Skessuhorn


Skessuhorn - 21.06.2006, Síða 23

Skessuhorn - 21.06.2006, Síða 23
öSESSUHOBI s MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 23 Leikir þriðju deildar Hðanna Miðvikudaginn 14. júní tók lið Kára á móti Skallagrímsmönnum á Skaganum. Lið Kára hefur aldeilis verið í gírnum og skorað mikið í síðustu leikjum og ekki breyttu þeir út af vananum á móti Skallagrími því Kári sigraði leikinn með sjö mörkum gegn tveimur á Akranes- velli. Sunnudaginn 18. júní léku Vest- urlandsliðin þrjú í c riðli 3. deildar, Kári á útivelli en Snæfell og Skalla- grímur á heimavelli. Kári hélt á Hofsós þar sem þeir léku á móti heimamönnum í liði Neista. Kári var sterkara liðið í leiknum og sigraði með fjórum mörkum gegn engu marki heima- manna. Skallagrímur tók á móti Tinda- stóli á Skallagrímsvelli í Borgarnesi á sunnudag. Höfðu heimamenn betur í þeim leik, sem þeir unnu með tveimur mörkum gegn einu marki Tindastóls. Þá tók lið Snæfells á móti liði Hvatar ffá Blönduósi á Stykkis- hólmsvelli, einnig á sunnudag. Ekki gekk leikurinn nógu vel hjá heimamönnum en úrslitin urður þau að Hvöt sigraði leikinn með sex mörkum gegn tveimur mörkum heimamanna. Staðan í deildinni er sú eftir þessa fjóra leiki í síðustu viku að Kári heldur sínu striki og er í 1. sæti c riðils með 15 stig og hefur liðið nú skorað 32 mörk en fengið á sig 9. Skallagrímur er kominn í 3. sætd með 9 stig og hafa þeir skorað 12 mörk en fengið á sig 13. Snæfell er í 6. og neðsta sæti riðilsins með 1 stig og hafa þeir skorað 7 mörk en fengið á sig 33 mörk. SO Stuðningsmannafélag Skagamörldn best Stuðningsmannafélagið Skaga- mörkin hefur verið valið stuðnings- mannafélag 1.-6. umferðar Lands- bankadeildarinnar af nefnd sem skipuð er fulltrúum fjölmiðla og Landsbankans. „Stuðningsmenn IA, sem stofnuðu nýjan stuðnings- mannaklúbb í vor, stóðu þétt við bakið á sínu liði í fyrstu umferðun- um, þrátt fyrir mikið mótlæti, og eru vel að stuðningsmannaverð- laununum komnir. Skagamenn hafa sýnt stuðning sinn í verki, komið prúðmannlega og drengi- lega fram og verið félagi sínu til mikils sóma“, segir á ksi.is um mat nefhdarinnar. Stuðningsmannafélagið fékk að launum peninga að upphæð 100.000 krónur og mun sú fjárhæð renna óskipt til unglingaknatt- spyrnunnar á Akranesi. SO Urtaka SnæfeHings og Glaðs Nú liggja úrslit fyrir á móti hestamannafélaganna Snæfellings og Glaðs fyrir Landsmót hesta- manna, en úrtakan fór fram á Kald- ármelum fyrir skömmu. Fulltrúar Hestamannafélags- ins Snæfellings á LM eru: A flokkur; Kjarni ffá Lækjarmóti og Isólfur Líndal Þórisson Gola ffá Brimilsvöllum og Isólfur Líndal Þórisson Til vara: Glóð ffá Brimilsvöllum og Alexander Hrafnkelsson B flokkur: Skáti frá Skáney og Isólfur Líndal Þórisson Hrafn ffá Berustöðum og Alexand- er Hrafnkelsson Til vara: Örlámr frá Hallkelsstaða- hlíð og Guðmundtir M. Skúlason Ungmennaflokkur: Guðmundur M. Skúlason og Skúta frá Hallkelsstaðahlíð Sigríður Guðbjartsdóttir og Venus frá Hofi Unglingaflokkur: Astrós Eiðsdóttir og Kristall frá Naustum Dagfríður Ósk Gunnarsdóttir og Einir frá Lækjarmóti Bamaflokkur: Rúnar Þór Ragnarsson og Dögg frá Kverná FuIItrúar Hestamannafélagsins Glaðs á LM eru: A flokkur: Deilir frá Hrappsstöðum og Eyjólfur Þorsteinsson Ylur ffá Blönduhlíð og Guðmund- ur Baldvinsson Til vara: Mosi frá Lundum og Skjöldur Orri Skjaldarson B flokkur: Snerrir ffá Bæ og Reynir Jónsson Litbrá frá Ármóti og Inga Dröfh Sváfnisdóttir Til vara: Bylgja ffá Armóti og Inga Dröfh Sváfhisdóttir SO Kærar þakkir! Borgfirðingahátíð var nú hald- in í sjöunda skipti dagana 9. - 11. júní sl. og tókst með ágætum. Fjölmargir lögðu hönd á plóg til að gera hátíðina sem fjöl- breyttasta og mikil aðsókn var að flestum uppákomum sem sýnir að flestir hafa fundið eitthvað við sitt hæfi. Fyrir hönd UMSB langar mig að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem smddu við fram- kvæmd Borgfirðingahátíðar ým- ist með vinnuframlagi, beinu fjárframlagi, lögðu til skemmtiat- riði eða sköffuðu húsnæði og aðra aðstöðu til hátíðarhalda. Síðast en ekki síst viljum við þakka öllum þeim sem tóku þátt í hátíðarhöldunum fyrir að gera Borgfirðingahátíð að sannkall- aðri héraðshátíð okkar allra. Margrét Friðjónsdóttir, ji'amkvæmdastjóri Borgfirðingahdtíðar Komnir á beinu brautina Skagaliðið