Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2006, Page 11

Skessuhorn - 21.06.2006, Page 11
S21SSUHOBKI MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 11 Kríuvarp hefur misfarist eða er seint á ferðinni Krían er ekki farin að verpa á landinu enn sem komið er og hvað orsakar það er ekki vitað en flestir telja þó að fæðuskortur sé ástæðan. Kríuvarp hefur verið mikið við bæinn Kirkjuból í Innri Akranes- hreppi undanfarin ár, nánar tiltekið í holtinu sem er við Hvalfjarðar- gangamunnann norðanmegin. Kristín Marísdóttir húsffeyja og bóndi á Kirkjubóli segist ekki vita hvað sé í gangi hjá kríunni, hópur kría hafi komið í vor en nú séu svotil allir fuglarnir farnir aftur, að- eins örfáar kríur eftir. „Fyrir tveim- ur árum voru yfir þúsund kríupör hér í holtinu hjá mér, svo mikið af henni og mikið varp að ef ég ætlaði að gróðursetja í skógræktinni hjá mér varð ég að gera það áður en krían kom á vorin eða þegar hún var farin á haustin, svo mikið var af henni og hún aðgangshörð í varpi sínu. I fyrrasumar gerðist eitthvað því þá sá ég aðeins einn fleygan kríuunga og pörunum hafði fækkað verulega", sagði Kristín í samtali við Skessuhom. Telur Kristín varpið alls ekki ónýtt af mannavöldum, eggjataka hafi ekki verið stunduð í varpinu og ekki sé það ónýtt af ágangi annarra dýra eins og katta, ætið sé bara ekk- ert. Hún segist sakna kríunnar mjög, sér hafi fundist svo gaman að fylgjast með henni við pörun t.d. þegar hún flaug með síli og annað æti og tældi að sér maka með þeim hætti og eins þegar unga „greyin“ voru að rembast við að skríða úr hreiðrunum og taka sín fyrstu fhig- tök. Kristín segir að yfirleitt hafi verið komnir ungar úr eggjum í kringum 17. júní. Nú sé þar ekkert af kríu miðað við það sem var fyrir tveimur ámm og enginn fugl farinn að verpa. Segist hún sjá aðeins meira af hettumávi nú en venjulega og er mikill slagur milli hans og sílamávs um æti og tilurð í holtinu á Kirkjubóli og séu fuglarnir hrein- lega að éta hver undan öðmm. Kristín gat þess að lokum að ungar væm komnir hjá veiðibjöllunni og sennilega væri hún hörðust af sér við aðstæður sem þessar. Enn í ástarleikjum Eitt mesta kríuvarp í Evrópu er við Rif á Snæfellsnesi. Skúli Alex- andersson á Hellissandi sagði í samtali við Skessuhorn að enn væri krían ekki farin að verpa þar um slóðir ermþá og væri það óvenju seint. „Krían er ennþá í ástarleikj- um og varpið þar af leiðandi ekki hafið ennþá og er því mun seinna á ferðinni en í venjulegu ári,“ sagði Skúli. Hvað veldur því að krían er mun seinni að verpa en venjulega; ætis- leysi, veðurfar eða aðrar orsakir skal ósagt látið, en fróðlegt verður að fylgjast með fuglinum á næstu vikum. SO Gott fordæmi X-D? Ágæti les- andi! Mig langar til að benda á eitt mikilvægt mál sem lítur að skipulags- og umhverfis- málum hér í bænum og verður mik- ið klúður ef ekki er tekið á málun- um strax. Þetta er úthlutun bæjar- ins á tveimur lóðum til ÞÞÞ við Smiðjuvelli. Ætla bæjaryfirvöld virkilega að standa fyrir því að færa allt „draslið" sem er á núverandi lóð fyrirtækisins inn í nýtt hverfi við hlið nýrrar matvöruverslunar? Þetta er algjör skammsýni að ætla sér að setja þetta fyrirtæki niður á þessum stað og er í raun bara verið að flytja umhverfisvandamálin 1 km ofar í bæinn. Af hverju reyna bæjaryfirvöld ekki að stýra því hvernig verslunar- og iðnaðarhverfi byggjast upp alveg eins og þau stýra því hvernig íbúða- hverfi byggjast upp? Að mínu mati á svona starfsemi að vera í iðnaðar- hverfinu í Höfðaseli. Látum ekki mistökin endurtaka sig eins og þau að leyfa lifrar- bræðslu á Kalmansvöllum nánast ofaní matvöruverslun og öðrum verslunum með tilheyrandi fuglageri, drasli og sóðaskap. Eg skora á nýja bæjarstjóm að sýna gott fordæmi og afstýra þessu verðandi skipulags- og umhverfis- klúðri, sérstaklega þar sem einn af fulltrútmum er aðaleigandi ÞÞÞ. Og einnig kalla ég eftir reglugerð um ffágang lóða fyrir fyrirtæki í iðnaðarhverfum bæjarins. Með kveðju, Ketill Mdr Bjömsson. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaói. Hjá fyrirtækinu starfa um 650 manns, viðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stóriðjuver, hafnar- gerð, vega- og brúagerð auk flug- valla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitar- félög, fyrirtæki og einstaklinga. Trésmiðir Vegna aukinna verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða trésmiði til starfa. Um er að ræða framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja starfsreynslu. Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk. Næg vinna í boði. Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7,105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ISTAK TRÉSMIÐIR ÓSKAST w« rS'/:/€ef//S/i(j(r/* STILLHOLT116-18 • AKRANESI SÍMI 431 3333 • model.ak@simnet.is REYKHÓLAHREPPUR Reykhóladagurinn Laugardaginn 24. júní Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna. • Skipulögð gönguferð undir leiðsögn. • Fombátasýning, gamlir bátar víða að. • Kristján Amarsson frá Stórholti leikur tónlist. • Selkjötssmakk að hætti Freyju Ólafsdóttur. • Sölubás frá Kvenfélaginu Kötlu. • Opið í Grettislaug og frítt inn á hlunnindasýninguna. Að lokinni dagskrá geta gestir grillað í H vanngarðabrekku. Hladbord, Jónsmessubrenna og ball íBjarkalundi (sœtaferðir í boði) Takið daginn frá og mætið með góða skapið!

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.