Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. JUNI 2006 §BESSUH©BKI Bráðaframkvæmdir í umhverfismálum ákveðnar Nýkjörið bæjarráð Akraness ákvað á fyrsta fundi sínum sem haldinn var í síðustu viku að fela sviðsstjóra tækni- og umhverfis- sviðs að ráðast sem fyrst í fram- kvæmdir við slitlagsútlögn á að- keyrslu safhasvæðisins að Görðum, Lambhúsastíg, Ægisbrautarenda vestri og aðkeyrslu að Grundaskóla við Víkurbraut. Ennfremur á göngustíga samkvæmt nánara sam- ráði við bæjarstjóra svo og undir- búning að lagningu nýs slitlags á Grenigrund. Þá ákvað ráðið einnig að keyptir verði 10 bekkir sem komið verði fýrir í bænum og einnig verði bætt við 10 ruslafötum á almannafæri í bænum. Kostnaði sem hlýst af þessum framkvæmdum var vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar. I bréfi sem sviðsstjórinn lagði fýrir bæjarráð kom fram að hann hafi rætt við fyrirtækið Malbik og völtun hf. um að taka að sér lagn- ingu slitlagsins og það hafi hlotið jákvæðar undirtektir og geri for- ráðamenn fyrirtækisins ráð fýrir að hægt verði að hefjast handa öðru hvoru megin við næstu mánaða- mót. HJ Óska eftir áheymarfull- trúa í stjóm OR Sveitarstjórn nýrrar Borgar- byggðar samþykkti samhljóða á fýrsta fúndi sínum að óska eftír heimild til þess að skipa áheyrnar- fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykja- víkur. Orkuveitan var í eigu fjög- urra sveitarfélaga, Reykjavíkur- borgar sem fer með 93,54% hlut, Akraneskaupstaður fer með 5,53% hlut, fýrrum Borgarbyggð fór með 0,75% hlut og Borgarfjarðarsveit fór með 0,17% hlut. Stjórn fýrir- tækisins skipa sex fulltrúar og hefúr Reykjavíkurborg skipað fimm þeirra og Akraneskaupstaður skipar einn. Nýtt sveitarfélag norðan Skarðs- heiðar, sem nú hefur fengið nafúið Borgarbyggð, fer því nú með sam- tals 0,93% hlut. Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar segir að nýja sveitarfélagið sé nú eina sveitarfélagið sem ekki á aðkomu að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og því þyki sveitarstjórnarmönnum Borgarbyggðar ekki óeðlilegt að þeir fái heimild til þess að tilnefúa áheyrnarfulltrúa. Aðalfundur Orkuveitu Reykja- víkur verður haldinn á miðvikudag- inn. Þess má til gamans geta að næsti formaður stjórnar fýrirtækis- ins verður Borgnesingurinn Guð- laugur Þór Þórðarson alþingismað- ur. HJ Sautján lögðu inn tillögur um hönnun Þjóðgarðsmiðstöðvar Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Snæfellsbær efndu á dögunum til samkeppni um hönnun þjóð- garðsmiðstöðvar á Hellissandi í samvinnu við Arkitektafélag Is- lands. Skilafrestur var 6. júní og bárust dómnefúdinni 17 tillögur. Verðlaunaafhending verður á 5 ára afmæli þjóðgarðsins þann 28. júní nk. í Grunnskólanum á Hellissandi klukkan 14. Aðgangur er öllum op- inn og verða tillögurnar til sýnis í Grunnskólanum á Hellissandi til 1. júlí. Tillögurnar verða einnig til sýnis í Armúla la vikuna 3.