Morgunblaðið - 10.05.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
bankinn, eins og aðrir sem hagnýti
sér Apple Pay, einfaldlega undir skil-
mála fyrirtækisins, en það sé ekki
óeðlilegt þegar svona hátti til á mark-
aðnum.
Öflugt uppgjör
Nýverið kynnti Landsbankinn upp-
gjör fyrsta ársfjórðungs og reyndist
afkoma bankans sú besta af viðskipta-
bönkunum þremur. Sérstaka athygli
vekur að kostnaður bankans, reikn-
aður sem hlutfall af tekjum, var tals-
vert undir því markmiði bankans
sjálfs að halda því í kringum 45%.
Þannig reyndist það á fyrstu þremur
mánuðum ársins aðeins 38,7%.
„Við erum mjög ánægð með rekstr-
arniðurstöðuna og hagnaður bankans
reyndist 6,8 milljarðar króna. En
kostnaðarhlutfallið er sérstaklega
lágt núna eins og gjarnan hjá okkur á
fyrsta fjórðungi en þá falla m.a. til
tekjur sem bókfærðar eru einu sinni á
ári. Það á m.a. við um ýmsar þókn-
anatekjur.“
Stöðugleiki kominn á
Spurð út í hvað standi upp úr þegar
hún horfi yfir nýliðinn ársfjórðung
segir hún að það sé fyrst og fremst sá
stöðugleiki sem bankinn hafi náð. Það
lúti m.a. að tekjum og einnig rekstrar-
kostnaði.
„Við erum mjög meðvituð um að
mikilvægt er að finna jafnvægið milli
framþróunar og stöðugleika. Okkur
finnst við komin á þann stað núna og
það eru í raun tímamót því allt frá
árinu 2008 höfum við haft til úrlausn-
ar ákveðinn fortíðarvanda sem nú er
hættur að hafa áhrif í bókum bank-
ans.“
Spurð út í hvort bankinn sé með
þessu að boða að hann hafi nú náð
fram þeirri hagræðingu sem mögu-
legt er í kerfinu segir Lilja Björk að
það sé of mikil einföldun á hlutunum.
„Við höldum áfram að hagræða og
þar hafa tækniframfarir sem ég
nefndi hér áður mikil áhrif. Með nýj-
um lausnum gefst tækifæri til þess að
einfalda reksturinn og draga úr
kostnaði á öðrum sviðum. Þannig
tryggjum við að þjónustan haldist góð
á sama tíma og við drögum úr rekstr-
arkostnaði.“
Niðurfærsla eðlileg
Spurð út í horfurnar fram undan
segir Lilja Björk að þær séu almennt
góðar. Þótt bankinn færi nú í fyrsta
sinn neikvæða virðisbreytingu á út-
lánum í bækur sínar sé það ekki óeðli-
legt í hefðbundnu bankaumhverfi.
„Frá hruni hafa þessar færslur allt-
af verið upp á við en núna er þetta að
færast í heilbrigðara horf. Það er hluti
af bankastarfsemi að gera ráð fyrir
útlánatöpum í einhverjum mæli. Við
lágmörkum þau hins vegar með því að
halda þéttu sambandi við viðskipta-
vini okkar og styðja þá í rekstri
þeirra.“
Talsvert hefur verið rætt um þá
áhættu sem fylgi ferðaþjónustunni í
dag og segir Lilja Björk að bankinn sé
meðvitaður um þær áskoranir sem sú
grein standi frammi fyrir.
„Við veljum okkar viðskiptavini
vandlega og höfum t.d. lagt á það
áherslu í hótelverkefnum sem við höf-
um komið að að þar séu vanir aðilar
með þekkingu á hótelrekstri á ferð.“
Þá er ekki úr vegi að spyrja út í ný-
lega lánveitingu bankans til Iceland-
air Group upp á u.þ.b. 10 milljarða
króna þar sem bankinn tók veð í flug-
vélum fyrirtækisins. Getur slík risa-
lánveiting samrýmst sjónarmiðum
um góða áhættustýringu, þegar flug-
geirinn á mjög í vök að verjast.
„Við ræðum ekki um einstaka lán-
veitingar eða viðskiptamenn okkar og
því get ég ekki brugðist við þessari
spurningu nema almennt. Við leggj-
um áherslu á að hafa trygg veð gegn
lánum sem við veitum og við leggjum
sömuleiðis áherslu á að viðskiptavinir
okkar hafi sterka og trausta rekstrar-
sögu og framtíðarhorfur þeirra séu
góðar.“
Landsbankinn opnar fyrstur
fyrir allar tegundir símtækja
Morgunblaðið/Hari
Samspil Lilja Björk segir að í bankastarfseminni þurfi að finna eðlilegt jafnvægi milli framþróunar og stöðugleika.
Sterkt uppgjör á 1. ársfjórðungi Stöðugleiki í rekstrinum að sögn bankastjóra
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrr í vikunni tilkynnti Landsbank-
inn að viðskiptavinir hans gætu nú
nýtt sér greiðslulausnir Apple Pay
sem aðgengilegar eru í verslunum,
snjallforritum og í netverslunum.
