Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Side 1
Bílaverkstæði - Flötum 20
Viðgerðir
og smurstöð
-Simi 481 3235
Réttingar
og sprautun
- Sími 481 1535
39. árg. I 10. tbl. I Vestmannaeyjum 8. mars 2012 I Verð kr. 350 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
L#\
L>1
K ' A Á
ÁRSHÁTÍÐ FRAMHALDSSKÓLANS var haldin í kjölfarið á Skapandi dögum í skólanum. Þar leggja nemendur skólabækurnar til hliðar og
huga að öðrum hugðarefnum, s.s. tónlist, myndlist og matargerð. Þessar ungu stúlkur stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara Frétta á árshátíðinni, sem
var glæsileg. Nánar er fjallað um Skapandi daga í miðopnu Frétta.
Sami fjöldi
ferða fallið
niður
Herjólfur hefur siglt til Þorláks-
hafnar það sem af er árinu og að
sögn Gunnlaugs Grettissonar,
rekstarstjóra Herjólfs, hafa 11
ferðir verðið felldar niður á þessu
ári.
Margir hafa undrað sig á hve oft
ferðir hafa verið felldar niður á
þessu ári en Herjólfur sigldi ekki í
gær, miðvikudag, enda vitlaust
veður og haugasjór. Samkvæmt
upplýsingum Gunnlaugs er staðan
svipuð og á sama tíma og í fyrra.
Á þessu ári var fyrri ferð 8. janúar
felld niður og báðar ferðir 9. janúar.
Báðar ferðir skipsins voru felldar
niður 18. janúar og fyrri ferðir 23.
janúar og 26. janúar. I febrúar voru
felldar niður seinni ferðir þann 4.
og 7. febrúar og fyrri ferð 24.
febrúar. Fyrsta ferðin í marsmánuði
var felld niður í gær, 7. mars.
„Við höfum siglt 122 ferðir það
sem af er árinu 2012 en þurft að
fella niður 11 ferðir þ.e. 9%.
Niðurfelldar ferðir eru nákvæmlega
jafn margar og í fyrra 2011 þ.e. 11
ferðir. Árið 2010 voru felldar niður
tvær ferðir á sama tímabili og
aðeins ein ferð á sama tímabili
2009. Aftur á móti voru felldar
niður 10 ferðir á sama tímabili árið
2008,“ sagði Gunnlaugur en
ölduhæð hefur verið óvenjumikil
síðustu daga.
Heimaey afhent 12. apríl
Áætlanir gera ráð fyrir að ísfélag
Vestmannaeyja fái Heimaey VE I
afhenta í apnlmánuði en skipið
verður eitt fullkomnasta uppsjáv-
arskip í íslenska skipaflotanum.
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri
ísfélagsins, sagði áætlað að taka við
skipinu 12. apríl og gengur verkið
mjög vel. „Við reiknum með 3 til 4
vikum í heimsiglingu, þannig að ef
allt gengur vel ætti skipið að koma
til Eyja um miðjan maí, “ sagði
Eyþór þegar hann var spurður.
Skipið var smíðað hjá ASMAR-
skipasmíðastöðinni í Chile. Það er
rúmlega 71 metri að lengd og 14,40
metra breitt. Burðargeta þess er um
tvö þúsund tonn í tíu tönkum, sem
eru með öflugri kælingu. Fram
hefur komið að samkvæmt verð-
mati er markaðsvirði skipsins talið
hátt í fjórir milljarðar króna.
Loðnuveiðar ganga vel
þrátt fyrir brælur
- Langt komnir með kvótann - Hrognavinnsla á vöktum
f gær, miðvikudag, höfðu ísfélag og
Vinnslustöð tekið á móti um 150
þúsund tonnum. Þar af hafði ísfélag-
ið landað tæpum 80.000 tonnum á
Þórshöfn. Huginn VE átti um 6000
tonna kvóta og hefur líka veitt fyrir
Granda. Er hann langt kominn með
kvótann.
Vinnslustöðin átti í gær eftir um
9000 tonn af 60.000 tonna loðnu-
kvóta. Hrogn hafa verið unnin frá
því á miðvikudag í síðustu viku og
er unnið á vöktum.
„Þetta hefur gengið ótrúlega vel hjá
okkur miðað við veðrið á vertíð-
inni,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðs-
stjóri uppsjávarsviðs hjá Vinnslu-
stöðinni, þegar rætt var við hann á
miðvikudagsmorguninn.
Þá var bræla á miðunum en tvö
skip félagsins voru nýkomin í land
með afla, Sighvatur Bjamason VE
og ísleifur VE. „Stóra Kap er á leið-
inni og sú minni er á miðunum,“
sagði Sindri en loðnan veiðist nú
inni á Breiðafirði. „Loðnan er mjög
góð, gott hrygnuhlutfall og hrognin
vel þroskuð. Við frystum um 1800
tonn af loðnu fyrir Rússland og
Japan og svo á eftir að koma í ljós
hvað við vinnum mikið af hrognum.
Öll frysta loðnan er seld og það
sama má segja um hrognin en verðið
á þeim fer eftir markaðnum," sagði
Sindri.
„Hrognavinnslan hjá ísfélaginu
gengur mjög vel,“ sagði^ Eyþór
Harðarson, útgerðarstjóri Isfélags-
ins, þegar rætt var við hann á
þriðjudag. „Það er gott ástand á
loðnunni og gott hrygnuhlutfall
gefur okkur betri nýtingu en síðustu
ár . Við eigum eftir að veiða um það
bil 18.000 tonn og eram bjartsýnir á
að ná því á endanum,“ sagði Eyþór
en Isfélagið var með um 120 þúsund
tonna kvóta af loðnu á vertíðinni.
SMURSTÖÐ 0G
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR
@ ÞJÓNUSTUAÐiLI TOYOTA (EYJUM
nelÉhamar
\/ci nr. ríi A\/PRk'<;TÆF\i
VÉLA-OG BÍLAVERKSTÆÐI
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616
VIÐ ERUM DAGLEGA A FERÐINNI
MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND
J www.flytjandi.is j simi 525 7090 |
Ejeimskip
EM&gmxíS