Skessuhorn - 27.03.2007, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2007
g2ESSUH©BKl
Aflatölur á netið
GRUNDARFJ ÖRÐUR: Á
heimasíðu Gmndaríjarðarbæjar er
nú hægt að nálgast tölur yfir land-
aðan afla í Grundarfjarðarhöfri í
hverri viku. Beint aðgengi er yfir á
vefevæði Grundarfjarðarhafnar og
þar er hægt að velja hðinn „aflatöl-
ur“ en þá birtast upplýsingar með
sundurliðun á lönduðtun afla eftir
skipum. Upplýsingum saínar að
venju Hafeteinn Garðarsson, hafh-
arvörður. -bt
Matarlækkun
BORGARBYGGÐ: Byggðaráð
Borgarbyggðar hefur samþykkt að
lækka gjaldskrá í leik- og grunn-
skólum sveitarfélagsins um 5%.
Kemur þessi lækkun að sögn Páls
S. Brynjarssonar sveitarstjóra í
kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á
matvæh og tók hún gildi 1. mars.
bgk
Vaxandi
atvinnuleysi
VESTURLAND: Um síðasdiðna
helgi voru 102 skráðir án atvinnu á
Vesturlandi, skv. upplýsingum á
heimasíðu Svæðisvinnumiðlunar
Vesturlands. Þar af voru 66 konur
og 36 karlar. Samkvæmt þessu er
atvinnuleysi að aukast nokkuð því
um mánaðamótin febrúar/mars
voru 20 færri án atvinnu, eða 26
karlar og 56 konur. Einungis eru 9
störf auglýst laus til umsóknar á
heimasíðu stofnunarinnar.
-mm
Fjöldi óhappa
HOLTAVÖRÐUHEIÐI: Björg-
unarsveitir úr Húnavamssýslum,
Borgarfirði og Borgamesi tmnu sl.
föstudagskvöld við að aðstoða öku-
menn sem lent höfðu í hremming-
tun í slæmri færð og óveðri á
Holtavörðuheiði. Þar lentu a.m.k.
þrír bílar í árekstrum og fjöldi lenti
utan vegar. Enginn slasaðist í þess-
um óhöppum, en nokkrir bílanna
sem lenm í árekstrinum og utan
vega vom óökuhæfir á efdr. Heið-
inni var lokað fyrir umferð um
kvöldið, en þar var bálhvasst, mikil
hálka og skyggni lítið ffarn yfir
miðnætti.
-mm
Útboð á smíði
flotbryggja
SNÆFELLSNES: Siglingastofn-
un bauð nýlega út smíði á
nokkrum flotbryggjum og hafnar-
mannvirkjum fyrir viðkomandi
hafnaryfirvöld. Meðal þess er boð-
in út smíði flotbryggju í Rifshöfh
og öldubrjóts í höfrúnni í Stykkis-
hólmi. Flotbryggjan í Rifehöfii skal
vera 15 sinnum 3 metrar að stærð,
en öldubrjóturinn sem gera á í
Stykkishólmi skal vera 40 metra
langur. Samkvæmt útboðsgögnum
skal lokið við smíði þessara mann-
virkja fyrir 30. september nk. Þá
hefur Siglingastofhun boðið út fyr-
ir Ólafevíkurhöfn og Rifehöfh kaup
á alls 210 tonnum af stálþiljum og
70 tonn af stagfestingum fyrir
hafhimar.
-mm
Framtiðar skiðasvæði a Oki
vekur áhuga
Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa
sýnt því áhuga að koma og skoða
hugmyndir Borgarbyggðar um
framtíðar skíðasvæði á Okjökli.
Eins og fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns fóru tveir vaskir
Borgfirðingar og reifuðu hugmynd
sína fyrir byggðaráði Borgar-
byggðar um uppbyggingu
framtíðar skíðasvæðis á Oki.
Æskulýðsfulltrúa sveitarfélagins var
falið að kynna málið fýrir þeim sem
um málefni skíðasvæða hafa að gera
á höfuðborgarsvæðinu. Ut úr þeim
viðræðum kom sem sagt að nú í
aprílmánuði koma fulltrúar frá
Reykjavíkurborg til að skoða hvað
stendur til boða í Borgarbyggð í
uppbyggingingu framtíðarskíða-
svæðis þar sem nægur snjór er á
boðstólum allan veturinn.
