Fréttablaðið - 14.09.2019, Qupperneq 27
„Að mínu mati er það að gera
mistök eina leiðin til að læra en
mikilvægt er að reyna að komast
fjótt að mistökunum til að þau
hafi eins lítil áhrif og hægt er,“
segir Sara Sturludóttir, skrifstofu-
og verkefnastjóri.
Hún opnaði fallega blóma- og
gjafavöruverslun í miðju íbúða-
hverfi í Kópavogi árið 2009 en
ævintýrið endaði ekki líkt og Sara
hafði óskað sér. Hún fór af stað
með háleit markmið og drauma
en áttaði sig á því nokkrum mán-
uðum síðar að opnun verslunar-
innar hefðu verið mistök og skellti
í lás. Sara segir mikilvægt að viður-
kenna mistök sín og læra af þeim.
„Ég vann með skóla í dásam-
legri blómabúð á Hagamelnum og
það var svo ótrúlega nærandi og
skemmtilegt að fá að vinna með
blóm og búa til fallega vendi og
skreytingar,“ segir Sara.
„Blómabúðin var opnuð síðla
hausts 2009, full af fallegri jóla-
gjafavöru og blómum,“ segir Sara.
„Fljótlega eftir jólin var ljóst að
það hafði alls ekki selst nógu
mikið af jólavörunni til að ég gæti
fyllt búðina af nýrri vöru og einnig
var lítil sala í blómunum sem gerði
það að verkum að það var mikil
rýrnun á þeim,“ segir hún.
„Mistökin sem ég gerði voru
kannski fyrst og fremst þau að
halda að reynsla mín sem auka-
starfsmaður í blómabúð nægði til
að reka mína eigin,“ útskýrir Sara.
„Ég leitaði í raun ekki ráða hjá
neinum með meiri reynslu á þessu
sviði og var svona svolítið í því að
finna upp hjólið í hverju skrefi.
Annað sem ég áttaði mig á var að
ég hafði í minni nostalgíu ákveðið
að allir hefðu yndi og gaman af
blómum og myndu kaupa sér
vönd við hvert tilefni sem gæfist.
Þetta keyrði ég áfram blind á það
að árið var 2009 og fólk langt
frá því með hugann við að eyða
peningum í blóm og gjafavöru,“
segir hún.
„Það sem ég lærði af þessu er til
dæmis hversu mikilvægt það er að
leita ráða sem víðast og reyna að
auka þekkingu sína á því sviði sem
maður ætlar sér að fara í,“ segir
Sara brosandi.
„Það var mér mjög erfitt að
ákveða að loka blómabúðinni,
mér fannst niðurlægjandi að þurfa
að segja fólki að ég hefði gert
mistök en ég tókst á við það og
enginn hló að mér. Þetta var bara
alls ekki eins slæmt og ég hafði
séð fyrir mér,“ segir Sara að lokum
og hvetur fólk til að viðurkenna
mistök sín.
Lærði af mistökunum
sem hún viðurkenndi
Sara Sturludóttir.
Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Tæki færi
Kæli- og frystiskápur,
iQ300
Fullt verð: 164.900 kr.
Tækifærisverð (stál): KG 39EVI4A
123.900 kr.
Ein pressa, tvö kælikerfi. Tvær
„hyperFresh“-skúffur. Önnur fyrir
grænmeti og ávexti, hin fyrir kjöt og
fisk. Tryggja ferskleika lengur.
H x b x d: 201 x 60 x 65 sm.
Uppþvottavél, 45 sm
iQ300
Fullt verð: 99.900 kr.
Tækifærisverð: SR 436W01MS
79.900 kr.
10 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi á 65° C. Þrjú sérkerfi, meðal
annars tímastytting. Hljóð: 44 dB.
Hnífaparaskúffa. „aquaStop“-flæðivörn.
Orkuflokkur
Skaftryksuga
Flexxo, Serie 4
Fullt verð: 43.900 kr.
Tækifærisverð: BBH 32101
33.900 kr.
Mjög öflug, 21,6 V. Húsgagnabursti og
langur stútur fylgja með. Hver hleðsla
endist í allt að 50 mínútur.
Þvottavél,
Serie 6
Fullt verð: 159.900 kr.
Tækifærisverð:
WAT 2869BSN119.900 kr.
Vindur upp í 1400 sn./mín. i-DOS:
Sjálfvirk skömmtun fyrir fljótandi
þvottaefni. Kolalaus, hljóðlátur og
sparneytinn mótor með 10 ára ábyrgð.
Sérkerfi: Sjálfvirkt kerfi, mjög stutt kerfi
(15 mín.), ull o.fl.
9
kg
A
Spanhelluborð,
iQ100
Fullt verð: 129.900 kr.
Tækifærisverð: EH 651FEB1E
99.900 kr.
Með slípuðum framkanti og hliðum.
Fjórar spanhellur. Snertisleði. Tímastillir
á öllum hellum. 60 sm á breidd.
Bakstursofn,
iQ700
Fullt verð: 199.900 kr.
Tækifærisverð (svart stál):
HB 874GCB1S149.900 kr.
Stórt 71 lítra ofnrými. 13 hitunar-
aðgerðir, þar á meðal 4D-heitur blástur.
Kjöthitamælir. TFT-skjár með texta.
Brennslusjálfhreinsun.
Orkuflokkur
Það eru Tækifærisdagar hjá okkur. Líttu inn og gerðu góð kaup.
Sigurbjörn Rúnar Jónasson, verk-
efnastjóri hjá Landsbankanum,
og Áslaug S. Hafsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri innleiðingar-
þjónustu Meniga, komu fram á
Kvöldi mistakanna og sögðu sögur
af mistökum ásamt því að ræða
hvernig læra megi af mistökum og
hversu mikilvæg þau séu.
„Mistök skipta klárlega miklu
máli og þau geta vissulega haft
áhrif á framgang verkefna,“ segir
Sigurbjörn. „En það sem skiptir
máli er hvernig maður tekur á
þeim. Hvernig við vinnum úr
Skiptir máli hvernig við bregðumst við mistökum
ólíkum mistökum og lærum af
því.“
Áslaug er sammála Sigurbirni
og segir mistök mikilvæg í ferli
verkefna. „Það er í lagi að mis-
takast en það er ekki í lagi að mis-
takast aftur og aftur og aftur í því
sama, að gera sömu mistökin. Ef
okkur mistekst þá verðum við að
skoða hvað mistókst og hvernig
við getum komið í veg fyrir að það
gerist aftur,“ segir hún.
Aðspurð að því hvað við getum
lært af mistökum segir Áslaug að
í þeim sé hægt að finna leið til að
bæta
vinnu
sína. „Við
getum
bætt verk-
lagið okkar
með því að
bregðast við
mistökum. Bætt
verkferla, sam-
skipti eða hvað það nú er
sem mistökin hafa áhrif á
og þannig girt fyrir að við
gerum sömu mistökin
aftur,“ segir Áslaug.
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 27L A U G A R D A G U R 1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
1
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
C
4
-9
E
2
C
2
3
C
4
-9
C
F
0
2
3
C
4
-9
B
B
4
2
3
C
4
-9
A
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K