Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. JUNI2006 9 aiisSuIiöEK] íslenskir þjóðbúningar, handverk og kaffiboð í Norska húsinu lilISl Norska húsið í Stykkishólmi AVS rannsóknasjóðurinn veitir styrld í sjávarútvegi Stjórn AVS rannsóknasjóðsins hefur úthlutað styrkjum til 51 verk- eíhis að fjárhæð rúmlega 218 millj- ónir króna. Alls bárust stjórninni 103 umsóknir og var því 52 þeirra hafnað að þessu sinni. Meðal þeirra verkefha sem nú hlutu styrki má nefha að Reykofhinn-Grundarfirði ehf. hlaut 6 milljónir króna í verk- efnið nýting sæbjúgna sem felst í fjölgun veiðisvæða og áffamhald- andi markaðssókn og þróun ís- lenskra sæbjúgnaafurða. Verkefhis- stjóri er Kári P. Olafsson. Guðmundur Runólfsson hf. er aðili að verkefai um gerð spálíkans fyrir þorskvinnslu og hlaut það styrk að fjárhæð 3,8 milljónir króna. Sigurjón Arason er þar verk- efnisstjóri. HB Grandi hf. er aðili að verk- efhi þar sem kannaður er möguleiki á neðansjávar fiskvali fyrir troll með notkun tölvusjónar og hlaut það styrk að upphæð 5 milljónir króna. Verkefnisstjóri er Sigmar Guðbjörnsson. Laugafiskur hf. tekur þátt í verk- efhi um ferlastýringu á hausaþurrk- un og hlaut verkefhið 6 milljóna króna styrk og verkefnisstjóri er Inga J. Friðgeirsdóttir. Ingólfur Arnason er verkefnis- stjóri í verkefni um beinagarðs- og flakaskurð með háþrýstivatnsskurði og hlaut verkefnið 9,8 milljóna króna styrk. Skaginn hf. og HB Grandi hf. eru samstarfsaðilar í því verkefni. Skaginn hf. er einnig aðili að verkefni um samþættingu kæli- rannsókna sem hlaut styrk að fjár- hæð 5 milljónir króna. Sigurður Bogason stýrir starfinu. Þá kemur Reykofninn-Grundar- firði ehf. að verkefhi sem Kristján F. Olgeirsson stýrir um eftirfylgni markaðssetningar sæbjúgna í Kína. Verkefnið hlaut styrk að fjárhæð 1 milljón króna. HJ Bjami Þór sýnir í Skessubrunni Laugardaginn 17. júní opnaði Bjami Þór Bjarnason myndlistar- sýningu á veitingastaðnum Skessu- brunni í Svínadal. Sýningin er til- einkuð íslenska hestinum og ber heitið „Hestar í íslensku landslagi." Þetta era 14 olíuverk máluð á striga sérstaklega fyrir þennan glæsilega veitingastað. I myndunum er mikill kraftur og fjör, sem endur- speglar áhuga listamannsins á hestum. Fjölmenni var á opnunardaginn þar sem Gísli S Einarsson, nýkrýndur bæjarstjóri Akurnesinga fór á kostum með nikkuna. Einnig sungu þeir Karl Orn Karlsson og Þorleifur Orn- ólfsson dúett og einsöng við undir- leik Sveins Arnars Sæmundssonar. Sýningin verður opin til 16. júlí á opnunartíma Skessubrunns. MM Sviptur ökuleyfi í þrjú ár Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi og þriggja ára öku- leyfissviptingu auk 270 þúsund króna sektar fyrir ölvunarakstur og eignaspjöll. Greiði haxm ekki sekt- ina innan fjögurra vikna kemur 20 daga fangelsi í stað hennar. Mað- urinn var ákærður fyrir að hafa að morgni sunnudagsins 11. septem- ber 2005 ekið bifreið sinni í Borg- amesi undir áhrifum og hafnaði bifreiðin að lokum á umferðarskilti á gatnamótum Brúartorgs og Borg- arbrautar. Vínandamagn í blóði mannsins mældist 2,25%o sem er margfalt það sem magn sem lög leyfa en það er 0,5%o. Að morgni laugardagsins 11. mars 2006 var hann aftur á ferðinni ölvaður á biffeið sinni og ók þá á ljósastaur á gatnamótum Þorsteins- götu og