Fréttablaðið - 14.09.2019, Qupperneq 90
BORÐSPIL ERU
SKEMMTILEG OG ÞESS
VEGNA STARFA ÉG Í ÞESSUM
BRANSA. MÉR ER ALVEG SAMA
HVORT ÞAU SÉU TÍSKUBÓLA
EÐA EKKI.
Tom Vasel borðspilagagnrýnandi
Tom Vasel með barðstóran hatt spilar við Íslendinga á Midgard í gær. Tom er einn þekktasti gagnrýnandi heims og stýrir Youtube rásinni Dice Tower. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Vinsældir Mid
gard Reykjavik
komu að
standendunum
sjálfum á óvart.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sven van Heerden er einn af stofnendum Midgard Reykjavik, sem er ráð-stefna um nördamenn-ingu. Fyrsta ráðstefnan var haldin í Laugardals-
höll í fyrra og gekk vonum framar.
Um helgina er ráðstefnan haldin
öðru sinni, í Fífunni í Kópavogi.
„Undirbúningurinn hefur gengið
vel en það er búið að vera töluvert
álag á starfsfólkinu að klára að setja
upp og skipuleggja ráðstefnuna,“
segir hann. Í fyrra seldist upp á
ráðstefnuna og töluverður fjöldi
erlendra ferðamanna lagði leið sína
í Laugardalshöll. „Þetta var stærra
en við sjálf bjuggumst við og því
ákváðum við að finna stærra rými.
Fjórum sinnum stærra til að vera
nákvæmur.“
Að mati Sven er nördamenning
á mikilli uppleið hér á Íslandi. „Við
sjáum hvernig verslunin Nexus,
sem kemur að þessari ráðstefnu,
hefur stækkað á undanförnum
árum. Þar eru sífellt haldnir við-
burðir sem eru fjölsóttir. Í því starfi
hefur fólk sýnt mikinn vilja til að
halda ráðstefnu eins og þessa, sem
eru algengar erlendis.“
Þekktust árlegra nördamenn-
ingarráðstefna er Comic Con sem
haldin er í San Diego í Bandaríkj-
unum. Þangað sækja um 160 þús-
und manns árlega. Á SPIEL Essen í
Þýskalandi, sem er aðallega helguð
borðspilum, mæta nú um 190 þús-
und manns og hefur fjöldinn vaxið
hratt á undanförnum árum.
„Það er orðið svalt að vera lúði og
meira að segja orðið nörd er ekki
lengur neikvætt,“ segir Sven. „Eftir
að tölvubyltingin varð stjórna
lúðar stórum hluta samfélagsins.
Fólk er að njóta áhugamála sinna
og skemmta sér. Auðvitað er þetta
svalt.“
Fjölbreytt dagskrá
Á Midgard verður ýmislegt um
að vera, svo sem opinn spilasalur,
kynningar og sölubásar. Þá verða
einnig margir erlendir gestir sem
halda fyrirlestra og svara spurn-
ingum.
Einn þeirra er Manu Bennett sem
lék orkann Azog í kvikmyndunum
um Hobbitann og skylmingaþræl-
inn Crixus í sjónvarpsþáttaröðinni
Spartacus. Annar er Dan Abnett
sem skrifaði teiknimyndasögurnar
sem kvikmyndaserían Guardians
of the Galaxy er byggð á. Þá kemur
David Bateman, leikarinn sem talar
fyrir Agent 47 í tölvuleikjaseríunni
Hitman, og margir f leiri.
Gestir ráðstefnunnar geta sjálfir
tekið þátt í viðburðum því að
margar keppnir verða haldnar. Má
þar nefna mót í Warhammer 40k,
Pókemon og öðrum spilum. Þá
ætlar Quidditchlið Íslands að halda
sýningar og leyfa fólki að keppa. En
Quidditch er íþrótt sem á uppruna
sinn í bókunum um Harry Potter,
þar sem lið keppast um að koma
knetti í gegnum hringi með kúst
á milli lappanna. Á sunnudaginn
verður Íslandsmeistaramótið í
Cosplay haldið. Cosplay er eins
konar búningakeppni með vísan í
skáldaðar persónur og á rætur sínar
í Japan.
