Fréttablaðið - 14.09.2019, Page 74
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ásgeir Júlíus Ásgeirsson
lést í Svíþjóð þann 5. september eftir
stutt veikindi.
Ásgeir Jón Ásgeirsson
Helgi Valur Ásgeirsson Adanna Eziefula Ásgeirsson
Ingunn Taeko Ásgeirsdóttir Óðinn Örn Ágústsson
Trausti Kouichi Ásgeirsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Kristjánsson
fyrrv. rektor Tækniskóla Íslands,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
6. september síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Garðakirkju
þriðjudaginn 17. september kl. 13.00.
Gunnar Bruun Bjarnason Bára Einarsdóttir
Kristján Bjarnason Svava Bogadóttir
Snjólaug Elín Bjarnadóttir Hans Kristjánsson
Björn Bjarnason Kolbrún Elíasdóttir
Knútur Bjarnason Helga Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Alltaf elskuð, aldrei gleymd,
Karin Hákonardóttir
Byström
lést í faðmi ástvina sinna á St. Görans
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi þann
5. september. Hún verður jarðsungin frá
Solna kirkju í Stokkhólmi þann
25. september. Þökkum af alhug hlýhug og stuðning í
veikindum hennar. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélag Íslands.
Kalle Byström
Robert og Julia
Daniel og Lina
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Kristján Einar Ólafsson
frá Borgarnesi,
andaðist laugardaginn 31. ágúst
á Grund. Útförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir til starfsfólks Grundar
fyrir sérstaka umhyggju og hlýju.
Ólöf Kristjánsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð vegna andláts
bróður okkar, mágs og frænda,
Ásmundar Ármannssonar
frá Akranesi,
Meistaravöllum 17.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem
aðstoðuðu hann í veikindunum.
Þóra Emilía Ármannsdóttir
Ármann Ármannsson Sigurbjörg Ragnarsdóttir
Margrét Ármannsdóttir Þorvaldur Jónasson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gyða Örnólfsdóttir
Hraunbæ 103, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 20. ágúst.
Útför fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 16. september kl. 13.00.
Reinhold Greve Jóhannesson
Örn Jóhannesson Dagbjört Ólafsdóttir
Jóhannes Jóhannesson Gitte Jepsen
Reynir Jóhannesson Patricia Johannesson
Róbert Jóhannesson Malene Wichmann Larsen
Viðar Jóhannesson Anna K. Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórunn Ólafsdóttir
lést á Bylgjuhrauni, Hrafnistu í
Hafnarfirði þriðjudaginn
10. september. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
23. september klukkan 13.00.
Hörður Sigurgeirsson Matthildur Sonja Matthíasd.
Oddur Magnússon Methika Suwannarat
Ólafur Magnússon
Magnea L. Magnúsdóttir Stefán Kjartan Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Við vorum að ljúka seinni göngum og héðan er allt gott að frétta. Það er kom-inn snjór í Tröllakirkju og hefur bara komið ein frostnótt,“ segir Karólína
Mende, bóndi í Hvammshlíð, þegar ég
spyr tíðinda.
Hún heitir fullu nafni Caroline Kerst-
in Mende og er þýsk að uppruna en unir
sér á Íslandi með litfagurt fé, fjögur
hross og tvo hunda, Baug og Kappa. Auk
þess að vinna við ullina fæst hún við
útgáfu og nú var hún að gefa út dagatal
fyrir árið 2020. Hún kveðst hafa tekið
litmyndirnar sjálf en ein gömul mynd
birtist líka í hverjum mánuði. „Jörðin
mín tilheyrir bæði Skagafirði og Austur-
Húnavatnssýslu og myndirnar eru úr
báðum sýslum,“ tekur hún fram.
Þetta er annað almanakið sem Karo-
lína gefur út. Fyrir ágóðann í fyrra gat
hún keypt sér gamla dráttarvél. Það var
líka markmiðið með útgáfunni. „Þetta
gekk vonum framar, ég var steinhissa og
mjög þakklát,“ segir hún.
Vélin er Zetor árgerð 1990. „Gamall
kunningi sem ég hitti í hestaferð fyrir
nokkrum árum auglýsti vélina á land-
búnaðarsíðu á fésbók. Ég var mjög hepp-
in því gamlar Zetor-vélar eru eftirsóttar.
Það vantaði ámoksturstæki á hana en ég
fann þau á heppilegum stað og lét festa
þau á. Svo keypti ég skóflu og rúllugreip
og skipti um eftir þörfum.“
Hún kveðst ekki hafa kunnað á drátt-
arvél en næstum allir vinir hennar séu
bændur svo það hafi verið einfalt að fá
kennslu. „Svo má ég hringja alltaf þegar
ég hef spurningar og tveir bændanna eru
sérstaklega reyndir í að eiga við gamlar
vélar.“
Karólína segir dagatalið kosta 3.000
krónur og fást í Skagfirðingabúð á
Sauðárkróki, hjá Líflandi á Blönduósi og
einnig hjá henni sjálfri. En fyrir hverju
er hún að safna núna? „Mig vantar veg
heim að Hvammshlíð, veg sem er fær
allt árið.“
gun@frettabladid.is
Ágóði almanaks fer í veg
Karólína í Hvammshlíð í Húnavatnssýslu er nýbúin að gefa út dagatal annað árið í röð.
Fyrir dagatalið 2019 sem hún gaf út í fyrra keypti hún sér gamla Zetor-dráttarvél.
Ég þarf oft að labba um 800 metra heim á veturna – sem getur verið vandræðasamt í hríðarveðri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Forsíða dagatalsins 2020.
1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
C
4
-A
C
F
C
2
3
C
4
-A
B
C
0
2
3
C
4
-A
A
8
4
2
3
C
4
-A
9
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K