Fréttablaðið - 14.09.2019, Síða 44
Húsvörður – Staðarhaldari
Húsfélagið að Löngulínu 2 í Garðabæ vill ráða húsvörð
- staðarhaldara í hlutastarf (30-35%) auk nokkurra aukaverka
eftir samkomulagi. Fastur vinnutími er mánudaga - miðvikudaga
og föstudaga, frá kl. 8-12.
Í húsinu eru 48 íbúðir í þremur stigagöngum ásamt bílgeymslu.
Verkefni staðarhaldara eru almenn þrif á sameign, umhirða
um lóð, bílastæði og bílageymslu auk minniháttar viðhalds og
endurbóta.
Staðarhaldari þarf að vera sérstaklega þrifsækinn, laghentur og
útsjónarsamur og hafa auga fyrir því sem betur má fara.
Umsóknir berist:
Eignaumsjón hf. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík eða
thjonusta@eignaumsjon.is, skýring(subject): (V19-36716)
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2019
Bifvélavirki óskast
á bílaverkstæði í Reykjavík
Reynsla af bilanagreinum og sjálfstæð vinnubrögð kostur.
Umsóknir óskast sendar
á as.v@internet.is
Staða leikskólastjóra við leikskólann Garðaborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Garðaborg lausa til umsóknar.
Garðaborg er tveggja deilda leikskóli við Bústaðaveg í Reykjavík. Unnið er eftir hugmyndafræði John Dewey og Caro line Pratt þar
sem lögð er áhersla á frjálsan leik, opinn efnivið, einingakubba og holukubba sem ýta undir ímyndunarafl, sköpun, útsjónarsemi og
rökhugsun. Markvisst er unnið með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og að auknu lýðræði í öllu starfi leikskólans, m.a. með því
að börnin tjái skoðanir sínar, geti haft áhrif á eigin þekkingaröflun og daglegt líf. Leikskólinn er í samstarfi við íþróttafélagið Víking,
tekur þátt í Vináttuverkefni Barnaheilla og samstarfsverkefninu „Kynslóðir leika“ með eldri borgurum í hverfinu. Á næstu misserum
er fyrirhuguð endurgerð leikskólalóðarinnar auk þess sem unnið verður að innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar með
áherslu á félagsfærni.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt
leikskólastarf í Garðaborg.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðar stefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans
og umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskóla kennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn umsæk-
janda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna
Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála eða
Elísabet Helga Pálmadóttir, þróunarfulltrúi, sími 411 1111.
Netföng: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is/elisabet.helga.palmadottir@reykjavik.is
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“,
þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Klettaborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Klettaborg lausa til umsóknar.
Klettaborg er fjögurra deilda leikskóli við Dyrhamra í Grafarvogi í næsta nágrenni við Voginn. Leiðarljós leikskólans eru gleði, virðing og
öryggi. Klettaborg er heilsueflandi leikskóli og áhersla lögð á hreyfingu og útiveru. Unnið er eftir hugmyndafræði John Dewey um að læra
í gegnum leikinn og með læsi í gegnum þjóðsögur, þulur og Lubbi finnur málbein. Markvisst er unnið að því að skapa frjótt málumhverfi þar
sem áhersla er lögð á góð samskipti og að börnin njóti hlýju og umhyggju þannig að þeim líði vel í leikskólanum, læri og dafni. Börnin eru
með ferilmöppur sem fylgir þeim alla leikskólagönguna og gott samstarf er á milli leikskólans og hverfisskólans. Klettaborg var metin af
Menntamálastofnun 2018 og á heimasíðu leikskólans, www.klettaborg.is, má nálgast upplýsingar um það og um starfið í leikskólanum.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf í Klettaborg.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála eða Elísabet Helga Pálmadóttir,
sími 411 1111. Netföng: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is/elisabet.helga.palmadottir@reykjavik.is.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og
umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla-
stigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru
virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
1
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
C
4
-D
9
6
C
2
3
C
4
-D
8
3
0
2
3
C
4
-D
6
F
4
2
3
C
4
-D
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K