Fréttablaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 74
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ásgeir Júlíus Ásgeirsson lést í Svíþjóð þann 5. september eftir stutt veikindi. Ásgeir Jón Ásgeirsson Helgi Valur Ásgeirsson Adanna Eziefula Ásgeirsson Ingunn Taeko Ásgeirsdóttir Óðinn Örn Ágústsson Trausti Kouichi Ásgeirsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Kristjánsson fyrrv. rektor Tækniskóla Íslands, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 6. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 17. september kl. 13.00. Gunnar Bruun Bjarnason Bára Einarsdóttir Kristján Bjarnason Svava Bogadóttir Snjólaug Elín Bjarnadóttir Hans Kristjánsson Björn Bjarnason Kolbrún Elíasdóttir Knútur Bjarnason Helga Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Alltaf elskuð, aldrei gleymd, Karin Hákonardóttir Byström lést í faðmi ástvina sinna á St. Görans sjúkrahúsinu í Stokkhólmi þann 5. september. Hún verður jarðsungin frá Solna kirkju í Stokkhólmi þann 25. september. Þökkum af alhug hlýhug og stuðning í veikindum hennar. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Kalle Byström Robert og Julia Daniel og Lina Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær faðir okkar, afi og langafi, Kristján Einar Ólafsson frá Borgarnesi, andaðist laugardaginn 31. ágúst á Grund. Útförin hefur farið fram. Hjartans þakkir til starfsfólks Grundar fyrir sérstaka umhyggju og hlýju. Ólöf Kristjánsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir afa- og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð vegna andláts bróður okkar, mágs og frænda, Ásmundar Ármannssonar frá Akranesi, Meistaravöllum 17. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem aðstoðuðu hann í veikindunum. Þóra Emilía Ármannsdóttir Ármann Ármannsson Sigurbjörg Ragnarsdóttir Margrét Ármannsdóttir Þorvaldur Jónasson og fjölskyldur. Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gyða Örnólfsdóttir Hraunbæ 103, Reykjavík, lést þriðjudaginn 20. ágúst. Útför fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 16. september kl. 13.00. Reinhold Greve Jóhannesson Örn Jóhannesson Dagbjört Ólafsdóttir Jóhannes Jóhannesson Gitte Jepsen Reynir Jóhannesson Patricia Johannesson Róbert Jóhannesson Malene Wichmann Larsen Viðar Jóhannesson Anna K. Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Þórunn Ólafsdóttir lést á Bylgjuhrauni, Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 10. september. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. september klukkan 13.00. Hörður Sigurgeirsson Matthildur Sonja Matthíasd. Oddur Magnússon Methika Suwannarat Ólafur Magnússon Magnea L. Magnúsdóttir Stefán Kjartan Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. Við vorum að ljúka seinni göngum og héðan er allt gott að frétta. Það er kom-inn snjór í Tröllakirkju og hefur bara komið ein frostnótt,“ segir Karólína Mende, bóndi í Hvammshlíð, þegar ég spyr tíðinda. Hún heitir fullu nafni Caroline Kerst- in Mende og er þýsk að uppruna en unir sér á Íslandi með litfagurt fé, fjögur hross og tvo hunda, Baug og Kappa. Auk þess að vinna við ullina fæst hún við útgáfu og nú var hún að gefa út dagatal fyrir árið 2020. Hún kveðst hafa tekið litmyndirnar sjálf en ein gömul mynd birtist líka í hverjum mánuði. „Jörðin mín tilheyrir bæði Skagafirði og Austur- Húnavatnssýslu og myndirnar eru úr báðum sýslum,“ tekur hún fram. Þetta er annað almanakið sem Karo- lína gefur út. Fyrir ágóðann í fyrra gat hún keypt sér gamla dráttarvél. Það var líka markmiðið með útgáfunni. „Þetta gekk vonum framar, ég var steinhissa og mjög þakklát,“ segir hún. Vélin er Zetor árgerð 1990. „Gamall kunningi sem ég hitti í hestaferð fyrir nokkrum árum auglýsti vélina á land- búnaðarsíðu á fésbók. Ég var mjög hepp- in því gamlar Zetor-vélar eru eftirsóttar. Það vantaði ámoksturstæki á hana en ég fann þau á heppilegum stað og lét festa þau á. Svo keypti ég skóflu og rúllugreip og skipti um eftir þörfum.“ Hún kveðst ekki hafa kunnað á drátt- arvél en næstum allir vinir hennar séu bændur svo það hafi verið einfalt að fá kennslu. „Svo má ég hringja alltaf þegar ég hef spurningar og tveir bændanna eru sérstaklega reyndir í að eiga við gamlar vélar.“ Karólína segir dagatalið kosta 3.000 krónur og fást í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki, hjá Líflandi á Blönduósi og einnig hjá henni sjálfri. En fyrir hverju er hún að safna núna? „Mig vantar veg heim að Hvammshlíð, veg sem er fær allt árið.“ gun@frettabladid.is Ágóði almanaks fer í veg Karólína í Hvammshlíð í Húnavatnssýslu er nýbúin að gefa út dagatal annað árið í röð. Fyrir dagatalið 2019 sem hún gaf út í fyrra keypti hún sér gamla Zetor-dráttarvél. Ég þarf oft að labba um 800 metra heim á veturna – sem getur verið vandræðasamt í hríðarveðri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Forsíða dagatalsins 2020. 1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 C 4 -A C F C 2 3 C 4 -A B C 0 2 3 C 4 -A A 8 4 2 3 C 4 -A 9 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 9 6 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.