Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 1
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI
25. tbl. 9. árg. 21. júní 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Tékkar á
Amarvatnsheiði
Fimm er-
lendir ferða-
menn á einum !
jeppa óku
fram hjá öll-
um lokunar-
merkjum á Land Rover bifreiðferSalang-
. anna sem enein lokunarmerki
Arnarvatns- 6
virtu ogfestu bifreið sína á
Amarvatnsheiði.
heiði aðfar-
arnótt föstu-
dagsins 16. júní og festu þar bíl sinn í
aurbleytu. Þurftu ferðamennirnir að
ganga allmarga kílómetra áður en þeir
komust í símasamband til að kalla eftir
aðstoð. Björgunarsveitin Ok fór á vett-
vang ásamt lögreglunni í Borgarnesi.
Voru Tékkarnir færðir á lögreglustöðina
í Borgarnesi þar sem málinu var lokið
með sektargerð að upphæð kr. 35.000
krónur. Auk þess þurftu þeir að greiða
kostnað við að koma jeppanum til
byggða.
SO/ljósm. Theodór Þórðarson
Utanvegaakstur
í Langavatnsdal
Utanvegaakstur kom í tvígang til kasta
lögreglunnar í Borgarnesi og björgunar-
sveitarmanna í síðustu viku. I öðru tilvik-
inu var um íslenska ofurhuga að ræða
sem að óku inn fyrir Langavatn, þó svo
að vegurinn væri þar á kafi í vatni á köfl-
um og inn í Langavatnsdalnum innan við
vatnið óku þeir síðan út í mýrarfen þar
sem þeir festu bílinn. Þurftu þeir síðan að
ganga langar leiðir til að komast í síma-
samband til að kalla eftir hjálp. Eftir
miklar rigningar hafði hækkað mjög mik-
ið í Langavatni en stífla er í ósnum til
vatnsmiðlunar í Langá. Við hækkandi
vatnsyfirborð fer vegurinn inn með vatn-
inu oft á kaf á vorin. Vegna þess hversu
ört hækkaði í vatninu þá gekk erfiðlega
að komast að mönnunum og að endingu
var brugðið á það ráð að senda bát frá
björgunarsveitinn Brák eftir þeim og á
honum var nánast hægt að sigla að bíln-
um þar sem hann sat fastur. Var mönnun-
um bjargað en bíllinn var skilinn eftir
enda verður ekki hægt að komast að hon-
um í bráð. SO
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.
Ibúar á Vesturlandi f ölmenntu til hátíðarhalda frjóðhátíðardagsins þó veðrið hefði getað verið betra. Víða var rigningarúSi en
hægur vindur. Lögreglumönnum á Akranesi, í Borgamesi og í Stykkishólmi bar saman um að þátttaka í hátíðarhöldum hafi
verið mjög góð. Um kvöldið voru víða dansleikir ogfóru þeir velfram. „Fólk var duglegt að sækjti viðburði dagsins ogprúð-
mennskan var ífyrirrúmi, “ sagði einn lögreglumaðurinn og var mjög ánœgður með samborgara sína. Umferð var að vanda
mikil um Vesturland um helgina og var hún slysalaus. Meðfylgjandi mynd er af skrúðgöngu í tilefiii dagsins á Akranesi, hér í.
lögreglufylgd á Garðabrautinni. Ljósm. HJ
Þjófurinn var í steininum
þegar innbrotið upplýstist
Lögreglan á Akranesi hefur
upplýst innbrot á skrifstofur
Sjúkrahússins og heilsugæslunn-
ar á Akranesi. Innbrotsþjófurinn
var í fangageymslu á Akranesi
þegar grunur féll á hann og því
þurfti ekki að fara yfir lækinn
þegar kom að yfirheyrslum.
Jafnframt upplýstist innbrot í
Hafnarfirði og mikið af þýfi
fannst við húsleit í Reykjavík.