Með þessu skrefi varð Landsbankinn
fyrstur íslensku bankanna til að bjóða
viðskiptavinum greiðslulausnir af
þessu tagi fyrir tæki frá Apple og
tæki sem notast við stýrikerfi frá
Android. Bankinn kynnti síðastliðið
haust greiðslulausnir sem byggjast á
síðarnefnda kerfinu, sem símtæki á
borð við þau sem Samsung framleiðir
styðjast við.
Lilja Björk Einarsdóttir, banka-
stjóri Landsbankans, segir þetta mik-
ilvægt skref af hálfu bankans til þess
að nálgast viðskiptavini sína í gegnum
þær leiðir sem aðgengilegar eru á
hverjum tíma.
„Þetta er í samræmi við stefnu okk-
ar um framþróun og snjallari lausnir
sem við viljum bjóða viðskiptavinum
okkar. Við höfum séð tæknina ein-
falda bankaviðskipti til muna og það
hefur m.a. verið mjög áhugavert að
sjá hversu fljótir viðskiptavinir okkar
hafa verið að tileinka sér eins konar
sjálfsafgreiðslu við erlendar milli-
færslur og umsóknir um yfirdráttarl-
án, svo dæmi séu tekin.“
Farsælt að efna til samstarfs
Spurð út í samstarfið við Apple og
hvort bankinn sé ekki að missa spón
úr aski sínum með að ganga inn í sam-
starf við bandaríska tæknirisann seg-
ir Lilja Björk að svo sé ekki.
„Þetta er ein af þeim leiðum sem
við höfum til að þjónusta viðskiptavini
okkar og alls ekki óeðlilegt að leita
samstarfs um það, ekki síst þegar í
hlut á þetta stóra alþjóðlega tæknifyr-
irtæki.“
Viðskiptavinir bankans greiða ekki
sérstaklega fyrir þjónustuna en ljóst
er að Apple gerir hana ekki aðgengi-
lega Landsbankanum að kostnaðar-
lausu.
„Það er rétt að við greiðum fyrir
þessa þjónustu til að greiða fyrir við-
skiptum okkar viðskiptavina,“ segir
Lilja.
Hún bendir á að Apple sé algjör-
lega markaðsráðandi á heimsvísu í
þessum efnum og því gangist Lands-
15-20% afsláttur
af ÖlluM AEG VÖruM OrMssOn
DAGAR
Skoðaðu úrvalið okkar á
*SENDUM FRÍTT Í VEFVERSLUNLágmúli 8 | S: 530 2800 þú færð HeiMilstækin Hjá Okkur
VEGGOFNARHELLUBORÐ ÖRBYLGJUOFNAR
20%
afsláttur
20%
afsláttur
15%
afsláttur
SKOÐAÐU TILBOÐIN OKKAR Á
10. maí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.06 122.64 122.35
Sterlingspund 158.77 159.55 159.16
Kanadadalur 90.5 91.04 90.77
Dönsk króna 18.297 18.405 18.351
Norsk króna 13.9 13.982 13.941
Sænsk króna 12.713 12.787 12.75
Svissn. franki 119.91 120.59 120.25
Japanskt jen 1.1087 1.1151 1.1119
SDR 169.01 170.01 169.51
Evra 136.62 137.38 137.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.2823
Hrávöruverð
Gull 1287.75 ($/únsa)
Ál 1766.0 ($/tonn) LME
Hráolía 69.88 ($/fatið) Brent
Arion banki mælir með kaupum á
bréfum í fasteignafélaginu Regin í
nýju verðmati. Hækkar bankinn
virðismat sitt á félaginu um rúmar
þrjár krónur. Hljóðar virðismats-
gengið upp á 31,5 kr. bréfið en bank-
inn mat félagið á 28,3 kr. við síðasta
mat sem birt var í desember. Reginn
lækkaði 0,85% í Kauphöll í gær í 13
milljóna viðskiptum en markaðs-
gengi þess við lokun markaðar í gær
nam 23,35 kr. Er virðismat Arion
banka því 35% hærra en dagsloka-
gengi Regins í gær. Í virðismati Ar-
ion segir að 10 milljarða tekjumúr
Regins verði að öllum líkindum rof-
inn í ár en þegar félagið var skráð á
markað árið 2012 námu rekstrar-
tekjurnar rúmum fjórum milljörðum
króna. Efnahagsreikningurinn í lok
árs 2018 nam 133 milljörðum króna
og hefur fimmfaldast frá sama tíma.
Segir í virðismatinu að umbreyt-
ingaferli félagsins sé að líða undir
lok og arðsemi félagsins muni þok-
ast upp á við. Þar segir einnig að
reiknað sé með arðsemi upp á 5,1% á
þessu ári m.v. bókfært virði fjár-
festingareigna. Þó sé útlit fyrir að
arðsemi verði minni en hjá keppi-
nautum og ýmislegt þurfi að „ganga
upp svo arðsemin komist á sama
stað og hjá þeim á næstu árum“.
Telja greinendur Arion banka að
markaðurinn verðleggi því „enn
dekkri sviðsmynd inn í rekstur fé-
lagsins en við teiknum upp, jafnvel
þótt við séum talsvert svartsýnni á
reksturinn en rekstrarspár félags-
ins“. peturh@mbl.is
Hækka
verðmat
á Regin
Umbreytingaferli
félagsins að klárast