Borgarbrautar. Þá mældist áfengismagn í blóði mannsins 2,74%o. Þann 11. september 2005 hélt maðurinn að Grunnskóla Borgar- ness vopnaður felgulykli hvar hann braut 21 rúðu. Maðurinn játaði brot sín án undandráttar fyrir dómi. Honum var virt það til máls- bóta að honum hafði ekki áður ver- ið gerð refsing. HJ Næstkomandi laugardag, þann 24. júní, verður Þjóðbúningadagur í Norska húsinu í Stykkishólmi og geta gestir kynnt sér íslenska þjóð- búninga og handverk þeim tengt, á milli klukkan 14 og 16. A jarðhæð Norska hússins er uppsettur vefstóll og geta gestir spreytt sig við vefhað og á efri hæðinni verður sýnt knippl og baldýring. Byggðasafni Snæfellinga var færður íslenskur skautbúningur að gjöf fyrir skemmstu og verður hann sýndur sem og faldbúningur Ingibjargar Agústsdóttur. Faldbúningurinn dregur nafn sitt af höfuðbúnaðinum, svonefnd- um faldi sem gerður var úr saman- brotnum klútum sem vafðir vora um höfuðið. Búningurinn mótaðist í tímans rás og 19. öld var hann einkum notaður sem sparibúningur og á seinasta fjórðungi 19. aldar lagðist notkun hans af. Skautbún- ingurinn var hinsvegar hannaður sem íslenskur hátíðarbúningur af Sigurði Guðmundssyni málara, með hliðsjón af gamla faldbún- ingnum. Báðar tegundir af þessum íslensku btiningum era mjög glæsi- legar og er mikils um vert að kon- ur fari að gefa þeim aukinn gaum. í samfélagi samtímans er mikilvægt að gamalli verkþekkingu og hand- verki búningsins sé haldið við og það gleymist ekki og er markmiðið með búningadeginum að auka skilning og þekkingu almennings á því handverki sem felst í íslenska þjóðbúningnum. I tilefhi dagsins er ókeypis inn á safhið og einnig er öllum konum sem klæðast íslenskum þjóðbúningi þennan dag, boðið í kaffiboð í stáss- stofunni hjá frú Onnu Magdalenu í Norska húsinu á milli kl. 14 og 16. Konur sem eiga eða hafa afnot af ís- lenskum búningi eru hvattar til að bera hann þennan dag og mæta í Norska húsið en aðrir eru hvattir til að koma og kynna sér íslenskt handverk. (fréttatilkynning) L#FT BORGARNESI EHF Vélamenn Vegna aukinna verkefna framundan óskum við eftir að ráða vélamenn til starfa. Menntunar- og hæfniskröfur • Meirapróf • Vinnuvélaréttindi • Starfsreynsla er kostur Einstaklingar þurfa að vera skipulagðir og geta unnið sjálfstætt. Bæði er leitað að mönnum í framtíðarstörf og í sumarafleysingar. Loftorka Borgarnesi ehf. er alhliða verktakafyrirtæki á sviði byggingamannvirkja og sérhæfir sig í framleiðslu á forsteyptum einingum fyrir húsbyggingar, umferðarmannvirki, tanka, holræsi svo fátt eitt sé nefnt. Hjá fyrirtækinu starra i dag rúmlega 200 manns. Umsóknir óskast sendar fyrir 4. júlí 2006 á skrifstofu fyrirtækisins að Engjaási 1, Borgarnesi eða í tölvupósti a netfangið ioftorka@toftorka.is Allar nánari upplýsingar veita Vaidimar Guðmundsson í síma 860-9012, Reynir Magnússon í síma 860-9045 og Andrés Konráðsson í síma 860-9002. Loftorka Borgarnesi ehf. Engjaás 1, 310 Borgarnes Sími 433-9000 fax 433-9013 www.loftorka.is A lltafbetn kaup... Frekari upplýsingar veitir Unnsteinn Snorri í síma 430-5505 / GSM 864-4093 V BUREKSTRARDEILD Egnshdtl-aiOBorgarnesiliaaaigía Áfgreiðsla sími 430 5505 - Fax 430 5501 Opið frá kl. 08 - 18 alla virka daga kl. 10 - 16 laugardaga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.