BGK
Vinstri grænir og Sj álfstæðisflokkur
með svipað fylgi
í nýrri könnun sem Capacent
Gallup vann fyrir Ríkisútvarpið og
Morgunblaðið kemur fram að í
Norðvesturkjördæmi er fylgi
Vinstrihreyfingarinnar græns fram-
boðs álíka stórt og Sjálfstæðis-
flokksins. Sjónarmun á imdan í fylgi
er þó Sjálfstæðisflokkurinn sem
mælist stærstur í kjördæminu, með
29,9% en VG mælist með 29,3%.
Samfylldngin mæhst nú með 20%
fylgi og bætir við sig 5
prósentustigum firá síðustu könnun.
Framsóknarflokkurinn mælist með
12% fylgi og tapar fylgi miðað við
síðustu könnun. Frjálslyndi
flokkurinn mælist nú með 7,3%.
Könnunin var gerð dagana 14. -
20. mars og því ekki búið að tilkynna
um ffamboð Islandshreyfingarinnar
sem kom fram á sjónarsviðið sl.
fimmmdag. 1,5% aðspurðra nefndu
að þeir myndu kjósa eitthvað annað
en flokkana fimm sem þegar hafa
kynnt fista sína.
kóp
Ríkisvaldið sakað um lögbrot
Minnihluti bæjarstjórnar Stykkis-
hólms lagði ffarn harðorða bókun á
fundi bæjarstjómar þann 22. mars
sl. um málefni Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði.
Bæjarstjóm samþykkti samhljóða að
auka hlutafé f Jeratúni, eignar-
haldsfélagi um húsnæðis skólans,
um 8.640.000 kr. og lagði áherslu á
að leitað verði allra ráða til að ná
ffam endurskoðun á leigusamningi
við ríkið. Fulltrúar minnihlutans
lögðu ffam bókun þar sem aðkoma
ríkisins að rekstrinum er gagnrýnd
og ríkisvaldið sakað um að standa
ekki við lög sem kveða á um að
rekstur ffamhaldsskóla sé í höndum
ríkisins. Þá telur minnihlutinn ljóst
að ef leigusamningurinn verði ekki
leiðréttur muni sveitarfélögin sem
að Jeratúni standa þurfa að auka
hlutafé félagsins árlega næstu árin.
Skessuhorn ræddi í síðasta
tölublaði við Kristinn Jónasson,
bæjarstjóra Snæfellsbæjar, og sagði
hann að ríkið væri að borga lægri
húsaleigu ffamhaldsskóla á hvem
fermetra á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Taldi hann
brýnt að fundað yrði sem fyrst með
ráðherra um málefni skólans.
Skesstihorn hefur reynt að ná tali af
ráðherra vegna málsins, en ekki
tekist. Blaðið mun hins vegar fylgja
málinu eftír, efrir því sem því vindur
ffam. KÓP
Snæfellsbær dæmdur bótaskyldur
vegna uppsagnar
Héraðsdómur Vesturlands felldi
sl. miðvikudag dóm um að uppsögn
trúnaðarmanns hjá Snæfellsbæ í maí
í fyrra hafi verið ólögmæt.
Héraðsdómur skar úr um að bærinn
beri skaðabótaábyrgð gagnvart
starfemanninum vegna fjártjóns og
miska. Sú ákvörðun bæjaryfirvalda
að endurráða starfsmanninn ekki var
líka ólögmæt. Bærinn vó með
ákvörðunum sínum jafnframt að
æru starfsmannsins og persónu. Eins
og Skessuhom hefur greint ffá var
starfemaðtninn ráðinn til starfa sem
baðvörður í íþróttahúsinu í Olafsvík
árið 2001. Haustíð 2005 fóru
stjómendur Snæfellsbæjar þess á leit
að gerðar yrðu breytingar á
vinnutílhögun bæjarstarfsmanna
sem störfuðu við íþróttamannvirkin
í Olafevík. Starfemönnunum var sagt
upp störfum með bréfi 31. maí 2006
með þriggja mánaða
uppsagnarffesti. Þær uppsagnir vom
dregnar til baka vegna formgalla.
Aftur var þeim svo sagt upp störfum
28. júní 2006.
I uppsagnarbréfi var teldð ffam að
bæjarráð hafi ákveðið að breyta
vinnufýrirkomulagi og að ráðið yrði
aftur í störf að endurskipulagningu
lokinni og að undangenginni
auglýsingu. Lögmaður
starfsmannsins og annarra þeirra
starfsmanna sem sagt var upp óskaði
effir því við bæjarfélagið að
uppsagnimar yrðu dregnar til baka
en að öðrum kostí yrðu dómsmál
höfðuð til ógildingar uppsagnanna
og skaðabóta krafist vegna þess tjóns
sem af þeim leiddi. Héraðsdómur
vísaði málinu ffá í desember
síðastliðnum, en hefur nú dæmt
Snæfellsbæ til að greiða honum
skaðabætur.
