Skessuhorn - 21.06.2006, Blaðsíða 24
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
íbúðaiánasjóður
www.ils.is
■■■■■■HHBKWHnHHHHHRHBBnMnnHnSBni
FJÁRHAGSLEG GLITNIR
VELGENGNI ÞÍN —
ER 0KKAR VERKEFNI
Daglegar ferðir
Opnunartímarvirka daga 8-12 og 13-17.
Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880
landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is
Landflutningar
'SAMSKIP
Bæjarráð harmar gerð
viljayfirlýsingar við
hestamenn
Bæjarráð Akraness harmar gerð
viljayfirlýsingar sem fyrrverandi
bæjarstjóri Akraness gerði við
Hestamannafélagið Dreyra. Ráðið
segir viljayfirlýsinguna gerða án
samráðs við ráðið en vill engu að
síður taka upp viðræður við félagið
um samstarfssamning.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um Skessuhorns hafa hestamanna-
félög víðs vegar um landið hugað
að byggingu reiðskemma eða reið-
halla í kjölfar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar um stuðning við
byggingu slíkra húsa í hverjum
landshluta. Hefúr í kjölfarið hafist
mikið kapphlaup milli hestamanna-
félaga um slíkar byggingar.
Þann 2. júní sendi Hestamanna-
félagið Dreyri umsókn til landbún-
aðarráðherra um styrk til bygging-
ar reiðskemmu á svæði félagsins við
Æðarodda við Akranes. Félagið
starfar á Akranesi og í Hvalfjarðar-
sveit og eru félagsmenn um 170.
Kemur ffam í umsókninni að félag-
ið hyggist reisa 1.500 m2 skemmu
og í tengslum við þær ffamkvæmd-
ir bæta aðra aðstöðu eins og skeið-
velli, reiðgerði og tamningagerði.
Þá segir í umsókninni: „Bæjaryfir-
völd á Akranesi lýsa yfir vilja sínum
til að gera ff amkvæmdasamning við
félagið, þar sem kveðið verður á
um framlög Akraneskaupstaðar
vegna þessarar nýju aðstöðu".
Undir þessa umsókn rita nöfn sín
Dóra Líndal Hjartardóttir formað-
ur Dreyra og fyrir hönd Akranes-
kaupstaðar ritar Guðmvmdur Páll
Jónsson þáverandi bæjarstjóri und-
ir umsóknina.
Sama dag rita sömu aðilar undir
viljayfirlýsingu þar sem segir að
Akraneskaupstaður og Dreyri lýsi
yfir vilja sínum til að gera með sér
samning um ffamkvæmdir á svæði
félagsins. Þar segir að í samningn-
um skuli kveðið á um áætlaðar
ffamkvæmdir svo sem byggingu
reiðskemmu, gerð nýrrar skeið-
brautar, lagfæringu við æfinga- og
keppnisaðstöðu og frágang gama
og almenna snyrtingu svæðisins. Þá
skuli einnig kveðið á um verkþætti
og tímasetningu þeirra, áfanga-
skiptingu og fjárframlög og stefnt
skuli að því að framkvæmdir geti
hafist árið 2007. Einnig segir að
Akraneskaupstaður lýsi jafnframt
vilja sínum til að leita eftir samn-
ingum við Hvalfjarðarsveit um
beitarland fýrir hesta félagsmanna.
Viljayfirlýsingin var lögð fýrir
fýrsta fúnd nýkjörins bæjarráðs í
síðustu viku. Eins og áður sagði
harmaði ráðið gerð viljayfirlýsing-
arinnar án samráðs við ráðið en
bókar jafnframt að það muni taka
upp viðræður við Dreyra um gerð
samstarfssamnings.
HJ
Guðmundur Páll Jóns-
son aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra
^eyskír
30. júní - 2. júlí 2006 í Ólafsvík
Gylfi Jónasson framkvœmdasljóri Festu lífeyrissjóðs er til hœgri á myndinni.
