Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 ^sunuibj Kirkjukórinn með ljáinn ÓLAFSVÍK: Hugmynda- auðgi frjálsra félagasamtaka í fjáröflun til starfsemi sinnar er litlum takmörkunum háð. Fé- lagar í kirkjukór Olafsvíkur fóru ekki langt í fjáröflun sinni en tóku þó að sér óvenjulegt verk. Þeir ætla að slá kirkjugarðana í Ólafsvík og á Brimilsvöllum í sumar. Söngvararnir munu slá garðana efrir þörfum en búast má við að það verði þrisvar til fjórum sinnum í sumar. Það veltur þó á á sprettunni. I kór- unum eru um 25 manns. -hj Waters fékk tvo laxa NORÐURÁ: Eftir miklar rigningar síðustu daga í Borgar- firði hefur nú heldur dregið úr úrkomu og vatnavextir hafa rén- að í veiðiánum eins og í Norð- urá. Smálaxinn er mættur þar og veiðin hefur tekið kipp síðustu daga. I Norðurá var einmitt Roger Waters poppari við veið- ar um miðja síðustu viku og var popparinn heppinn með að- stæður við ána. Roger veiddi tvo laxa og var stærri fiskurinn 10 pund. -gb Búrhvalir og há- hymingar á ferð BREIÐAFJ ÖRÐUR: Þrír búrhvalir sáust í hvalaskoðunar- ferð Sæferða frá Ólafsvík á þriðjudagsmorgun. Mjög sjald- gæft er að búrhvalir sjáist svo nærri landi. I sömu ferð sást einnig stór hópur af háhyrning- um en þeir eru einnig sjaldgæf sjón inni á Breiðafirðinum. Að sögn aðstandenda Sæferða hefur hvalalífið á firðinum verið með fjörugasta móti í sumar. Há- hyrningar hafa sést þrisvar sinn- um það sem af er sumri en þeir sjást yfirleitt afar sjaldan eða ekki yfir höfuð heilu sumrin. -mm Dæmdur fyrir brot á dýra- vemdunarlögum HVANNEYRI: Héraðsdóm- ur Vesturlands hefur dæmt mann til greiðslu 40 þúsund króna sektar fyrir brot á lögum um dýravernd. Standi hann ekki skil á sektinni þarf hann að sæta fjögurra daga fangelsi. Mála- vextir eru þeir að þann 16. mars 2005 fann lögregla kött í íbúð á Hvanneyri og var hann þá bein- horaður og í slæmu ástandi. Var talið sannað að maðurinn hafi skilið köttinn eftir í íbúðinni um miðjan febrúar án nokkurs efrir- lits eða umönnunar og ekki tryggt honum „viðunandi vistar- verur, fullnægjandi fóður, drykk og umhirðu,“ eins og segir orð- rétt í dómnum. Hinn dæmdi á nokkurn sakaferil að baki og var til þess tekið í dómnum. Dóm- inn kvað upp Kristinn Halldórs- son settur héraðsdómari. -hj Telja bæjarstjóra ekld hæfan tíl starfsins Minnihluti bæjarstjórnar Snæ- fellsbæjar mótmælti á fundi bæjar- stjórnar í síðustu viku endurráðn- ingu Kristins Jónassonar í starf bæj- arstjóra. Kristinn hefur verið bæjar- stjóri í Snæfellsbæ síðan um mitt ár 1998 og var við kosningarnar á dögunum bæjarstjóraefhi lista Sjálf- stæðisflokksins sem hélt hreinum meirihluta í sveitarfélaginu. Á fundinum í liðinni viku var lagður fram ráðningarsamningur við Kristinn í stöðtma til næstu fjög- urra ára. Báru fulltrúar J-lista, sem sitja í minnihluta, fram svohljóð- andi tillögu: „Bæjarfulltrúar J list- ans leggja til varðandi ráðningu bæjarstjóra að auglýst verði effir faglegum og hæfum bæjarstjóra. Fengin verði ráðningastofa til að ráða í stöðuna á faglegum forsend- um en ekki pólitískum.“ I rökstuðningi með tillögunni segir: „Við sem störfum í umboði tæplega helmings íbúa Snæfellsbæj- ar getum ekki sætt okkur við bæjar- stjóra sem hefur á síðastliðnu kjör- tímabili: Misbeitt því valdi sem honum er falið. Hefur sýnt af sér að vera óhæfur í mannlegum sam- skiptum. Brotið stjórnsýslulög og bæjarmálasamþykktir að eigin geð- þótta.