vann baráttusigur gegn Breiðabliki á Akranesi sl. fimmmdag. Liðið vann þar með sinn annan sigur í röð og ljóst að þtmgi fargi er létt af mönnum. Ef liðið sýnir áfram sömu barátmna og það gerði í leiknum er ljóst að úkagamenn eru komnir á beinu brautina. Bjami Guðjónsson skor- aði stórglæsilegt mark sem kemur klárlega til greina sem mark sum- arsins. Leikurinn byrjaði nokkuð rólega þó bæði lið sköpuðu sér færi. Nokkuð jafnræði var með liðtmum en hvomgu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik. Undir lok hálfleiksins setti IA mikla pressu á Breiðablik og ljóst var að Skagamenn ætluðu sér að komast yfir fyrir leikhlé. Það tókst hins vegar ekki og því var markalaust í hálfleik. Bæði liðin komu dýrvitlaus út í seinni hálfleik og strax var ljóst að ekkert yrði gefið efdr. Breiðablik komst yfir á 65. mínúm og ljóst var að heimamenn þyrftu að bíta í skjaldarrendurnar. Það gerðu þeir líka svo um mimaði því tveimur mínúrnm síðar skoraði Bjami gull af marki. Eftir nokkurn barning í teignum barst boltinn út til hans og hann hamraði hann í netaði án þess að markvörður Blika kæmi nokkrum vörnum við. Skagamenn vom hvergi nærri hættir og héldu áfram að sækja. Þeir uppskára laun erfiðis síns á 75. mínúm þegar Ellert Jón Bjömsson skoraði effir ffábæran tmdirbúning Amars Más Guðjónssonar. IA átti fylfilega skilið að komast yfir og það sem eftir lifði leiks sótti liðið ákaft og var oft nálægt því að bæta við mörkum. Blikar missm móðinn við seinna markið og vora smá- stund að koma sér aftur í gang, en lok leiksins einkenndust af sókntmi á báða bóga. Það er ekki að ósekju að Bjami Guðjónsson var valinn maður 7. umferðar hjá fótbolti.net. Hann átti frábæran leik og setti inn stórkost- legt mark. Skagaliðið virðist loksins hafa fengið trú á því sem það er að gera, nokkuð sem hefur stundum skort í sumar. Það er því vonandi að liðið haldi áfram á sömu braut, en næsti leikur verður nk. fimmmdag í Vest- mannaeyjum. Skagamörkin, smðn- ingsmannahópur IA, verður með hópferð á leikinn og víst er að ekki veitir af að sýna liðinu stuðning á jafiierfiðum útivelli og Hásteins- völlur er. I það minnsta er ljóst að Hðið þarf að sýna sömu baráttu og það gerði uppi á Skaga sl. fimmtu- dag. KÓP ÍA piltar marsera á mótssetningunni sl. sumar. Skagamót Coke og KB banka um helgina á Akranesi Hið árlega Skagamót Coke og KB banka verður haldið á Akranesi um næsm helgi, dagana 23.-25. júní. 22 félög eru skráð til leiks og munu þau koma með samtals 87 lið í 7. flokki, þar sem leika tmgir og efnilegir knattspyrnumenn- og konur. Mótsseming verður á aðal- vellinum klukkan 12:00 á föstudag að lokinni skrúðgöngu til vallarins frá Grandaskóla og hefst keppnin svo klukkan 13:00. Leikið verður á 12 völlum á æfingasvæði IA. Fjórar af fimm umferðum deild- anna verða leiknar á laugardag og sú síðasta fyrir hádegi á sunnudag. Ekki verður um neina úrslitaleiki um sæti að ræða. I stað þeirra verð- ur sprell á aðalvellinum klukkan 13:00 á sunnudag og verðlaunaaf- hending í beinu framhaldi. Allir þátttakendur fá verðlaunapening og fótbolta. Efsta liðið í hverri deild í hverjum flokki fær eignar- bikar. Prúðasta félag mótsins fær stærsm verðlaunin sem er veglegur eignarbikar, þá verða einnig veitt Háttvísisverðlaun KSI. Undanfarin ár hafa um 1000 manns sótt Akranes heim af þessu tilefhi og má búast við svipuðum fjölda í ár. Sá munur er hinsvegar nú að Skagamótið er ekki sömu helgi og Irskir dagar, sem verða nú þegar vika er liðin af júlí. SO/ Ijósm. HS Jónsmessuganga 2006 Föstudaginn 23. júní verður farin hin árlega Jónsmessuganga á Háahnjúk. Safnast verður saman við litlu réttina við rætur Akrafjalls kl: 22:00, gengið sem leið liggur á Háahnjúk undir öruggri leiðsögn Björgunarfélags Akraness. Þátttakendur fá frímiða í sund og á toppnum verða léttar veitingar. Grill og gaman í Jaðarsbakkalaug Sundlaugin verður opin frá miðnætti, boðið verður upp á grillaðar pylsur og létta stemningu á laugarbakkanum. Tilvalið að skella sér í laugina og láta þreytuna líða úr sér að lokinni göngu. Dagskrá þessi er sett fram með fyrirvara um gott ferðaveður og mikilvægt er að þátttakendur séu vel útbúnir varðandi göngufatnað og skóútbúnað. www.ia.is Akraneskaupstaður www.visitakranes.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.