Skessuhorn - 27.03.2007, Blaðsíða 15
■■ilnin... 5
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2007
15
Svœðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Vesturlandi
Auglýsir eftir starfsfólki í
búsetuþjónustu í Borgarnesi
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum. Starfið felst
í að veita fólki með fötlun stuðning og leiðsögn við athafnir
daglegs lífs á heimilum þeirra og úti í samfélaginu.
1 Með haustinu eru fyrirhugaðar breytingar í búsetuþjónustu
• í Borganesi. Heimilið að Kveldúlfsgötu 2 verður lagt niður
j og í staðinn koma íbúðir í íbúðarkjama og íbúum fjölgar.
: Framundan er því spennandi starf í uppbyggingu á þjónustunni
í íbúðarkjamanum.
Möguleiki er á fullu starfi eða hlutastarfi. Unnið er á vöktum.
Um er að ræða sumarafleysingar með möguleika á
áframhaldandi ráðningu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum.
Upplýsingar veitir: Hulda Birgisdóttir í síma: 893 9280
Skriflegar umsóknir berist til:
Huldu Birgisdóttur
Kveldúlfsgötu 2
310 Borgarnesi.
Hópurinn sem útskrifaðist síðasta mánudag ásamt leiðbeinendum og Ingu Dóru Halldórsdóttur frá Símenntunarmiðstöð Vesturlands.
Skólaliðar útskrifaðir
Síðastliðinn mánudag voru 20
skólaliðar útskrifaðir í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands eftir 70 kennslu-
stunda nám sem stefnir að því að
efla aðstoðarfólk í leik- og grunn-
skólum. Námið nýtist bæði sem
starfsnám og einnig sem góður
grunnur að ffekara námi í faginu.
Þessi námsskrá er afurð þarfa-
greiningar sem gerð var árið 2005,
en að henni stóðu fulltrúar frá Sí-
menntunarmiðstöðinni og leik- og
grunnskólum á Snæfellsnesi og í
Búðardal. Starfsmenntaráð veitti
styrk til þessarar þarfagreiningar og
Tækja- og tölvubúðin
kaupir Litabúðina
Þröstur Kristófersson og fjöl-
skylda hafa keypt Litabúðina í
Olafsvík og tekið við rekstrinum.
Starfsemin verður fyrst um sinn
áffam á tveimur stöðum meðan
tmnið er að breytingum, en áædan-
ir gera ráð fyrir að sameina rekstur
fyrirtækjanna í húsnæði Litabúðar-
innar að Olafsbraut 55 í byrjun maí.
,Með sameiningu fyrirtækjanna er
mögulegt að ná hagræðingu í
rekstrinum, samnýta starfsfólk,
skrifstofuhald og hafa reksturinn á
einum stað,“ segir Þröstur Kristó-
fersson í samtali við Skessuhorn.
Tækja- og tölvubúðin er fjöl-
skyldufyrirtæki sem var stofnað
árið 2001 og rekur verslun og þjón-
ustu á sviði tölvubúnaðar, skrif-
stofuvöru og er jafhframt umboðs-
aðili Símans í Olafsvík. Með kaup-
um á Litabúðinni, sem hefur verið
starffækt í 30 ár, bætir fyrirtækið
við sig þjónustu á sviði málingar-
vöru. „Við stefnum að því að auka
vöruúrval og þjónustu jafnframt
munum við áffam bjóða samkeppn-
ishæfa vöru og þjónustu eins og
hún gerist á höfuðborgarsvæðinu,"
segir Þröstur ennff emur.
Hjónin Sævar Þórjónsson og As-
dís Kristjánsdóttir hafa rekið Lita-
búðina á núverandi stað í 30 ár.
„Málingarreksturi nn hófst í bíl-
skúmum heima fyrir um 40 ámm
síðan, þannig að þetta er orðinn
góður tími,“ sagði Sævar Þórjóns-
son í samtali við Skessuhorn.
Nýir eigendur munu halda sér-
stakan opnunardag sameinaðs fyr-
irtækis í byrjun maí og verða vömr
boðnar á góðum tilboðum. Þann
dag munu þau Sæi og Asdís, eins og
Snæfellingar þekkja þau, kveðja
viðskiptavini sína sem notið hafa
þjónustu þeirra samfellt í um í 40
ár.
Verkalýðsfélag Snæfellsbæjar
hefur keypt húsnæði Tækja- og
tölvubúðarinnar að Olafsbraut 19
og mun félagið fá húsnæðið afhent
fyrir 1. júní næstkomandi. Verka-
lýðsfélagið hefur fram að þessu ver-
ið með skrifstofur sínar að Olafs-
braut 44.
BT
Skipulagsauglýsing
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir frístundabyggðina Melabyggð
í landi Birkihlíðar, Borgarbyggð.
í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreinda deiliskipulagsbreytingu.
Breyting felst í því að stærðarmörkum er breytt úr 80 m2 í 100m2 og 330 m2 í 415 m2
Einnig er feilt út ákvæði um að aðeins sé heimilt að byggja bjálkahús á svæðinu.
DeiIískípulagsbreytingín verðurtil sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 28.03.2007 til 25.04.2007.
Fresturtil athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 10.05.2007.
Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst
samþykkur tillögunni.
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
á síðasta ári var námsskráin gefin út
af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
I náminu er komið inn á ýmsa
þætti eins og uppeldi og umönnun,
slysavarnir og skyndihjálp, aga og
reiðistjórnun, leik og skapandi
vinnu, mat og næringu og ræstingu
og umhverfi, svo eitthvað sé nefiit.
Menntamálaráðuneytið hefur sam-
þykkt að meta megi þetta nám til
allt að 6 einingum til styttingar
náms í ffamhaldsskóla.
BGK
Næga atvinnu
að hafa
í Reykhólahreppi
„Það er næg atvinna í Reykhóla-
hreppi og einnig bætast við afleys-
ingarstörf í sumar,“ segir Oskar
Steingrímsson sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps í samtafl við Skessu-
hom. Nýverið auglýsti Reykhóla-
hreppur eftir um tíu manns til starfa
og má þar nefina slökkviliðsstjóra til
afleysinga í eitt ár, skólastjóra gunn-
skólans, leikstjórastjóra og leik-
skólakennara ásamt fleiri störfum.
En það vantar fólk á fleiri staði.
„Starfsemi Þörungaverksmiðjunnar
er einna mest að sumarlagi og mun-
um við ráða átta til tíu manns til
starfa. Hugsanlega þurfúm við að
ráða til okkar erlenda starfsmenn,
en einna best væri að fá hingað fjöl-
skyldufólk," sagði Halldór Sigurðs-
son framkvæmdastjóri Þömnga-
verksmiðunnar í viðtali við blaðið.
Nú líður að ferðamannatfmabil-
inu og má reikna fastlega með að
ráða þurfi fólk til starfa á þeim vett-
vangi. I árslok vom 255 einstakling-
ar búsettir í Reykhólahreppi og era
því hlutfallslega mjög mörg störf í
boði. Til samanburðar má geta þess
að ef þetta hlutfall er borið saman
við íbúafjölda Reykjavfloir væra rif-
lega 11 þúsund störf ómönnuð. BT
RYMINGARSALA
í nokkra daga!
30°/«
afsláttur af völdum vörum
r4t£<
KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI
SÍMI431 1753 & 861 1599