Morgunblaðið - 10.05.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
✝ Eiríkur Sig-urðsson fædd-
ist í Reykjavík 2.
október 1933.
Hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu Eir
2. maí 2019.
Foreldrar hans
voru Guðrún Egg-
ertsdóttir Norð-
dahl húsmóðir, f.
23. september
1902, lést á hundr-
aðasta og öðru aldursári 2004,
og Sigurður Júlíus Eiríksson
múrari, f. 21. október 1901, d.
1966.
Yngri bróðir Eiríks var
Eggert Sigurðsson bókbindari,
f. 5. febrúar 1940, d. 6. októ-
ber 2018. Eiginkona hans var
Inga Svanþórsdóttir, f. 23.
í sérgrein hans, veðurfræði.
Hann hóf störf á Veðurstofu
Íslands í leyfum og hléum frá
náminu á tímabilinu 1955-1961
en að námi loknu starfaði
hann á Veðurstofunni frá 1963
og allt til sjötugs árið 2003.
Ævistarf hans var því á
Veðurstofunni, fyrst við
veðurspáþjónustu á Kefla-
víkurflugvelli en lengst af við
hafísþjónustu í höfuðstöðvum
stofnunarinnar í Reykjavík.
Hann vann einnig við úr-
vinnslu hafísgagna og samdi
meðal annars einn síns liðs
þrjár viðamiklar skýrslur um
hafís við strendur Íslands árin
1968-1971 og var jafnframt
meðhöfundur margra viða-
minni skýrslna um hafís sem
Veðurstofan gaf út um árabil.
Útför Eiríks fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 10. maí
2019, og hefst athöfnin klukk-
an 11.
júní 1939, d.3.
febrúar 2019.
Dóttir Ingu og
fósturdóttir Egg-
erts er Anna Sig-
ríður Markús-
dóttir, f. 23. mars
1959. Maður henn-
ar er Trausti Þór
Guðmundsson.
Dætur þeirra eru
Inga Karen og
Sara Dögg.
Eiríkur varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1953. Hann hóf síðan nám við
Hamborgarháskóla í Þýska-
landi og lagði þar fyrst eink-
um stund á efnafræði. Að svo
búnu einbeitti hann sér að
öðrum raunvísindagreinum
sem urðu grundvöllur að námi
Mig langar að kveðja frænda
minn Eirík Sigurðsson sem lést í
byrjun maí 2019. Við Eiríkur vor-
um systkinabörn, móðir hans,
Guðrún E. Norðdahl, og faðir
minn, Karl V. Norðdahl, voru
bæði fædd og uppalin á Hólmi sem
er efsta lögbýli Reykjavíkur.
Þau systkini voru alltaf náin og
samgangur mikill á milli fjöl-
skyldna alla tíð. Faðir minn stund-
aði veðurathuganir á Hólmi í ára-
tugi, bæði fyrir sjálfan sig og
Veðurstofuna.
Frá honum drakk Eiríkur í sig
veðuráhuga og varð veðurfræð-
ingur er tímar liðu og lærði fagið í
Þýskalandi.
Ég man eftir löngum og tíðum
samræðum þeirra um veður og
tíðarfar löngu áður en ég komst til
vits og ára og lærði að þekkja
muninn á hæðum og lægðum.
En dauður er dellulaus maður
og hvað er skemmtilegra eða
praktískara en að hafa veðurdellu
á Íslandi?
Mér fannst oft skrýtið að
frændi minn væri ekki sjónvarps
veðurfréttamaður en skildi betur
löngu síðar að Eiríkur var fremur
hlédrægur maður og sóttist ekki
eftir frægð og frama.
Hann sagðist stundum vera
„fastur í hafísnum“ og stundaði
hafísrannsóknir um árabil ásamt
Þór Jakobssyni og starfaði einnig
á veðurstofu Keflavíkurflugvallar,
vann við háloftamælingar og sendi
loftbelgi skýjum ofar sem mér
fannst meira spennandi en ísinn
og kuldinn.
Pabbi var bóndi og fram-
sóknarmaður, las Tímann og var
stoltur af Hriflu-Jónasi. Ég held
að Eiríkur hafi verið dálítið
vinstri róttækur en man ekki að
þeir hafi deilt um pólitík.
Heldur ríkti á milli þeirra ná-
in frændsemi og vinarþel ofar
öllu öðru.
