Fréttir - Eyjafréttir - 08.03.2012, Side 8
9
Fréttir / Fimmtudagur 8. mars 2012
Langar í leiklistar- og dansnám
- Emma Bjarnadóttir, formaður NFFÍV ánægð með Skapandi daga
Ég veit að mig langar að lcera leiklist
og helst dans með. Ég er bara ekki viss
hvar ég vil læra þetta. Helst myndi ég
vilja fara út að læra, til Bandaríkj-
anna en það er bara svo svakalega
dýrt.
í síðustu viku voru haldnir
Skapandi dagar í Framhalds-
skólanum í Vestmannaeyjum.
Emma Bjarnadóttir er formaður
nemendafélags skólans, sem bar
hitann og þungann af dögunum
og árshátíðinni sem kom í kjölfar-
ið. Emmu og félögum hennar í
nemendaráði hefur tekist vel upp
varðandi félagslíf nemenda í vetur
en hún settist niður með blaða-
manni og sagði frá sinni aðkomu.
Emma er dóttir Bjarna Ólafs Guð-
mundssonar og Hafdísar Kristjáns-
dóttur en hún á þrjú hálfsystkini,
Gígju Sunnevu Bjamadóttur, Mel-
korku Mary Bjamadóttur og Hákon
Tristan Bjamason. Emma byrjaði í
Framhaldsskólanum veturinn 2008-
2009 en hún hefur tekið stefnuna á
að útskrifast í vor. Hún segir að það
hafi aldrei annað komið til greina en
að fara í Framhaldsskólann í Vest-
mannaeyjum.
„Mér stóð reyndar alitaf til boða
að fara til Reykjavíkur til pabba,
sem átti heima í bænum þá. En í
mínum huga kom aldrei annað til
greina en að vera í Eyjum. f raun
velti ég skólanum ekkert mikið fyrir
mér en ég vildi bara helst ekki fara
frá Eyjum. Hér var skóli þannig að
ég vildi bara vera í honum og klára
stúdentinn. Eg var í raun og vera
ekkert að spá í einhverju framtíðar-
námi.“
En ertu eitthvað farin að spá í það í
dag?
„Já aðeins. Mig langar að læra leik-
list og dans. Ég hef starfað svolítið
með Leikfélagi Vestmannaeyja og
kynntist dansinum þar líka. Ég
hafði reyndar dansað í fimleikunum
en það væri gaman að geta lært leik-
iist og dans í framtíðinni. Það vom
t.d. dansnámskeið hjá Leikfélaginu
síðasta vetur sem heppnuðust mjög
vel og var sérstaklega gaman hversu
margir strákar mættu.“
Emma segir að skólinn hafi tekið
vel á móti nýnemunum þegar hún
byrjaði. „Mér fannst það ekki mjög
stórt skref að fara upp í Framhalds-
skóla. Þetta var aðallega spennandi,
að fara í „stórukrakkaskólann". Mér
leið aldrei eins og þetta væri einhver
rosaleg breyting. Námið var meira
að segja svipað fyrstu önnina en lík-
lega var búið að undirbúa okkur vel
fyrir þessa breytingu í 10. bekk.“
Meira álag sem formaður
Emma hefur verið í nemendaráði
síðustu tvö ár en nú er hún for-
maður. Hún segir það mikla
breytingu að vera óbreyttur í ráðinu
og svo formaður.
„Mér fannst spennandi á sínum
tíma að fá að taka þátt í að móta
félagslíf skólans og ákvað þess
vegna að prófa að sitja í nemenda-
ráði. En ég hefði aldrei trúað því
hversu mikil breyting það væri að
vera formaður og óbreyttur í ráðinu.
Ég fann það sérstaklega núna fyrir
árshátíðina þegar hlutirnir gengu
ekki alveg upp, Magni og Hjalti
veðurtepptir í Reykjavík svo ég var
mjög stressuð fyrir árshátíðina. Svo
þegar eitthvað fór úrskeiðis þá lang-
aði mig bara til að gráta en ég er
ekki viss um að aðrir hafi orðið varir
við að eitthvað fór úrskeiðis.