-7. júlí. Dómnefiid samkeppninnar skipa Stefán Benediktsson arkitekt sem er formaður nefndarinnar, Guð- björg Gunnarsdóttir þjóðgarðs- vörður, Kristínn Jónasson bæjar- stjóri Snæfellsbæjar og Elín G. Gunnlaugsdóttir og Baldur O. Svavarsson arkitektar. MM Verðlaun fyrir góðan námsárangur Við útskrift 10. bekkjar Grunn- skólans í Borgarnesi þann 8. júní sl. var Þorgerði Erlu Bjarnadóttur veitt verðlaun fýrir bestan árangur í samræmdum prófum í stærðfræði, íslensku, náttúrufræði og samfé- lagsffæði. Verðlaun fengu einnig Guðmundur Þorvalds Einarsson fýrir bestan árangur í ensku á sam- ræmdu prófi og Linda Björk Ing- ólfsdóttir fýrir bestan árangur í samræmdu prófi í dönsku. Þá veitti Rótarýklúbbur Borgar- ness verðlaun fýrir kynningu á starfskynningu sem 10. bekkingar halda á hverju ári og voru það þær Elín Gunnarsdóttir, Kristjana Erla Björnsdóttir og Þorgerður Erla Bjarnadóttir sem fengu þau verð- Þorgerður Erla Bjamadóttir með verðlaunin sem hún fe'kk fyrir góðan námsáranguj- laun fýrir kynningu á starfskynn- um á Hvanneyri. ingu sinni í Landbúnaðarháskólan- SO/ Ljósm. Aslaug Þorvaldsdóttir Viiinu við deilislápulag Bókasafnsreit frestað Umhverfisvakning Skessuhoms heldur áfram í síðasta tölublaði Skessuhorns var umfjöllun sem sneri að um- gengni almennings og verndun náttúru okkar. Hér heldur sú um- fjöllun áffam í myndformi, en þess- ar myndir voru teknar í Borgarfirði í liðinni viku. SO Skipulags- og byggingarnefnd Akraness hefúr samþykkt að fresta ffekari vinnu við deiliskipulag svo- nefnds Bókasafnsreits. Þetta var ákveðið á fundi nefndarinnar sl. mánudagskvöld. Sem kunnugt er hefur undanfarna mánuði verið unnað að skipulagi reitsins og hefur þegar verið fest kaup á nýju hús- næði undir bókasafúið. I deiliskipu- lagsvinnunni var reiknað með upp- byggingu á íbúðum fýrir aldraða á reitnum. Nýr meirihluti bæjar- stjórnar tilkynnti þegar hann tók við völdum að hætt yrði við flutn- ing bókasafúsins. Deiliskipulagið hafði verið aug- lýst og óskað eftír athugasemdum. Athugasemdaffestur rann út þann 5. júní og bárust engar athuga- semdir. Meirihluti nefndarinnar samþykkti að deiliskipulagsvinnu yrði ffestað og skipulagið ekki sent til auglýsingar í Stjórnartíðindum til endanlegrar staðfestingar. Mirmihluti nefúdarinnar lagði fram bókun þar sem sagði að harmaður sé hringlandaháttur nýs meirihluta bæjarstjórnar. „Deiliskipulagstil- lagan var samþykkt einróma af fýrri skipulags- og umhverfisnefúd og engar athugasemdir bárust frá íbú- um þegar tíllagan var auglýst. Með þessari ákvörðun er tafið verulega að byggðar verði 20-30 sérhannað- ar íbúðir fýrir eldri borgara á Akra- nesi,“ segir orðrétt í bókun minni- hluta nefúdarinnar. HJ Girðingardrasl. Bóndinn á nú samt hól skilið jyrir það að taka gömlu ónýtu girðinguna niður, nú á hara eftir að koma henni í gám. Eru þetta allt þarfahlutir sem eiga eftir að koma að góðum notum einhvem daginn ? Þessi dæmigerðu drykkjarílát sem svo mörgum finnst svo ósköp erfitt að koma í ruslið. Rúlluplast á griðingum er afar mikil sjónmengun. Dekk hvort sem þau eru ónýt eða ný œtti ekki að geyma svona úti á víðavangi, þar eiga þau einfaldlega ekki heitna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.