Mér fannst alltaf notalegt
sem barni að koma heim til fjöl-
skyldu Eiríks í Stórholti, heim-
ilið var hlýlega gamaldags og
þar voru bækur um alla veggi,
Eiríkur og mitt fólk hafði bækur
í hávegum.
Foreldrar Eiríks reistu sér
sumarhús í nágrenni Hólms rétt
fyrir stríð, þar áttu bræðurnir
Eiríkur og Eggert sér hjart-
fólginn stað sem enn stendur.
Suðurá rennur lygn og grunn
spölkorn frá, Heiðmörk og Bláfjöll
í baksýn.
Eiríkur giftist aldrei, var miklu
fremur giftur veðrinu og nátt-
úrunni við Sumarhús og Hólm,
fræddi mig um mófugla og Hólms-
hraunin fimm og eldgos, ísaldark-
lappir, misvitra stjórnmálamenn,
veðrið í Þýskalandi, Þórsmerkur-
ferðir, afglöp USA í Víetnam. Ein-
elti á unglingsárum sem tók á
hann en hans samtími aldrei
nægjanlega.
Eftir andlát móður sinnar 2004
bjó hann einn í Stórholtinu, grúsk-
aði í bókum og blöðum, átti ágætt
ævikvöld eftir Veðurstofuna.
Hafði gaman af músík og spilaði á
nikkuna með Félagi harmonikku-
unnenda á mannamótum. Lædd-
ist stundum á grænu Toyotunni
upp á Hólm í spjall og kaffi og í
Sumarhúsin sín.
Þeir bræður voru löngum sam-
rýndir, andlát Eggerts í október
tók mjög á hann og var upphafið
að heilsubresti sem að lokum dró
hann til endalokana.
Eyddi síðustu mánuðum sínum
í hárri elli á Eir hjúkrunarheimili,
sagðist bara vera áhyggjulaus og
slappaði af. Anna Sigga sæi vel um
öll sín mál.
Að lokum vil ég þakka Eiríki
fyrir allt hið góða, hjálpsemi og
ræktarsemi við móður mína og
fjölskylduna á Hólmi.
Ættingjum hans og fjölskyldu
votta ég samúð að leiðarlokum og
kveð minn kæra frænda, hvíl í
friði.
Valur Þór Norðdahl.
Eiríkur Sigurðsson
Fleiri minningargreinar
um Eirík Sigurðsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ Ólöf Vilhelm-ína Ásgeirs-
dóttir fæddist 28.
júlí 1935. Hún lést
30. apríl 2019.
Kjörforeldrar:
Ásgeir Eggertsson
sjómaður og kenn-
ari á Húsavík, f. 5.5.
1889, d. 1.2. 1965,
og Guðrún Pálína
Þorleifsdóttir, f. á
Holtum í Hornafirði
1.5. 1890, d. 19.8. 1986.
Blóðforeldrar: Járnbrá Jóns-
dóttir frá Húsavík, f. 22.12. 1907,
d. 23.9. 1956, og Björgólfur Sig-
urðsson frá Vopnafirði, f. 5.4.
1908, d. 4.4. 1953.
Systkini Ólafar í aldursröð:
Jón Gunnar Sigfús Björgólfsson,
f. 29.9. 1931, d. 19.4. 1971; Gunn-
hildur Björgólfsdóttir, f. 24.12.
1937, d. 29.12. 2015; Erla Vil-
borg Björgólfsdóttir, f. 25.3.
1940, d. 28.1. 2016; Daníel Sævar
Elísabetar Láru Aðalsteins-
dóttur: Valdimar Tómas, f. 15.6.
2012, og Sara Dís, f. 28.12. 2017.
Barn Sigríðar Ólafar og Karls
Más Lárussonar: Tómas Már, f.
30.7. 2017.
Seinni eiginmaður: Sigurður
Sigmarsson Þormar, bygginga-
verkfræðingur hjá Reykjavíkur-
borg, f. 10.1. 1923, d. 20.9. 2004.
Barn þeirra Sigríður Björk Þor-
mar, f. 29.8. 1970. Börn Sigríðar
og Björns Einarssonar: Sigurður
Hrannar, f. 26.12. 1993, og Tóm-
as Atli, f. 6.6. 2000.