Smá en sterk borðspilasena
Tveir af þekktustu fyrirlesurunum
á Midgard verða Tom Vasel og Zee
Garcia frá Youtube-rásinni The Dice
Tower. Tom hefur gagnrýnt borð-
spil frá árinu 2002 og er rás hans nú
sú vinsælasta í heimi. Hann heldur
einnig eigin ráðstefnur, verðlauna-
afhendingar, útgáfur og ferðast um
heiminn til að boða fagnaðarerindi
nördismans. Tom og Zee komu á
fyrstu Midgard-ráðstefnuna í fyrra
og lásu upp einn af sínum víðfrægu
topp 10 listum. Listarnir eru vin-
sælasta efnið á rásinni og líkjast um
margt uppistandi.
„Við ætlum að sjálfsögðu að vera
með topp-lista. Nú eru það topp 10
borðspil sem fá okkur til líða eins
og við séum heimsk,“ segir Tom
Vasel en listinn verður lesinn upp
á laugardag klukkan 15 og tekur
um klukkutíma. „Á sunnudaginn
verðum við svo með spurningaþátt
um spil.“
Tom og Zee vöktu mikla kátínu
þegar þeir komu hingað í fyrra. Tom
bjóst ekki við því að koma nokkurn
tímann til Íslands en þegar hann
frétti að ráðstefna yrði haldin varð
hann æstur í að koma.
„Landslagið á Íslandi er ótrúlegt,
þetta er örugglega einn af fallegustu
stöðum sem ég hef komið á,“ segir
Tom. „Fólkið sem við hittum var
einnig afar vinsamlegt. Hvert sem
við fórum tók það vel á móti okkur.“
Spilasenan á Íslandi kom Tom
nokkuð á óvart og að hér væru starf-
ræktar tvær stórar spilaverslanir.
„Senan er ekki stór miðað við önnur
lönd en hún er mjög sterk,“ segir
hann. Eitt sem einkenni senuna hér
sé hversu uppteknir Íslendingar eru
af þemum spilanna frekar en gang-
verki.
Á heimsvísu hafa borðspil verið
á stöðugri uppleið síðan 1995, árið
sem Catan kom út. Þetta er þvert
á spádóma margra sem héldu að
borðspil myndu deyja út með til-
komu tölvuleikja. Aðspurður um
hvort borðspil séu tískubóla segist
Tom ekki velta því mikið fyrir sér.
„Borðspil eru skemmtileg og þess
vegna starfa ég í þessum bransa.
Mér er alveg sama hvort þau séu
tískubóla eða ekki.“
Árlega koma út ný spil sem breyta
landslaginu og tískustraumum.
Bæði hvað varðar gangverk og
þema. Hápunktur ársins er gjarnan
í kringum spilamessuna í Essen í
Þýskalandi, sem fram fer í október.
Þá koma margir nýir og spennandi
titlar út. Af boðuðum útgáfum
segist Tom vera spenntastur fyrir
Tapestry frá Stonemaier Games.
Enn sé alltaf eitthvað gefið út í
kringum Essen sem komi honum á
óvart. kristinnhaukur@frettabladid.is
Loksins svalt
að vera nörd
Um helgina er í annað sinn haldin nörda-
menningarráðstefnan Midgard Reykjavik.
Þekktur borðspilagagnrýnandi, sem heldur
tölu á Midgard, segir senuna hér á landi
mjög sterka þó að hún sé ekki stór.
1 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
C
4
-A
3
1
C
2
3
C
4
-A
1
E
0
2
3
C
4
-A
0
A
4
2
3
C
4
-9
F
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K