Skessuhorn - 21.06.2006, Side 8
8
..r-VMIHi.L 11
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006
✓
Mildl aðsókn að námi við Lbhl
Hluti náms viS Landbúnaöarháskálann felst í námskeiium sem tekin em ai sumrinu.
Þessi mynd var tekin afnokkrum nemendum í vettvangsferð í plöntugreiningamám-
skeiii hjá dr. Bimi Þorsteinssyni í vikunni. Ljósm. GJ
Mjög góð aðsókn er að námi við
Landbúnaðarháskóla Islands í ár og
eru umsóknir hátt á annað hundrað
talsins. Nemendur skólans á næsta
skólaári verða um þrjú hundruð.
Þessa dagana er verið að meta
hæfi umsækjenda, en talsverð aukn-
ing er á umsóknafjölda á milli ára
og þarf að vísa frá á einstaka braut-
um. Flestar umsóknanna bárust í
nám á umhverfisskipulagsbraut sem
er fyrri hluti náms í landslagsar-
kítektúr og/eða skipulagsfræðum.
Sú námsbraut er ein nýrra náms-
brauta við skólann, en einnig má
nefna náttúru- og umhverfisffæði
og skógfræði og landgræðslu auk
búvísinda sem kennd hafa verið á
Hvanneyri allar götur síðan 1947.
Kennsla á háskólastigi og í búffæði
fer frarn á Hvanneyri en garðyrkja
er kennd á Reykjum í Ölfusi.
Nokkuð af þessari auknu aðsókn
eru nemendur sem stunda vilja fjar-
nám við skólann og fer hlutfall
þeirra hækkandi. Engu að síður má
reikna með auknum íbúafjölda á
Hvanneyri þegar kennsla við skól-
ann hefst í haust. Alls er nú boðið
upp á nám á fjórum háskólanáms-
brautum við Landbúnaðarháskól-
ann, en einnig er kennt á fimm
starfsmenntabrautum í búffæði og
garðyrkju á framhaldsskólastigi.
Þeim sem stunda meistaranám við
skólann fer nú einnig fjölgandi og
skólinn er annar tveggja háskóla á
landinu þar sem boðið er upp á
doktorsnám.
GJ
Bömin öruggust á
HeUissandi
Börn á Hellissandi búa við mest
öryggi í bílum á Vesmrlandi að því
er kemur ffam í árlegri könnun
sem Umferðarstofa og Slysavarn-
arfélagið Landsbjörg gerðu í apríl.
Gerð var könnun á öryggisbúnaði
barna og notkxm hans í biffeiðum
foreldra og forráðamanna barna
við leikskóla víða um land. Er
þetta ellefta árið sem þessi könnun
fer ffam. Könnunin fór fram í
þremur byggðarlögum á Vesmr-
landi; Akranesi, Borgarnesi og
Hellissandi.
Best er ástandið á Hellissandi.
Þar voru 91% barnanna með full-
nægjandi búnað en þar vom 5%
barnanna með engan búnað. Er
Hellissandur í átmnda sæti yfir
þau byggðarlög þar sem ástandið
er best. I Borgarnesi vora 90,3%
barna með fullnægjandi búnað en
3,2% með engan búnað. Síst er
ástandið á Akranesi þar sem 86%
barna var með fullnægjandi búnað
en þar vora einungis 2% barna
með engan búnað. Öll era þessi
byggðarlög yfir meðaltali á land-
inu öllu en 85,1% barna vora með
fullnægjandi búnað og 3,2% barna
voru án búnaðar.
Þrátt fyrir að ástandið verði ekki
viðunandi fyrr en öll börn verða
með fullnægjandi búnað hefur á-
standið bamað mjög ffá því að
könnun sem þessi var gerð í fyrsta
skipti. Þá vöru 32% barna án
nokkurs öryggisbúnaðar í bílum.
Þess má geta að ökumaður sem
ekki sinnir þeim skyldum sem
kveðið er á um í lögum varðandi
notkun öryggisbúnaðar barna má
búast við að verða sektaður af lög-
reglu og að brot hans verði affnáð
í ökuferilsskrá. Sektin er 10 þús-
tmd krónur á hvert barn sem er
laust í bílnum.
HJ
Vesturgata 119 breytist brátt í leikhús.
S kagaleikflokkurimi í
nýtt húsnæði
Skagaleikflokkurinn fljUur innan
tíðar í annað húsnæði eftir að
samningar tókust milli flokksins,
Akraneskaupstaðar og Húsvals ehf.
um breytingu á leigusamningi þess
efnis að skipt verði á núverandi
húsnæði Suðurgöm 126 fyrir sam-
bærilegt húsnæði að Vesmrgöm
119. Greiðsla fyrir húsnæðið verð-
ur það sama. Um er að ræða efri
hæð Vesturgötu 119 samtals um
259 fermetrar að stærð auk inn-
gangs á neðri hæð. Húsnæðið mun
skiptast í sal með leiksviði, tvö bak-
herbergi ásamt tveimur salernum.