Ólöf flutti frá Húsavík til
Reykjavíkur 1959 og bjó fyrstu
árin á Hörpugötu 13 í Skerja-
firði. Síðar á Álfaskeiði 74 í
Hafnarfirði. Lengst af bjó hún í
Hvassaleiti 71 í Reykjavík, en
síðustu árin í Hæðargarði 34.
Á Húsavík starfaði Ólöf á
síldarplani og sem aðstoðarkona
við hjúkrun á sjúkrahúsinu.
Eftir flutninginn til Reykjavíkur
starfaði Ólöf meðal annars um
árabil sem afgreiðsludama í
tískuvöruversluninni Bernhard
Laxdal í Kjörgarði.
Útförin fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 10. maí 2019,
klukkan 13.
Jónsson, f. 1.9.
1943, d. 25.2. 2019;
Ólafía Jónsdóttir, f.
10.6. 1945, d. 23.9.
2014; Kristín
Andrésdóttir, f.
21.2. 1949.
Fyrri eigin-
maður: Helgi Þröst-
ur Valdimarsson,
læknir og prófess-
or, f. 16.9. 1936, d.
6.8. 2018. Börn
þeirra: Ásgeir Rúnar, f. á Húsa-
vík 5.11. 1957. Börn Ásgeirs og
Sigrúnar Margrétar Proppé:
Hugi Hrafn, f. 12.11. 1988, og
Arnaldur Muni, f. 26.3. 1991.
Sammæðra Huga og Muna: Elfa
Ýr Gylfadóttir, 24.11. 1971.
Valdimar, f. í Reykjavík 22.12.
1962. Börn Valdimars og Helenu
Margrétar Jóhannsdóttur: Helgi
Már, f. 25.4. 1984; Sigríður Ólöf,
f. 31.12. 1993, og Jóhann Daði, f.
29.2. 2004. Börn Helga Más og
Með þessum orðum kveð ég
elsku tengdamóður mína.
Ég var á unglingsaldri þegar
ég kom fyrst í Hvassaleiti 71, á
heimili kærasta míns og núver-
andi eiginmanns.
Þar var mér strax tekið eins
og ég væri ein af fjölskyldunni,
ekki síst vegna þess hve Ólöf
tók mér opnum örmum. Olla
sýndi mér alla tíð einstaka hlýju
og vinsemd. Hún var mikil fé-
lagsvera og ræktaði vel samband
sitt við vini enda var hún vin-
mörg.
Hún var skilningsrík og næm
á líðan annarra og kunni vel þá
list að hlusta. Hún sat aldrei á
skoðunum sínum og oftast var
stutt í húmorinn.
Það var ljúft að sækja hana
heim en ég fékk óspart að heyra
það ef ég hafði ekki komið lengi
eða trassað að hringja.
Alltaf mátti leita til Ollu í ein-
lægt spjall, helst undir fjögur
augu. Nema kannski fyrir há-
degi. Mér skildist fljótt að það
væri ekki hennar besti tími dags-
ins.
Smám saman varð samband
okkar náið og óvenju traust enda
Ollu eiginlegt að vera bæði rækt-
arsöm, trú og trygg. Stundum
hafði hún á orði að ég gæti allt
eins verið hennar eigin dóttir.
Ég var sérlega heppin með
tengdamömmu.
Olla sagði mér óhikað frá
trúarreynslu sinni og þeirri sann-
færingu sem hafði hjálpaði henni
í lífinu. Í erfiðum veikindum und-
ir það síðasta var hún æðrulaus
og örugg um að annað betra tæki
við eftir þessa jarðvist. Þá kom
styrkur hennar klárlega í ljós.
Þær eru margar minningarnar
eftir 40 ára samfylgd.
Eftir situr þakklætið fyrir
sanna vináttu.
Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan
kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara
himins og jarðar.
(Davíðssálmur 121)
Helena Margrét
Jóhannsdóttir.
Ég á margar hlýjar minningar
úr Hvassaleitinu þar sem amma
átti heima. Amma var algjör
glingurkona og kallaði ég hana
stundum gull-ömmu. Hún átti
nefnilega heilan helling af skart-
gripum og öðrum gersemum. Ég
dáðist að öllum fallegu mununum
hennar. Sem dæmi var hún með
kristalsljósakrónur heima hjá sér
og voru það flottustu ljósakrónur
sem ég hafði nokkurn tímann
séð.
