?" Greinilegt er ab lesendur Skessuhorns hafa flestir áttab sig á skab- semi slíkra korta, því um 30% sögbust ekki nota kreditkort. 19% voru meb reikning undir 50 þúsund krónum, 18% þeirra sem svörubu voru meb reikning milli 50 og 150 þús- und, 13% meb reikning milli 150 og 250 þúsund. Jólakredit reikningurinn hjá 10% abspurbra var á milli 250 og 350 þúsund og heil 10% meb himinháan reikning, eba hærri en 350 þúsund krónur. Til ab einfalda þetta lítillega eru um 70% meb reikning undir 150 þúsund krónum eba nota einfaldlega ekki svo- leibis kort og má þab teljast nokkub gott mibað vib þab þenslusamfélag sem vib búum í næstu viku spyrjum vib: „Gefur þú blóm á konudaginn?" Svaraöu án undanbragöa á www.skessuhorn. is Vestlendin^ivr viKivnnar Ab þessu sinni er Vestlendingur vikunnar Haukur Þórbarson. Sjá mibopnu. Skortur á bifreiðaverkstæðum í Borgamesi Bjöm Jóhannesson. Á síðasta ári fækkaði bifreiða- verkstæðum í Borgarnesi verulega. Er nú svo komið að einungis eitt verkstæði er rekið á staðnum, en það er Sprautu- og bifreiðaverk- stæðið við Sólbakka. Verkstæðinu í Brákarey og Bifreiðaverkstæði Ragnars var lokað á sl. ári. Fleiri aðilar sem einnig hafa komið að al- mennum bílaviðgerðum til lengri og skemmri tíma hafa einnig hætt starfsemi. Ástand þetta er almennt talið bagalegt og þurfa Borgnesing- ar og Borgfirðingar að leita langt eftir almennum bílaviðgerðum. M.a. hefur orðið mikil aukning í verkefnum hjá biffeiðaverkstæðum á Akranesi af þessum sökum og enn aðrir sækja á höfuðborgarsvæðið eftir slíkri þjónustu. Björn Jóhannesson, annar eig- anda Sprautu- og bifreiðaverkstæð- isins við Sólbakka í Borgarnesi seg- ir ástandið mjög bagalegt. Hann rekur verkstæðið ásamt Pétri Jóns- syni og segir hann eftirspurn eftir þjónustu allt of mikla til að þeir félagar nái að hafa undan. „Það er slæmt að það séu ekki fleiri að sinna bílaviðgerðum hér í Borgar- nesi. Onnur verkstæði hafa lokað á mjög skömmum tíma og við höfum mikið að gera einungis við að leiðsegja fólki hvert það geti leitað með bíla sína í viðgerð.“ Sjálfur segir Björn að væri hann svona 15 árum yngri væri hann ekki í vafa um að þá myndi hann stækka verkstæðið hjá þeim til að geta haft fleiri menn í vinnu. „Við erum orðnir það fullorðnir að það er ekki vit í fyrir okkur að steypa okkur í skuldir til að stækka verkstæðið til að geta annað þeirri eftirspurn sem er eftir bílaviðgerð- um. Þess vegna skora ég á unga og ffíska menn að skoða af alvöru að gera slíkt. Það er ómögulegt að skortur sé á þjónustu sem þessari í vaxandi bæjarfélagi,“ sagði Björn að lokum. MM Samningar um uppbyggingu Krosslands uncfimtaðir Á fösmdaginn voru tmdirritaðir samningar um byggingu íbúða- hverfis í landi Kross í Innri-Akra- neshreppi. Um er að ræða hverfi með um 300 íbúðum. Verkefhið hefur verið undirbúið af bygginga- fyrirtækinu Stafha á milli ehf. á Akranesi en nokkur ár eru síðan svæðið var upphaflega skipulagt sem íbúðahverfi. Samningamir sem undirritaðir voru á föstudaginn voru milli Innri-Akraneshrepps, Stafna á milli og Orkuveim Reykja- víkur. Orkuveitan mun byggja upp og reka