“ Tillaga J-lista var felld með þremur atkvæðum gegn fjórum og ráðningarsamningurinn við Krist- inn samþykktur með fjórum sam- hljóða atkvæðum. Þrír bæjarfulltrú- ar sátu hjá. Gunnar Örn Gunnarsson oddviti minnihlutans í bæjarstjóm segir að þarna sé um að ræða mjög alvarleg- ar ásakanir á hendur bæjarstjóra og því miður eigi þær við rök að styðj- ast enda hefðu þær að öðmm kosti ekki verið settar ffam með þessum hætti. Aðspurður segir hann bæjar- fulltrúa minnihlutans hafa sett sam- an langan lista sem styðji málflutn- ing þeirra. Sá listi verði ekki að sinni birtur opinberlega en segir að framganga bæjarstjóra við upp- sagnir starfsfólks íþróttamannvirkja á dögunum nýjasta dæmið. „Seinni tvö ár síðasta kjörtímabils var gott samstarf í bæjarstjórn og þannig á að vinna. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins verða að átta sig á því að þó þeir sitji í meirihluta þá er sveit- arfélagið ekki einkaeign þeirra. Bæjarstjórar em starfsmenn allra bæjarbúa, ekki aðeins meirihlutans. Það á einnig við um bæjarstjórann í Snæfellsbæ,“ segir Gunnar Örn. Aðspurður hvers vegna bæjarfull- trúar hafi ekki leitað réttar síns lög- um samkvæmt segist Gunnar Örn margoft hafa rætt þessar ávirðingar við ýmsa aðila í stjórnkerfinu en málarekstur sé tímafrekur og í raun neyðarúrræði. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir ásakanir minnihlutans koma sér mjög á óvart enda séu þær mjög alvarlegar. „Þessar ásakanir eru mjög alvarlegar. Ekki síst fyrir þá staðreynd að hafi ég ítrekað brotið lög þá er mjög alvarlegt að bæjar- fulltrúar hafi ekki bmgðist við og leitað réttar síns lögum samkvæmt. Hvorki bæjarstjóri né aðrir mega ganga fram með þeim hætti sem lýst er í bókun minnihlutans og bæjarfulltrúum ber að gæta þess að lög og reglur séu virt við stjórn sveitarfélaga. Eg vísa þessum ásök- unum á bug enda hef ég í starfi mínu reynt að gæta hagsmuna allra bæjarbúa,“ segir Kristinn að lokum. HJ Ikveikja við eldsneytísgeymslu á Akranesi Slökkvilið Akraness varfljótt að ráða niðurlögum eldsins en þó mátti litlu muna að eld- urinn nœði að lœsa sig íýmis bráðeldfim efni sem þarna eru geymd. Allt tiltækt lið Slökkvilið Akra- Þar logaði mikill eldur í olíu og ness var kallað út á níunda tímanum ílátum undan ýmsum spilli- og ol- á fimmtudagskvöld að eldsneytis- íuefnum. Olís er þarna með birgða- geymslu sem stendur þétt við geymsluhús sem einungis stendur í vinnsluhús HB Granda á Akranesi. nokkurra metra fjarlægð frá vinnsluhúsum HB. Slökkviliði tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins en litlu mátti muna að eldurinn næði að berast í tunnur undan hreinsi- efnum. A sama stað eru geymd gashylki og ýmis bráðeldfim efni í og við birgðageymslu Olís. Því mátti litlu muna að stórtjón yrði. Talið er full- víst að um íkveikju af mannavöld- um sé að ræða því lás á hliði sem lokar svæðinu af hafði verið brotinn upp og sýnileg merki þess að úr- gangsolíu hafi verið hellt yfir svæð- ið og eldur borinn að. Lögreglan á Akranesi rannsakar nú eldsvoðann. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er ljóst að um íkveikju var að ræða. Eru þeir sem mðu varir við manna- ferðir á þessum slóðum beðnir að hafa sambandi við lögreglu. MM Stórvirkur fræsari hjá Borgarverki Borgarverk ehf. í Borgamesi tók í síðustu viku í notkun nýjan ffæs- ara að gerðinni Wirtgen 2000. Tæki þetta er búið mjög fullkomn- um búnaði til að blanda asfalti í burðarlag eldri vega og endurvinna þannig. Við það stóreykst burður veganna og eykur hæfni þeirra við að taka á móti sívaxandi umferð stórra flutningabíla. Tækið er búið mjög fullkomnum vélstýringum til að stilla magn asfalts út frá dýpt fræsunar og hraða tækisins. Eftir að burðarlag veganna hefur verið unn- ið með þessu tæki er endanlegt slit- lag síðan lagt ofan á það. Þetta nýja tæki Borgarverks leysir af hólmi eldri fræsara af Bomag gerð hjá fyrirtækinu en sá fræsari verður þó notaður áfram til að mæta sivaxandi þörf á styrking- um þjóðvega landsins, að sögn Óskars Sigvalda- sonar, fram- kvæmdastjóra. MM Frœsarinn var stilltur ogprófaður við frasingu á þjóðveginum við Akranes, hér skammtfrá vegamótunum aðÆðarodda. Hvalfjarðarsveit skal það heita HVALFJARÐARSVEIT: Hið nýja sameinaða sveitarfélag sunnan Skarðsheiðar heitir Hvalfjarðarsveit en það var end- anlega ákveðið á fyrsta fundi ný- kjörinnar sveitarstjórnar sem haldinn var 15. júní sl. Nafiiið Hvalfjarðarsveit fékk mest fylgi kjósenda í skoðanakönnun er haldin var samhliða kosningum nú í vor. A fundinum komst sveitarstjórn að þeirri niður- stöðu að Hvalfjarðarsveit væri rétta nafiiið og greiddu sex sveitarstjórnarmenn Hvalfjarð- arsveit sitt atkvæði en einn sveit- arstjórnarmaður skilaði sínum miða auðum í skriflegri at- kvæðagreiðslu sveitarstjórnar. -so Þrjár umsóknir um stöðu skólastjóra AKRANES: Þrjár umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Brekkubæjarskóla á Akranesi en umsóknarfrestur um stöðuna rann út 12. júm' sl. Umsækjend- ur eru Arnbjörg Stefánsdóttir aðstoðarskólastjóri Brekkubæj- arskóla, Róbert Örn Ferdin- andsson ffamhaldsskólakennari og Valgarður Líndal Jónsson deildarstjóri í Brekkubæjarskóla. Að sögn Helgu Gunnarsdóttur, sviðsstjóra fræðslusviðs Akra- neskaupstaðar ef stefht að því að ganga frá ráðningu sem fyrst. Nýr skólastjóri tekur því við stjóm eins stærsta vinnustaðar bæjarins. Nemendur era að öllu jöfhu á milli 480-500 talsins og starfsmenn um 75. -hj Staða sveitar- stjóra auglýst HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur auglýst lausa stöðu sveit- arstjóra. Sem kunnugt er varð sveitarfélagið til á dögunum við sameiningu fjögurra sveitarfé- laga sunnan Skarðsheiðar. Sveit- arstjóri var ekki starfandi í sveit- arfélögunum fyrir sameiningu þeirra. Umsóknarffestur um stöðuna rennur út 3. júlí. -hj Útboð á sjóvömum AKRANES OG NÁGR: Siglingastofiiun hefur óskað eff- ir tilboðum í gerð sjóvarna á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Sjóvarnirnar verða við Lamb- húsasund, á Langasandi austan Merkjaklappar, veggur yst á Breið, við Þaravelli, Akrakot og Kross. Um er að ræða um 10 þúsund rúmmetra af grjóti sem fer í varnirnar og 1.800 rúmmetrar af unnu efni sem fer í stígagerð. Verkinu skal lokið eigi síðar en um næsm áramót. -hj WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og sett til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Fréttaritari: Bryndís Gylfadóttir 866 5809 bryndis@skessuhorn.is Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is Umbrot: Olgeir Helgi Ragnarsson. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.