HJ
Engey hefur nú verið eitt ár í rekstri
Engey RE 1, skip HB Granda og
stærsta veiðiskip íslenska flotans,
hélt í sína fyrstu veiðiferð 10. júní í
fyrra og hefur skipið því verið eitt
ár í rekstri hér við land. A tímabil-
inu hafa verið unnin um borð
26.000 tonn frystra afurða og 1.500
tonn af mjöli og lýsi. Heildar afla-
verðmæti era rúmar 1.600 milljón-
ir króna. Engey landaði í Færeyjum
í síðustu viku fullfermi af
kolmunnaafurðum og hefur skipið
framleitt alls um 5.700 tonn af
kolmunnaafurðum á innan við 40
dögum. Engey er nú á síldveiðum,
úr norsk-íslenska síldarstofhinum,
innan íslenskrar landhelgi.
jypjyi Engey RE-1 þegar skipið kom í heimsókn til Akraness fyrir rúmu ári stSan.
Fjöldi útstrikana á Akranesi ekki gefinn upp
Fjöldi útstrikana í kosningunum
á Akranesi hefur ekki áhrif á úrslit
þeirra, að því er kemur fram í fund-
argerð yfirkjörstjórnar Akranes-
kaupstaðar frá 12. júní sl. Skessu-
horn sem og aðrir fjölmiðlar hafa
að undanförnu birt fféttir um fjölda
útstrikana í sveitarfélögum lands-
ins. Hvergi hafa þær haft áhrif á
niðurstöður kosninganna enda era
ákvæði laga á þann veg að afar ólík-
legt er að útstrikanir breyti röð
ffambjóðenda.
Þann 1. júní óskaði blaðamaður
Skesshorns með tölvupósti eftir
upplýsingum frá yfirkjörstjórn
Akraneskaupstaðar um útstrikanir í
nýafstöðnum kosningum. Þar sem
ekkert svar hafði borist um miðjan
dag 16. júní var haff samband við
Einar Ólafsson formann yfirkjör-
stjórnar og óskað eftir upplýsingum
um fjölda útstrikana. Hann vísaði
til fundargerðar stjómarinnar frá
12. júní þar sem segir að yfirstrik-
anir hafi ekki áhrif og þar sem yfir-
kjörstjórn hefði nú lokið störfum
teldi hann sig ekki hafa heimild án
samþykkis nefhdarinnar til að af-
henda þessar upplýsingar. HJ
Ný reiðhöU rís á
Miðfossum
Ný 1.625 fermetra reiðhöll er nú
að rísa á Miðfossum í Andakíl. Það
var í síðustu viku sem hafist var
handa við að reisa húsið sem er
25,8 metra breitt og 63 metra
langt. Eins og sést á myndinni
miðar verkinu vel en burðarvirki
hússins er úr límtré ffá Límtré Vír-
neti. Veggir og þak er klætt með
yleiningum ffá sama fyrirtæki.
MM
Karlareið í Grundarfirði
Árleg karlareið Hesteigendafé-
lags Grundarfjarðar var haldin 9.
júní sfðasliðinn í blíðskaparveðri.
Alls mættu 31 karl í reiðina sem
endaði svo um kvöldið með kjöt-
súpu í Fákaseli.
Myndin er tekin við Kirkjufellsfossin sem
var einn af áningarstöðunum. Ljósm. KH
Eitilharðir morgunhanar
hjóluðu um Italíu
Hópurinn blæs úr nös á einum af áningarstöðum ferðarinnar.
Á dögunum hélt hópur Skaga-
manna til Ítalíu. Ekki er það eitt og
sér fréttaefhi nema að þarna átti í
hlut trimmhópur sem svitnað hefur
um árabil í bítið í Iþróttamiðstöð-
inni á Jaðarsbökkum undir styrkri
stjórn Elsu Björnsdóttur og Huga
Harðarsonar. A sfðasta ári var
sjálfstraust hópsins slíkt orðið að sú
hugmynd kviknaði að ráðist yrði í
krefjandi verkefni í lok vetrarver-
tíðar.
Um síðir var ákveðið að hjóla ffá
Bresia á Italíu til Mílanó en það er
um 280 km leið. Hópurinn taldi 29
manns með mökum. Leiðin var
hjóluð á fimm dögum með við-
komu í borgunum Como, Varese
og Bergamo svo dæmi séu nefnd.
Fararstjóri var Kristín Einarsdóttir,
margreynd hjólakona auk þess sem
stuðst var við leiðsögn og aðstoð
innlends aðstoðarmanns ffá Tíról. I
lokaundirbúningi fyrir ferðina
hjólaði hópurinn fyrir Hvalfjörð
um 65 km leið.
Allir komu Skagamennirnir aftur
ffá Ítalíu enda tókst ferðin í alla
staði einstaklega vel að sögn
garpanna. Engin vandræði sköpuð-
ust þessa tæpu þrjú hundrað kíló-
metra sem hjólaðir vora þrátt fyrir
nokkrar vænar brekkur á hluta leið-
arinnar. HJ