í hverfinu fráveim, gagna- veitu, hitaveim og vamsveim. Þá munu Rafmagnsveitur ríkisins byggja upp dreifikerfi fyrir raffnagn í hverfinu. Svæðið er um 6,8 hekt- arar að stærð og er Stafna á milli eigandi þess. Deiliskipulag svæðis- ins hefur verið unnið af Glámu- Kím arkitekmm og var það sam- þykkt í sveitarstjórn á síðasta ári. 300-400 manna byggð Fyrsti áfangi framkvæmda við hið nýja hverfi verður boðinn út næsm daga í svokölluðu alútboði og að sögn Þorgeirs Jósefssonar, fram- kvæmdastjóra Stafna er í þeim hluta hverfisins gert ráð fyrir 124 íbúðum á 24 lóðum. Hann segir stefnt að því að fyrsm lóðir í hverf- inu verði byggingarhæfar í maí og hyggst félagið auglýsa byggingarétt á lóðunum í mars. I samningi fé- lagsins við Innri-Akraneshrepp er auk hefðbundinna gatnafram- kvæmda samið um að félagið kosti byggingu leikskóli í hverfinu fyrir allt að 60 börn og að hann verði af- henmr í maí 2007 og einnig verði sparkvöllur í hverfinu tekinn í notkun í október 2007. Það voru Ása Helgadóttir oddviti Innri-Akraneshrepps, Þorgeir Jós- efsson framkvæmdastjóri Stafna á milli og Guðmundur Þóroddsson forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sem undirrimðu samningana við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu Miðgarði. I ávarpi sem Ása flutti við það tækifæri kom fram að samningurinn væri gerður í nánu samráði við sveitarstjórnir þeirra sveitarfélaga er sameinast Innri- Akraneshreppi í vor. Hún sagði að hugmyndir að uppbyggingu í landi Kross hefðu kallað fram töluverðar umræður innan hreppsins og því hefði þurft að vanda mjög alla samningagerð. Hún sagðist þess fullviss að íbúar myndu una samn- ingnum þrátt fyrir að hann kallaði á töluverðar breytingar á byggð í sveitarfélaginu. HJ Aukið eftirlit með atvTiinuréttindum údendinga á Akranesi Allnokkur umræða hefur verið að undanförnu um að vera kunni að misbrestur sé á því að atvinnu- og dvalarleyfa hafi verið aflað fyrir er- lenda starfsmenn sem starfa hér á landi. Eðli máls samkvæmt má gera ráð fyrir að ekki séu staðin skil á sköttum og gjöldum vegna vinnu starfsmanna sem starfa hér ólöglega og getur verið um verulega hags- muni að ræða. Miklar ffamkvæmd- ir standa nú yfir á Akranesi sérstak- lega í byggingariðnaði. Margir verktakar hafa átt í erfiðleikum með að fá menn til starfa og hafa því brugðið á það ráð að ráða til sín er- lenda starfsmenn. Skattayfirvöld og lögreglan á Akranesi ákváðu að kanna stöðu þessara mála og heim- sóttu lögreglumenn og starfsmenn eftirlitsdeildar skattstjóra fjölda fyr- irtækja í bænum nú í liðinni viku. Fyrstu niðurstöður þessarar vinnu benda til þess að ástandið í þessum málum sé nokkuð gott. Alls var könnuð staða mála hjá 40 er- lendum starfsmönnum og reyndust aðeins tveir ekki vera með leyfin í lagi. Annar þeirra var með nýút- runnið leyfi en hinn nýkominn til landsins. Að sögn lögreglu virðist gæta einhvers misskilnings varðandi starfsmenn frá Evrópusambands- ríkjum. Höfðu menn í einhverjum tilfellum ekki áttað sig á því að þó Evrópusambandsborgarar þurfi ekki atvinnuleyfi hér á landi, þá þurfa þeir að afla