Annars heppnaðist árshátíðin mjög
vel. Zindri Freyr var frábær sem
kynnir og tók sig vel út einn á
sviðinu en hann bjó sér til sinn eigin
Hjalta, þar sem hann var í Herjólfi á
leiðinni og skemmtiatriðin voru
mjög góð. Sérstaklega óvænta
skemmtiatriðið, Boyschool Drama
en þeir tóku það atriði aftur á ballinu
vegna fjölda áskorana. Svo var
mjög gaman á ballinu eftir árshátíð-
ina með Agent Fresco, Gumma Tóta
og DJ Henok en á því vom um 200
manns sem við erum mjög ánægð
með. Það voru 145 á árshátíðinni
sem er mjög góð aðsókn."
Fjölmargt í boði í FÍV
Hvernig erfélagslíf nemenda í FIV?
„Við í nemendaráði byrjuðum að
skipuleggja busun nýnema áður en
skólinn byrjaði. Við fengum svo
fólk í lið með okkur í ráðinu en
busavígslan var með svolítið öðru
sniði í ár. Busunin er nú bara einn
dagur og er það gert með það í huga
að reyna að útiloka busun niðri í bæ.
Við bjuggum til braut eins og hefur
verið síðustu ár en nýnemar máttu
ráða hvort þeir fóm í brautina eða
ekki og ég held að allir hafi bara
skemmt sér vel saman. Við bættum
við pokahlaupi og reiptogi og
krakkarnir blotnuðu vel, þar sem
reiptogið var yfir klakabrautinni.
Ég tók líka ekki eins mikið eftir
busun niður í bæ, fannst minna um
það núna og það er jákvætt. En
auðvitað em alltaf einhverjir sem
sækjast í það og oft em það busamir
sjálfir."
Emma segir að nemendaráðið hafi
staðið fyrir ýmsum uppákomum,
m.a. blakmóti, borðtennismóti, fót-
boltamóti og lasertagmóti. „Þeir í
Skemmtigarðinum vildu endilega
koma og halda mót. Við héldum
það í Höllinni og settum upp flotta
lasertagbraut þar. Við vomm svo
með sex manna lið og efstu tvö liðin
fara svo áfram í Framhaldsskóla-
mótið í lasertag í Skemmti-
garðinum. Þetta var mjög skemmti-
legt og mikið lagt í mótið. Ég tók
auðvitað þátt, keppti fyrsta leikinn,
klessti á stól og fékk glóðarauga,"
sagði Emma.
Hún bætir því við að áhuginn hafi
líka verið mjög mikill fyrir blakmót-
inu. „Svavar Vignisson, íþrótta-
kennari er búinn að neyða blakið
upp á okkur því það er varla leik-
fimitími hjá honum öðruvísi en farið
sé í blak. Það er reyndar mjög
skemmtilegt og mótið tókst mjög
vel.“
Hvernig er þátttaka í uppákomum
nemendaráðs?
„Hún er svona upp og niður,“
svaraði Emma. Hún segist ekki vita
af hverju uppákomur gangi stundum
vel og stundum ekki, hugsanlega
samkeppni við önnur áhugamál.
„Við vorum mjög ánægð með
mætinguna á árshátíðina því hún
sýnir okkur áhugann fyrir félags-
lífinu í skólanum.“
Skemmtilegra á
Skapandi dögum
Skapandi dagar er nýtt fyrirbæri í
Framhaldsskólanum en þessir dagar
hétu áður Opnir dagar og þar áður
Opin vika. Emma segir að með
nafnabreytingunni hafi áherslum
verið breytt og þannig hafi nemend-
ur verið virkjaðir betur.
