Skessuhorn - 21.06.2006, Qupperneq 15
^ausvnuii
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006
15
Skelfiskur úr Hvammsvík og Stykk-
ishólmi ekki æskilegur til neyslu
Hafrannsóknastofnun ráðleggur
fólki ffá því að tína kræklinga og
annan skelfisk í Hvammsvík í Hval-
firði. Mælingar á vegum stofimnar-
innar hafa leitt í ljós að óvenju mik-
ið er um eitraða þörunga í sjónum
þar. Um er að ræða svifþörunga af
ættkvíslinni dynophysis spp sem
geta valdið svokallaðri DSP eitrun í
skelfiski. Smitist menn af slíku lýsir
það sér meðal annars í miklum
kviðarverkjum og meltingartrufl-
unum. Athuganir Hafrannsókna-
stofrumar í Hvalfirði hafa leitt í ljós
að óvenju mikið af dyophysis-þör-
ungum eru þar. Til marks um
hversu háar tölurnar eru, má geta
þess að viðmiðunarmörk í lítra af
sjó eru 500 frumur á lítra en í mæl-
ingum undanfarið hafa mælst 5.000
- 23.000 frumur á lítra, sem er með
því hæsta sem mælst hefur. Það skal
tekið fram að þó að svo mikið af
þessum þörungum sé í sjónum,
þýðir það ekki endilega að eitrið
berist í kræklinginn, þó að hætta sé
á því. Ekki er hægt að skera endan-
lega úr um það nema með sýnatöku
úr kræklingnum. A vefsíðu Haf-
rannsóknarstofhunar er einnig var-
að við skelfiski sem fenginn er í ná-
grenni Stykkishólms, þar sem þessa
eitruðu þörunga er einnig að finna
þar yfir viðmiðunarmörkum, 1.560
ffurnur á lítra, en þó í miklu minna
mæli en greinst hefur í Hvalfirði.
Hafrannsóknarstofnun, Um-
hverfisstofnun, Fiskistofa og fleiri
standa í sameiningu að effirliti með
eitruðum svifþörungum í sjó á
þremur stöðum á þessu ári. Þessir
staðir eru Hvalfjörður, Breiðafjörð-
ur og Eyjafjörður. Sýni til rann-
sókna á svifþörungum eru tekin
einu sinni í viku, ffá vori til hausts
þ.e. á aðalvaxtartíma svifþöiunga í
sjó.
SO
Verkefnalisti meirihluta
bæjarstjómar Akraness ákveðinn
Eins og fram hefur komið í ffétt-
um Skessuhorns tók nýr meirihluti
Sjálfstæðisflokks og Frjálslyndra og
óháðra við völdum í bæjarstjórn
Akraness á fundi í fyrradag. A fund-
inum kynnti Sæmtmdur Víglunds-
son varaforseti bæjarstjórnar sam-
komulag flokkanna um meirihluta-
samstarf. Auk samkomulags um
ráðningu bæjarstjóra er samkomu-
lag um nokkur verk sem ráðast á í
strax í sumar.
Þar segir að strax eigi að undir-
búa malbikun Grenigrundar og
gangstéttar milli Garðabrautar og
Höfðabrautar. Lagt verði slitlag á
veginn að Safnasvæðinu, Lamb-
húsastíg, aðkeyrslu að Grundar-
skóla Víkurbrautarmegin, auk
nokkurra göngustíga. Bætt verði
hreinlætis og baðaðstaða við
Langasand. Sama aðstaða verði
bætt við tjaldstæðið. Þá segir að
skipulag bókasafhsreits hafi verið
blásið af. Skipaður verði þriggja
manna vinnuhópur til að fara yfir
möguleika á að Tónlistarskólinn
verði fluttur í nýtt húsnæði.
Skoðaðir verða vel samningar
milli STAK og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar. Aðilar eru sam-
mála um að eingöngu sé vilji til að
hækka laun þeirra sem eru lægst séu
launaðir.
Farið verði strax í að skoða heild-
arskipulag frá Stillholti að Báru-
götu. Unnin verði ffamkvæmdará-
ætlun að endurnýjun og lagfæring-
um á götum og gangstéttum. Farið
verður strax í að breyta deiliskipu-
lagi á Höfða til að hækka „nýju
blokkma" um tvær hæðir. Kannaðir
verði möguleikar á að hafa frítt í
strætó fyrir börn, eldri borgara og
öryrkja. Endurskoðaðar verði fram-
kvæmdir á lóð Brekkubæjarskóla.
