Morgunblaðið - 10.05.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is
Opið virka daga kl. 8-18
Sængurverasett, dúkar,
servíettur, viskustykki,
dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór,
handklæði & þvottapokar.
Vörurnar fást í
Efnalauginni Björg í Mjódd
LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili,
sjúkrastofnanir og heimili
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fimmtán sendiráð jafnmargra
landa, sem eru í Evrópusamband-
inu, ásamt sendinefnd sambands-
ins hér á landi, buðu upp á mat
og drykk í Ráðhúsi Reykjavíkur í
gær í tilefni af Evrópudeginum.
Hann er ávallt haldinn hátíðlegur
9. maí, en þann dag árið 1950
lýsti franski utanríkisráðherrann
Robert Schuman framtíðarsýn
sinni sem stuðlaði að því að lönd í
Evrópu mynduðu Evrópusam-
bandið.
Í ár er því einnig fagnað á Evr-
ópudeginum að aldarfjórðungur
er frá því að Ísland hóf fulla þátt-
töku í innri markaði Evrópusam-
bandsins í gegnum samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið,
EES, sem er sameiginlegt mark-
aðssvæði 30 Evrópuríkja.
Fjölmargir þáðu boðið og
gæddu sér á kræsingum frá ýms-
um Evrópulöndum og nutu um
leið tónlistar og fjölbreyttra
skemmtiatriða.
Evrópudagurinn var haldinn hátíðlegur í gær
ESB-lönd
buðu til
veislu
Morgunblaðið/Eggert
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi
forseti EFTA-dómstólsins, kynnti
utanríkismálanefnd álitsgerð sína
varðandi þriðja orkupakkann í gær.
Hann telur að það geti teflt aðild Ís-
lands að EES-samningnum í tvísýnu
verði þriðja orkupakkanum hafnað.
Utanríkisráðuneytið birti frétt um
álitsgerð Baudenbachers á heima-
síðu sinni í gær. Þar kemur m.a.
fram að þótt hægt sé að hafna upp-
töku nýrrar löggjafar ESB í EES-
samninginn á lokastigum máls-
meðferðar sé þriðji orkupakkinn
ekki mál af því tagi að réttlætanlegt
sé að grípa til slíkra neyðarráðstaf-
ana eins og að hafna upptökunni.
Baudenbacher telur að Ísland beri
ákveðna skyldu gagnvart hinum
EFTA-ríkjunum, Noregi og Liecht-
enstein, innan EES. Þau hafi aflétt
stjórnskipulegum fyrirvörum sínum
og vænti þess að Ísland geri það
einnig ella öðlist þriðji orkupakkinn
ekki gildi gagnvart neinu ríkjanna.
Hann telur ólíklegt að sameiginlega
EES-nefndin fallist á að taka málið
upp að nýju.
Í samantekt á álitsgerð Bauden-
bachers sem ráðuneytið birtir er
m.a. bent á það að í Noregi hafi alltaf
verið uppi raddir sem vilji endur-
túlka EES-samninginn sem tvíhliða
samning Noregs við ESB. Ísland og
Liechtenstein fái að fljóta þar með ef
svo má segja. Ekki sé hægt að úti-
loka að Noregur muni á endanum
óska eftir því að gera tvíhliða samn-
ing við ESB.
Er algjört neyðarúrræði
Utanríkisráðuneytið óskaði eftir
því við Alþjóða- og Evrópuréttar-
stofnun Háskólans í Reykjavík að
hún veitti sérfræðilegt álit sitt á því
hverjar yrðu lagalegar afleiðingar
þess ef Alþingi synjaði afléttingu
stjórnskipulegs fyrirvara vegna
þriðja orkupakkans.
