Skessuhorn - 14.02.2007, Page 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI
Meðal
efnis:
• Fjölskylda borin röngum
sökum........Bls. 10
• lllur aðbúnaður
skipverja....Bls. 26
• Borað á
Berserkseyri .. Bls. 32
• Allt um
körfuna......Bls. 31
• Kveikir námsáhugann
með tónlist..Bls. 12
• Peningalykt
í loftið.....Bls. 2
• Veðramót á
Snæfellsnesi ...Bls. 14
• Eva Margrét fer
á Samfés.....Bls. 22
• Landbúnaðarsafn verður
staðreynd....Bls. 8
• Safnar munn-
mælasögum ....Bls. 22
• Segja stríð
hafið.......Bls. 20
• Hringtorg á
Hvanneyri....Bls. 10
• Hafnarmannvirkin í
Rifi skoðuð..Bls. 6
• 100 ára
kvenfélag....Bls. 9
• Vilja malbika
vegina.......Bls. 32
• Einkenni misnotkunar
kennd........Bls. 11
• Húsasmiðurinn sem
varð lögga...Bls. 24
• Tímamót í
mannfjölda...Bls. 22
• Pestirnar herja á
landsmenn....Bls. 13
• Handverk og
hönnun.......Bls. 26
• Hámarkshraði
lækkaður.....Bls. 2
• 28 þúsund í göngin
á haus.......Bls. 4
L J
7. tbl. 10. árg. 14. febrúar 2007 - Kr. 400 í lausasölu
BæjarráS Akraness ákvað á fundi sínum í síðustu viku að fitra sex þúsundasta íbúanum gjöf að verðmœti 100 þúsund krónur. I samráði
við foreldra stúlkunnar sem fieddist þann 6. febrúar, þau Evu Lind Matthíasdóttur og Gunnar Þór Gunnarsson, var uppbœðin lögð inn
á bundna bók til 18 ára aldurs í Glitni. Gísli S. Einarsson, bcfiarstjóri fierði stúlkunni ogforeldrum hennar skjöl þessu til staðfestingar
á heimili þeirra ígœr. Sjá nánar „Tímamót í mannfjölda áAkrar,esi‘‘ ífrétt á bls. 22. Ljósm. HJ.
Miklar framkvæmdir
samkvæmt nýrri áætlun
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra kynnti á mánudaginn til-
lögu til þingsályktunar um fjögurra
ára samgönguáætlun fyrir árin
2007-2010 og einnig tillögu um
samgönguáætlun fyrir árin 2007-
2018. Samkvæmt þessum áætlunum
verða framlög til samgöngumála
rúmlega 381 milljarður króna á
næstu 12 árum. Af þeirri upphæð
renna um 324 milljarðar króna til
vegamála. Framkvæmdir sem ætlað
er að fjármagna með „sérstakri fjár-
öflun“ eru fyrirferðarmiklar í
þingsályktunartillögunum.
Af stærstu framkvæmdum á
næstu fjórum árum á Vesturlandi
má nefna að til framkvæmda á
hringveginum frá Grafarkoti að
Brekkunefi í Borgarfirði verður
varið 380 milljónum króna. I Vest-
fjarðaveg ffá Svínadal að Flóka-
lundi verður varið 1.560 milljónum
króna. Til vegar um Fróðárheiði
verður varið 100 milljónum króna.
I framkvæmdir við Þjóðbraut á
Akranesi verður varið 100 milljón-
um króna á árunum 2009 og 2010.
Af söluandvirði Símans verður á
næstu fjórum árum varið 8 millj-
örðum króna í Sundabraut frá Sæ-
braut að Geldinganesi en fram
kemur að endanleg ákvörðun um
legu vegarins verði tæpast gerð fyrr
en í árslok 2007. Til vegarins ffá
Svínadal að Flókalundi verður varið
700 milljónum króna. Til ffam-
kvæmda við tengivegi í Norðvest-
urkjördæmi verður á næstu fjórum
árum varið 1.523 milljónum króna
en skipting þess fjár fer fram við af-
greiðslu áætlunarinnar á Alþingi.