Atak verði gert í fegrun bæjarins,
m.a. með málningu, tyrfingu og
slætti. Til að undirstrika vilja meiri-
hlutans hefur hann ákveðið að setja
á stofn nýja nefhd; Umhverfisnefnd
Akraneskaupsstaðar, sameina
skipulags- og bygginganefhd, en
skipulagsnefnd hefur farið með
umhverfismál á undanförnum
árum. Bæjarstjóra er falið að undir-
búa starfssvið nefndanna.
Þá segir að bæjarstjórn Akraness
samþykki að fela bæjarstjóra að
hefja strax virrnu við ofantalin verk-
efni í samvinnu við tækni- og um-
hverfissvið.
HJ
www.skessuhorn.is
H 8H ‘ WBSM - HtM
Spennandi starf hjá Norðuráli
Starfsmann vantar tímabundið tií starfa á skrifstofu
vegna stækkunar Norðuráls. Ráðningartími er 12 til 14 mánuðir
eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni:
• Almenn skrifstofu- og ritarastörf,
þ.m.t. síma- og skjalavarsla
• Móttaka reikninga og undirbúningur
bókunar.
• Vinna við bókhald og afstemmingar.
Hæfniskröfur:
• Góð samskiptahæfni
og enskukunnátta.
• Reynsla af bókhaldsstörfum
og þekking á excel er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðmundur Sigurjónsson í síma
430 1303 og 664 8505.
Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins
www.nordural.is, sent umsókn þína
á netfangið umsokn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina merkta “Atvinna.”
Umsóknarfrestur er til 29. júní.
Áhersla er lögð á jafna möguleika karla
og kvenna til að vinna hjá Norðuráli.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
NORÐURÁL
CentuiyAiuMiNUM
Grundartanga »301 Akranesi *Sími430 1000 »Fax430 1001 •nordural@nordural.is • www.nordural.is
wmw. &km&ufiarn. m
PVC
Gluggar • Sólhýsi
Hurðir • Svalalokanir
Frábær lausn í bæði gamalt og nýtt
Hvitt - Gulleik
Maghagony
Einbýfíð, fjölbýfíð, sumarhúsið
eða hvar þar sem fegurð
og gæði njóta sfn.
Hafðu samband og við ráðteggjum þér
GLUGGA- 0G
GLERHÖLLIN
300 431 2028 «Fax:431 3S2S
Einangrunargler - Óryggisgler - Speglar
Kennarar
Grunnskólann í Búðardal vantar kennara næsta vetur.
Meðal kennslugreina eru íþróttir og almenn kennsla
á miðstigi. í Grunnskólanum í Búðardal eru um 90
nemendur og starfsumhverfi mjög gott.
Að okkar mati eru það forréttindi
að kenna í skóla af þessari stærð.
Endilega prófaðu.
Umsóknarfrestur er til 26. júní.
Upplýsingar gefa Guðrún G. Halldórsdóttir, skólastjóri
434-1466/862-8778 ggh@ismennt. is,
Þorkell Cýrusson, aðstoðarskólastjóri,
434-1133/894-3445 thorkell@ismennt.is
r
all senses - upplifðu alit
Ferðaþjónustuaðilar
á Vesturlandi
All Senses Awoken Group
er samstarfsverkefni aðila í ferðaþjónustu
á Vesturlandi.
Megin markmið hópsins er að kynna og markaðssetja Vesturland,
innanlands og erlendis.
Við vinnum saman að nokkrum kynningum yfir árið, auk þessa
höldum við sameiginleg námskeið og vinnufundi.
Samstarfið er opið og gefst fleiri aðilum í ferðaþjónustu á
Vesturlandi tækifæri til þess að slást í hópinn og vinna með
okkur að þessum markmiðum.
Ef þú hefur áhuga á því að starfa með öflugum
faghóp í ferðaþjónustu hafðu samband við
Þórdísi G. Arthursdóttir, verkefnisstjóra
í síma 895 1783 eða á tga@simnet.is fyrir 1. júlí n.k
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Uppboð
Eftirtalið lausafé verður boðið upp
við Lögreglustöðina í Borgamesi
að Bjamarbraut 2, föstudaginn 30. júní nk.
kl. 16:00, hafi beiðnimar ekki verið afturkallaðar.
Mercedes Benz 0614D UB-133
Gas Gas Endoucross W-927
Mercedes Benz KU-289
Subam Legacy YB-579
Borgarnesi 19. júní 2006
Sýslumaðurinn í Borgarnesi