Í lokaorðum álitsins segir að það
sé ljóst að „heimild íslenska ríkisins
til að hafna afléttingu stjórnskipu-
legs fyrirvara og upptöku gerðar í
EES-samninginn felur í sér algjört
neyðarúrræði. Synjun íslenska rík-
isins um afléttingu stjórnskipulegs
fyrirvara fæli í sér fordæmalausa
stöðu sem hefði í för með sér mikla
lagalega og pólitíska óvissu og setti
framkvæmd EES-samningsins í
uppnám. Þá kann synjunin að leiða
til lagalegrar óvissu fyrir fyrirtæki
og neytendur“.
Gæti stefnt aðild að EES í tvísýnu
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Carl Baudenbacher kom fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í gær.
Dr. Carl Baudenbacher, fv. forseti EFTA-dómstólsins, segir þriðja orkupakk-
ann ekki vera mál af því tagi sem réttlæti það að grípa til neyðarráðstafana
Hildur Fjóla Antonsdóttir, doktors-
nemi í réttarfélagsfræði við Háskól-
ann í Lundi, lagði fram tillögur um
réttláta málsmeðferð með tilliti til
þolenda kynferðisbrota í skýrslu
sem hún kynnti á málþingi í gær um
réttarstöðu þolenda kynferðis-
ofbeldis. Að þinginu stóðu stýrihóp-
ur um heildstæðar úrbætur að því er
varðar kynferðislegt ofbeldi og Há-
skólinn í Reykjavík.
Hildur Fjóla sagði á málþinginu
að til þess að bæta réttarstöðu þol-
enda kynferðisofbeldis væri mikil-
vægt að þeir fengju sama aðgang að
gögnum málsins og hinn kærði. Að
lögreglu væri skylt að upplýsa brota-
þola um gang málsins, að brotaþoli
bæri vitni fyrir dómi á undan ákærða
og fengi að sitja í réttarsal í réttar-
höldunum. Hún sagði að réttur
brotaþola virtist takmarkaðri hér en
hjá hinum norrænu þjóðunum og
jafnræðisreglunni væri ranglega
beitt í kynferðisbrotamálum.
Hildur Fjóla tók viðtöl við 35
brotaþola og höfðu 15 þeirra nýlega
farið í gegnum réttarkerfið. Á Ís-
landi væru brotaþolar aðeins vitni í
eigin máli og samkvæmt niðurstöð-
um Hildar Fjólu þótti viðmælendum
hennar almennt „súrrealískt“ og
fullkomlega óeðlilegt að þeir væru
ekki aðilar að eigin málum.
Að sögn Hildar Fjólu er litið svo á
í Finnlandi að brotaþoli sé aðili máls
frá byrjun, í Svíþjóð frá því að ákæra
er gefin út. Í Danmörku og Noregi
séu brotaþolar vitni í eigin málum en
miklar úrbætur hafi verið gerðar á
réttarstöðu brotaþola í kynferðis-
brotamálum í Noregi árið 2008.
thorgerdur@mbl.is
Bæta þarf réttarstöðu kyn-
ferðisbrotaþola á Íslandi
Takmarkaðri réttur á Íslandi en hjá hinum norrænu þjóðunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Málþing Hildur Fjóla ræddi stöðu
kynferðisbrotaþola á Íslandi.
,,Það var gott að fá álit Carls
Baudenbachers, fyrrverandi for-
seta EFTA-dómstólsins, á því að
það sé bæði of seint í ferlinu og
málið ekki þannig vaxið að neita
þurfi upptöku þriðja orkupakk-
ans,“ segir Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir, formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, og bætir
við að Baudenbacher hafi verið
skýr á því að þriðji orkupakkinn
væri engan veginn sambærilegur
Icesave né hefði áhrif á forræði
okkar yfir auðlindinni eða bæri í
sér nokkrar skyldur um lagningu
sæstrengs. Áslaug segir ánægju-
legt að EFTA-ríkin í sameiginlegu
EES-nefndinni hafi áréttað sér-
stöðu Íslands varðandi innri raf-
orkumarkað á fundi í fyrradag.
ge@mbl.is
Sérstaða Ís-
lands áréttuð
SÉRFRÆÐIÁLIT