Skessuhorn - 27.03.2007, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2007
9
/
Islandshreyfingin með sinn
fyrsta baráttufimd
Hinn nýstofnaði stjórnmála
flokkur, Islandshreyfmgin hélt á
laugardag sinn íýrsta baráttufund frá
stoftiun flokksins í síðustu viku.
Ftuidurinn fór fram í kaffihúsinu
Skrúðgarðinum á Akranesi og mætti
þangað á þriðja tug manna. A
síðustu dögum hefur hreyfingin
færst norður um og m.a. fundað í
Borgamesi og á Snæfellsnesi. „Það
má segja að við höfum ráðist á
garðinn þar sem hann er hæstur,
með því að byrja fúndaferð okkar
hér á Akranesi þar sem svo stórt
hlutfall íbúa hefur lífsviðurværi sitt
af stóriðju," sagði Margrét
Sverrisdóttir, varaformaður
flokksins í ávarpi sínu og vísaði þar
til einarðar andstöðu flokksins við
ffamhald stóriðju og virkjana hér á
landi. Omar Ragnarsson, formaður
Islandshreyfingarinnar hélt í
upphafi fúndarins tölu þar sem hann
lýsti megintilgangi framboðsins.
Sagði hann flokkinn skilgreina sig á
miðju stjórnmálanna og til hægri þar
ffá með grængráum áherslum. „Það
er landið okkar sem við munum
berjast fýrir og þessvegna emm við
Forystumenn Islandshreyfingarinnar sungu
Frímann, þá Omar og loks Margrét.
græn í gegn. Við vinnum gegn
ofuráherslu annarra flokka í
virkjanamálum og endalausri
uppbyggingu stóriðjuvera sem þegar
upp er staðið skilar fáum störfum en
mikilli eyðileggingu lands,“ sagði
Omar.
Það vakti nokkra athygli þeirra er
sóttu fundinn á Akranesi að sjá að
Karen Jónsdóttir, formaður bæjar-
ráðs Akraness var þar viðstödd. Hún
leiddi hsta Frjálslynda flokksins og
óháðra við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar, en var þó ekki félagi í
nýjan baráttusöng. Frá vinstri erjakob
flokknum. Hún gekk í Frjálslynda
flokkinn í janúar síðastliðnum en
sagði sig svo úr honum í mars. Hún
vildi ekkert gefa upp um ástæðu þess
þá, en Magnús Þór Hafsteinsson,
þingmaður og varamaður hennar í
bæjarstjóm, gaf út að það væri vegna
óánægju hennar með skipan Kristins
H. Gunnarssonar í 2. sæti
ffamboðslista til Alþingis. Margir
hafa því velt pólitískri framtíð
Kiirenar fýrir sér og seta hennar á
fundi Íslandshreyfingarinnar vekur
upp spurningar um komu hennar að
því ffamboði. Karen sagði í samtali
við blaðamann Skessuhorn að það
væri í sjálfu sér ekkert um aðkomu
hennar að fundinum að segja. Henni
hefði verið boðið og hún hefði þegið
það boð. Henni hefði hugnast
ágætlega það sem fram fór á
fundinum, en ítrekaði að hún væri
óháð og utan flokka og ekkert meira
væri um það að segja.
MM
Karen Jónsdóttir áfimdi Islandshreyfingarinnar.
Hvatt til aukimia stórlaxasleppinga í
íslensku laxveiðiánum
Ársfundur Veiðimálastofnunar
var haldinn sl. föstudag í Reykjavík.
Þar fjallaði Guðni Guðbergsson
fiskifræðingur um horfurnar í
laxveiði næsta sumars og sagði
hann m.a. að ekki væru nein merki
um annað en veiði á laxi í sumar
yrði yfir meðaltali rétt eins og
síðustu ár. Þó gerir Guðni ráð fyrir
einhverri fækkun laxa. Þá hvatti
hann til þess að veiðimenn héldu
áffam að sleppa stórlaxi, þ.e. þeim
löxum sem gengið hafa tvisvar úr
sjó, en þeir fiskar ganga öllu jafnan
fýrr í árnar að vori en smálaxinn og
er því veiðiálag á þá enn meira en á
smálaxinn. Fiskiffæðingar hafa af
því stórar áhyggjur að ofveiði á
stórlaxi geti leitt til þess að hann
hverfi úr vistkerfinu og hvetja til
aukinnar sleppingar þeirra. I
nokkrum laxveiðiám hefur það
tekist, en betur má ef duga skal.
I fýrrasumar veiddust rúmlega
45.100 laxar á stöng, sem var
samdráttur um 18% frá árinu 2005
en það ár var metveiði á laxi eða
ríflega 55 þúsund laxar. Veiðin
sumarið 2006 var þó um 26% yfir
meðalveiði áranna 1974 til 2006.
Sagði Guðni að veiðimenn og
veiðiréttareigendur gætu því vel við
unað. Netaveiði á laxi fer
minnkandi í kjölfar netauppkaupa á
Ölfusársvæðinu. Mest veiddist í net
í Þjórsá, 3.334 laxar, en um 2.300 í
Ölfusá-Hvítá.
MM
Skipulagsauglýsing
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Bjargslandi 2 svæði 1,
Borgarnesi, Borgarbyggð.
í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreinda deiliskipulagsbreytingu.
Breyting felst í því að lóðum er fækkað, þær stækkaðar og notkun breytt.
| Deiliskipulagsbreytingin verður til sýnis í ráðhúsi Borgarbyggðar frá 28.03.2007 til 25.04.2007.
i Frestur til athugasemda vegna deiliskipulags rennur út 10.05.2007.
i Athugasemdir við skipulagið skulu vera skriflegar og berast til skrifstofu Borgarbyggðar
Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekin frest til athugasemda, telst
samþykkur tillögunni.
Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar.
‘Dýrjinmi úí)‘Fiiuiiir
giilhmiðir ag skartgripcifiQiimiðir
áíniar: 862 6060 - 464 3460
VerhsLæði Safnamæðið Qárðum
SahiAlaáur: uev&limin jy
tme&i
Útboð
- byggingaframkvæmdir
Pósthús á Akranesi
Yfirlit verksins
Um er að ræða útboð á byggingu Pósthúss og frágangi lóðar
á Akranesi. Verk þetta skal vinna samkvæmt verklýsingum
og teikningum frá ASK Arkitektum ehf, RTS verkfræðistofu
hf og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
Pósthúsið verður að Smiðjuvöllum 30, Akranesi.
Húsið er staðsteypt hús á einni hæð, þak er úr einingum og
ganga þarf frá bílastæðum og gangstéttum á lóð. Verkið
skal unnið á tímabilinu júní 2007 til aprfl 2008.
Stærð húss er um 470 m2.
Stærð lóðar er 4.464 m2.
f verkinu felst að byggja húsið og ganga frá þvf að öllu leyti
bæði að utan og innan, með öllum lagnakerfum og öðru
sem til heyrir. Einnig skal ganga frá lóð með malbiki,
kantsteinum, grasi og skiltum.
Útboðsgögn
Útboðsgögn verða til afhendingarfrá og með 23. mars 2007
á Pósthúsinu Kirkjubraut 37,
300 Akranesi.
Tilboðum skal skila til :
íslandspóstur, Kirkjubraut 37, 300 Akranesi
Skilafrestur á tilboðum er 26. apríl 2007 kl. 14.00