Morgunblaðið - 10.05.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
VIÐ HÆTTUM MEÐ BIRKENSTOCK
20% afsláttur Mistyaf öllum Birkenstock sandölunum
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Verð 8.990
Léttar
úlpur
erið verðsamanburð
Stútfull búð af
Nýjum
vörum
G
Tólf manns sækja um stöðu skrif-
stofustjóra Alþingis, þeirra á meðal
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissátta-
semjari og Ragna Árnadóttir, að-
stoðarforstjóri Landsvirkjunar.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, lætur af störfum í
haust.
Aðrir umsækjendur eru: Ásthild-
ur Magnúsdóttir kennari, Hildur
Eva Sigurðardóttir forstöðumaður,
Hilmar Þórðarson, fv. sviðsstjóri
rekstrarsviðs, Inga Guðrún Birgis-
dóttir mannauðsstjóri, Ingvar Þór
Sigurðsson forstöðumaður, Kjartan
Bjarni Björgvinsson dómari, Kristi-
an Guttesen aðjunkt, Sandra Stojko-
vic Hinic verkefnastjóri, Sigrún
Brynja Einarsdóttir skrifstofustjóri
og Þórdís Sævarsdóttir kennari.
Nýr skrifstofustjóri Alþingis hef-
ur störf 1. september nk.
Tólf vilja starf
skrifstofustjóra
Ríkissáttasemjari einn umsækjenda
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrsta nákvæmnisaðflugið með EG-
NOS-leiðréttingum á gervihnatta-
leiðsögukerfi hérlendis hefur verið
virkjað á Húsavíkurflugvelli. Gefur
það áhöfn véla sem þangað fljúga
tækifæri til að koma í mun lægri
flughæð að vellinum en annars og
eykur líkurnar á að hægt sé að fljúga
þangað við erfið veðurskilyrði.
Ísland er á mörkum útbreiðslu-
svæðis EGNOS. Tvær jarðstöðvar
eru reknar hér en stöðvar vantar
vestur af landinu. Þess vegna er erf-
itt að uppfylla kröfur Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar um aðgengi-
leika kerfisins til flugleiðsögu fyrir
vestan 19. gráðu vestlægrar lengd-
ar, þ.e.a.s. fyrir vestan Eyjafjörð.
Geta lent við verri skilyrði
Isavia aflétti nýverið takmörk-
unum til notkunar EGNOS á nýju
korti um aðflug til Húsavíkur-
flugvallar og notkun EGNOS ná-
kvæmnisaðflugsleiðsögu hófst í síð-
ustu viku. Arnór B. Kristinsson,
rafmagnsverkfræðingur og verk-
efnastjóri hjá Isavia, segir að með
EGNOS-kerfinu sé hægt að lækka
lágmarkshæð flugvélar í aðflugi að
vellinum. Það auki líkurnar á að
áhöfnin geti lent á vellinum í erfiðum
skilyrðum, eins og þoku eða úrkomu.
EGNOS veiti meiri nákvæmni fyrir
leiðsögu en með GPS eingöngu og
láti áhöfn vita sjálfvirkt ef eitthvað
skorti á nákvæmni eða öryggi.
Til þess að taka þetta kerfi í notk-
un þarf engan aukabúnað á flugvell-
inum. Hins vegar þarf að vera bún-
aður um borð í flugvélinni og áhöfnin
þjálfuð í notkun hans.
Akureyri og Egilsstaðir
Isavia vinnur nú að undirbúningi
þess að taka þetta kerfi í notkun á
flugvöllunum á Akureyri og Egils-
stöðum. Arnór segir að búast megi
við því að það verði tilbúið fyrir Ak-
ureyri á síðari hluta ársins og á
Egilsstöðum í kjölfarið.
Arnór segir að athuganir Isavia
bendi til þess að vel mögulegt sé að
nýta kerfið á Akureyri þó völlurinn
liggi nálægt mörkum aðgengileika-
svæðis EGNOS. Það verði einnig at-
hugað fyrir aðra flugvelli þar sem
gæði merkja EGNOS-kerfisins eru
nægileg.
Arnór leggur til að ráðist verði í
rannsóknir á því hvað þurfi að gera
til þess að EGNOS-leiðréttingin geti
nýst á öllu landinu. Hugmyndir hafa
verið uppi um að mögulega verði
hægt að leysa það mál með fjölgun
jarðstöðva á Grænlandi. „Slík rann-
sókn og haldbærar niðurstöður eru
forsenda þess að stjórnvöld hér geti
unnið markvisst að því gagnvart
Evrópusambandinu að fá úrbætur
svo allt landið yrði innan þjónustu-
svæðis EGNOS,“ segir Arnór. Hann
segir að þótt góður aðflugsbúnaður
sé á helstu flugvöllum landsins,
Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkur-
flugvelli, væri kostur að geta bætt
flugleiðsögukerfi sem byggist á EG-
NOS við, sem og á smærri völlum á
vesturströnd landsins. Nefnir í því
sambandi að til sé að reglugerð hjá
ESB um að innleiða skuli PBN-
leiðsögu að flugbrautum, til dæmis
gervihnattaleiðsögu, þótt blindflugs-
búnaður sé fyrir en Arnór tekur
fram að ekkert liggi fyrir um að sú
reglugerð verði innleidd á Evrópska
efnahagssvæðinu.
Aðflugið verður
nákvæmara
Gervihnattaleiðsaga á Húsavík
Flug Aðflug verður nákvæmara
með nýju leiðsögukerfi.
Nýr gistiskáli við Hítará á Mýrum
verður tekinn í notkun í sumar-
byrjun. Þar verða alls sex tveggja
manna herbergi í byggingu sem
stendur við Lund, veiðihúsið fræga
sem Jóhannes Jósepsson sem
kenndur var við Hótel Borg lét
reisa um 1940. Húsið er í hvarfi
rétt sunnan við Lund, sem áfram
heldur sínu sterka svipmóti.
„Nú í vetur sem leið létum við
breyta ýmsu innan dyra í Lundi,
svo sem eldhúsi og borðsal, og
höldum áfram að búa í haginn. Við
stefnum að því að gistiaðstaðan
verði komin í gagnið eftir um mán-
uð, en áin verður samkvæmt venju
opnuð 18. júní,“ segir Ólafur Sig-
valdason, formaður Veiðifélags
Hítarár.
Hítará hefur um langt árabil ver-
ið ein eftirsóttasta laxveiðiá lands-
ins og að veiða þar hefur mörgum
þótt vera ævintýrið eitt. Stang-
veiðifélag Reykjavíkur leigði ána af
bændum á svæðinu um langt skeið
og út síðasta sumar. Nýr leigutaki
Hítarár er Grettistak ehf. þar sem
Orri Dór Guðnason er í forsvari.
„Árin lítur vel út og allt virðist
núna vera að leita til jafnvægis,“
segir Ólafur. Vísar hann þar til
skriðunnar sem féll við Hítardal sl.
sumar og setti ána í nýjan farveg á
nokkurra kílómetra svæði.
Vænta menn þess því að veiði í
ánni í sumar verði góð, en hún er
oft um 700 fiskar á ári og getur
stundum orðið meiri. sbs@mbl.is
Reisa gistihús við Hítarána
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framkvæmdir Skálinn stendur á árbakkanum skammt fyrir neðan Lund.
Gistiskáli við víðfrægt veiðihús Áin opnuð 18. júní