Guðmundur Páll Jónsson,
bæjarfulltrúi og fýrrverandi
bæjarstjóri á Akranesi hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður
Magnúsar Stefánssonar fé-
lagsmálaráðherra og mun
hefja störf strax. Guðmund-
ur Páll er Akurnesingur og
lauk námi árið 1978 frá
Samvinnuskólanum á Bif-
röst. Hann starfaði hjá Har-
aldi Böðvarssyni hf. og HB
Granda hf. frá árinu 1986 og
lengst af sem starfsmanna-
stjóri. Hann var ráðinn bæj-
arstjóri á Akranesi 1. nóvem-
ber 2005 og gegndi því starfi
þar til í síðustu viku. Hann
var kjörinn í bæjarstjórn
Akraness árið 1994 sem odd-
viti Framsóknarflokksins og
hefur sem bæjarfulltrúi setið
í fjölmörgum nefiidum og
ráðum.
Guðmundur Páll segir hið
nýja starf spennandi kost og
þar gefist tækifæri til þess að
vinna að málum sem hann
hafi lengi unnið að í störfum
sínum til þessa. Guðmtuidur
segir hið nýja starf ekki hafa
áhrif á setu sína í bæjarstjórn
Akraness enda fjölmörg for-
dæmi fýrir því að aðstoðar-
menn ráðherra sitji í sveitar-
stjómum.
HJ
Festa lífeyrissjóður stofnaður á Akranesi
\
fré Hopp 09 skopp . ^
^"*aður - Dorgkepp„i. Söngva'^1
og
margt margt fleira....
Fjölmenni var á stofhfundi hins nýja lífeyrissjóís.
Síðastliðinn mánudag var haldinn á
Akranesi stofnfundur Festu lífeyris-
sjóðs. Sjóðurinn varð til við sameiningu
Lífeyrissjóðs Vesturlands og Lífeyris-
sjóðs Suðurlands. Lífeyrissjóður Suður-
lands var sameinaður úr Lífeyrissjóði
Suðurnesja og Lífeyrissjóði Suðurlands
um mitt síðasta ár. Stjórnir sjóðanna
hófu viðræður í apríl á síðasta ári og á
vormánuðum síðasta árs var skipuð sér-
stök viðræðunefnd sem í sátu stjórnar-
formenn og framkvæmdastjórar sjóð-
anna auk eins stjómarmanns frá hvor-
um sjóði. Einnig komu tryggingafræð-
ingar sjóðanna að málinu.
A stofnfundinum kom fram að mark-
mið með sameiningu sjóðanna sé að
auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættu-
dreifingu og ávöxtun eigna og hámarka
með þeim hætti þau lífeyrisréttindi sem
sjóðirnir geta veitt sjóðsfélögum sínum.
Einnig að stærri sjóður sé betur í stakk
búinn til þess að veita þá þjónustu sem
nú er krafist. I stofnefnahagsreikningi
hins nýja sjóðs þann 1. janúar 2006 var
hrein eign til greiðslu lífeyris rúmlega
39,4 milljarðar króna og verður sjóður-
inn því í hópi stærstu lífeyrissjóða
landsins.
Heimili og varnarþing hins nýja sjóðs
verður í Reykjanesbæ en skrifstofa sú
sem Lífeyrissjóður Vesturlands rak á
Akranesi verður rekin þar áfram. Fram-
kvæmdastjóri sjóðsins er Gylfi Jónasson
sem áður var framkvæmdastjóri Lífeyr-
issjóðs Vesturlands. Kristján Gunnars-
son er formaður stjórnar sjóðsins og
Bergþór Guðmundsson varaformaður.
Aðrir stjómarmenn era Ragna Larsen,
Þórarinn Helgason, Bergþór Baldvins-
son og Sigrún Helga Einarsdóttir. HJ
s' ^apP^/aupid mikla - Kij,
n
V- *
*ýning ‘
Héðinsmótið
í bekkpressu
. Blúsbanw;.
Tóti tannálfur
og Sölvar súri
r
SöCuskáíi (yK.ÓCafsvík
v/ Ólafsbraut • Ólafsvík
Sími: 4361012 fax: 436 1660
rs
FESTh LÍFEYRISSJÓÐUR