Morgunblaðið - 10.05.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
VERKFÆRADAGAR
afsláttur á rafmagns-
verkfærum
50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
Knattspyrnugoðið og gamlabrýnið heimsþekkta úr bolt-
anum David Beckham hefur verið
sviptur réttindum til að aka bifreið
í sex mánuði sam-
kvæmt úrskurði
dómara. Spyrnu-
snillingurinn var
staðinn að því að
nota farsíma sinn
undir stýri og hafði
áður verið napp-
aður fyrir að aka
bifreið sinni mun
hraðar en þar mátti.
Ekki hlökkum við yfir þessumóförum skyttunnar enda höf-
um við flest gerst sek um þessu líkt,
þótt skömm sé frá að segja.
Áður fyrr var lagst í langar um-ræður um það hver kynni að
hafa hringt ef menn náðu ekki að
svara símanum í tæka tíð.
Farsímar geyma það hins vegar ífórum sínum eða í skýjum, og
það jafnvel til eilífðar hver hringdi
samtalið sem ákveðið var að ansa
ekki undir stýri.
Við, sem eigum það sameiginlegtmeð Beckham að vera ekki
hjartalæknir á neyðarvakt eða helj-
armenni í víkingasveitinni þegar
skotóður gengur laus, þurfum ekki
að svara hverju símtali strax.
Við verðum komin á áfangastað,sem innan bæjar er að meðal-
tali eftir svo sem 10-15 mínútur eða
í útskot á lengri leið, og missum
ekki af neinu enda fjalla 99% erinda
ekki um neitt sem hastar.
En við gætum misst af því aðslasa aðra eða valda tjóni still-
um við forvitni okkar í lágmarks-
hóf. Þetta veit Beckham núna og
við líka.
David Beckham
Erindið ekki brýnt
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skipun skiptastjóra yfir þrotabúum
var tekin til skoðunar hjá Héraðs-
dómi Reykjavíkur í vetur, að sögn
Símonar Sigvaldasonar dómstjóra.
Tilefnið var seinagangur á af-
greiðslu búa og ganga þyrfti á eftir
lögmönnum að ganga frá búunum
sem þeir höfðu fengið úthlutuð. „Það
hefur komið til þess að taka þurfi bú
af lögmönnum vegna þess að þeir
hafa hvorki sinnt því að ljúka með-
ferð búa né upp-
lýsa dóminn um
stöðu mála,“ segir
Símon.
Hann segir
reglur um skipun
skiptastjóra yfir
þrotabúum aldrei
hafa verið færðar
í letur en almennt
gildi sú regla að
þrotabúum sé úthlutað þannig að
jafnræðis sé gætt. Verið er að semja
leiðbeinandi reglur.
Símon segir að þegar drögin séu
tilbúin verði haft samráð við dóm-
stólasýsluna, m.a. með það fyrir aug-
um að samræma reglugerðina um
land allt. Síðar á þessu ári má reikna
með að þær reglur líti dagsins ljós, að
höfðu samráði við dómstólasýsluna.
Guðjón Sigurbjartsson rakti
skiptasögu dánarbús móðursystur
sinnar í aðsendri grein í Morgun-
blaðinu í gær. Þar sagði að skipta-
stjórinn hefði tekið sér alls 6,6 millj-
óna króna þóknun úr dánarbúi sem
metið var á 24,4 milljónir króna.
„Fyrir lögmenn er verðmætt að fá
gott bú til skipta, ekki síst ef þeir
geta ráðið þóknun sinni sjálfur,“
sagði Guðjón í greininni, sem vakti
mikla athygli.
Taka hefur þurft bú af lögmönnum
Héraðsdómur Reykjavíkur að semja leiðbeinandi reglur um skipun skiptastjóra
Símon
Sigvaldason
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkj-
anna (FDA) hefur sent frá sér aðvör-
un vegna nokkurra algengra svefn-
lyfja sem seld eru þar í landi og
fyrirskipað að umbúðum þeirri fylgi
viðvörun um ýmsar sjaldgæfar en al-
varlegar aukaverkanir lyfjanna sem
smám saman hafa verið að koma í
ljós. Eitt þeirra efna sem nefnd eru í
viðvöruninni, zolpidemer, er að finna í
tveimur lyfjum sem eru á markaði hér
á landi, Stilnoct og Zovand. Auk þess
innihalda svefnlyfin Zopiclone Actavis
og Imovane, sem notuð eru hérlendis,
virkt efni sem að hluta til er eszopic-
lone sem er á viðvörunarlistanum.
Að sögn Hönnu G. Sigurðardóttur í
upplýsingadeild Lyfjastofnunar starf-
ar stofnunin lögum samkvæmt eftir
þeim reglum sem gilda á evrópska
efnahagssvæðinu og tekur ákvarðanir
í samræmi við niðurstöður sérfræð-
inga á vettvangi Lyfjastofnunar Evr-
ópu, EMA. Hanna segir að hjá EMA
hafi hingað til ekki verið tilefni til að
fjalla um tilvik á borð við þau sem
bandaríska lyfjaeftirlitið nefnir, og sé
það byggt á mati á aukaverkunum
sem koma inn í sameiginlega tilkynn-
ingagátt Evrópuríkjanna.
„Lyfjastofnun mun fylgjast grannt
með framvindu mála og grípa til ráð-
stafana gerist þess þörf, í samræmi
við ákvarðanir sem teknar verða á
vettvangi EMA,“ segir Hanna og
kveður upplýsingum þá verða miðlað
til sjúklinga og lækna.
„Öllum þessum svefnlyfjum fylgja
varnaðarorð í sérstökum upplýsing-
um til heilbrigðisstarfsmanna – slíkar
upplýsingar eru til fyrir öll lyf – varn-
aðarorð sem snúa að svefngöngu og
skyldum athöfnum. Greini sjúklingar
frá slíku skal íhuga alvarlega að
hætta notkun lyfsins,“ segir Hanna.
Hún bendir á að lyf með umræddum
virkum efnum verði áfram leyfð til
sölu í Bandaríkjunum. Nýleg ein-
dregnari viðvörun FDA sé áminning
um að vera enn frekar á verði við
ávísun þessara lyfja.
gudmundur@mbl.is
Vara við aukaverk-
unum svefnlyfja
Enn ekki tilefni til
ráðstafana hérlendis
Svefnlyf Lyf geta haft aukaverk-
anir sem fylgjast þarf með.