Eins og fram kom á fréttavef
Skessuhorns sl. mánudag var
brotist inn á skrifstofur SHA um
síðustu helgi. Innbrotið upp-
götvaðist þegar starfsfólk kom til
vinnu sinnar á mánudag. Mikið
var rótað á skrifstofunum en
þjófurinn hafði ekki mikil verð-
mæti upp úr krafsinu en lítils-
háttar skemmdir urðu á innan-
stokksmunum.
Á sunnudagskvöldið barst lög-
reglunni á Akranesi tilkynning
um ökumann bifreiðar í annar-
legu ástandi. Lögreglumenn á
Akranesi og úr Borgarnesi svip-
uðust þegar eftir bifreiðinni og
fundu hana skömmu síðar á leið
frá Akranesi. Eftir nokkra eftir-
för á miklum hraða tókst að
stöðva akstur bifreiðarinnar. I
bílnum var ökumaður við þriðja
mann. Okumaðurinn var að
sögn lögreglu í annarlegu á-
standi og var hann ásamt farþeg-
um fluttur í fangageymslu á
meðan akstur hans var til rann-
sóknar. Skömmu eftir að inn-
brotið í SHA uppgötvaðist kom í
ljós við skoðun á eftirlitsmynda-
vélum að innbrotsþjófurinn líkt-
ist mjög ökumanninum.
Var hann því tekinn til yfir-
heyrslu og játaði greiðlega inn-
brotið. Einnig játaði hann inn-
brot í Hafnarfirði á dögunum. I
kjölfarið var gerð húsleit í íbúð-
arhúsi í Reykjavík þar sem tals-
vert fannst af varningi sem talinn
er þýfi úr innbrotum og stendur
rannsókn þess máls yfir.
Þjófurinn náði í innbrotinu á
SHA að stela lyfseðlum og tókst
honum að koma þeim í umferð
og voru stúlkur handteknar í
Reykjavík þar sem þær reyndu að
framvísa þeim í lyfjabúð.
Að sögn Jóns Sigurðar Ola-
sonar yfirlögregluþjóns á Akra-
nesi telst innbrotið að fullu upp-
lýst en syðra er unnið að rann-
sókn annarra þeirra mála er upp
komu í kjölfar þess.
HJ
Brutu ekki
jafii-
réttislög
Kærunefnd jafnréttismála
hefur kveðið upp þann úrskurð
að stjórn Dvalarheimilisins
Höfða á Akranesi hafi ekki
brotið jafnréttislög með ráðn-
ingu Guðjóns Guðmundsson-
ar í starf framkvæmdastjóra
heimilisins á síðasta ári.
Alls sóttu sextán manns um
starfið og samþykkti stjórn
Höfða þann 3. maí 2005 að
ráða Guðjón til starfans með
þremur atkvæðum en Brynja
Þorbjörnsdóttir hlaut tvö at-
kvæði. I kjölfarið óskaði
Brynja eftir rökstuðningi fyrir
ákvörðun stjórnarinnar og
veitti stjórnin þann rökstuðn-
ing. I framhaldi af því ákvað
Brynja að vísa málinu til kæru-
nefndarinnar.
I úrskurði kærunefhdarinnar
segir meðal annars að telja
verði óumdeilt að kærandi hafi
aflað sér mun meiri menntun-
ar en sá sem var ráðinn og hafi
öðlast umtalsverða reynslu af
fjármálum og fjármálastjóm-
un. Á hinn bóginn hafi sá sem
ráðinn var á löngum starfsferli
sínum, sem skrifstofustjóri,
staðgengill framkvæmdastjóra,
bæjarstjórnarmaður og þing-
maður, öðlast mikla reynslu á
sömu sviðum og kærandinn.
Þá segir að játa verði atvinnu-
rekanda nokkuð svigrúm til að
meta og ákveða hvaða atriði
það eru sem mestu ráða við
ráðningu í tiltekið starf. Því
telur nefndin að ekki verði
talið að kynferði kæranda hafi
ráðið því að hún var ekki ráðin
til starfans.
______________________HJ_
II Ell III III