Stundum settumst við amma
saman og skoðuðum skartgripina
hennar og þá sagði hún mér sög-
una á bak við hvern og einn
þeirra. Það kom svo fyrir í nokk-
ur skipti að hún leyfði mér að
taka skartgrip með heim og það
þótti mér sérstaklega gaman.
En það sem við amma áttum
fyrst og fremst sameiginlegt var
að við vorum báðar miklir dýra-
vinir. Frá því að ég fæddist og
þar til ég var orðin u.þ.b. 9 ára
gömul átti amma hund sem hét
Krummi. Krummi var minn besti
vinur þar til hann dó og tengdi
hann okkur mikið saman. Ég veit
að henni þótti voðalega vænt um
þessi sérstöku tengsl okkar
Krumma, en hún lét mig oft vita
af því að Krummi fagnaði engum
jafn innilega eins og þegar hann
tók á móti mér.
Frá því að ég man eftir ömmu
átti hún alltaf hund, nema síðustu
árin því þá var hún orðin of veik-
burða. Það þótti henni afar erfitt
því hún fékk mikinn félagsskap
af dýrum.
Amma átti ekki auðvelt síðasta
árið. Ég veit að núna er hún
komin á betri stað. Takk, amma
mín, fyrir allar samverustundirn-
ar sem við áttum saman.
Sigríður Ólöf
Valdimarsdóttir.
Ólöf Vilhelmína
Ásgeirsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELSA JÓNA THEÓDÓRSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 14. maí
klukkan 15.
Hjalti Garðar Lúðvíksson Ólafía Jóna Eiríksdóttir
Theódór Lúðvíksson Elísabet Jóhannsdóttir
Sigríður E. Laxness Paolo Turchi
Halldór E. Laxness Kristin McKirdy
Margrét E. Laxness Þórmundur Bergsson
Einar E. Laxness Steinunn Agnarsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞURÍÐUR R. H. SIGFÚSDÓTTIR
HALLDÓRS,
lést miðvikudaginn 8. maí á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal.
Jóhannes St. Brandsson
Sigfús Jóhannesson Theresa A. O'Brien
Guðrún Jóhannesdóttir Þ. Daði Halldórsson
Stefán H. Jóhannesson Árný Lúthersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg
BETTY BERJOUHI NIKULÁSDÓTTIR,
fyrrverandi menntaskólakennari
við Menntaskólann við Hamrahlíð
lést föstudaginn 3. maí eftir langvinn
veikindi. Útför hennar fer fram frá
St. Garabed Armenian Apostolic Church, Los Angeles,
laugardaginn 11. maí kl. 11.30 og greftrun í Forest
Lawn-Hollywood Hills. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
ARS Sepan Chapter Salpe Hatzbanian Saturday School í
Glendale, Kaliforníu (http://arswestusa.org/donate).
Fari hún með friði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Árnason
Ara Oshagan
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
bróðir og mágur,
GUÐMUNDUR PÁLSSON
tæknifræðingur,
Hrísmóum 7, Garðabæ,
lést mánudaginn 6. maí.
Hann verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 16.
maí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðbjörg María Jóelsdóttir
Arnfríður María Guðmundsdóttir
Kristín Pálsdóttir Magnús Ingvarsson
Gissur E. Pálsson
Hjálmar Jóelsson Erla Salómonsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGA JÓHANNSDÓTTIR,
Borgarbraut 65a,
Borgarnesi,
andaðist í Brákarhlíð fimmtudaginn 2. maí.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju
fimmtudaginn 16. maí klukkan 14.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Brákarhlíðar, sjá heimasíðu www.brakarhlid.is
Auðunn Bjarni Ólafsson Sigurjóna Högnadóttir
Bryndís Ólafsdóttir Jón Bergmann Jónsson
Kristmar Ólafsson Íris Hlíðkvist Bjarnadóttir
Magnús Þ. Ólafsson
Ólafur Ingi Ólafsson Björk Guðbjörnsdóttir
Þröstur Þór Ólafsson Eydís Líndal Finnbogadóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
KARÓLÍNA BENEDIKTSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést á heimili sínu í Kópavogi þriðjudaginn
23. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Við þökkum auðsýnda samúð.
Sæmundur Guðlaugsson
Díana Dögg Sæmundsdóttir Sigurður Brynjólfsson
Emilía Ýr Sigurðardóttir
Brynjólfur Nökkvi Sigurðsson
Sæmundur Breki Sigurðsson