Skessuhorn - 15.02.2006, Side 9
iiiitssÍJHöEH
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUAR 2006
9
Bæjarstjóri segir ekkert
óeðlilegt við útgáfii fréttabréfs
GuSmundur Páll Júnsson, bœjarstjóri.
Guðmundur Páll Jónsson, bæjar-
stjóri á Akranesi segir ekkert óeðli-
legt við útgáfu Akraneskaupstaðar á
fréttabréfi því, Tíðindi úr kaupstað,
sem út kom fyrir nokkru. Magnús
Þór Hafsteinsson alþingismaður
gagnrýndi útgáfuna harðlega í síð-
asta Skessuhomi og sakaði meiri-
hlutaflokkana í bæjarstjóm um að
misnota aðstöðu sína til þess að gefa
úr pólitískan áróður nú þegar stytt-
ast fer í bæjarstjómarkosningar.
Guðmundur Páll segir bæjarfé-
lagið hafa í gegnum tíðina gefið út
ýmislegt kynningarefni enda til
staðar þekking meðal starfefólks tdl
þeirra hluta. Utgáfa fréttabréfsins
nú sé því ekkert nýnæmi. Hann seg-
ir það oít koma upp í umræðu að
bæjarfélagið kynni ekki nægilega vel
verk sín og með útgáfúnni sé verið
að reyna að bregðast við þeim rödd-
um. Aðspurður hvort tímasetningin
nú skömmu fyrir kosningar sé ekki
óheppileg segir hann svo ekki vera.
Útgáfan komi kosningum ekkert
við. Hann hafi í upphafi starfs síns
sem bæjarstjóri tahð þörf á að bæta
upplýsingastreyini og fljótlega hafi
vinna hafist við útgáfu fréttabréfeins.
Aðspurður um kostnað við útgáfúna
segir Guðmundur Páll hann ekki
liggja endanlega fyrir en það liggi að
mestu í prentun og dreifingu. Lítill
annar beinn kosmaður sé af útgáf-
unni enda mesta vinnan unnin af
starfemönnum bæjarins.
Aðspurður um þau orð Magnúsar
Þórs að með útgáfunni séu meiri-
hlutaflokkamir að misnota aðstöðu
sína vill Guðmundur Páll ekkert
segja. „Ég sé enga ástæðu til þess að
elta ólar við orð þingmannsins,"
segir hann að lokum.
HJ
Borgarbyggð:
Miklar fjárveitingar til skóla
og fþróttamarmvirlqa
í þriggja ára framkvæmdaáætlim
Borgarbyggðar sem samþykkt var á
dögunum er gert ráð fyrir miklum
fjárveitingum til byggingar nýrra
mannvirkja í skóla- og íþróttamál-
um. Framkvæmdaáætlunin gildir
fyrir árin 2007 - 2009. Er því ljóst
að bæjarstjóm Borgarbyggðar gerir
ráð fyrir mikilli fjölgun íbúa í sveit-
arfélaginu á næstu áram.
Að sögn Páls Brynjarssonar bæj-
arstjóra er gert ráð fyrir 300 millj-
óna króna fjárveitingu til byggingar
grunnskóla á Varmalandi og einnig
220 milljónum króna til viðbygg-
ingar grunnskólans í Borgarnesi. Þá
er einnig gert ráð fyrir stækkun
Iþróttamiðstöðvarinnar í Borgar-
nesi. Gert er ráð fyrir 300 milljóna
króna fjárveitingu til þeirrar fram-
kvæmdar. Páll segir að nú sé unnið
að hugmyndavinnu við þessar
ffamkvæmdir og niðurstaða þeirrar
vinnu liggi fyrir síðar. HJ
Frá framkvœmdunum vió Grundargötuna sl. baust.
U U. t l'L.*
Skoðanaskipti í Grundarfirði um
framkvæmdir við Grundargötu
Nokkur umræða fór fram á síð-
asta fundi bæjarstjórnar í Grand-
arfirði um framkvæmdir Vega-
gerðarinnar við Grandargötu, sem
liggur í gegnum bæinn. Ekki eru
menn á eitt sáttir með fram-
kvæmdirnar en bæjarstjóri segir
mikilvægast að framkvæmdin hafi
lækkað umferðarhraða og van-
kantar verði sniðnir af fram-
kvæmdinni í vor.