KÓP
Dalabyggð vill að Nýsir
standi við gerða samninga
Sveitastjóm Dalabyggðar hefur
falið sveitarstjóra að senda bréf til
ffamkvæmdastjóra Nýsis um að
fyrirtækið fari af stað með
ffamkvæmdir í Sælingdalstungu og
standi við þann samning sem gerður
var milli þessara aðila um
uppbyggingu frístundabyggðar á
jörðinni. „Samningur um
ffamkvæmdirnar var undirritaður
mifli Dalabyggðar og Nýsis á sínum
tíma en lítið hefur borið á
framkvæmdum. Nýlega lagði Nýsir
fram nýja kostaðaráætlun vegna
lagningar á köldu vatni frá
aðalvatnslögn og einnig gögn
varðandi kostnað við byggingu
bústaða á svæðinu og markaðsvirði
þeirra og felur sú kostnaðaráætlun í
sér hækkun frá upphaflegum
samningum um verkið. Við viljum
bara að fýrirtækið uppfylli
samninginn, sem gerður var á sínum
tíma. Við ætlum ekki að segja
honum upp, heldur láta reyna á
upprunaleg ákvæði hans og förum
lengra með málið ef þarf,“ sagði
Gunnólfur Lárusson sveitarstjóri.
BGK
VRlækkar
félagsgjöld
AKRANES: Aðalfundur VR
2007, sem haldinn var mánu-
dagskvöldið 26. mars, sam-
þykkti lækkun félagsgjalds um
30%, 412 milljóna króna
ffamlag í VR varasjóð félags-
manna og breytingu á því
hvemig staðið er að vali á for-
ystu félagsins. Gunnar Páll
Pálsson, formaður VR, segir
þessar tillögur miða að því að
auka lýðræði í félaginu og færa
félagsmönnum ávinninginn af
sterkri stöðu VR undanfarin
ár. IVR em nú 26 þúsund fé-
lagsmenn, þar á meðal fjöldi
félagsmanna á Akranesi.
-mm
SG byggir nýjan
leikskóla
DALIR: Byggðaráð Dala-
byggðar hefur ákveðið að
ganga til samninga við SG
húseiningar á Selfossi um
byggingu á nýjum leikskóla.
Fyrsta skóflustungan verður
tekin í þessum mánuði. Eins
og ffam hefur komið í fféttum
Skessuhoms var fýrir nokkm
ákveðið að byggja nýjan leik-
skóla. Leitað hefur verið ttil-
boða og ákveðið að ganga að
því sem barst ffá SG húsein-
ingum, eins og áður sagði.
Gunnólfur Lárusson, sveitar-
stjóri Dalabyggðar sagði að-
spurður að nýi leikskólinn
verði opnaður ekki síðar en
fyrsta september.
-bgk
Styrkja viðgerð
tumsins
AKRANES: Bæjarráð Akra-
ness hefur samþykkt að styrkja
endurbætur á klukkutuminum
í Görðum sem Sóknarnefnd
Akraneskirkju hefur hug á að
gera á þessu ári. Styrkurinn
nemur 2,5 milljónum króna
og fýlgja þau orð að um sé að
ræða viðurkenningu á menn-
ingarsögulegu verðmæti
klukkutumsins fyrir samfélag-
ið á Akranesi. Turninn var
reistur á áranum 1955-1956
en hugmyndina að gerð hans
átti séra Jón M. Guðjónsson,
sóknarprestur og síðar pró-
fastur. Sr. Jón gerði sjálfur
frumdrög að turninum, en
verkteikningar gerði Jóhann
B. Guðnason, fyrrverandi
byggingarfulltrúi á Akranesi
og sóknarnefndarmaður.
Sóknarnefnd Akraneskirkju
hefur ákveðið að fram fari
endurbætur á tuminum í sam-
ræmi við úttekt Þorsteins
Gunnarssonar, arkitekts, Rík-
harðs Kristjánssonar, verk-
fræðings og Guðna Arnars
Jónssonar, byggingartækni-
ffæðings ffá janúar 2007.
-mm
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Sími: 433 5500
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1400 krónur með vsk á mánuði en krónur 1300
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 1050.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Birna G Konráðsdóttir 864-5404 birna@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó. Proppé 659-0860kolbeinn@skessuhorn.is
Augl. og dreifing:Hekla Gunnarsd. 821 5669 hekla@skessuhorn.is
Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson 437 1677 augl@skessuhorn.is