Fréttablaðið - 14.09.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 14.09.2019, Síða 16
Víkingur getur í kvöld unnið sinn fyrsta titil í knatt-spyrnu í karlaf lokki síðan árið 1991 þegar liðið etur kappi við FH í úrslitum Mjólkurbikarsins. Bikarsaga Víkings er ekki rík en liðið hefur tvisvar leikið til bik- arúrslita og einu sinni unnið. Árið 1971 tryggði Jón Ólafsson Víkingi fyrsta og eina bikarmeistaratitilinn gegn Breiðabliki í leik sem fram fór á Melavellinum. Víkingur varð svo Íslands- meistari 1991 en síðan þá hefur ekki þurft að rýma til í bikarskáp félagsins fyrir nýjum bikar vegna árangurs liðsins. Varnartröllið Sölvi Geir Ottesen hefur orðið bikarmeistari fjórum sinnum í þremur mismunandi löndum. „Það er of boðslega spennandi að vera á leið í bikarúrslitaleik með uppeldis- félaginu. Þegar ég kom til baka í Fossvoginn lét ég mig dreyma um að berjast um titil. Nú er það orðið að veruleika,“ segir Sölvi Geir um komandi verkefni. FH er að fara í sinn sjöunda bik- arúrslitaleik í sögunni en liðið var síðast í þessum leik árið 2017 þegar það tapaði óvænt fyrir ÍBV. Þar á undan lék FH til úrslita árið 2010 gegn KR. FH vann sannfærandi 4-0 sigur í þeim leik. Þar var Davíð Þór Viðarsson, núverandi fyrirliði FH, í lykil- hlutverki inni á miðsvæðinu hjá Hafnarfjarðarliðinu. „Þessi leikur ræður úrslitum um hvort sumarið hjá okkur sé gott eða slæmt,“ segir fyrirliðinn. Fjórir leikmenn í leikmannahópi FH voru í hópnum sem varð bikar- meistari árið 2010 en það eru þeir Pétur Viðarsson, Hjörtur Logi Val- garðsson, Björn Daníel Sverrisson og Atli Guðnason. Atli og Hjörtur urðu einnig bikarmeistarar 2007. Breiðablik og Valur mætast í slag tveggja efstu liðanna í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu á Kópavogsvelli á morgun. Valur hefur einungis tapað tveimur stigum í fyrstu 16 leikjum deildarinnar. Það var í jafntef li liðanna í fyrri umferð deildarinnar. Valur er með 17 mörkum betri markatölu og er þar í raun með aukastig í baráttunni um Íslands- meistaratitilinn. Breiðablik þarf því að leika til sigurs ætli liðið að verja titilinn og verða meistari í 18. skipti í sögunni. Í þessum leik mætast tvö áber- andi bestu lið deildarinnar en 16 stig skilja að Breiðablik sem er í öðru sæti og Selfoss sem er sæti neðar. Valur hefur skorað langflest mörkin í deildinni fyrir þennan leik eða 61 talsins og Breiðablik, sem hefur skorað 48 mörk, hefur skorað 20 mörkum meira en næsta lið á þeim lista, Þór/KA. Norðan- konur eru eina liðið fyrir utan Val sem hefur hirt stig af Breiðabliki í sumar. Þegar íslenska kvennalandsliðið lagði Slóvakíu að velli í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2021 voru sjö leikmenn Vals í leikmannahópi íslenska liðsins, þar af fjórir í byrj- unarliðinu. Breiðablik átti jafn marga fulltrúa en einn þeirra var í byrjunarliðinu og sex voru á vara- mannabekknum í upphafi leiks. Tveir markahæstu leikmenn deildarinnar eru leikmenn Vals en þær Elín Metta Jensen og Hlín Eiríksdóttir hafa skorað 16 mörk hvor. Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur skorað mest fyrir Breiðablik eða 13 mörk og Agla María Alberts- dóttir nartar í hæla hennar með 12 mörk. Alexandra Jóhannesdóttir hefur svo safnað 10 mörkum í sarp- inn hjá Kópavogsliðinu. Tveir titlar undir í leikjum helgarinnar Úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki fer fram á morgun þegar tvö bestu lið landsins leiða saman hesta sína. Víkingur og FH etja kappi í dag í bikarúrslitum, í leik þar sem bæði lið eru bikarþyrst eftir langa bið frá síðasta bikarmeistaratitli. Valskonur eru með tveggja stiga forustu í deildinni. Víkingur varð síðast bikar- meistari árið 1971. Breiðablik er sigursælasta kvennaliðið með 18 titla. Þetta verður í sjöunda sinn sem FH leikur til úrslita. 1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum www.hekla.is/volkswagensalur Volkswagen T-Roc Ef þú vilt áberandi hönnun, möguleika á sérsniðnu útliti og gæði niður í minnstu smáatriði þá er T-Roc málið. Með T-Roc gefst þér tækifæri til að prófa nýstárlegan sportjeppa sem vekur eftirtekt með öugu útliti. Fæddur til að skara framúr Verð frá 4.290.000,- 1 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 C 4 -6 7 D C 2 3 C 4 -6 6 A 0 2 3 C 4 -6 5 6 4 2 3 C 4 -6 4 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.