Þeir sem leið eiga um Grandar-
fjörð aka allir Grandargötu, sem
liggur í gegnum bæinn. Vegna
legu götunnar er hún skilgreind
sem þjóðvegur í þéttbýli og fram-
kvæmdir því á ábyrgð Vegagerðar-
innar. Gatan er breið og því hefur
umferðarhraði um hana verið
nokkur í gegnum árin og meiri en
flestir hafa viljað.
Á síðasta ári hófust framkvæmd-
ir á vegum Vegagerðarinnar með
það að leiðarljósi að umferðar-
hraði um göttma lækkaði. Hófust
framkvæmdir síðla sumars og
meðal annars var akstursleiðin um
götuna þrengd með lagningu nýs
kantsteins. Um leið þrengdist að-
gengi að húsum við götuna og
bílastæðum fækkaði. Það hefur
skapað nokkra óánægju og á fundi
bæjarstjórnar í síðustu viku vakti
Guðni E. Hallgrímsson máls á
ástandinu með bókun. Af henni
má ráða að hann er langt í frá á-
nægður með framkvæmdina. Segir
meðal annars að engin framkvæmd
hafi gert bæinn eins sóðalegan og
engin framkvæmd hafi valdið eins
mikilli óánægju. Garðar Svansson
bæjarfulltrúi tók undir með Garð-
ari svo og Emil Sigurðsson. Töldu
þeir ýmsu ólokið við verkið sem
ræða þyrfti við Vegagerðina.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
segir í samtali við Skessuhorn að
með framkvæmdinni hafi verið
þrengt að umferð við götuna og
einnig aðgengi að húsum við hana.
Það hafi valdið óánægju íbúa. Hún
segir engan ágreining hafa verið í
upphafi um nauðsyn þess að
bregðast við miklum umferðar-
hraða um götuna. Það sé heldur
enginn vafi í sínum huga að fram-
kvæmdirnar hafi skilað árangri að
því leyti. Þær hafi hins vegar farið
mjög seint af stað og því sé fram-
kvæmdum ekki lokið. Á næstunni
verði farið yfir athugasemdir við
framkvæmdirnar með það að
markmiði að þeim verði lokið á
þann veg að sem flestir verði sátt-
ir. Höfuðmálið sé að bragðist hafi
verið við þeim hættum sem mikill
umferðarhraði hafi skapað.
HJ
Narfeyrarstofa í Stykkishólmi
Café, Restaurant
Konudagshelgi íhólminum
Bjóddu elskunni þinni út að borða
á sjávarloftið á Narfeyrarstofu
Matseðill
Heitreykt grágœsarbringa með portvíns og
kirsuerjasósu
Léttsteiktar dádýralundir með pipar og
kantarellusveppum
Tertusneið að hœtti hússins.
Kaffi.
Athugið að nauðsynlegt
er að panta fyrirfram
Borðapantanir í símum
438-1119 og 895-7937
ATVINNA
Penninn á Akranesi auglýsir
eftir starfsmanni í verslun sína
að Kirkjubraut 54
Sölumaður
Samviskusemi, jákvæðni og stundvísi ásamt áhugi á
tölvum og tölvubúnaði eru skilyrði. Starfið felst i að
þjónusta viðskiptavini verslunarinnar, sjá um sölu og
pantanir á töívum og öðrum tölvurekstrarvörum.
Um framtíðartstarf er að ræða
Penninn er verslunarfyrirtæki sem þjónar bæði fyrirtækjum og
einstaklingum með þao að leiðarljosi að viðskiptavinir geti ætið
gengið að pægilegri og fjölbreyttri þjónustu í samræmi við þarfir
nvers og eins. Vöruframboð Pennans er á sviði skrifstofuvara og
afþreyingar s.s. bóka, tímarita, DVD og geisladiska
Umsóknir sendast á:
borgar@penninn.is - Borgar Jónsteinsson
PMiim í
Kirkjubraut 54 - Akranesi - sími 431 1855
Sunnudagskvöldið 19. febrúar er tilvalið
að bjóða elskunni sinni út að borða á Hótel Hamri.
'Mat&eðill:
'tfumaráúpa
QriUaðar smnahmdir með daðlwn og. mllimeppan&otto
Súkbdaðipíramíti
'Verð 4.400 kr
p.&. imukam v kaupkætt
IH
ICELANDAIRHOTELS
H A M A R
Simi 433 6600 - hamar@icehot«ls.is