Skessuhorn - 21.06.2006, Page 19
iösssuriöBKI
MIÐVIKUDAGUR 21 .JÚNÍ2006
19
Helgigöngur undir Jökli á Jónsmessu
Á vegum Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls og sóknarprestsins í Ingjalds-
hólsprestakalli mun um næstu helgi
verða gengnar helgigöngur á
Snfæfellsnesi. Umhverfisráðherra,
Jónína Bjartmarz verður heiðurs-
göngustjóri.
Saxhóll - Ingjaldshóll:
Föstudaginn 23. júní kl. 19:00 fer
rúta ffá Ingjaldshóli að Saxhóli. Þar
hefst gangan kl. 19:30 eftir helgi-
stund og fararblessun við nýjan
kross þar sem kirkjan stóð áður.
Gengin verður gamla þjóðleiðin
um Prestahraun. Göngunni lýkur
um kl. 2:30 á Jónsmessunótt með
klukknahringingu og stuttri helgi-
stund við sólarupprás við Ingjalds-
hólskirkju. Effir að gangan hefst
verður hægt að koma í hana eða
taka sér hvíld frá henni t.d.við
Móðulæk á móts við Rauðhól. Um-
hverfisráðherra Jónína Bjartmarz
verður heiðursgöngustjóri í ferð-
inni.
Einarslón - Hellnar:
Laugardaginn 24. júní kl. 15:30
fer rúta frá Hellnakirkju og að
Djúpalónssandi. Þaðan er stuttur
gangur að
E i n -
arslóni.
Lagt verð-
ur af stað í
gönguna
kl. 16:00
frá nýjum
krossi í
Einarslóni
eftir helgi-
stund og
fararbless-
un. Geng-
in verður
g a m 1 a
þjóðleiðin
upp til
Purkhóla, með Háahrauni, að forna
kirkjustaðnum á Laugarbrekku og
að Hellnakirkju. Þar lýkur göng-
unni með næsturmessu um kl.
22:30.
Göngustjórar verða dr. Pétur
Pétursson prófessor og Sæmundur
Kristjánsson sagnamaður í Rifi,
leiðsögumaður og landvörður auk
Jónínu Bjartmarz umhverfisráð-
herra. A leiðinni sjá göngustjórarn-
ir um sögu- og helgistundir. Sagt
verður frá merkum sögulegum at-
burðum, minnistæðu fólki, helgi-
sögum og þjóðlegum fróðleik sem
tengjast leiðinni og lífi fólks að
fornu og nýju. Minnst verður
fornra og nýrra helgistaða, merkra
sagna og atburða í sögu kristnihalds
undir Jökli. Gengið verður í áföng-
um, ýmist í þögn eða samræðum.
Allir eru velkomnir hvort sem
þeir ganga langt eða skammt.
Nauðsynlegt er að hafa drykkjar-
vam með sér sem og annað nesti,
segir í tilkynningu frá þjóðgarðin-
um Snæfellsjökli. MM
Ferðahandbók fjölskyldunnar
Hjá Máli og menningu er komin
út Ferðahandbók fjölskyldunnar
eftir Bjarnheiði Hallsdóttur og
Tómas Guðmundsson. Tómas hef-
ur undanfarin ár starfað sem mark-
aðs- og kynningarfúlltrúi Akranes-
kaupstaðar. Höfúndar Ferðahand-
bókar fjölskyldunnar hafa saman-
lagt unnið áratugi við ferðaþjón-
ustu á Islandi, meðal annars við að
skipuleggja ferðir um landið fýrir
údendinga. Sú reynsla nýttist þeim
vel við vinnslu bókarinnar, ekki síð-
ur en að ferðast með fjölskyldu
sína. Þau lögðu land undir fót með
það í huga að velja áhugaverða og
fjölskylduvæna staði þar sem börn
gætu unað sér í guðsgrænni náttúr-
unni og ákváðu jafnframt að það
mætti ekki kosta neitt að upplifa
þessa staði. Markmið þeirra er að fá
fólk til að skoða, upplifa og njóta -
Frá Bjössaróló í Borgamesi sem m.a. er
sagtjrá í hinni nýju bók.
og slaka á. Staðirnir sem urðu fyrir
valinu eru flokkaðir eftir landshlut-
um og farið réttsælis í kringum
landið, byrjað á Akranesi og endað
á suðvesturhorninu.
„Það er gaman að fara í ferðalög
og þau styrkja fjölskylduböndin.
Þau eru líka ffæðandi og efla virð-
ingu, vitund og tilfinningu fólks
fyrir landinu, umhverfinu og
mannlífinu. Allir sem hafa ferðast
með börn og unglinga vita að það
gilda önnur lögmál um ferðalög
með ungmennum en fullorðnum.
Það þarf að skipuleggja nokkuð vel
ferðalagið sjálft, áfangastaði og
nestisstopp og nauðsynlegt er að
gera ráð fyrir alls kyns óvæntum
uppákomum. Ferðahandbók fjöl-
skyldunnar er samin með þetta í
huga,“ segir m.a. í tilkynningu frá
útgefendum.
MM
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á
íslenskum verktakamarkaði. Hjá
fyrirtækinu starfa um 650 manns,
víðsvegar um landið sem og
erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki
sem var stofnað árið 1970 og
hefur annast ýmis verkefni, svo
sem virkjanir, stóriðjuver, hafnar-
gerð, vega- og brúagerð auk flug-
valla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitar-
félög, fyrirtæki og eínstaklínga.
/ N
VÉLAMENN ÓSKAST
Vélamenn
Vegna aukinna verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða vélamenn
til starfa.Um er að ræða stjórnun á jarðýtum og gröfum.
Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7,105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSIAK
Fróðleíkur og skemmtun,
í góðum hópí,
í frábæru umhverfl.
Helgína 7.-9 júlí 2006.
WWWoll
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í B0RGARNESI
BÖÐVARSGATA 4
Ibúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi,
113,2 ferm. Forstofa dúklögð.
Stofa teppalögð. Borðstofa og
gangur dúldagt. Þijú herbergi, tvö
dúklögð og eitt parketlagt. Eldhús
dúklagt, eldri viðarinnrétting.
Baðherbergi með flísum á gólfi
og veggjum að hluta.
Þvottahús og búr.
Geymsla undir útitröppum. Góður garður.
Til afhendingar með skömmum jyrirvara.
Verð: 17.500.000
KVELDÚLFSGATA12
Ibúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi,
íbúð 128,7 ferm. og bílskúr 39,9
ferm. Forstofa flísalögð. Hol,
stofa og gangur parketlagt. Fjögur
herbergi öll parketlögð. Eldhús
parketlagt, nýleg viðarinnrétting.
Baðherbergi allt dúklagt,
- viðarinnr. Gestasnyrting dúklögð.
Búr og þvottahús. Hús ný málað að utan.
Til afhendingar með skömmum jyrirvara.
Verð: 29.000.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl.
löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 4371700, 860 2181, fax 4371017,
J
©
Bæ'ndur
Vesturlandi!
Vantar nautgripi og hross til slátrunar.
Pantanir og upplýsingar í síma 480 4100.
Sláturfélag Suðurlands
Selfossi