Morgunblaðið - 10.05.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Yfirlit yfir afkomu ársins 2018
2018 2017
Efnahagsreikningur (í milljónum kr.) A deild V deild B deild Samtals Samtals
Eignahlutir í félögum og sjóðum 42.190 7.505 3.539 53.234 48.049
Skuldabréf 120.833 21.493 9.913 152.239 107.655
Bundnar bankainnstæður 6.059 1.078 0 7.137 1.448
Kröfur 1.031 183 188 1.402 22.871
Óefnislegar eignir 127 23 0 150 146
Varanlegir rekstrarfjármunir 121 21 0 142 104
Handbært fé 1.469 261 962 2.692 12.978
Skuldir -346 -61 -203 -610 -2.693
Hrein eign til greiðslu lífeyris 171.484 30.503 14.399 216.386 190.559
Breyting á hreinni eign (í milljónum kr.)
Iðgjöld 9.885 2.926 1.736 14.547 50.373
Lífeyrir -2.859 -248 -2.564 -5.671 -4.517
Hreinar fjárfestingatekjur 10.326 1.791 788 12.905 12.639
Rekstrarkostnaður -330 -56 -126 -512 -426
Aðrar tekjur 0 0 6 6 0
Breyting á hreinni eign til greiðslu lífeyris 17.022 4.413 -160 21.275 58.069
Hrein eign frá fyrra ári 154.462 26.090 10.007 190.559 128.475
Sameining við Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogsbæjar/ER 0 0 4.552 4.552 4.015
Hrein eign til greiðslu lífeyris 171.484 30.503 14.399 216.386 190.559
Kennitölur
Nafnávöxtun 6,3% 6,3% 4,7% 6,2% 7,9%
Hrein raunávöxtun 3,0% 3,0% 1,4% 2,9% 6,0%
Raunávöxtun (5 ára meðaltal) 4,3% 4,3% 3,7% 4,2% 4,5%
Raunávöxtun (10 ára meðaltal) 3,6% 3,6% 3,6% 2,0%
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -15.144 -860 -12.555
Virkir sjóðfélagar 12.892 4.583 217 17.692 16.665
Fjöldi lífeyrisþega 4.306 1.144 1.686 7.136 6.512
Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar 14,6% 1,2%
Hrein eign umfram heildarskuldbindingar -4,9% -1,2%
Sigtúni 42 I 105 Reykjavík I sími 540 0700 I lifbru@lifbru.is
Ársfundur 2019
B
ir
t
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
p
re
n
tv
ill
u
r.
Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn
mánudaginn 27. maí kl. 16.30 í húsakynnum sjóðsins að Sigtúni 42, Reykjavík.
Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi
stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reykjavík 30. apríl 2019
Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2018
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
5. Kynningar á breytingum samþykkta sjóðsins
6. Önnur mál
Allar fjárhæðir í milljónum króna
Tillaga fulltrúa Flokks fólksins í
borgarráði Reykjavíkur um heimild
til dýrahalds í félagslegum leigu-
íbúðum Félagsbústaða hefur verið
samþykkt. Málið var rætt á fundi
fulltrúa Félagsbústaða og vel-
ferðarsviðs borgarinnar og var það
samróma álit fundarmanna að ekki
væri rétt að standa gegn hunda- og
kattahaldi.
Í kjölfarið var óskað eftir áliti og
umsögn stjórnar samtaka leigjenda
á tillögunni og málið síðan tekið
upp á fundi stjórnar Félagsbústaða
í byrjun þessa mánaðar. Þar var
samþykkt að leyfa hunda- og katta-
hald samkvæmt almennum reglum
og samþykktum íbúa.
Nú verður samþykktin kynnt íbú-
um í fjölbýlishúsum Félagsbústaða
og henni síðan framfylgt í samræmi
við lög um fjöleignarhús og sam-
þykktir Reykjavíkurborgar um
katta- og hundahald, að því er fram
kemur í bréfi Sigrúnar Árnadóttur,
framkvæmdastjóra Félagsbústaða
til borgarráðs.
Gæludýr
í Félags-
bústöðum
Ekki rétt að standa
gegn dýrahaldi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæludýr Íbúar Félagsbústaða fá nú
að hafa ketti og önnur gæludýr.
Rúm 62% landsmanna telja að fyrir-
huguð virkjun Hvalár á Ströndum
muni hafa góð áhrif á búsetu á Vest-
fjörðum og 40,9% eru hlynnt virkj-
uninni. 73% telja að hún muni hafa
góð áhrif á raforkumál í fjórðungn-
um og tæp 67% telja að hún muni
hafa góð áhrif á atvinnuuppbygg-
ingu þar. Tæp 65% telja að Hvalár-
virkjun muni hafa góð áhrif á sam-
göngur á Vestfjörðum.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í nýrri könnun Gallup fyrir
Vestfjarðastofu þar sem spurt var
um viðhorf til orkumála og til Hval-
árvirkjunar.
Þar kom einnig fram að 31,4% eru
andvíg virkjun Hvalár og 27,7% eru
hvorki hlynnt henni né andvíg. Rúm-
lega tvöfalt hærra hlutfall karla er
hlynnt virkjuninni, eða 55% á móti
25% kvenna.
Einnig var spurt um almenna af-
stöðu til vatnsaflsvirkjana og reynd-
ust 70,2% þátttakenda jákvæð gagn-
vart þeim.
Telja að Hval-
árvirkjun hafi
góð áhrif
Skemmtiferðaskipið Celebrity Re-
flection lagðist að Skarfabakka í
Sundahöfn í Reykjavík í gær.
Árið í ár verður það stærsta
hvað varðar skipakomur farþega-
skipa og farþegafjölda hingað til
lands. Alls eru áætlaðar 199
skipakomur 85 farþegaskipa til
Faxaflóahafna með 188.962 far-
þega. Samanlagður fjöldi farþega
og áhafna skipanna er 272.119.
Til samanburðar má nefna, að
árið 2001 komu 27.574 farþegar
til Íslands með skemmtiferðaskip-
um. Í fyrra voru skipakomur 152
og farþegar 144.658.
Celebrity Reflection er með
stærri skipum sem hingað koma í
sumar en stærsta skip sumarsins,
MSC Meraviglia, er væntanlegt
28. september. Hinn 19. júlí er
Queen Mary 2 væntanleg til
Reykjavíkur. Skipið er 345 metra
langt, það lengsta sem hingað
hefur komið. Viking Sky, sem
lenti í óveðri við Noregsstrendur í
mars sl., er skráð með þrjár kom-
ur, þá fyrstu 8. júní.
Fyrsta skemmtiferða-
skip sumarsins komið
Morgunblaðið/Hari
Siglt inn sundin Skemmtiferðaskipið Celebrity Reflection á siglingu inn sundin í átt að Skarfabakka í Sundahöfn.