Þá verður á næstu fjórum árum
varið 2.500 milljónum króna til
framkvæmda við veginn frá Kjalar-
nesi til Borgarness og verður sú
framkvæmd fjármögnuð með sér-
stökum hætti.
Af framkvæmdum á árunum
2011-2018 má nefna að 55 millj-
ónum verður varið til framkvæmda
í Stafholtstungum, til framkvæmda
við hringveginn í Borgarnesi, á
Holtavörðuheiði verður fram-
kvæmt fyrir 200 milljónir, til Fróð-
árheiðar verður varið 460 milljón-
um, til Þjóðbrautar við Akranes
100 milljónum og með sérstakri
fjáröflun er ætlað að verja 3.500
milljónum króna til breikkunar
hringvegarins frá Mosfellsbæ til
Borgarness. Einnig er ætlað að
verja 6.500 milljónum króna á
þessum árum til breikkunar hring-
vegarins frá Borgarnesi til Akur-
eyrar og 12.000 milljónum til
Sundabrautar.
Sérstök fjáröflun getur sam-
kvæmt samgönguáætluninni verið
með ýmsum hætti. Sem dæmi eru
nefnd einkaframkvæmd, sem
byggist á fjáröflun með notenda-
Mjólka
villí
Borgames
Forráðamenn fyrirtækisins
Mjólku hafa sýnt áhuga á því að
flytja vinnslustarfsemi fyrirtækis-
ins í Borgames. Verið er meðal
annars að skoða húsnæðið sem
Borgarplast var í með staðsetingu
í huga.
Að sögn Sigurðar Ola Olason-
ar, stjómarformanns í Mjólku er
vinnslan búin að sprengja utan af
sér það húsnæði sem hún er núna
í að Vagnhöfða í Reykjavík, svo
það er farið að há ffamleiðslu-
getu fyrirtækisins, enda hefur
starfsemin gengið vel, að sögn
Sigurðar Ola. Vilji er fyrir því
innan fyrirtækisins að færa
vinnsluna nær framleiðslunni,
þ.e. bændum og því sé ekkert
síðri kostur að flytja hana í Borg-
arnes ef um semst.
„Eg tel að þetta yrði stórt og
gæfuríkt spor fyrir alla ef af þessu
verður," heldur Sigurður Oli
áffam. „10-14 störf myndu í upp-
hafi fylgja með vinnslunni, þótt
sala og dreifing yrði líklega í
Reykjavík. Mörg fyrirtæki í
Reykjavík hafa einnig sýnt áhuga
á því að fara í samstarf eða sam-
vinnu við Mjólku en um slíkt
hefur engin ákvörðun verið tek-
in. Kostnaður er gífurlegur við
að flytja svona starfsemi, hvert
sem hún fer. Þetta er því ekki
einungis háð því hvað við viljum,
velvilja Borgarbyggðar þarf
einnig tdl. Engin ákvörðun hggur
fyrir en ef af verður myndum við
flytja á næstu mánuðum,“ sagði
Sigurður Óli að lokum. BGK
gjöldum eða samblandi af not-
endagjöldum, ríkisframlagi og
framlagi einkaaðila. „Þar getur
einnig verið um að ræða hefð-
bundnar framkvæmdir, sem
byggðar eru á hefðbundnum út-
boðum, en í þeim tilvikmn byggist
sérstök fjáröflun þá alfarið á sér-
stöku ríkisframlagi eða lántöku
sem felur í sér að ríkið greiðir
framkvæmdina á lengri tíma en nú
er venjan,“ segir orðrétt í áætlun-
inni.
HJ
•&SPM
SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU - HORNSTEINN í HÉRAÐI
Digranesgötu 2 • 310 Borganes • Síðumúla 27 • 108 Reykjavík • Sími 430 7500 • Fax 430 7501 • spm@spm.is • www.spm.is