„Nemendur fengu einingu fyrir
90% mætingu þessa daga og starfið
þar er mun meira skapandi en í
opnum dögum. Sem dæmi, í ljós-
myndahópi þá var áður hægt að
mæta um morguninn, taka nokkrar
myndir og fara svo aftur heim að
sofa. Nú var það ekki hægt því
þegar búið var að mynda, þá þurfti
að vinna myndimar. Svo unnu þeir
með módelum og tóku þátt í ljós-
myndakeppni. Matarhópurinn tók
líka námskeið og hjálpaði Einsa
kalda við að undirbúa árshátíðina.
Syo vorum við með hóp fyrir stúd-
enta sem sáu um mat í hádeginu og
áttu að undirbúa sig fyrir dimmi-
teringu. Þannig að nú er ekki lengur
hægt að vera bara heima og sofa út.
Nemendur taka þátt í þessu og fyrir
vikið verður þetta miklu skemmti-
legra.“
Ekki í leikhúsinu í vetur
Emma er ekki í fullu námi, hún er í
fjórum áföngum sem er kannski
ágætt enda talsvert starf að vera for-
maður. Auk þess vinnur hún með
náminu þannig að henni leiðist ekki.
„Eg þarf alveg að hafa fyrir því að
læra en þetta gengur ágætlega. En
ég þurfti að færa einhverjar fórnir og
því miður gat ég ekki verið með í
leikhúsinu í ár.“
Hvað er það við leikhúsið sem er
svona skemmtilegt?
„Það er fyrst og fremst félagsskap-
urinn. Svo var ég hrikalega feimin
og þorði varla að tala við nokkum
mann fyrst þegar ég var í leikhúsinu.
En í öðru leikritinu var ég farin að
tala við alla og í því þriðja var ég
komin upp á svið. Þannig að ég
sigraðist á feimninni hjá Leikfélagi
Vestmannaeyja."
Emma segist vera algjörlega
smituð af leikhúsbakteríunni og
reyndar svo mikið að hún hefur
áhuga á að læra leiklist og dans.
„Eg veit að mig langar að læra
leiklist og helst dans með. Ég er
bara ekki viss hvar ég vil læra þetta.
Helst myndi ég vilja fara út að læra,
til Bandaríkjanna en það er bara svo
svakalega dýrt. Ég sá að í Lista-
háskólanum er boðið upp á leik-
listar- og dansbraut. Mér leist mjög
vel á það en ákvað að bíða með að
sækja um því það getur verið að ég
verði úti á Tenerife að vinna við
leiklist og dans.“
Ertu komin með atvinnutilboð frá
Spáni?
„Já, það má segja það, svona
óformlegt. Málið var að ég var
þama í fríi síðasta sumar og fór í
kareoki á hótelinu. Þar söng ég lag
úr Mamma Mía og dansaði aðeins
með. í kjölfarið kom skemmtana-
stjóri til mín og spurði hvemig ég
kynni lögin og dansinn. Ég sagði
þeim að ég hefði tekið þátt í
Mamma Mía á íslandi og í kjölfarið
fékk ég að dansa með þeim í einni
sýningu á hótelinu. Þau sögðust svo
vilja fá mig aftur næsta sumar, og
þótt þetta sé ekki ákveðið, þá væri
mjög gaman að prófa þetta,“ sagði
Emma og lagði áherslu á að þetta sé
langt í frá ákveðið.
„Þetta skýrist væntanlega á næstu
vikum en ég ætla mér að fara
þangað,“ sagði Emma ákveðin.
Þannig að þú verður orðin atvinnu-
leikari og dansari í sumar?
„Nei ég segi það kannski ekki en
þetta væri virkilega skemmtilegt ef
þetta gengur upp,“ sagði Emma að
lokum og vildi að lokum þakka
nemendum og kennurum fyrir vel
heppnaða árshátíð og Skapandi
daga.
Júlíus Ingason / julius@eyjafrettir.is
Tónlistarhópurinn var töjfí tauinu. Frá vinstri Samúel, Árni, Þórir, Óli og Matti.
Amy Beaulisch vann Ijósmyndakeppni Skapandi Daga. Hallgrímur
Júlíusson afhenti henni verðlaunin.