sér dvalarleyfa ef þeir dvelja hér lengur en 3 mánuði eða 6 mánuði ef þeir eru í atvinnu- leit. Einnig þarf að tilkynna til út- lendingastofhunar þegar þeir hefja vinnu hér. Einhverjir höfðu ekki áttað sig á þessu og töldu að sama gilti fyrir þá og íslendinga á öllum sviðum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Akranesi verður unnið frekar í málum þeirra tveggja sem ekki höfðu tilskilin leyfi og voru starfsmönnum og atvinnurekend- um kynntar reglur er varða Evr- ópusambandsborgara þar sem það átti við. Skattayfirvöld munu á næstunni vinna úr gögnum sem afl- að var. MM 112 og þjónustunúmer lögreglu BORGARNES: I tilefni 112 dagsins sem frarn fór þann 11.2 vill lögreglan í Borgarnesi minna héraðsbúa og aðra á að ef fólk þarf á aðstoð lögreglu að halda þá eigi nú að hringja í síma 112. Ef fólk þarf hinsveg- ar einhverjar upplýsingar hjá lögreglunni í Borgarnesi er nýr upplýsingasími þar 433-7612. Þá er hægt að ná í yfirlögreglu- þjón í síma 437-2166. Einnig er rétt að minna fólk á að ef það hefur upplýsingar um fíkni- efnamál og vill ekki láta nafn síns getið, þá er hægt að hringja í síma 871-1166 og tala inn á símsvara. Þá hefur lögreglan í Borgarnesi tekið upp nýtt net- fang sem er theo@tmd.is -mm Kjalar kaupir stóran hlut í HB Granda BORGARNES: Kjalar ehf. í Borgarnesi hefur keypt 5,19% hlut í HB Granda hf. Hluturinn sem er rúmar 88,5 milljónir að nafnverði, var áður í eigu Kers hf. Ef marka má síðasta sölu- gengi bréfa HB Granda má ætla að kaupverðið sé rúmar 800 milljónir króna. Kjalar kaupir hlutinn með framvirkum samn- ingi með uppgjörsdegi 9. ágúst 2006 en fer með atkvæðisrétt frá undirritun kaupsamnings. Eigandi Kjalars er Olafur Olafsson. Fyrir ekki svo mörg- um misserum hefði það þótt fremur ólíklegt ef einhver hefði haldið því fram að Borgnesing- ar ættu stærri hlut í fyrirtækinu en Skagamenn. En svona hafa málin engu að síður þróast^. ■ ~-hj Ohöpp og ölvun BORGARFJÖRÐUR: í síð- ustu viku urðu alls 5 umferðar- óhöpp í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi. I tveimur þeirra urðu minni háttar meiðsl á fólki. Þá voru tveir ökumenn teknir ölvaðir við akstur en annar þeirra slasaðist nokkuð er hann missti bifreið sína út af veginum og valt. Samtals voru 24 ökumenn teknir fyrir of hraðan aksmr í umdæmi lög- reglunnar í Borgarnesi í síðustu viku. -kóó Kosningar.is LANDIÐ: Félagsmálaráðu- neytið hefur opnað sérstakan kosningavef á vefslóðinni http://www.kosningar.is Vefur- inn er tileinkaður sveitarstjórn- arkosningunum sem haldnar verða laugardaginn 27. maí í vor. Markmið kosningavefjarins er að tryggja að allir sem á þurfa að halda geti nálgast á einum stað leiðbeiningar og aðrar upplýsingar sem snerta kosningarnar. Á vefnum er að finna upplýsingar og leiðbein- ingar fýrir kjósendur, fram- bjóðendur, kjörstjórnir, sveitar- félög og fjölmiðla um helstu at- riði tengd kosningunum og framkvæmd þeirra. Þá er á vefhtun að finna úrslit síðustu tveggja sveitarstjórnarkosninga í einstökum sveitarfélögum og fjölda annarra upplýsinga. -mm

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.